Our Time is Now

Our Time is Now (Vår tid är nu)

下載 Icelandic 字幕

第 1 季

發布資訊

Var Tid Ar Nu S01 NORDiC 1080p WEB H264-EGEN
由 Hallow 評論 Hallow

標籤

webdl
發布於: 2026-02-01
下載次數: 60
聽障人士: No
FPS: 25

Icelandic字幕預覽

前 200 行。

-Það er ekki nóg að gera. -Breyttu staðnum í bistró.

Kannski þarf að létta andrúmsloftið.

-Hvað ætlar þú að gera, Nina? -Mig langar að opna klúbb hérna.

Nei, hættið þessu nú. Eins og skot.

Peter og Nina vilja láta reyna á nýjar hugmyndir.

Peter er fullkominn í augum mömmu. Hún tók Suzanne meira að segja í sátt.

Það getur ekki verið.

Ég kom til að hitta þig.

-Langar þig ennþá í bíó? -Auðvitað.

Þetta er ekki unnusti minn.

-Ég dreg þetta af laununum. -Það er fáránlegt.

Ég er frá verkalýðsfélaginu. Þetta er Maggan frá Kjallaranum.

Til hamingju með árangurinn. Nú vantar bara Suzanne.

Gættu þess að þú verðir ekki rændur henni verði ekki stolið frá þér.

Hvað veit hann um þig? Veit hann um okkur Söruh og Jérome?

Ég þarfnast þín.

10 MÁNUÐUM SÍÐAR

-Við gerum þetta á hverju ári. -Við mætum.

Þetta er síðbúðin trúlofunarveisla.

Allt getur gerst í vatnakrabbaveislu í sumarbústaðnum hjá Ninu.

-Það gæti verið áhyggjuefni. -Hlustaðu ekki á hann.

Ég þarf að segja Stickan frá gestafjöldanum.

Ég verð enga stund.

Sæl verið þið. Góða skemmtun í kvöld.

-Hljómsveitin er allt of hávær. -Ég heyri varla í henni.

-Fannst ráðherranum sandhverfan góð? -Já, hún var ljúffeng.

-Hversu lengi spilar hljómsveitin? -Of lengi. Leitt að hún skuli angra þig.

Þvert á móti. Ungu vini mína langar að dansa áður en þau fara.

-Erlander ráðherra. -Gott kvöld.

Þetta er Peter Löwander sem rekur veitingastaðinn.

-Hann útvegaði okkur borð. -Hér er alltaf borð fyrir ráðherrann.

-Hún er mjög fær. -Takk, hún er verðandi eiginkona mín.

-Það er ekkert annað. Til hamingju. -Takk.

Viltu taka á móti þeim, Gustaf?

Ég vona að þið njótið kvöldsins.

NÚ ER VOR TÍÐ

7. ÞÁTTUR VATNAKRABBAVEISLA

Við skulum gera ráð fyrir 25 manns þótt hugsanlega mæti færri.

Það er fínt.

-Viltu hafa jarðarberjaköku? -Já takk.

Ég bið Ethel að sjá um hana.

Calle sér um fiskinn. Hann er laginn að elda vatnakrabba og síld.

Einmitt.

Hann kemur á staðinn og sér til þess að allt sé eins og það á að vera.

Allt í lagi.

-Er það ekki í lagi? -Jú, allt í lagi.

Sælar.

Fékkstu bækling frá verkalýðsfélaginu?

Það aðstoðar við samninga um vinnuaðstöðu og launakjör.

Varstu búin að sjá þetta, Ethel? Mér líst vel á þetta.

Já, en veitingastjórinn er ekki hrifinn af verkalýðshreyfingu.

Kannski ekki veitingastjórinn en hugsanlega bróðir hans.

Vonandi er það rétt hjá þér.

Margt af þjónustufólkinu í félaginu og nú er komið að ykkur í eldhúsinu.

-Það var fullbókað í allt kvöld -Það er gott að heyra.

-Og líka fullt út úr dyrum í klúbbnum. -Mér heyrðist það.

Ég ætla til Gautaborgar í næstu viku að skoða grill.

-Af hverju? -Við gætum haft áhuga á því.

-Er pláss fyrir það í eldhúsinu? -Það verður ekki þar.

-Það verður í veitingasalnum. -Hérna inni?

Eggert og Riche gerðu það og gestirnir hafa gaman af því.

Við ræðum þetta þegar þú kemur frá Gautaborg. Bless.

