Troy

Troy

Icelandic வசனம் பதிவிறக்கம்

வெளியீட்டு விவரம்

Troy DC 2004 1080p BluRay x264-CROM
கருத்துரை வழங்கியவர் rippmaster

குறிச்சொற்கள்

BluRay
x264
1080
வெளியிடப்பட்ட தேதி: 2021-06-21
பதிவிறக்கங்கள்: 158
காது கேளாதோருக்கானது: No

Icelandic வசனங்களின் மாதிரிக்காட்சி

முதல் 200 வரிகள்.

TRÓJA

Fyrir 3200 árum.

Eftir áratuga bardaga hefur Agamemnon, konungur Mýkenu,

þvingað ríki Grikklands í ótraust samband.

Aðeins Þessalía er enn ósigruð.

Menelás, bróðir Agamemnons og konungur Spörtu, er stríðsþreyttur

og semur um frið við Tróju, sem er voldugasti óvinur

hins rísandi grikkjaveldis.

Akkiles, mesti stríðsmaður sem uppi hefur verið,

berst fyrir Grikkland,

en andúð hans á Agamemnoni

leggur viðkvæmt bandalagið í hættu.

Víðátta eilífðarinnar sækir hart að mönnum.

Því spyrjum við okkur.

Munu gjörðir okkar lifa um aldir alda?

Munu ókunnir heyra nöfn okkar löngu eftir vora tíð

og hugsa hverjir við vorum í raun?

Hversu hetjulega við börðumst

og hve heitt við elskuðum?

Þessalía - Grikklandi.

Góður dagur fyrir krákurnar.

Fjarlægðu her þinn af mínu landi.

Mér líst vel á landið þitt.

Ég verð kyrr. Mér líst vel á hermenn þína.

Þeir munu ekki berjast fyrir þig.

Þetta sögðu menn í Messínu,

og Arkadar og Epear.

Nú berjast þeir allir fyrir mig.

Þú getur ekki átt allan heiminn, Agamemnon.

Hann er of stór, jafnvel fyrir þig.

Ég vil ekki fylgjast með enn einu blóðbaðinu.

Útkljáum þetta á gamla mátann. Bestu menn okkar berjast.

Hvað ef minn maður sigrar?

Þá yfirgefum við Þessalíu fyrir fullt og allt.

Bóagríus.

Akkiles!

Bóagríus hefur þessi áhrif á margar hetjur.

Farðu varlega með þínar móðganir, gamli konungur.

Akkiles er ekki meðal hersins.

Hvar er hann? -Ég sendi dreng að leita hans.

Mig dreymdi vel.

Mjög vel.

Agamemnon konungur sendi mig til að...

Ég ræði við konung þinn strax í fyrramálið.

En það er kominn morgunn, herra.

Þeir bíða þín.

Eru sögurnar um þig sannar?

Sagt er að móðir þín sé ódauðleg gyðja.

Sagt er að þú sért ódrepandi.

Til hvers væri ég þá með þennan skjöld?

Þessalíumaðurinn sem þú berst við...

Hann er stærsti maður sem ég hef séð. Ég gæti aldrei barist við hann.

Þess vegna mun enginn muna nafn þitt.

Akkiles! Akkiles!

Eigum við að berjast á morgun, þegar þú ert betur hvíldur?

Ég ætti að láta hýða þig fyrir þessa ósvífni.

Kannski ættir þú að berjast við hann.

Akkiles.

Akkiles.

Horfðu í andlit mannanna. Þú getur bjargað hundruðum.

Þú getur útkljáð stríðið með snöggu sverði þínu.

Leyfðu þeim að fara heim til kvenna sinna.

Það væri gaman að sjá konung heyja sínar eigin orustur.

Af öllum hermönnum sem guðirnir elska, hata ég hann mest.

Er enginn annar?

Er enginn annar?

Hver ert þú?

Ég er Akkiles, sonur Peleifs.

Akkiles?

Ég man það nafn.

Leiðtogi Þessalíu ber þennan sprota.

Afhentu hann konungi þínum.

Hann er ekki konungur minn.

Sparta - Grikklandi.

Vopnabræður!

Vinátta!

Prinsar Tróju! Á þessari síðustu nótt okkar,

hylli ég ykkur ásamt Helenu drottningu.

Milli okkar hefur ríkt mikill ágreiningur.

Sparta og Trója hafa barist oft og vel.

Ég hef ávallt borið virðingu fyrir föður ykkar.

Príamus er góður konungur og maður.

Ég virti hann sem andstæðing og virði hann sem bandamann.

Hektor og París, ungu prinsar, standið upp.

Drekkið með mér.

Við skálum fyrir friði.

Skál fyrir friði milli Spörtu og Tróju.

Guðirnir haldi úlfum í fjarska og eiginkonum í bólinu.

Fyrir guðina.

Þú ættir ekki að vera hérna.

Þú sagðir þetta sama í gærkvöldi.

Það voru mistök.

Hvað með kvöldið áður?

Ég hef gert mörg mistök þessa vikuna.

