Mickey 17

Mickey 17

Download Icelandic Subtitle

Release info

Mickey 17 2025 NORDiC REPACK 1080p WEB-DL DDP5 1 Atmos H 264-BANDOLEROS
A Commentary by Hallow

Tags

webdl
Published on: 2025-04-10
Downloads: 99
Hearing Impaired: No
FPS: 23.976

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

2054 E.KR. Á PLÁNETUNNI NIFLHEIMI

Hvernig lifði ég þetta af?

Þetta var svakalegt fall.

Fjandinn. Talstöðin er ónýt.

Hitabúnaðurinn er líka ónýtur.

Ég hefði átt að brotna í tvennt og deyja á leiðinni niður

frekar en að verða rólega að einhverjum kjötíspinna.

Timo?

Timo!

Timo, ég er hérna niðri.

Timo.

Mickey?

Timo!

Timo, ég er hérna niðri. - Mickey.

Ertu ekki enn dauður?

Nei. - Bíddu aðeins.

Fjandinn.

Eldvarpan þín er enn í lagi.

Ekki rispa á henni.

Eins gott að ég kom niður.

Vopnadeildin verður ánægð.

Ég ætla að skila henni inn.

Ég get tekið hana.

Ertu nokkuð reiður ef ég sæki bara eldvörpuna?

Ég meina, þetta lítur ekki beint vel út hjá þér.

Auk þess nær klifurlínan ekki lengra niður.

Já, einmitt. Það er allt í góðu.

Þú skalt ekki fara þér að voða.

Ég var einmitt að hugsa það.

Þú verður hvort sem er endurprentaður á morgun.

Já.

Heyrðu, Mickey.

Já.

Hvernig er að deyja?

Þú ert örugglega orðinn vanur þessu núna, en samt...

Hversu oft hefurðu dáið?

Ert þú Mickey 16?

Númer 17. Asninn þinn.

Næsti verður númer 18.

Það var gaman að þekkja þig. Njóttu andlátsins.

Sjáumst á morgun.

Æ, frábært.

Hvers vegna ekki?

Þetta er ansi stórt.

Vonandi gleypir það mig í einum bita.

Hlýtur að vera betra en að frjósa hægt og rólega í hel.

Þannig lagað.

Eða kannski ekki.

Ég er bara endurprentaður í hvert sinn sem ég dey.

Allar upplýsingar eru vistaðar og ég fæ nýjan líkama.

Þau fá mig reglulega til sín í upphleðslu á minningum

og persónuleikaeinkennum

og svo er þetta allt saman grætt aftur í heilann á mér.

Þetta er alveg geggjuð tækni, maður.

Við skulum orða það þannig að þetta sé ansi háþróað.

Rosalega háþróað.

Já.

Nei, maður.

Bíddu. Geturðu beðið aðeins?

Bara... vertu rólegur.

Slakaðu á og andaðu. Svona, já.

Já!

Allt þetta líkamsprentunar- og minnisflutningadæmi

er í sannleika sagt svo fáránlega framsækin tækni

að hún hefur valdið miklum siðferðislegum deilum

og trúarlegu kjaftæði

að þetta var bannað á jörðinni.

Nú er þetta bara leyfilegt í geimnum fyrir þá Fórnanlegu.

Eins og mig.

Um leið og við yfirgáfum gufuhvolfið

fór ég að vinna eins og skepna alla leið til plánetunnar.

Ég fékk hvert verkefnið á fætur öðru.

Tæknideild, hvað gengur á? Aukavírinn er þegar kominn hingað.

Málið er, Mickey...

Sjúkradeild, viljið þið segja það?

Segja mér hvað?

Hæ, Mickey. Hvað segirðu gott?

Finnurðu fyrir einhverri riðu, ógleði eða svima?

Já, mig svimar kannski örlítið.

Þetta fer bara versnandi, Mickey, og þú færð hita í ofanálag.

Þú ert berskjaldaður fyrir ólýsanlega mikilli geislun núna

en við sendum þig út þess vegna.

Allt í lagi.

Gætirðu lýst einkennunum nákvæmlega?

Ég vil fara yfir nokkur atriði

á geimgeislunar-gátlistanum fyrst.

Hvað er langt þar til húðin fer að sviðna?

Hvað er langt þar til þú verður blindur?

Og hvað er langt þar til þú deyrð?

Það er rúsínan í pylsuendanum.

Einu sinni í raunvísindatíma í fjórða bekk

fór ég illa með tilraunafrosk.

Þetta hlýtur að vera refsingin mín.

Mickey, taktu hanskann af þér

svo að ég sjái hvað gerist innan geimbúningsins.

Vá! Sáuð þið þetta?

Góðan daginn.

Góðan daginn.

Þú þarft vökva, Mickey.

Þú finnur fyrir miklum þorsta.

Arkady, þetta var of stór skammtur.

Hvað með það? Hann deyr eftir tíu mínútur.

Náðu öllum blóðsýnunum.

Honum blæðir út um augu, nef, munn, eyru og endaþarm.

Náðu sýni úr hverju opi. Allt í lagi?

Hlaðið upp minninu samhliða þessu.

Þessi Mickey er sérstakur. Veistu það?

