The first 200 lines.
Rússneska dulmálsnafnið fyrir efnafræðivopn.
Ég vann við að drepa, og ég ferðaðist einn.
KVEIKJUBÚNAÐUR Tækið sem kveikir Í sprengjum
Alltaf einn.
Búkarest í Rúmeníu
Einn kosturinn við að ferðast einn er að maður getur farið huldu höfði.
Það er nauðsynlegt Í þessu starfi.
En hér er ég staddur í Búkarest,
svartur maður að reyna að fara huldu höfði.
Þetta er mitt síðasta verk. Öll mín verk eru það síðasta.
Og fyrir þetta, ætla ég að skapa alveg nýjan persónuleika.
Við skoðum þetta.
Ég verð að hætta vegna viðskiptaerinda.
-Griffith. -Dimitru.
Velsæmisvörður fyrir fyrsta stefnumótið okkar, Dimi?
-Guð, mann langar... -Hann er óvopnaður.
...að stinga á hol næsta helvítis kúreka sem syngur þennan fjanda.
Lætur Guð þig langa það?
Nei, mig langar það.
Griff, klárum verkið, svo skulum við koma okkur héðan
og fara aftur til New York áður en ég bilast.
Hvað sem þú vilt, sæti.
-Hvert erum við að fara? -Á fótboltaleik.
-Hvaða leik? -Hvaða leik?
Þennan leik.
Þetta líkar mér.
Lia Manoliu völlur í Búkarest
Dimi, fótbolti er kynæsandi leikur.
Ég elska öll spörkin og öskrin.
Sex hundruð AK-47 rifflar er fjári mikið fyrir fyrstu kaup.
Ertu að fá samviskubit?
Það er ekki hægt.
Ég kom hingað til að kaupa byssur.
Ef ég get verslað, flott. Ef ekki, er ég farinn.
-Ekki? Bless. -Állt í lagi.
Þeir eru léttir. Hvar er afgangurinn?
Millifærðu peningana þá afhendum við vopnin.
Ég millifæri peningana inn á reikninginn þinn
þegar þú lætur mig fá afganginn.
Þeir verða komnir, snöggt og öruggt.
Eins og kynlífið hjá Dimitru.
Ég kom hingað til að gera viðskipti. Stendur það?
Griff, þú verður að treysta okkur.
Dimi, ég treysti þér, að sjálfsögðu.
En þetta eru viðskipti.
-Hann er helvítis lögga. -Hver?
Nei, ég er ekki lögga.
Sleppið mér.
Dimitru, hvað ertu að gera? Ég er enginn fjandans lögga.
Enginn tími fyrir lygar. Ég veit hvað þú ert.
Hversu margir félaga þinna eru fyrir utan?
Hvað er að þér? Ertu að reykja krakk eða hvað?
Kókið er að rugla þig í ríminu. Ég er engin fjandans lögga.
Vinur minn, Griff, hefurðu áhyggjur af mér?
-Hversu margir? -Dimitru, ég er ekki lögga.
Ég veit ekkert hvað þú ert að tala um.
-Fjandinn. -Snarklikkaður.
Fjandinn.
-Verið tilbúnir að fara. -Þetta verður bráðum svaka fyndið.
Og skerðu hann á háls.
Dimitru.
Rettu?
Þér fannst ég sætur, er það ekki?
Ég væri ekkert nema gæskan?
Ja hérna.
Hver var í símanum?
Mamma þín.
Hún vill fá mig aftur í kvöld að ríða sér.
Þú veist hvað gerist, er það ekki?
Jú. Rándýri lögmaður minn er á leiðinni að gera þér lífið leitt.
Fangelsi í Búkarest.
Lífstíðardómur fyrir vopnasmygl.
Svona sæt stelpa eins og þú, verður fegurðardísin á svæðinu.
Það verður búið að tattúera brjóst á bakið á þér
áður en þú áttar þig á hvaða dagur er.
Viðbjóðslegur staður að enda á.
Þú færð að sjá.
Eða langar þig að sjá
þegar þeir rífa úr þér augun.
Þú ert dauður, Griffith.
Komið út með hendur uppi.
Flott.
Eins og hjá öllum Rúmenum, hef ég mikla ástríðu fyrir leiknum
en liðið mitt leikur með miklum viljastyrk.
Það er það sem gerir lið gott.
Fyrir fréttamann, ertu með afar falleg augu.
-Þú ert klikkaður að koma hingað. -Hvar eru þeir?
Ef þú vilt fá þá til Washington, D.C., þá verða þeir þar.
Þú ert með 10 milljón dollara af okkar peningum
og bráðum færðu 100 í viðbót.
Ef þú afhendir ekki tækið eins og lofað var
munt þú og fjölskylda þín hverfa.
Heldurðu að ég sé hræddur við dauðann?
Tyrkirnir kölluðu hann Kaziglu Bey, "Stungu Prinsinn."
Hann slátraði 20.000 manns á einum degi.
Rak þau á hol fyrir að neita að hneigja sig fyrir honum.
Maður verður að dást að honum.
Segðu bara að þú munir standa við þitt.
Sonur djöfulsins.
Finnst þér það ekki gott nafn?