Viltu að ég fari?

Perlur úr Propontíshafi.

Þær eru fallegar.

En ég get ekki borið þær.

Menelás drepur okkur bæði.

Ekki óttast hann.

Ég óttast ekki dauðann.

Ég óttast morgundaginn.

Að sjá þig sigla burt og vita að þú kemur aldrei aftur.

Áður en þú komst hingað var ég aðeins vofa.

Ég gekk, neytti matar og synti í hafinu,

en ég var aðeins vofa.

Þú þarft ekki að óttast morgundaginn.

Komdu með mér.

Ekki leika þér að mér.

Ef þú kemur, verðum við aldrei örugg.

Menn munu elta okkur og guðirnir bölva okkur.

En ég mun elska þig.

Allt til dagsins sem þeir brenna mig,

mun ég elska þig.

Fallegur morgunn. Pósídon hefur blessað för okkar.

Stundum blessa guðirnir okkur að morgni en bölva að kvöldi.

Sleppið segli!

Elskarðu mig, bróðir?

Munt þú verja mig gegn hvaða óvini sem er?

Síðast þegar þú talaðir svona við mig

varstu tíu ára og nýbúinn að stela hesti föður okkar.

Hvað hefur þú nú gert?

Ég verð að sýna þér dálítið.

Hvar er hún?

Ég sver að ég myrði þig ef þú segir mér það ekki.

Herra.

Hún fór burt

með Trójumönnum.

Fiskimennirnir sáu hana fara um borð í skip þeirra.

Trójumanna?

Með París, unga prinsinum.

Gerið skip mitt ferðbúið.

Snúið skipinu við, aftur til Spörtu.

Snúið við.

Bíddu.

Veistu hvað þú hefur gert, bjáninn þinn?

Veistu hve lengi faðir okkar vann að friði?

Ég elska hana.

Er þetta leikur í þínum augum?

Þú ferð milli bæja og sængar hjá eiginkonum og stúlkum,

og þykist svo vita eitthvað um ástina.

Hvað með ást föður okkar?

Þú spýttir á hann þegar þú tókst hana um borð.

Hvað með ástina á landi þínu? Létir þú Tróju brenna fyrir þessa konu?

Ég læt þig ekki hefja stríð vegna hennar.

Má ég tala?

Þetta er satt. Ég kom illa fram við þig og föður okkar.

Ef þú vilt fara með hana til Spörtu, verður svo að vera.

Þá fer ég með henni.

Til Spörtu? Þeir myrða þig.

Þá dey ég í bardaga.

Hljómar það hetjulega, að deyja í bardaga?

Hefur þú drepið mann? -Nei.

Hefur þú séð mann deyja í bardaga?

Ég hef drepið menn og heyrt og séð þá deyja.

Það er ekkert dýrlegt eða ljóðrænt við það.

Þú vilt deyja fyrir ástina en veist ekkert um dauðann.

Þú veist ekkert um ástina.

Hvað sem því líður, fer ég með henni.

Ég bið þig ekki að berjast fyrir mig.

Þú ert búinn að því.

Til Tróju.

Snúið skipinu við.

Mýkena - Grikklandi.

Ég vil fá hana aftur. -Að sjálfsögðu.

Hún er falleg kona.

Ég vil fá hana, svo ég geti myrt hana sjálfur.

Ég sef ekki fyrr en Trója brennur.

Ég hélt að þú vildir frið við Tróju.

Ég hefði átt að hlusta á þig.

Friður er fyrir kvenfólk

og kveifar.

Stórveldi byggjast upp á styrjöldum.

Alla ævi hef ég staðið með þér og barist gegn óvinum þínum.

Þú ert eldri og vegsemdin er þín. Þannig er lífið.

En hef ég kvartað eða beðið um eitthvað?

Aldrei. Þú ert heiðursmaður.

Viltu fara í stríð með mér, bróðir?

Mér þótti kona bróður míns ávallt vera bölvað flón,

en nú kemur hún að góðum notum.

Trójumenn hafa aldrei verið sigraðir.

Sumir segja að þeir séu ósigrandi.

Príamus telur sig ódrepandi bak við veggina sína háu.

Hann heldur að sólguðinn muni vernda hann.

En guðirnir vernda aðeins...

...pá sterku.

Ef Trója fellur,

þá stjórna ég öllu Eyjahafinu.

Hektor leiðir besta her í öllu austrinu.

Ég ræðst á þá með stærsta her sem heimurinn hefur séð.

Ég vil fá alla konunga Grikklands og herlið þeirra.

Sendu sendiboða í fyrramálið.

Eitt að lokum.

Við þörfnumst Akkilesar og Myrmídóna hans.

Akkiles.

Hann er stjórnlaus og berst jafnt með okkur sem á móti.

Við þurfum að gefa honum lausan tauminn.

Hann fæddist til þess að taka mannslíf.

Hann er hæfur morðingi, en hann ógnar veldi mínu.

Fyrir mína tíð var Grikkland ekkert.

கருத்துகள்

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left