The Man with the Iron Fists

The Man with the Iron Fists

Download Icelandic Subtitle

Release info

The Man With the Iron Fists 2012 BluRay-isl
A Commentary by rippmaster

Tags

BluRay
Published on: 2022-03-03
Downloads: 40
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Þegar vopn er smíðað þarf þrennt.

Rétta málminn, hitastig yfir 760 gráðum

og einhvern sem vill drepa.

Hér í Frumskógarbæ finnst allt þrennt.

Komið með vopnin!

Frumskógarbær, miskunnarlaus staður.

Þar stjórna margir grimmir ættbálkar.

Þar ríkir stöðugt stríð.

Ég er bara járnsmiður.

Ég skipti mér ekki af.

Og ég bíð þolinmóður.

Ég vildi aldrei smíða morðvopn,

en ég færði þá fórn fyrir konuna sem ég elska.

Lafði Silki.

Hún vinnur á Bleika blómahnappnum

og er mín eina huggun í þessu helvíti.

Við vorum ákveðin í að yfirgefa þennan stað saman

en alheimurinn virtist á öðru máli.

Örlög breyttust þegar Gullljón,

æðsti höfðingi Ljónaættbálksins,

var kallaður til hallar ríkisstjórans.

Ríkisstjórinn fól honum það verkefni að vernda gullsendingu

sem átti að senda í gegnum Frumskógarbæ til herdeilda hans í norðri.

Gullljón samþykkti. Og gaf loforð.

En þegar kemur að peningum

fer margt á annan veg.

Gullljón! Gullljón!

Gullljón var svikinn af eigin höfuðsmönnum,

Silfri og Bronsi.

Nú var Zen Yi sá eini sem stóð í vegi fyrir þeim,

uppáhaldssonur Gullljóns.

En Zen Yi var um það bil að fá fréttir

sem myndu breyta örlögum okkar allra um alla eilífð.

Chi Chi, ég mun aldrei yfirgefa þig.

Og ég mun snúa strax heim og biðja föður minn að undirbúa brúðkaup okkar.

Zen Yi! Zen Yi! Zen Yi!

Chan.

Ég er með hræðilegar fréttir að heiman.

Það er faðir þinn.

Faðir þinn hefur verið myrtur.

Stríð við Híenuættbálkinn braust út.

Nei.

Þú sagðist aldrei ætla að yfirgefa mig.

Meistari, hestarnir eru tilbúnir.

Ef ég hefni ekki föður míns verðum við aldrei óhult.

Bræður, það er mér sannur heiður að vera nýi leiðtogi ykkar.

Jæja, kæru Ljón, við verðum að efna loforð Gullljóns

og vernda gull ríkisstjórans.

Óvinir okkar hafa eflaust frétt af dauða Gullljóns

og ég trúi því að Úlfaættbálkurinn, verndarar Vesturhliðsins,

haldi okkur varnarlausa og ráðist á okkur.

Í stað þess að bíða skulum við gera árás og koma þeim á óvart.

Bræður, ættum við ekki að bíða eftir að Zen Yi snúi til baka?

Við þörfnumst krafta hans.

Ég er sammála.

Ert þú sammála?

Erum við ekki Ljónin?

Erum við ekki öflugasti ættbálkurinn?

Jú!

Við ættum að gera öfluga árás núna!

Já!

Slökktu eldinn.

Tylft af þessum fyrir kvöldið.

Þrír dagar.

Þrír dagar?

Af hverju svona lengi?

Heyrðu! Aldrei snúa baki við úlfi.

Hann gæti bitið þig í rassinn.

Það þarf þrjá daga til að smíða vopnin sem þið viljið.

Nema þið viljið eitthvað svona drasl.

Tveir dagar eða þú ert dauður.

Orðatiltæki hjá Kínverjum hljóðar svo.

"Hættulegir menn safnast gjarnan saman."

Og þannig var það.

Stríð geisaði á milli ættbálkanna

og þá var meiri þrýstingur á mig að smíða vopn.

Og þegar fregnin um gullsendinguna barst út

birtust skyndilega ókunnugir í Frumskógarbæ.

Færðu mér tvö glös og flösku af okkar fínasta koníaki.

Skál.

Guð blessi þig.

Fyrir veikleika mínum.

Skál.

Enskur herramaður.

Sá herralegasti.

Ertu hermaður?

Hvað varstu lengi í Frakklandi?

Nógu lengi til að þekkja mann með fágaðan smekk.

Þú ert á réttum stað til að hvíla lúin bein.

Merci, Madame, en ég er ekki kominn til að hvíla mig.

Ég vil fá sérherbergi með baði, útsýni yfir aðalgötuna,

flösku af þessu víni

og þrjár af þínum bestu.

