முதல் 200 வரிகள்.
NÝTT TUNGL
Svo bráðri gleði er búinn bráður voði,
hún deyr af sælu svo sem blossi og tundur
sem farga sér í kossi.
Amma?
Hún sér þig, Edward.
Allt í lagi.
Amma, má ég kynna...
Til hamingju með afmælið, Bella.
Til hamingju með afmælið.
Ég vildi engar gjafir.
Gjöfin frá mér er ekki innpökkuð og telst ekki með.
Æðislegt. Takk, pabbi.
Hún tengist gjöfinni frá móður þinni, við réðum ráðum okkar.
Eða hún réði ráðum mínum.
Þetta er fyrir myndirnar frá lokaárinu þínu.
Lokaárið.
Þú eldist svo fljótt.
Ég er ekkert voðalega gömul.
Er þetta grátt hár?
Nei, glætan.
Til hamingju með afmælið.
Þetta var fyndið.
Eftir hvarf göngumannsins eru nú þrír taldir af.
Lögreglan leitar að villidýrinu.
Þetta er Bella. Sæl, Bella.
Þetta er stóri dagurinn.
Ritgerðin um R og J.
Einmitt.
Hví ertu Bella?
Leyfið mér að taka mynd af ykkur.
Mamma vill að ég setji saman minningabók.
Ég tek myndir en sit ekki fyrir.
Lagarðu nefið á mér ef það verður of stórt?
Ég verð á myndinni. Enginn tekur eftir ykkur.
Glæsilegt.
Frábært, Cullen er kominn.
Jibbí.
Heyrumst síðar.
Til hamingju með afmælið. -Ekki minna mig á það.
Fæðingu þinni ber að fagna.
Já, en ekki aldrinum.
Aldrinum?
Það er of snemmt að hafa áhyggjur af því 18 ára.
Nú er ég ári eldri en þú.
Nei, ég er 109 ára.
Ég ætti ekki að vera á föstu með gamlingja. Það er ógeð.
Ég ætti að fyllast viðbjóði.
Við þurfum að fara í tíma.
Allt í lagi.
Bíddu aðeins.
Einhver vill ræða við þig.
Bella.
Jacob.
Ég Læt ykkur ein.
Halló, vöðvatröll. Þú veist að sterar eru óhollir.
Ég er bara að þroskast.
Þú tækir ekki eftir þessu ef við hittumst oftar.
Þú ættir að skipta um skóla og hanga með bleiknefjunum.
Ég er sáttur við inntöku- skilyrði verndarsvæðisskólans.
Hingað kemst hvaða Lýður sem er.
Því kemurðu hingað í ræsið?
Ég keypti varahlut í bílinn.
Þú ættir að koma í bíltúr þegar hann verður tilbúinn.
Er hann hraðskreiður?
Hann er þokkalegur.
Þú ert að grínast. -Allt í lagi.
Til hamingju með afmælið.
Pabbi þinn sagði pabba mínum...
Auðvitað.
Ég sá þetta um daginn og mér varð hugsað til þín.
Þetta grípur vonda drauma.
Þetta er eiginlega fullkomið.
Þakka þér fyrir.
Ekkert mál.
Gaman að sjá þig. -Sjáumst.
Því má Jacob Black gefa þér gjöf en ekki ég?
Því ég hef ekkert að gefa þér.
Þú gefur mér allt með því einu að vera til.
Takk, þetta var allt sem ég vildi frá þér.
Bella.
Til hamingju.
Ég vildi engar gjafir.
Ég hef þegar séð þig opna hana. Þú verður mjög ánægð með þetta.
Þú kemur í þessu heim til okkar í kvöld.
Gerðu það.
Það verður gaman.
Allt í lagi. -Frábært.
Sjáumst klukkan sjö.
Jasper, það er ósanngjarnt að stjórna skapinu mínu.
Fyrirgefðu, Bella. Til hamingju...
Gleymdu því.
Ekki treysta vampírum. Treystu mér.
Æ, yndið mitt. Mín eiginkona.
Dauðinn sem hefur teygað hunang anda þíns
hann hopar ennþá fyrir fegurð þinni.
Enn berðu hennar björtu sigurmerki.
Þau ljóma morgunrauð á vanga og vörum
en ekki dauðans fölvableiki fáni.
Ég þoli ekki að láta fagna mér.
