Lincoln

Lincoln

Download Icelandic Subtitle

Release info

Lincoln 2012 WEBRip iTunes
Lincoln 2012 WEB-DL iTunes
A Commentary by ChristopherCavco
Icelandic

Tags

Web-DL
web-dl
web
WEB-DL
webrip
BRip
Published on: 2021-07-17
Downloads: 30
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Frá fyrstu dögum þess stóð tilraun Bandaríkjanna með lýðræði

ógn af innri átökum

vegna deilunnar um þrælahald.

Gæti ein ríkisstjórn starfað í landi ánauðugu að hluta, frjálsu að hluta?

Sérhver tilraun til málamiðlunar brást

og fjandskapurinn milli suðurríkjanna með ánauð og frjálsra norðurríkjanna

varð sífellt ofbeldisfyllri

þar til 11 fylki í suðurríkjunum sögðu sig úr sambandsstjórninni.

Og stríðið hófst.

Sumir okkar voru í 2. deild þeldökkra í Kansas.

Við börðumst gegn uppreisnarmönnum við Jenkinsferjuna í apríl

rétt eftir að þeir myrtu alla blökkuhermenn sem þeir tóku í Poison Springs.

Svo við ákváðum að taka enga fanga við Jenkinsferjuna.

Og við þyrmdum ekki lífi eins einasta manns.

Við sem héldum lífi þann dag gengum í 116. sveit bandarískra blökkumanna

frá Nelson-búðunum í Kentucky.

Hvað heitirðu, hermaður?

Harold Green.

Ég heiti Ira Clark korporáll í 5. deild riddaraliðs Massachusetts.

Við bíðum þarna.

Við skiljum hestana eftir og förum með 24. deild fótgönguliðsins

til árásarinnar á Wilmington í næstu viku.

Hvað hefurðu gegnt herþjónustu lengi?

Í tvö ár.

2. deild þeldökkra frá Kansas barðist hetjulega við Jenkinsferjuna.

Það er rétt.

Þeir felldu þúsund uppreisnarhermenn. Þeir voru hugrakkir.

Og fengu þremur dölum lægri mánaðarlaun en hvítir hermenn.

Við í 2. deildinni í Kansas...

Aðrir þrír dalir dregnir frá fyrir einkennisbúningana.

Það var rétt, en...

Nú fá allir sömu laun en enginn þeldökkur yfirmaður.

Mér er kunnugt um það.

Það er gott, en... -Verður árásin á Wilmington...

...nú þegar hvítir hafa vanist því að sjá blökkumenn með byssur

berjast fyrir þá og þeir umbera að blökkuhermenn fái sömu laun,

þá geta þeir kannski sætt sig við þeldökka yfirmenn eftir nokkur ár.

Eftir 50 ár gæti blökkumaður kannski orðið ofursti.

Eftir 100 ár... kosningaréttur.

Hvað ætlarðu að gera eftir stríðið?

Vinna.

Kannski þú ráðir mig í vinnu.

Kannski.

En þú mátt vita að mér verður óglatt af skósvertulykt

og ég kann ekki að klippa hár.

Ég hef ekki ennþá fundið mann sem getur klippt mitt hár svo nokkru muni.

Þú hefur krullað hár af hvítum manni að vera. -Satt er það.

Síðasti rakarinn minn hengdi sig.

Og sá á undan honum líka. Ánafnaði mér skærunum í erfðaskránni.

Lincoln forseti. -Gott kvöld, piltar.

Við sáum þig og... -Við vorum í...

Við vorum í Gettysborg. -Börðust þið í Gettysborg?

Nei, við skráðum okkur fyrir mánuði.

Við sáum hann við athöfnina við hermannagrafreitinn.

Við heyrðum ávarpið. Fjandinn sjálfur. Hvað ertu eiginlega hár?

Haltu þér saman.

Gátuð þið heyrt hvað ég sagði? -Það var lítið.

"Fyrir áttatíu og sjö árum sköpuðu forfeður okkar nýja þjóð.

Hún varð til í frjálsræði og helguð þeirri hugsjón að allir menn fæddust jafnir."

Það er gott. Þakka þér fyrir.