Bara þrjár? Hógvær.

Til að byrja með.

Ég vil ekki virðast gráðugur.

Þú ert chi-mikill maður.

Undirbúið suðursvítuna handa gesti vorum.

Stúlkur mínar, herramaðurinn var að koma.

Gefið honum tækifæri til að velja sjálfur.

Já, þig.

Og þig.

Og hana.

Hún er því miður með öðrum viðskiptavini.

Já, en það er rangur viðskiptavinur.

"Lýkur ferð er elskendur mætast

"eins og allir synir vitra manna vita."

Vina mín,

engin ung stúlka ætti að þurfa að þjást svona.

Komdu.

Láttu hana í friði

eða ég sker þig í tvennt!

Ég vil ekki rífast við þig, gildvaxni náungi.

Ég er einungis að reyna að bjarga þessari dömu

frá reynslu sem yrði sú hræðilegasta í hennar unga lífi.

Hafðu okkur afsökuð.

Ég er kallaður Brjálaði flóðhestur.

Ég hef drepið yfir tíu manns.

Þetta þarf ekki að fara svona.

Þetta þarf alls ekki að fara svona.

Ég er herra Hnífur!

Þið getið kallað mig Jack.

Ég er kominn í frí í ykkar fallega þorp.

Ég vil ekki láta ónáða mig!

Fröken.

Á ég að senda þér hinn helminginn af Brjálaða flóðhesti upp á herbergi?

Gefðu hann hundunum þínum. Þá bragðast þeir betur.

Ég hafði áhyggjur af þér.

Færðu mér gulldrykk. Fljótt.

Elskan, hvað er að?

Það verður allt í lagi með mig.

Þessir menn eru villimenn.

Hví vinnurðu svona mikið fyrir þá?

Ég geri það ekki fyrir þá.

Ég geri það fyrir þig.

Annar dagur, annar dollari.

Lafði Silki var hamingjusöm og við nálguðumst takmark okkar.

Á sama tíma nálgaðist Zen Yi Frumskógarbæ.

Aumingja X-hnífur. Engin hnífsblöð, bara X.

Í dag muntu hitta föður þinn í helvíti.

Hver sendi ykkur?

Kysstu hring minn.

Lengi lifi Silfurljón.

Herra Ming er kominn.

Við klárum þetta síðar.

Nagdýrin tíu réðu ekki við Zen Yi.

Þú hefðir kannski átt að senda tuttugu.

Sending ríkisstjórnarinnar kemur eftir örfáa daga.

Fimmtíuþúsund gullhleifar.

En það verður ekki auðvelt að ná þeim.

Tvíburamorðingjarnir fylgja sendingunni.

Ef við ráðumst á sendinguna og gullið nær ekki á norðurmótsstaðinn

þá mun ríkisstjórnin senda herlið sitt.

Einmitt.

Og til að gera illt verra

þá hefur leyniútsendari keisarans verið sendur hingað til að aðstoða lið hans.

Og ekki einu sinni ég veit hvað hann getur.

Eða hver hann er.

Já.

Já?

Í boði hússins.

Fallega gert.

Er allt fullnægjandi?

Enn sem komið er.

Á ég að senda fleiri stúlkur upp?

Á ég ekki bara að skera þessar í tvennt?

Ef þú skaðar stúlkurnar mínar

þá skaða ég strákana þína.

Almáttugur, þetta er vont.

Á mjög þægilegan máta.

Á ég ekki að hleypa sprellanum inn í þig?

Ópíumið hlýtur að vera gott.

Á hvað ertu að glápa, litli dónakall?

Það var byrjað að hitna í kolunum í Frumskógarbæ.

Ég var að klára vopnin fyrir Úlfana

á meðan þeir skemmtu sér við fullt tungl.

Hver hundur á sér sína nótt.

Og Zen Yi, X-hnífurinn, sem brann af hefndarþorsta,

var einungis eina dagleið frá þorpinu okkar.

Mér heyrist við vera að fá félagsskap.

Lyktar eins og ljón.

Zen Yi.

Bræður, hvað eruð þið að gera hér?

Við erum komnir til að fylgja þér heim.

Chan, tjóðraðu hesta þeirra og brynntu þeim.

Já, meistari.

Silfurljón er ekki eins og hann var. Hann hefur breyst.

Faðir þinn vildi frið.

Silfurljón vill stríð.

Sem mig grunaði, sauður í úlfagæru.

Nei!

"Nei!"

Halló, litli minn.

Annar.

Tvíburamorðingjarnir koma um sólarlag með gull ríkisstjórans.

Við höfum gert áætlun. Við erum tilbúnir.

Gott.

Þá er eitt vandamál eftir.

Zen Yi.

Herra Kwon, gaman að sjá þig.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left