Það er margt verra. Líttu bara á Rómeó.
Hann drap ástmey sína af tómum kjánaskap.
Ég öfunda hann af einu.
Júlía er fullkomin.
Ef þú ert gefinn fyrir augljósa fegurð.
Ég átti ekki við stúlkuna heldur sjálfsvígið.
Það er næstum ómögulegt...
...fyrir sumt fólk.
Venjulegum manneskjum nægir örlítið eitur
eða rýtingur í hjartað.
Svo margir möguleikar.
Því segirðu þetta?
Ég varð einu sinni að íhuga þetta.
Ég vissi ekki hvort ég næði til þín nógu fljótt.
Ég varð að hugsa upp einhvers konar áætlun.
Hver var áætlunin?
Ég ætlaði að fara til Ítalíu og ögra Volturi.
Hvað segirðu?
Volturi.
Hver vill endurtaka síðustu Línur fimmliðaháttarins
til að sanna að hann hafi fylgst með?
Herra Cullen?
Já, herra Berty.
Hér...
...hef ég fundið athvarf eilífs friðar
og hristi af mínu hugumþreytta höfði óheillastjörnuklafann.
Augu, njótið hinstu sýnar.
Opnist armar í hinsta sinn.
Og varir mínar, þið andans dyr,
innsiglið trúum kossi óendanlegan okursamning dauðans.
Fylgist með skjánum.
Ég dey með koss á vörum.
Volturi-ættin er ævaforn og valdamikil.
Hún er Líkust kóngafólki í mínum heimi.
Er þetta Carlisle?
Já, hann bjó hjá þeim í nokkra áratugi.
Hann sagði að þau væru afar fáguð.
Þau bera enga virðingu fyrir mannslífum.
En þó bera þó virðingu fyrir listum og vísindum.
Og lögunum.
Umfram allt, lögunum.
Fylgja vampírur lögum?
Ekki mörgum.
Aðeins einum lögum er iðulega framfylgt.
Hver eru þau?
Að við höldum tilvist okkar leyndri.
Við beinum ekki athyglinni að okkur.
Og við drepum ekki þannig að aðrir taki eftir því.
Nema við viljum deyja.
Hættu að tala svona.
Ég get ekki hugsað til þess að einhver særi þig.
Bella...
...þú ert það eina sem getur sært mig.
Ég hef ekkert annað að óttast.
Það er ekki satt.
Victoria?
Hún kemur á eftir mér einhvern daginn.
Alice sér hvenær hún kemur.
Við verðum reiðubúin.
Ég gæti verndað þig...
...ef þú umbreyttir mér.
Þú verndar mig nú þegar, Bella.
Þú ert eina ástæða þess...
...að ég er enn á lífi. Ef ég er það í raun.
Það er á mína ábyrgð að vernda þig.
Fyrir öllum öðrum en systur minni.
Það er komið að þessu.
Afsakaðu þetta.
Við reyndum að hemja Alice. -Eins og það sé mögulegt.
Til hamingju, . -Takk fyrir.
Ég fann þessa í töskunni. Er þér ekki sama?
Á föstu með eldri stelpu. Það er magnað.
Hvað?
Þú byrjar, Rosalie.
Þetta er hálsmen.
Alice valdi það. -Takk.
Sýnið mér ástina.
Þessi er frá Emmett.
Hún er komin í bílinn þinn.
Alvörugræjur í skrjóðinn. -Ekki tala illa um bílinn.
Opnaðu gjöfina frá Esme og Carlisle.
Smáræði sem lýsir upp daginn.
Þú hefur verið föl að undanförnu.
Pappírsskurður.
Jaz, þetta er allt í lagi.
Þetta er bara smá...
...blóð.
Farið út með Jasper.
Fyrirgefðu, ég get þetta ekki.
Ég verð að sauma þetta á skrifstofunni.
Talaðu við Jasper.
Hann er í uppnámi
og ég efast um að hann tali við nokkurn annan en þig.
Edward.
Ég vildi ekki halda partí.
Þetta er ekki þín sök.
Jasper hefur ekki lifað án mannsblóðs jafnlengi og við.
Hvernig ferðu að þessu?
Með áralangri þjálfun.
Datt þér aldrei í hug að fara auðveldu leiðina?
No comments yet. Be the first to leave one.