Steikarbrælan verður hér yfir öllu.

Ég þarf að sjá hvernig Eggers fer að. Ég held þeir séu með viftu.

Við getum sett viftu á vegginn og leitt loftið út að aftaverðu.

Breiðum segldúk yfir gestina svo fitan leki ekki á fötin þeirra.

Sjáum hvað setur.

Sæl elskan. Tage Erlander var yfir sig hrifinn af píanóleiknum.

-Takk. Hver er hann. -Bara ráðherra.

-Takk fyrir kvöldið. -Takk sömuleiðis.

Manstu eftir manninum sem Goldstein hitti?

Finndu út hvar hann býr og hvar hann vinnur.

-Hvernig á ég að finna hann? -Þú finnur út úr því.

Þú átt leik.

-Þetta er tilbúið. -Takk.

-Hvað skulda ég þér? -Ekki neitt.

-Láttu ekki svona. Hvað kostar þetta? -Þú ert alltaf að aðstoða mig.

-Eitthvað fyrir ómakið. -Reyndu ekki að tjónka við hana.

Þakka þér kærlega fyrir.

-Ég þarf að fara. Klárum þetta síðar. -Ég vann.

Ég þarf líka að fara. Takk aftur. -Það var nú lítið.

-Bless Lelle. -Bless.

-Mamma þín er svo indæl. -Þú laðar fram það besta í henni.

Ég er ekki viss.

Þessar gráu.

Áttu þær aðeins minni?

Við Ebba Rehnskiöld ætlum að hittast og ræða brúðkaupið.

Brúðkaupið mitt?

Hún veit kannski meira en ég. Þú hefur ekkert sagt mér.

-Dagsetningin er ákveðin. -Fyrir utan hana.

Þetta er enn dálítið í lausu lofti.

Þetta er fallegt.

Þetta er heilmikið mál. Þú hefðir átt að byrja undirbúninginn í vor.

Mikið er ég heppin að þú byrjaðir að undirbúa brúðkaupið þegar ég fæddist.

það er búið að vera mikið að gera, bæði í klúbbnum og hjá Erik.

Við erum ekki búin að ræða þetta út í hörgul.

En fallegar.

Ætlið þið að vera í Oscars-kirkju og veislusalnum þar?

Ég reikna með því.

Ég ætla að fá tólf, takk.

Ég segi Ebbu það. Hún er orðin óróleg, tilvonandi tengdamamma þín.

Í Kjallaranum höfum alltaf hlúð vel að starfsfólkinu okkar.

Ef vandamál koma upp tek ég strax á þeim og leysi þau.

Þess vegna eru það vonbrigði að finna svona lagað á veitingastaðnum.

Kommúnistaáróður.

Hver ykkar er að dreifa þessu?

Ég, veitingastjóri.

Eru fleiri í verkalýðsfélaginu? Réttið upp hönd.

Það er lögvarinn réttur okkar að ganga í verkalýðsfélag.

Komdu með mér inn á skrifstofu.

Þið hin megið fara aftur að vinna.

-Þú kemst ekki upp með þetta. -Við megum vera í verkalýðsfélagi.

Verkalýðsfélagið hefur ekkert að gera með þennan veitingastað.

-Ef veitingastjórinn ... -Ekki orð um það meir.

-Við viljum enga kommúnista hér. -Ég er ekki kommúnisti.

-Víst. -Það er óþarfi að vera dónalegur.

Það er engin þægileg leið til að segja þetta: Þú ert rekin.

-Veitingastjórinn getur ekki gert þetta. -Sannaðu til.

-Bróðir þinn er líklega ósammála þessu. -Peter er að heiman.

Auk þess er þetta starfsmannamál og kemur honum því ekki við.

Jæja.

Ætlar þú sjálf út eða þarf ég að láta henda þér út?

Maggan. Hvað sagði hann?

Hann rak mig.

Lögin eru þín megin. Við sjáum til þess að þú fáir starfið þitt aftur.

Ég fann nýja félagsmenn og nú skalt þú styðja mig.

-Voru fleiri reknir? -Ekki svo ég viti.

Við viðurkenndum bara tvær aðild að verkalýðsfélaginu.

Fólk er hrætt. Skiljanlega.

Ég tala við Löwander á morgun og bið um fund með honum.

Taktu þetta líka.

-Er þetta ekki Calle? -Jú.

-Hvað segirðu? -Allt gott.

