İlk 200 satır.
Hinir stökkbreyttu. Síðan tilvera þeirra uppgötvaðist
hafa menn litið þá tortryggni, óttast þá og jafnvel hatað.
Skiptar skoðanir eru á meðal jarðarbúa.
Eru hinir stökkbreyttu næsti hlekkurinn í þróunarkeðjunni
eða ný tegund manna sem berst fyrir að fá að deila heiminum?
En sagan sýnir
að vilji til að deila telst ekki meðal einkenna mannkynsins.
"Við erum vinir. Við skulum ekki vera óvinir."
"Þótt reynt hafi á vinaböndin mega þau ekki bresta."
Þetta sagði Lincoln í upphafsræðu sinni sem 16. forseti þjóðarinnar.
Hún er ein af mínum eftirlætisræðum.
Hafið miðana tilbúna og við getum hafið kynnisferðina.
Afboðaðu fundi í kvöld. Ég ætla að borða með syni mínum.
Já, herra forseti.
Afsakið. Ertu villtur?
Óboðinn gestur í móttökunni.
Það eru fleiri en einn.
Öryggisreglur eru brotnar. Fylgið honum í bílinn
Útgönguleiðir ekki öruggar.
Báðar hliðar öruggar.
- Það er eitthvað á ganginum. - Í skjólið!
Leiðin er ekki örugg!
- Það er fyrir utan skrifstofu forsetans. - Lokið öllum dyrum!
Ekki skjóta!
Hjálpi mér!
FRELSI FYRIR STÖKKBREYTTA
IÐNAÐARSTÖÐIN VIÐ ALKALI-VATN
Neanderdalsmaðurinn. Talið var að hann hefði dáið út
í baráttu við þróaðri kynþátt sem kallast krómagnonmaður.
Nýlegar rannsóknir á genum okkar sýna að þessir menn
gætu hafa samlagast og nýr kynstofn þróast. Nefnilega...?
- Við. - Það er rétt.
Artie.
Ekki hérna.
Svona. Fylgstu með.
Ég þoli ekki þegar hún gerir þetta.
Á hvað ertu að horfa? Heimski...
Í skjólið!
Þeir drepa hann!
Er allt í lagi?
Já.
Ég er bara með höfuðverk.
Það er ekki bara höfuðverkur.
Ég vissi ekki hvernig ég ætti að orða það en eftir atvikið á Frelsiseyju...
- Scott. - hefurðu breyst.
Ég hef misst fjarskyggnina. Ég get ekki einbeitt mér. Ég heyri allt.
Það er ekki bara það. Fyrir mánuði þurftirðu að einbeita þér til að láta bók eða stól svífa.
Þegar þú færð martröð titrar herbergið.
Draumarnir verða sífellt hræðilegri.
Mér finnst eins og eitthvað hræðilegt muni gerast.
Ég léti aldrei neitt henda þig.
Hefurðu séð Bobby og Tófu?
Það er eitthvað á seyði í matsalnum.
- Hann spurði þig spurningar. - Því læturðu eins og asni?
Af því ég get það.
Áttu eld?
- Því miður. - Láttu ekki svona.
Hættu að monta þig.
- Það er ekki mín sök að kærastan þín æsist. - Hún æsist ekkert.
- Við erum að skemmta okkur. - Þú ert sá eini.
En sniðugt.
Hvað ætlarðu að gera?
Nú ertu ekki mikið hörkutól.
Hvað gerðirðu?
Ég gerði þetta ekki.
Ég gerði það.
Næst þegar þú vilt monta þig skaltu sleppa því.
- Nýjar fréttir. - Við erum í beinni frá Washington.
Hér í Washington var gerð árás á skrifstofu forsetans.
Forsetann og varaforsetann sakaði ekki.
Vitni segja stökkbreytta hafa staðið fyrir árásinni.
- Við ættum að fara. - Ég er sammála.
SKÓLI XAVIERS FYRIR HÆFILEIKARÍK UNGMENNI
- Ég held að Segull standi á bak við þetta. - Ég held ekki.
Eric gæti skipulagt þetta úr fangelsinu
en það bryti í bága við markmiðin um velferð stökkbreyttra.
- Áttu við yfirburði? - Ef Eric fengi að ráða.
Ríkisstjórnin mun taka skráningarfrumvarpið fyrir aftur.
Eða þá að forsetinn gæti lýst yfir neyðar- ástandi og látið handtaka alla stökkbreytta.
- Hefur tilræðismaðurinn verið einn að verki. - Við vitum það ef við náum honum fyrst.
Ég hef fylgst með honum með aðstoð Cerebro en ferðir hans eru stefnulausar.
Þegar ég fæ nákvæmari staðsetningu farið þið, Drífa og Jean, og sækið hann í þotunni.
Þú varst hætt kominn.
Menn hafa ekki viðurkennt það.
- Hvað vantar þig? - Leyfi fyrir sérstakri aðgerð.
Nei, takk.
Ég hélt þú vildir ræða endurbætur í skólum.
Gaman að þú skulir nefna það.
- Þingmaður. - Takk fyrir að ræða við mig, forseti.
- Kelly þingmaður, William Stryker ofursti. - Sæll
Deild hans byrjaði að fást við stökkbreytta áður en ég hóf störf.
Þú varst dyggur stuðningsmaður skráningarfrumvarpsins.
Skoðanir þínar á þeim vanda virðast hafa breyst.
Vonandi til hins betra. Hvað leggurðu til?
Má ég, herra forseti?