"Nú stríðum við í borgarastyrjöld sem reynir á hvort sú þjóð eða nokkur þjóð

þannig sköpuð og þeirri hugsjón helguð geti varað lengi.

Við mætumst á miklum orrustuvelli þess stríðs."

Það er gott. Þakka þér fyrir.

"Við komum til að helga hluta af þeim velli

sem hinstu hvílu þeirra sem hér gáfu líf sitt svo þjóðin megi lifa."

Frændur hans dóu á öðrum degi bardagans.

Ég kann niðurlagið.

Herdeild á fætur! Af stað!

Þið ættuð að fara til herdeildar ykkar. Og þakka ykkur fyrir.

Þakka þér fyrir. Guð blessi þig.

Guð blessi þig líka.

"Við strengjum þess heit að hinir horfnu skulu ekki hafa dáið til einskis.

Að þessi þjóð megi með Guðs hjálp öðlast endurfætt frelsi

og að stjórn fólksins á fólkinu byggð, fólksins vegna,

skuli ekki líða undir lok."

Janúar 1865

Tveir mánuðir eru liðnir frá endurkjöri Abrahams Lincoln

Borgarastyrjöldin hefur staðið yfir í rúm þrjú ár

Það er nótt.

Skipið er knúið áfram af feiknakrafti,

siglir á ógnarhraða.

Þótt myrkrið byrgi sýn finn ég að við stefnum að landi.

Enginn annar virðist vera um borð í skipinu.

Ég er ákaflega til... einmanaleika.

"Ég gæti verið luktur í hnotskurn og þóst konungur í endalausum geimi

ef ég aðeins hefði ekki þunga drauma."

Hvíta húsið

Mér brá víst við hraðann. Ég er vanalega hægfara og gætinn.

Ég ætti að hlífa þér, Molly og ekki segja þér draumana mína.

Ég vil ekki láta hlífa mér þegar þér er ekki hlíft. Þú skalt ekki hlífa mér.

Kannski er það...

árásin á Wilmington Port.

Þig dreymir vanalega skip fyrir orrustu.

Hvernig er kókoshnetan?

Ólýsanleg.

Næstum tvö ár, enginn bati.

Enn ein afleiðing stríðsins.

Hver vill hlusta á einskis nýta konu kvarta undan vagnslysi?

Ég. -Þvaður.

Þú segir mér ekki annað en drauma. Ég er spákonan þín.

Ég er ekkert annað lengur. Mér er ekki treystandi

jafnvel þótt það hafi ekki verið slys.

Jafnvel þótt það hafi verið morðtilraun. -Það var sennilega slys.

Það var morðingi sem ætlaði ná þér.

Hvernig gengur undirbúningurinn fyrir stóra boðið?

Ég vil ekki tala um veislur. Þér ekki um þær gefið.

Ekki mjög en þær eru nauðsynlegar hindranir.

Ég veit það.

Ég veit hvað skipið merkir.

Það er ekki Wilmington-höfn. Það er ekki hernaður.

Það er stjórnarskrárbreytingin um afnám þrælahalds.

Því myndirðu annars neyða mig til að bjóða vitstola róttæklingum heim.

Viltu reyna að fá breytinguna í gegn í fulltrúadeildinni

fyrir lok kjörtímabilsins? Fyrir embættistökuna?

Eyddu ekki of miklu í íburð.

Enginn er elskaður jafn mikið og þú.

Enginn hefur verið elskaður jafn mikið af fólkinu.

Þú gætir gert hvað sem er.

Sóaðu ekki því valdi á breytingar sem fá ekki samþykki.

Mundirðu að Robert kemur heim fyrir móttökuna?

Ég vissi að þú myndir gleyma því.

Það er skipið sem þú siglir á... 13. stjórnarskrárbreytingin.

Þú þarft ekki að segja að það sé rétt. Ég veit það.

Það er áliðið, fröken Keckley.

Hún þarf þetta fyrir móttökuna.

Það er seinleg vinna.

Góða nótt.

Sagðirðu henni frá draumi?

Þrælabarn, 12 ára, 600 dalir

Tveir ungir drengir, 700 dalir

Pabbi.

