The first 200 lines.
Áður hélt ég að þetta væri upphaf tilveru þinnar.
Minnið er undarlegt fyrirbæri.
Það virkar ekki eins og ég hélt.
Við erum svo bundin af tímanum.
Af röð tímans.
Svona.
Komdu aftur til mín. Komdu.
Komdu aftur til mín.
Upp með hendur!
Ertu fógetinn í þessum bæ?
Þetta eru kitlibyssurnar mínar, nú næ ég þér!
Viltu að ég elti þig? Þá skaltu hlaupa.
Ég man stundir hér og þar.
Þú ert best.
Ég hata þig!
Og þetta voru endalokin.
Komdu aftur til mín.
Komdu aftur, elskan.
En nú er ég ekki viss um að ég trúi á upphaf og endi.
Sumir dagar skilgreina tilveru þína út fyrir lífið.
Eins og dagurinn sem þær komu.
Góðan dag.
Hvar eru allir?
Jæja, við skulum byrja.
Í dag tölum við um portúgölsku -
- og hvers vegna hún hljómar ólíkt öðrum rómönskum tungumálum.
Saga portúgölsku hefst í konungsríkinu Galisíu...
Afsakið. - ...á miðöldum -
- þar sem litið var á tungumál sem listræna tjáningu.
Hefurðu fréttir sem þú vilt segja okkur?
Gætirðu stillt sjónvarpið á fréttastöð?
Lögreglan hefur girt svæðið af.
Eins og sjá má erum við eins nálægt og við getum.
En því miður er Montana algjörlega lokað núna.
Hluturinn lenti fyrir 40 mínútum norður af I-94.
Við bíðum þess að fá að vita hvort þetta er tilraunaloftfar eða...
Augnablik.
Mér er sagt að fleiri slíkir hlutir -
hafi lent á átta stöðum í heiminum.
Já? Er það hægt?
Þetta er svæðið á Hokkaido.
Þetta er á heimsvísu. Það er að gerast núna.
Þið megið víst fara.
Haldið áfram.
Fljót, fljót.
Við biðjum bara um samvinnu meðan yfirvöld meta hlutinn.
Er þetta þá ekki frá okkur? Veistu hvort hann er af jörðinni?
Við erum að safna upplýsingum. Við störfum með öðrum löndum.
Við erum ekki ein um að hafa slíkan hlut á hlaðinu okkar.
Ef þetta er friðsamleg ferð því þá að senda 12 hluti?
Því ekki bara einn?
Já. Ég sá það líka.
Ég veit það ekki, mamma. Ég horfi á sömu fréttir og þú.
Láttu þá stöð eiga sig.
Hve oft þarf ég að segja þér að þetta eru bjánar?
Heyrist þér ég vera óróleg?
Nákvæmlega svo...
Ég? Þú þekkir mig. Það er eins.
Ég hef það gott.
Ég hringi seinna. Bless.
Og átta tímum eftir lendingu -
- eru engin merki um það sem mætti kalla "fyrsta samband".
UNDARLEGT LOFTFAR Í MONTANA
Hluturinn er minnst 450 metra hár.
RÚSSAR KALLA ÚT HER
Tveir hlutir flugu inn í lofthelgi Rússa.
Annar í Síberíu og hinn út af strönd Svartahafsins.
...svífandi yfir hafinu.
Nú eru 12 óþekktir hlutir á víð og dreif um heiminn.
Engin sýnileg rök eru fyrir staðsetningu þeirra -
- og enginn vottur um að skipin séu mönn -
velta fyrir sér að ef þetta er loftfar -
gæti það verið ómannað.
Burtséð frá því höfum við reglur fyrir tilfelli sem þessi.
Venesúela BEIN ÚTSENDING 12.
Eftir hina undarlegu viðburði -
hefur forsetinn lýst yfir neyðarástandi -
- og kallað út 5000 manna þjóðvarðlið í Montana.
Landamæri eru lokuð og flug liggur niðri svo milljónir farþega tefjast.
Hömstrun á bensíni, vatni og mat eykst enn.
Og yfirvöld hafa afnumið takmörk á yfirvinnu lögreglunnar.
Sett hefur verið tímabundið bann við útgáfu byssuleyfa -
- svo margar verslanir með veiðibúnað og byssur hafa neyðst til að loka.
- Liðnir eru 48 tímar og engin tíðindi... - Tveir dagar.
...af svæðum furðuhlutanna 12...
Og fólk ætlast nú þegar til að við höfum svör.
Ég er G.T. Weber ofursti.
Við höfum ekki hist en fyrir tveimur árum þýddirðu af persnesku fyrir leyniþjónustuna.
Þú varst snögg að þýða upptökur af óeirðarmönnum.
Þið voruð snöggir að ganga frá þeim.
Þú ert efst á lista hjá öllum hvað þýðingar varðar.
Og þú hefur tvö ár enn hjá SSBI -
- svo þú hefur aðgang að hernaðarleyndarmálum.
Þess vegna er ég hér en ekki í Berkeley.
Ég er með nokkuð sem þarf að þýða.
Af hverju komuð þið?
Skiljið þið okkur?
Hvaðan komið þið?
Þú heyrðir það. Hvað segirðu um það?
Er þetta...?
Já.
Hve margir?
Hve margir hvað?
Hve margir tala?
Tveir.
Sennilega töluðu þeir ekki samtímis.
