முதல் 200 வரிகள்.
13 metrar. Það ætti að sjást.
Hækkaðu þig og sigldu yfir framstafninn.
Mir 2, við siglum yfir stafninn. Fylgið okkur eftir.
Hafið hljóð. Nú hefst upptaka.
Það fer alltaf um mig þegar ég sé koma út úr myrkrinu
eins og draugaskip.
Að sjá flak þessa mikla skips liggja hér
þar sem það sökk að morgni 15. apríl árið 1912
eftir langt fall frá veröld okkar.
En sú þvæla.
6. dýfa. Hér erum við aftur á þilfari Titanics.
Á 3.821 meters dýpi.
Þrýstingur hér fyrir utan er 32 tonn á sm.
Glerið í kýraugunum er 60 sm þykkt.
Gefi þau sig er öllu lokið á 2 sekúndum.
Nú er nóg komið af þessu bulli.
Lentu á þaki yfirmannakáetanna.
Við erum að lenda yfir aðalstiganum.
Viðbúnir með upptökubúnaðinn ?
Við látum hann út núna. Af stað.
- Slakaðu kaplinum út. - Slaka.
Upptökuvélin er að síga niður í skrokkinn.
Slakaðu henni niður að inngangi fyrsta farrýmis.
Kannaðu D-þilfar, móttöku og borðastofu.
Við náðum því.
Slakaðu henni. Til vinstri nú.
Hundurinn kominn á stjá. Förum niður stigaopið.
Farðu með hana á B-þilfar.
- A-þilfar. - Slakaðu betur.
Inn á B-þilfar.
- Gættu að dyrastafnum. - Varaðu þig. - Ég sé hann.
Þetta gengur vel. Rólegur, stjóri.
Beygðu nú. Gættu að veggnum.
- Við erum við píanóið. Heyrirðu það ? - Ég heyri.
Þarna, já.
- Þetta er káetuhurðin. - Ég sé hana.
Við erum komnir inn. Við erum komnir.
Þarna svaf þrjóturinn hann Hockley.
Það hefur gleymst að skrúfa fyrir vatnið.
Stansaðu. Farðu aftur til hægri.
Skápshurðin. Farðu nær.
Heldurðu að það sé eitthvað þar að finna ?
- Ég vil sjá undir hurðina. - Láttu mig fá armana.
Varlega. Hún gæti brotnað.
Svona, já. Veltu henni við.
Haltu áfram. Láttu hana detta.
Sérðu þetta, stjóri ?
Það er kominn útborgunardagur.
- Við náðum honum. - Hver er bestur ?
- Segðu það. - Þú ert bestur.
Réttu mér vindilinn minn, Bobby.
Brjóttu hann upp.
Fjárinn.
Enginn demantur ?
Geraldo lenti í því sama og náði sér aldrei aftur.
Slökkvið á upptökuvélinni.
Fjárfestarnir vilja fá fréttir af gangi mála.
Sælir. Það var ekki í öryggishólfinu. En kvíðið ekki.
Margir aðrir staðir koma til greina.
Gólfbrakið, káeta móðurinnar, öryggishólf brytans.
- Skjalataska Jimmy Hoffa. - Margir staðir koma til greina.
Við beitum útilokunar-aðferðinni. Bíðið augnablik.
- Má ég sjá þetta. - Við gætum verið komnir á sporið.
- Hvar er myndin af hálsmeninu ? - Við hringjum seinna.
Nú dámar mér.
Gulleitarmaðurinn Brock Lovett er þekktur fyrir
gullfundi í sokknum skipum.
Hann hefur nú leigt rússneska kafbáta
til að komast niður í hið fræga skipsflak, Titanic.
Við erum í gervihnatta-sambandi við hann
af rannsóknaskipinu Keldysh í Atlantshafinu. Sæll, Brock.
Sæll, Tracy. Allir þekkja sögurnar af Titanic.
Göfuglynda hljómsveitin sem spilaði þar til yfir lauk.
En áhuginn beinist að því sem enginn var til frásagnar um.
Leyndardómi skipsskrokksins. Við förum dýpra í flakið
- en nokkur hefur áður gert. - Leiðangurinn vekur deilur
um eignarétt og siðferði. Ýmsir kalla þig grafræningja.
- Enginn kallaði björgun... - Hvað er þetta ?
- Hækkaðu það, vina. - Hér eru menn, þjálfaðir á listasöfnum,
sem tryggja að munirnir séu varðveittir eins og vera ber.
Líttu á þessa teikningu sem við fundum.
Þetta blað hefur legið neðansjávar í 84 ár.
Liði mínu tókst að ná því óskemmdu.
Hefði það átt að liggja á hafsbotni að eilífu ?
Nú dámar mér.
Það er símtal um gervihnött til þín.
Sérðu kafbátana fara niður ?
Trúðu mér. Þú vilt svara þessu símtali.
Það er vonandi þess virði.
- Þú verður að hækka róminn. Hún er gömul. - Fínt.
Brock Lovett hér. Hvað get ég gert fyrir þig, frú... ?
Rose Calvert. Ég var að velta fyrir mér
hvort þú værir búinn að finna "Sjávarhjartað".
Ég sagði þér að svara þessu.
Ég vil ræða þetta, Rose.
Þekkirðu konuna á myndinni ?
Já. Það er ég.
Hún lýgur því. Hún sækist eftir peningum eða athygli.
- Eins og rússneska pían, Anesthesia. - Hún er að koma !
Rose DeWitt Bukater fórst með skipinu 17 ára að aldri.
- Hún væri yfir 100 ára ef hún lifði. - 101 árs í næsta mánuði.