Við höfum upplýsingar um þjálfunarbúðir stökkbreyttra
í norðurhluta New York.
Hvaðan koma þær upplýsingar?
Frá yfirheyrslum yfir stökkbreyttum hryðjuverkamanni eftir atvikið á Frelsiseyju.
- Eric Lensherr? Hefurðu aðgang að honum? - Segla, já.
Við þróuðum tæknina sem plastfangelsið hans byggist á.
- Þetta er skóli. - Auðvitað.
- Hvað er þetta? - Þota.
- Hvers konar þota? - Við vitum það ekki.
Hún kemur upp af körfuboltavellinum.
Hefðum við fengið að sinna störfum okkar fyrir atvikið...
Gott og vel.
Þú mátt fara og handsama þá og yfirheyra
en ég vil ekki sjá lík stökkbreytts barns í kvöldfréttunum.
- Herra Stryker? - Kelly þingmaður.
Þetta er Yuriko aðstoðarmaður minn.
- Þú hefur þétt handtak. - Hvað get ég gert fyrir þig?
Mig langar að heimsækja fangelsi Erics Lensherr.
Það er enginn húsdýragarður.
Hann er óvinurinn í þessari baráttu, þú ert áhorfandi. Sittu hjá í þetta sinn.
Baráttu? Viltu að þetta verði stríð?
Ég stýrði njósnaflugvélum í Víetnam
á meðan þú saugst brjóst í Woodstock.
Engar predikanir um stríð. Það er þegar byrjað.
- Það er úti um þig. - Nei, þig.
Ég vil ekki meiða þig.
Ég er ekki hræddur.
Logan!
Saknaðirðu mín?
Ekki mikið.
- Hvernig líður þér? - Ágætlega.
- Hver er þetta? - Þetta er Bobby.
Ég er kærastinn hennar.
Ég er kallaður Ísmaður.
Einmitt.
Kærasti? Hvernig...
Við erum að vinna í því.
Sjáið hver er kominn. Einmitt í tæka tíð.
Fyrir hvað?
- Okkur vantar barnfóstru. - Barnfóstru?
Gaman að sjá þig aftur.
Sæll, Logan.
Sæl, Jean.
Ég fer og undirbý þotuna.
Gaman að kynnast þér.
- Förum. - Sjáumst seinna, Logan.
Við Drífa förum til Boston. Við verðum ekki lengi.
Prófessorinn vill að við finnum þann stökkbreytta sem réðst á forsetann.
Það var þá stökkbreyttur.
Þú verður hér þegar við komum aftur, nema þú látir þig hverfa aftur.
Ég get fundið mér ástæður til að vera um kyrrt.
Fannstu það sem þú leitar að?
Nokkurn veginn.
Við sjáumst seinna.
- Farðu varlega. - Vertu sæll.
Sjáumst seinna.
Ætlarðu ekki að bjóða mig velkominn?
Hjólið þitt er bensínlaust.
Fylltu tankinn.
FYRRVERANDI OG TILVONANDI KÓNGUR
Hvað getur þetta haldið áfram lengi?
- Hvað fékkstu langan dóm? - Til eilífðar.
Þetta þarf ekki að vara að eilífu. Bara þar til ég fæ það sem mig vantar.
Fallegt af þér að heimsækja mig.
Ertu að athuga hvort ég hafi það náðugt á kostnað skattborgara?
Því er lokið. Þú mátt fara.
Herra Lensherr...
Mig langar að ræða
um húsið sem Xavier byggði og vélina sem kallast Cerebro.
Ég leyfi þér að reykja í höllinni
en haldirðu áfram að reykja hér inni mun þér líða eins og lítilli telpu það sem eftir er.
- Myndirðu gera það? - Ég léti Jean flétta hárið á þér.
Velkominn aftur.
- Á ég að fara? - Nei. En hreyfðu þig ekki.
Ljósin tákna allar lifandi mannverur á jörðinni.
Hvítu ljósin eru menn.
Þessi eru stökkbreyttir einstaklingar.
Ég tengist þeim í gegnum Cerebro og þeir tengjast mér.
Sjáðu til, Logan?
Við erum ekki eins einangruð og þú heldur.
Ég fann stöðina við Alkali-vatn. Þar var ekkert.
Brotna línan sýnir leið þess stökkbreytta sem réðst á forsetann.
Það var erfitt að staðsetja hann.
Geturðu ekki einbeitt þér betur?
Ef ég vildi drepa hann.
Þarna!
Hann virðist loks vera hættur að flýja.
Ég vil að þú lesir hugsanir mínar aftur.
- Niðurstöðurnar verða þær sömu. - Við sömdum.
Hugurinn er ekki box sem má opna og loka að vild. Uppbygging hans er flókin...
Engan fyrirlestur.
Ég er viss um að minnistap þitt, stálhörð beinagrindin og klærnar er allt tengt
en stundum þarf hugurinn að vinna sjálfur.
Við tölum saman þegar ég kem aftur.
Ef þú myndir gæta barnanna í kvöld
förum við Scott að heimsækja gamlan vin.
Ég sendi þér upplýsingar um staðsetningu þess stökkbreytta.
Finnið hann og farið með hann á setrið.
- Við vonum að hann verði samvinnuþýður. - Hans vegna, já. Gangi þér vel.
Stryker, Willliam.
AÐGANGUR VEITTUR
YFIRÖRYGGISSVIÐ
PRENTUN
AÐGERÐARSTÖÐ
STAÐSETNING: LEYNILEG
No comments yet. Be the first to leave one.