-Calle er aðstoðarmaður í eldhúsinu. -Ég er orðinn kokkur.

Þú dregur mat um skerjagarðinn eins og aðrir aðstoðarmenn.

-Góða skemmtun í kvöld. -Takk. Skildu töskuna eftir í salnum.

Þau hafa ekkert hugað að smáatriðum en þannig er víst ungt fólk nú til dags.

Engar áhyggjur. Þetta verður stórfínt.

Takk. Ég hef engar áhyggjur.

Hjónavígslan verður í Oscars-kirkju og veislan í Kjallaranum.

Þá hefur orðið einhver misskilningur.

Nú?

Allir í okkar fjölskyldu gifta sig í kastalakapellunni okkar á Skáni.

-Í kapellu í kastala? -Já, í Graveholms-kastala. Köku?

Nei takk.

Brúðkaupsveislan verður í kastalanum. Það er einstaklega hentugt.

-Gestirnir gista í annarri álmunni. -Mér þykir þú segja fréttir.

Við fáum úrvals kokka frá Savoja og matseðillinn er næstum tilbúinn.

Nina hefur ekkert minnst á þetta.

Þetta er fjölskylduhefð síðan á 17.öld og ástæðulaust að rjúfa hana.

-Ég hef aldrei kynnst þvílíku yfirlæti. -Nú?

Í þessari fínu fjölskyldu eru hefðir sem ekki má breyta út af.

Veislan getur ekki verið hér því hér er bæði dansað og borðað.

Brúðkaupið verður í kastalanum hennar

og veitingarnar í höndum úrvals kokka frá Savoja.

Þessi Ebba Rehnskiold er ekki jafn fáguð og hún vill vera láta.

Hún giftist upp fyrir sig. Baróninn fann hana á dansstað í Berns.

-Er það svo? -Þetta vakti hneykslan á sínum tíma.

-Má ég eiga við þig orð? -Ég er ekki vel að mér í sænsku.

Á ég að ná í yfirmanninn?

-Talar þú þýsku? -Nei, frönsku.

Þekkir þú Suzanne Goldstein?

-Hver ert þú? -Gustaf Löwander.

Hvað varðar þig um hvern ég þekki?

-Suzanne er trúlofuð bróður mínum. -Já.

-Ég veit að þið hafið hist. -Það er ekki rétt.

Ég hef ekki hitt hana lengi.

-Eigið þið í sambandi? -Því fer fjarri.

Hvers vegna hittust þið þá?

Suzanne er konan mín.

-Ég trúi þér ekki. -Það er satt.

Ég sagði þér að hún væri trúlofuð bróður mínum.

Við giftumst fyrir stríð.

Við vorum skilin að í einangrunarbúðunum.

Hún hélt að ég væri dáinn.

-Veit bróðir minn eitthvað um þetta? -Nei.

Ég ónáða hana ekki frekar.

Við erum að skilja. Ég held mig til hlés.

Gerðu það, ekki segja bróður þínum neitt.

Ekki mín vegna, heldur vegna Suzanne.

Takk fyrir hreinskilin svör.

90-84-63.

- Þetta er Philippe. -Þú lofaðir að hafa ekki samband.

-Bróðir Peters kom að finna mig. -Gustaf?

-Af hverju? -Hann veit að við hittumst.

-Hvernig má það vera? -Ég veit það ekki. Ég bað hann að þegja.

-Hvað vildi hann? -Ekkert. Hann fór bara.

Mér þykir þetta leitt, Suzanne.

Takk fyrir.

Viltu endurskoða hug þinn um staðsetningu brúðkaupsins?

Kjallarinn er ekki jafn slæmur og þú heldur.

-Má bjóða þér eitthvað úr eldhúsinu? -Ég stend við það sem ég sagði.

Börnin ákveða þetta og okkur ber að virða ákvörðun þeirra.

Svo framarlega sem þau virða fjölskylduhefðir okkar.

-Þetta er ekki skynsamlegt. -Þetta snýst um orðstí fjölskyldunnar.

Þá ætti Kjallarinn að vera viðeigandi.

-Hvað áttu við? -Á þessum veitingastað er dansað.

-Þú ættir að kannast við slíka staði. -Ég skil ekki hvað þú ert að fara.

-Ég veit um fortíð þína. -Ég fæddist og óst upp í Graveholm.

-Þú dansaðir í Berns þegar þú varst ung. -Það er alrangt.

More Icelandic subtitles for Our Time is Now

評論

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left