The first 200 lines.
Hvar á ég að byrja?
Það sem ég vil segja er líklega að…
allt sem ég er, er ég vegna þess hvaðan ég kem.
Eternía, veröld óendanlegrar fegurðar.
Allt það sem finnst bara í þjóðsögum og sögum fyrir svefninn.
Á Eterníu er það raunverulegt.
Griffinar, drekar, talandi tígrisdýr,
töfraskógar, brennandi eyðimerkur, eyjar á himninum. Allt.
Ég sver að ég er ekki í vímu.
Og svo er það Grayskull kastalinn.
Pabbi sagði mér að Eternía væri sláandi hjarta alheimsins.
Og Grayskull er hjarta þess hjarta.
Svo ég býst við að hjarta hjartans
í því hjarta sé máttur Grayskulls.
Sagt er að hann geti gert mann jafn voldugan og guð.
Til að vernda máttinn var hann hnepptur í grip.
Sá gripur var fornt sverð sem kallaðist Ofursverðið.
Já, ég veit en það er nafnið sem þeir völdu.
Þjóðsagan sagði að þegar Eternía væri í mestri nauð
myndi hetja stíga fram og munda sverðið
og þú veist, nota það…
snilldarlega.
Þar til að því kæmi var það læst í kastalanum
undir vökulu auga seiðkonunnar
sem var vitur og aldagömul
og satt að segja dálítið ógnvekjandi. En hún er svöl.
Öldum saman hafa forfeður mínir verndað Grayskull.
Ég er nefnilega afkomandi ansi mikilla hetja.
Göfugra, sterkra, óttalausra hetja.
En ég vil ekki berjast, mamma.
Allir eru stærri og sterkari en ég.
Ég hef lélegar fínhreyfingar.
Vitleysa. Hver sagði það? -Cringer.
Það er rétt. Hann er minnstur og aumastur.
Það er kraftaverk að hann hafi ekki ennþá beinbrotnað.
Hvað ætti prins að gera í stað vopnaþjálfunar?
Kannski bara leika við Cringer.
Farðu bara. Ég finn hnykil og þá er ég sáttur.
Það er engin hjálp í þér.
Verð ég að fara?
Vopnaþjálfun. Núna.
Takið eftir, tilvonandi hetjur Eternos.
Styttur eru ekki reistar af þeim sem tapa
eða götur nefndar eftir skræfum
og engar skrúðgöngur fyrir að gera ykkar besta.
Þessi jörð, þessi höll, allt ykkar líf
byggist á arfleifð manna og kvenna sem sigruðu í bardaganum.
Og sem hernaðarráðgjafi konungs hef ég unnið marga sigra.
Þess vegna erum við hér.
Ég bjargaði skinni mæðra ykkar og feðra.
Ég bjargaði skinni nágranna ykkar og mæðra og feðra nágranna ykkar.
Það eru mörg skinn. Málið er að ég barðist fyrir ykkur
og nú berjist þið fyrir mig með snöggum viðbrögðum,
öruggu miði og dýrlegum vöðvum.
Og þetta.
Veit nokkur hvað þetta er?
Það er prik.
Takk fyrir að upplýsa það augljósa.
Nokkur annar?
Teela?
Handleggirnir á þér.
Dugleg stelpa.
Þetta eru handleggir ykkar. Þeir eru framlenging á ykkur.
Finnið félaga. Vopnist.
Ég vil sjá stóra, glansandi marbletti.
Ég vil sjá blóðug nef. Ég vil sjá brotnar tennur.
Byrjum. Standið föstum fótum.
Halló, Dian… -Væri þetta alvara hefðirðu dáið tvisvar.
Adam. -Horfa upp!
Horfið í augu hans þegar þið kýlið hann.
Víktu eða næsta högg verður þyngra.
Gætum við sest og rætt þetta?
Heyrðu, Adam. Gerðu bara þitt besta.
Já. Teela.
Hvers konar vinkona ertu?
Vinkona sem sigrar þig.
Duncan.
Hvernig gengur nýgræðingunum okkar?
Þeir eru efnilegir og duglegir, herra.
Allir?
Hættu að dansa, Adam.
Svona nú. -Berðu mig!
Hann gerir sig að fífli.
Ég lofaði að gera hann að manni og ég stend við það.
Já, en hvers konar manni?