Ég vil sjá Willie.

Ég líka, en það er ekki hægt. -Af hverju ekki?

Willie er dáinn. Það eru orðin þrjú ár síðan.

Það kemur í minn hlut að reisa fánann að húni.

Sem ég mun gera ef búnaðurinn bregst ekki.

Og þegar hann er kominn upp

er það í höndum þjóðarinnar að halda honum á lofti.

Þetta var ræðan mín.

Þótt hver einasti repúblikani í fulltrúadeildinni segi já,

sem er alls ekki víst, hvenær hefur flokkurinn stutt nokkuð einróma?

En segjum að allur flokkurinn okkar samþykki það.

Okkur vantaði samt 20 atkvæði.

Ekki nema 20? -"Ekki nema"?

Við getum fundið 20 atkvæði.

20 demókratar sem vilja afnema þrælahald? Mín skoðun...

Sem ég hlusta alltaf á.

Eða læst hlusta. -Með öllum þremur eyrum mínum.

Við vinnum stríðið bráðum. Er það ekki alveg ljóst?

Við erum ekki búnir að vinna ennþá.

Þú byrjar seinna kjörtímabilið sem hálfvegis guð.

Hugsaðu þér möguleikana ef það kemst á friður.

Því að flekka þinn dýrmæta ljóma með ófriði í fulltrúadeildinni?

Það eru sömu vanhæfu lubbarnir

sem höfnuðu breytingunni fyrir 10 mánuðum.

Við töpum.

Mér líst vel á möguleika okkar núna.

Hugsaðu þér hindranirnar sem við myndum mæta.

Tveir þriðju fulltrúanna þurfa að samþykkja breytinguna.

Við höfum meirihluta en bara rétt rúmlega 50%.

56.

Við þurfum stuðning demókrata. Þar er engan stuðning að hafa.

Það hafa farið fram kosningar síðan greidd voru atkvæði um hana síðast.

64 demókratar misstu sæti sín í nóvember.

Það eru 64 demókratar í atvinnuleit í mars.

Þeir hafa ekki áhyggjur af endurkjöri.

Þeir geta greitt atkvæði eins og þeim sýnist.

En við getum ekki keypt atkvæði fyrir breytinguna, hún er of mikilvæg.

Ég talaði ekki að um að kaupa neitt. Ég sagði að okkur vantaði 20 atkvæði.

Upphaf nýs kjörtímabils, margar stöður sem þarf að fylla.

Herra forseti, má ég kynna herra og frú Jolly frá Missouri.

Frá Jeff City.

Herra Jolly.

Frú mín.

Og hérna við eldinn er Seward utanríkisráðherra.

Jeff City?

Ég heyrði eitt sinn sögu af lögmanni frá Jefferson City.

Hann átti páfagauk

sem vakti hann á hverjum morgni með öskri:

"Í dag verður heimsendir eins og spáð er í ritningunni."

Og dag einn...

skaut lögmaðurinn hann, líklega til að fá frið.

Þar með lét hann spádóminn rætast alla vega hvað fuglinn varðar.

Það er bara eitt tollhlið í Jeff City, það er í suðvestur

og maður að nafni Heinz Sauermagen frá Rolla hefur haft það ólöglega

síðan þinn maður Schofield hershöfðingi setti hann þar.

En Monroe forseti lét afa minn fá þetta hlið

og Quincy Adams lét pabba fá bréf sem staðfestir að hliðið sé okkar.

Frú Jolly er með... Sýndu honum bréfið frá Quincy Adams.

Það er óþarfi. Segðu mér bara hvað þú vilt að ég geri.

Vindlar fara ekki vel í lungnaþembu herra Jollys.

Er þér kunnugt um tillöguna varðandi 13. stjórnarskrárbreytinguna?

Já, öllum er kunnugt um hana. Forsetinn styður hana.

En þú? -Við styðjum hana.

Veistu að hún afnemur þrælahald? -Já, ég veit það.

Styðurðu hana vegna þess?

Ég styð það að stríðinu ljúki.

Þegar þrælahald verður afnumið hætta uppreisnarmennirnir að berjast

þar sem þeir berjast um þrælahald.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left