Þá lýgur hún. Ég rannsakaði feril hennar
aftur til 3. áratugarins, þá var hún leikkona.
Leikkona. Það er vísbending.
Þá hét hún Dawson. Síðan giftist hún Calvert,
fluttist til Cedar Rapids og eignaðist tvö börn.
Calvert er dáinn og sama má víst segja um Cedar Rapids.
Allir sem vitneskju höfðu um demantinn eru látnir
eða staddir á þessu skipi en hún veit um hann.
Hún ferðast ekki beint farangurslaus.
Velkomin um borð, frú Calvert.
Farið með hana inn.
- Sæl, ungfrú Calvert. Velkomin. - Takk fyrir.
- Eru káeturnar viðunandi ? - Já, afar notalegar.
Hefurðu hitt Lizzie, sonar-dóttur mína ? Hún annast mig.
- Við hittumst uppi á þilfari, manstu ? - Ó, já.
Þetta er gott. Ég ferðast alltaf með myndirnar mínar.
- Er eitthvað sem þig vanhagar um ? - Já.
Mig langar að sjá teikninguna mína.
Loðvík XVI bar fagran stein sem kallaður var
blái demantur krúnunnar. Hann hvarf árið 1792
um það leyti sem Loðvík tapaði öllu ofan axla.
Sagt var að demanturinn hefði verið höggvinn um leið,
endurmótaður sem hjarta og kallaður Sjávarhjartað.
Nú væri hann verðmætari en Vonardemanturinn.
Hann var hræðilega þungur. Ég bar hann aðeins einu sinni.
Heldurðu virkilega að þetta sért þú, amma ?
Já. Var ég ekki flott ?
Ég rakti feril demantsins í gegnum tryggingarnar.
Samið var um mál sem upp kom vegna hans með leynd.
Veistu hver kröfuhafinn var ?
- Ég gæti trúað að það hafi verið Hockley. - Einmitt.
Stáliðnaðarjöfurinn frá Pittsburgh.
Krafan var vegna demants sem sonur hans gaf unnustunni, þér
viku áður en hann lét úr höfn á Titanic.
Krafan var gerð strax eftir skipsskaðann.
Svo demanturinn hlýtur að hafa sokkið með skipinu.
Sérðu dagsetninguna ?
14. apríl, 1912.
Ef amma þín er sú sem hún segist vera
bar hún demantinn daginn sem Titanic sökk.
Og þá ert þú besta vinkona mín.
Hér eru munir sem við björguðum úr káetu þinni.
Ég átti þennan spegil.
Þetta er ótrúlegt.
Hann er nákvæmlega eins og þegar ég sá hann síðast.
En spegilmyndin hefur breyst.
Ertu tilbúin að ferðast aftur í tímann ?
Þá byrjum við. Titanic rekst á ísjakann stjórnborðsmegin.
Göt koma í hlið hennar undir sjávarmáli.
Fremstu klefarnir fyllast sjó og síðan flæðir yfir
vatnsþéttu skilrúmin sem ná ekki hærra en E-þilfarið.
Þegar stafninn sekkur, rís skuturinn, hægt í fyrstu
en svo hraðar þar til afturendinn er allur á lofti.
Það er mikill afturendi, 20 - 30 þúsund tonn.
Skrokkurinn þolir ekki álagið og hvað gerist ?
Hún brotnar í tvennt niður í kjöl og skuturinn fellur.
Þegar stafninn sekkur dregur hann skutinn lóðrétt niður
og brotnar að lokum af skipinu.
Skuturinn flýtur eins og korktappi um stund
svo sekkur hann líka um klukkan 2:20 um nóttina,
2 klukkustundum og 40 mínútum eftir áreksturinn.
Stafninn hafnar í kílómeters fjarlægð á botninum.
Flott, ekki satt ?
Þakka þér fyrir þessa vísindalegu skýringu.
Reynslan var að vísu nokkuð... frábrugðin.
Viltu deila henni með okkur ?
- Ég fylgi henni til hvíldar. - Nei.
- Komdu, amma. - Nei !
Réttu mér segulbandið.
Segðu okkur frá því.
Það eru liðin 84 ár.
Reyndu samt að rifja upp eitthvað.
Viltu heyra um þetta, eða ekki ?
84 ár eru liðin
en ég get enn fundið lyktina af nýrri málningunni.
Leirtauið var ónotað.
Það hafði aldrei verið sofið í rúmunum.
Titanic var kallað draumaskipið.
Og það var réttnefni. Svo sannarlega.
Þetta er stærðar bátur.
- Þetta er skip, pabbi - Það er rétt.
Hvað eru menn að gera veður út af því ?
Það er ekki stærra en Mauritanía.
Gerðu ekki lítið úr Titanic.
Það er 30 metrum stærra og miklu ríkmannlegar búið.
Það er erfitt að gera dóttur þinni til hæfis.
Svo þetta er skipið sem sagt er að geti ekki sokkið.
Sjálfur Guð gæti ekki sökkt því.
Farðu með farangurinn í aðalmóttökuna.
Ég treysti á þig. Hérna.
Mín er ánægjan. Geti ég eitthvað gert...
Já. Allar töskurnar í bílnum og tólf af þessum.
Og öryggishólfið fer í svítur B-52, 54 og 56.
Við verðum að flýta okkur, dömur mínar. Komið.
- Kápan mín. - Ég er með hana.
Farþegar á 3. farrými fari í röð hér fyrir læknisskoðun.
- Velkomin, frú. - Velkomin um borð í Titanic.
Í augum allra annarra var þetta draumaskip.
Í mínum augum var það þrælaskip
No comments yet. Be the first to leave one.