Adam -Láttu bara vaða!
Hann afvopnaði hana.
Það virkar ekki svona, gamli vinur.
Ég vinn! Ég vinn!
Þú lætur eins og asni.
Drengur.
Þú mætir mér. Með þessu.
Taktu það upp.
Og nú…
skaltu verja þig.
Pabbi.
Pabbi!
Þessi heimur er ekki staður fyrir auma.
Já, pabbi.
Segðu það.
Þessi heimur er ekki staður fyrir auma.
Adam. Stattu upp!
Stattu upp.
Þegar þú dettur
gefst þér tækifæri til að standa keikur.
Nú skaltu sýnast sterkur.
Þegar hann snýr sér við sér hann þig.
Og þú vilt sýna að þú þolir byltu.
Þegar hann lítur um öxl sér hann ekki hræddan, lítinn strák.
Hann sér mann.
Hvað sér hann?
Mann. -Gott. Sjáðu.
Þegar hann lítur við.
Farðu í göngutúr.
Sýningunni er lokið. Komið ykkur að verki.
Adam. -Hvað ertu að gera hér?
Ég elti þig.
En ég kom til að vera einn.
Ekki vera svona mikil mýsla.
Mér fannst þú ekki vera aumur.
Í dag í þjálfuninni.
Pabba fannst það.
Er þetta seiðkonan?
Á hvað horfir hún?
Randor konungur, þetta er árás.
Ég hef stjórn á þessu, herra.
Lífverðirnir þjálfa fyrir þetta.
Ég lofa þér
að hvorki þig né fjölskyldu þína mun skaða.
Ég kem þér til Grayskull. Verðir!
Það er engin hætta.
Haltu þig nærri.
Teela! Komdu.
Pabbi.
Ég er hrædd.
Hver kenndi þér þetta orð? Ekki ég.
Það verður allt í lagi, vina.
Hvað sem gerist, er ekkert að óttast meðan ég er hér.
Komdu nú.
Farið! Fljót, fljót!
Þeir eru of margir.
Stór her þýðir bara eitt.
Fleiri mörk.
Komið þið!
Eltið mig.
Við förum þessa leið.
Bíðið hérna.
Aumir, litlir hallarstrákar.
Herra, farðu og ekki stansa.
Ég sé um þetta.
Einhver vill slag.
Þetta er nóg.
Dirfistu að koma í mína borg! Veistu ekki við hvern þú átt í höggi?
Viltu ekki segja mér það?
Ég er Duncan, foringi lífvarða konungs.
Hernaðarráðgjafi konungs.
Og í dag…
Og í dag…
hefurðu brugðist.
Pabbi.
Stattu upp. Svona nú. Gerðu það.
Teela.
Ég brást.
Komdu.
Bíddu.
Ríki Randors lýkur í kvöld.
Þú taldir þig svo öflugan að þú hættir að óttast það sem leyndist í skuggunum.
Það var ég.
Ég leyndist.
Í dýpstu og myrkustu skotum alheimsins
þar leyndist ég.
En nú stíg ég fram í ljósið
svo þú skalt horfa á fall þitt.
Farið. Ekki líta við.
Adam, engar áhyggjur, drengur minn. Ég vernda þig.
Vertu sterkur. Ég verst þeim.
Pabbi? -Farðu.
Pabbi!
Hvað ætlarðu að gera við mig, djöfull?
Ég ætla bara að höggva af þér höfuðið.
Hver sem mín örlög eru, Eternos verður aldrei þín.
Höllin þín er ekki annað en múrsteinar og gler.
Kórónan þín er búningur.
Nei, ég vil völdin sem henni fylgja.
Evil-Lyn?
Evil-Lyn.
Vel sagt, herra Skeletor. Ljóðrænt.
Farið með hann. Hans dögum er lokið.
Í nýrri dögun
verður Eternía vitni að ríki mínu.
Ég er búinn. -Auðvitað, herra minn.
Þegar ég lyfti hnefa svona er ég búinn.
Það er hápunkturinn!
Framvegis vitum við það, herra.
Þeir eru að koma.
Grayskull fellur.
Nei, kastalinn mun standa.
Færðu mér sverðið, barn.
Já. Flýttu þér.
Þú verður að fara með sverðið á öruggan stað langt í burtu.
No comments yet. Be the first to leave one.