Þú lifir styst af ykkur öllum.

Ég heyrði það. Tíu mínútur.

Góðar fréttir. Þetta verður nær korteri.

Er það ekki miklu betra?

Ég væri orðinn moldríkur ef ég gæti líftryggt mig

en auðvitað má ekki líftryggja þá Fórnanlegu.

Við fáum engar slysabætur, stéttarfélög eða lífeyri.

Kæmi mér ekki á óvart ef þið hugsuðuð:

„Hvers vegna gerðirðu sjálfum þér þetta?“

Sko, það er vegna þess að ég átti vin sem sagði mér

að einn daginn yrðu makkarónur vinsælli en hamborgarar.

Ég treysti þessum ömurlega vini og sló gríðarlega hátt lán

hjá yndislegum herramanni, til að opna makkarónuverslun.

4 1/3 ÁRUM ÁÐUR Á JÖRÐINNI

Fjandinn hafi það.

Allt í lagi, róið ykkur nú.

Þið hafið fjórar vikur til stefnu.

Lítið á þetta sem vettvangsferð.

Forsmekk af því sem bíður ykkar ef þið greiðið ekki upp lánið tímanlega.

Auk þess hafið þið tveir nægan tíma

þar sem litla makkarónubúðin er farin á hausinn.

Þetta er fín sýnikennsla handa mér.

Skilaboðin eru skýr og ég náði þeim.

Ég er of seinn að borga.

Þetta er á leiðinni...

Darius Blank. Nafn sem ég vildi að ég hefði aldrei heyrt.

Herra Blank hugsar ekkert allt of mikið um peninga.

Hann á nóg af þeim.

Þetta hús er ein af mörgum eignum hans.

En að fylgjast með vanskilafólki deyja og njóta smæstu þátta dauðans

er nokkuð sem hann hefur yndi af.

Skilaboðin eru skýr. Þið megið hætta.

Ég skil þetta alveg.

Ég þarf bara tvær vikur í viðbót.

Það er allt og sumt. Ég á von á helling af peningum.

Við náðum honum fyrir fjórum dögum í Úlan Bator í Mongólíu.

Virðast vera dýrir skór.

Þið megið trúa því að allir sem fara fram yfir gjalddaga

verða eltir út á enda jarðar.

NIFLHEIMSVERKEFNIÐ

Við ákváðum að fara frá jörðu.

Ekkert gekk upp hjá mér og engin fjölskylda stólaði á mig.

Ég sótti um í nýlenduleiðangur

en milljón aðrir fengu sömu hugmynd.

Allir á þessari skitnu jörð virtust vera á flótta.

Það eru víst allir í peningavandræðum.

Hvað um það, við urðum að komast um borð,

því þetta var síðasta ferð í bili.

Hingað þyrpist fólk sem þráir að komast frá jörðu.

Andstæðingar búferlaflutninga tala fyrir daufum eyrum

þegar þeir krefjast uppbyggingar jarðar

í stað háskalegra flutninga til annarra pláneta.

Það er eins og þessir áhugasömu umsækjendur séu komnir út í geim.

Mestu skiptir að þetta er leiðangur

undir stjórn fyrrverandi þingmannsins Kenneths Marshall,

sem tapaði síðustu tveim kosningum.

Ætlar pólitíkusinn sem þjóðin hafnaði að stofna konungsríki úti í geimnum?

Voru það eldheitir stuðningsmenn hans sem tryggðu fjármagnið

frá ákveðnu trúfélagi eða stórfyrirtæki?

Svo mörgum spurningum er ósvarað.

Ræðum við fólkið.

Fyrirgefðu, ert þú stuðningsmaður Kenneths Marshall?

Ég er það. Heldur betur.

Ég er ofurstuðningsmaður.

Ég er hinn eini og sanni.

Ertu frá sjónvarpsstöð Marshalls?

Ég er frá EC 20... - Glætan.

Er Marshall að horfa núna?

Guð minn góður. - Veldu mig.

Ég sver það, veldu mig.

Þú þarft ungt og hraust fólk í leiðangurinn.

Dömur og herrar, það er von á öðrum mildum sandstormi í dag.

Aðgangur er nú aðeins um hlið þrjú.

Hér fást gleraugu og grímur á afslætti.

Þið fáið auka 5% afslátt með Marshall Pay eins og alltaf.

Ég komst ekki í hina leiðangrana en það voru þeirra mistök.

Ég get lagað klósett og bakað. Gerðu það, gefðu mér séns.

Takið mig á hreinu stjörnuna.

Takið með með!

Fórnanlegur.

Sækirðu um að verða Fórnanlegur?

Í alvöru?

Lastu alla umsóknina í gegn?

Já.

Ég hefði átt að lesa þetta betur.

En ég hafði ekki um annað að velja.

Ég bý ekki yfir neinni formlegri kunnáttu.

Ég hef í raun enga hæfileika.

Svo kom í ljós að Timo hafði tekist

að fá stöðu sem trukkastjóri.

Hann hafði bara fengið prófið nokkrum vikum fyrr.

Ég veit ekki hvernig hann fór að þessu.

En það var vel gert hjá honum.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left