Ertu viss? Höfðu þeir munn...?
Hvernig færirðu að því að þýða þetta?
Greinirðu orð? Orðasambönd?
Ég veit það ekki.
Hvað geturðu sagt mér?
Að það er ómögulegt að þýða eftir hljóðupptöku.
Ég þyrfti að vera á staðnum og hafa tjáskipti við þá.
Þú þurftir þess ekki fyrir persnesku þýðinguna.
Vegna þess að ég kunnið málið en þetta er...
- Ég veit hvað þú gerir. - Hvað geri ég?
Ég fer ekki með þig til Montana.
Ég á í vanda með að halda frá fólki með aðgang að hernaðarleyndarmálum.
Ég er bara að segja hvað þarf til að leysa þetta verk.
Þetta eru ekki samningaviðræður.
Ef ég fer missirðu af tækifærinu.
Vertu sæl.
Ofursti.
Þú nefndir Berkeley. Ætlarðu að leita til Danvers?
Kannski.
Áður en þú felur honum verkið -
- spyrðu hann um þýðingu orðsins yfir stríð á sanskrít.
Samþykkt um að deila vísindalegum uppgötvunum virðist í sjónmáli -
- nú þegar Rússland og Kína taka þátt í viðræðum Sameinuðu þjóðanna.
Á meðan er hrun á fjármálamörkuðum heims og iðnaðarvísitala Dow Jones -
- féll um 2000 stig sem er mesta vikulegt fall í sögunni.
Daginn.
Ofursti.
"Gavisti."
Hann segir að það þýði þræta. Hvað segir þú?
Löngun í fleiri kýr.
Pakkaðu niður.
- Gefðu mér 20 mínútur. - Við förum eftir 10.
Banks. Komdu þessa leið.
Afsakaðu, ég vil tryggja að beltið sé vel spennt.
Allt í lagi?
Takk.
Fyrirgefðu. Ég heyrði ekki hvað þú sagðir.
"Tungumálið er grunnur siðmenningar. Það heldur fólki saman.
Það er vopnið sem fyrst er dregið í átökum."
Louise, þetta er Ian Donnelly.
Louise Banks, Ian Donnelly.
- Þetta var meiri kveðjan. - Þú skrifaðir þetta.
Svonalagað skrifar maður sem formála. Hrífur með undirstöðuatriðunum.
Það er frábært. Þótt það sé rangt.
Er það rangt?
Hornsteinn siðmenningar er ekki tungumálið heldur vísindin.
Ian er kennilegur eðlisfræðingur frá Los Alamos.
Þú skilar mér niðurstöðum en þú vinnur með honum í skelinni.
Þeir kalla furðuhlutinn það.
Númer eitt: Hvað þeir vilja og hvaðan þeir koma.
Og síðan hvernig þeir komu hingað. Geta þeir ferðast hraðar en ljósið?
Ég er með spurningalista sem við getum farið yfir.
Við byrjum á "handabandi" af tvíundaröðum...
Hvernig væri að tala við þá áður en við leggjum fyrir þá stærðfræðiþrautir?
Þetta er ástæðan fyrir að þið eruð bæði hér.
Ég sæki kaffið.
Kaffi með geimverum.
- Fylgdu þeim til Kettlers. - Já, herra.
Farið með honum í sjúkratjaldið. Það tekur bara nokkrar mínútur.
Og svo hefjumst við handa.
Þessir menn sjá um töskurnar ykkar. Ég tek símana.
Farsímar.
Komið með mér.
Setjið þetta á ykkur. Þið takið það aldrei niður.
- Ekki fyrr en þau koma. - Fínt.
Þau eru komin.
Louise Banks? Ian Donnelly? Hvenær borðuð þið síðast?
- Í gærkvöldi. - Ég líka.
- Hvenær urðuð þið síðast stressuð? - Telst þetta með?
Ég segi bara svona.
Hver var borinn burt á börum?
Það ráða ekki allir við upplifun sem þessa.
Ég ætla að taka blóðprufur -
- og bólusetja ykkur með vörn gegn fjölda af mismunandi bakteríum.
Viljið þið kvitta hér? Og bretta upp ermarnar.
- Fáið þið innilokunarkennd? - Nei.
Takið þið lyf núna? Ofnæmi? Þungun?
Nei.
Ónæmisefnið virkar harkalega svo þið gætuð fundið fyrir aukaverkunum:
Ógleði, svima, höfuðverk og suði fyrir eyrum.
- Sérðu hvernig hann er að verða? - Hvernig virkar þetta?
Mælarnir hreyfast ekki en ég veit ekki...
Það er eins og við séum pöddur sem eru bornar út á blaði.
Við nákvæmlega 112 mínútur og 19 sekúndur -
- breytist aðdráttaraflið og við rennum út úr herberginu.
- ÁSTRALÍA. - Hefurðu vísindalega skýringu á því?
- Er það fyrir þá? - Nei, við höldum að það sé fyrir okkur.
Loftið virðist kyrrt inni í klefanum -
svo súrefnið þrýtur eftir svona tvo tíma.
Það tekur ekki 18 tíma að pumpa inn fersku lofti.
Andrúmsloft.
Hvað þá?
Ef andrúmsloft þeirra er ólíkt því á jörðinni tæki það marga tíma -
- að jafna súrefni og þrýsting fyrir okkur í hvert sinn sem þeir opna.
No comments yet. Be the first to leave one.