Sendu hann svona til baka. Þá vita þeir að mér er alvara.
Katya, Orlov, komið hingað.
Landamæri Úkraínu og Rúmeníu
Höfuðstöðvar lögreglunnar í Búkarest
Dagurinn í dag var erfiður.
Ég myrti fjóra.
Ferilsskráin mín er eins og kirkjugarður
og enn lengist listinn.
Sonni Griffith.
Veistu hvaða fangelsisdómur er fyrir
vopnasmygl og fjöldamorð
í Rúmeníu?
-Ekkert kakó á kvöldin. -Gefðu okkur smá frið.
Vertu góður, Griff.
Ég er að leggja allt að veði fyrir þig
annars fengir þú að finna fyrir því.
Hvort viltu?
Bjóddu mér upp á drykk og við skulum semja.
Hvað ertu að gera hérna?
Það er opin ákæra á þig í Bandaríkjunum vegna grunsamlegs dauðfalls,
þú átt að mæta fyrir dómara eftir tvo daga.
Ef þú mætir ekki, verður þú álitin á flótta undan réttvísinni.
En hér ertu að drepa rúmenska glæpamenn á fótboltaleik.
Hvernig hefur Sophia það?
Fínt, þakka þér fyrir.
Hvað ertu að gera hérna, Griff?
Ég hélt þú ætlaðir að fá þér starf í Washington. Hvað gerðist?
Ég er í fínu starfi. Ég er með fína skrifstofu í Berlín.
Ég er yfirmaður eftirlits með fjármögnun hryðjuverkamanna í austur Evrópu.
Svo frétti ég að Sonni Griffith hafi verið handtekinn
á undanúrslitaleik í Rúmensku bikarkeppninni
og ég spurði mig, "Hver gæti þetta verið?"
Mér datt í hug að þú gætir þegið smá hjálp.
Það eru meira en bara peningar að veði hérna.
Hefurðu heyrt eitthvað um týnda rakvél?
Já, ég heyrði orðróminn.
Þetta er meira en orðrómur. Opinberlega er þetta kallað hvísl.
Ég vil fá lögmanninn minn.
Dimitru llinca.
Ég er búinn að halda honum í margar vikur.
Hann er viðriðinn allt. Klúbba, stelpur, kókaín.
Óþjóðalýður frá Evrópu með mikið af peningum til að eyða.
Ég frétti að hann væri stórfelldur sali, þannig að ég ákvað að hitta hann,
sagði honum að mig vantaði 600 Kalashnikovs riffla
hann blikkaði ekki einu sinni auga.
Ég ætlaði að panta eitthvað aðeins stærra og þá fór allt út um þúfur.
Já, ég sé það. Svona vinnur CIA.
Innanríkisöryggismál eiga að vera heima.
Það vissi einhver að ég var að koma.
Hvað meinarðu? Ertu ekki með neitt?
Ekkert til að æsa sig yfir.
Fyrir hvað ertu ákærður núna?
Hvað meinarðu með núna?
Vondur maður deyr.
Það þarf að kenna einhverjum um.
Griff, er þetta orðið að vana?
Ekki segja svona bull. Þú veist að þetta er ekki satt.
Þeir reyndu að drepa mig.
Þeir reyndu það allir.
-Hr. Flint, Michael Shepard. -Ég veit hver þú ert, Shepard fulltrúi.
Og þú komst alla þessa leið. En skilvirkt.
Fyrst þú ert kominn, viltu vera svo vænn
og koma á skrifstofuna mína eftir sirka fimm mínútur og útskýra fyrir mér
af hverju aðilar sem eru ekki í CIA eru að myrða grunaða
og yfirheyra og brenna frænda Jozef Bostanescu
og fá svo að vafra um fríir og frjálsir á lögreglustöðinni.
-Já, ég get gert það. -Gott.
Það ætti að vera áhugavert.
Þetta verður kannski ferð til fjár eftir allt.
Skil ég rétt að þú hafir drepið mann sem þú varst að rannsaka?
Er það rétt, hr. Griffith?
Sannleikurinn er afstæður, herra. Fer eftir því hver segir hann.
Verið blessaðir, herramenn.
Ef þið fáið fleiri góðar hugmyndir á meðan þið erum í mínu umdæmi,
vinsamlega látið mig vita, áður.
Aðferðir þínar eru afar ítarlegar.
-Hvað er að angra hann? -Þú.
Hver er Bostanescu?
Hann á fótboltavöllinn og í þessum bæ er fótbolti stórmál.
Þú ættir að láta mig vita líka.
Við gætum sagt að hann hafi verið afvegleiddur.
Kaninn var ekki með neina aðstoð.
Engin almennileg sönnunargögn.
Nokkra riffla, það er allt og sumt.
Hann var einn.
Dreptu hann.
Ertu viss um að það sé það sem þú vilt, Jozef?
Það er stórmál. Þurfum við á því að halda?
Þetta er stærsti viðskipta- samningur sem við höfum gert.
Er allt klárt? Eru allir komnir á sinn stað?
-Það er allt klárt, ekki hafa áhyggjur. -Gott.
-Finndu út hver þessi lögga er. -Geri það.
-Meistari. -Meistari.
-Halló. -Griffith, þetta er ég, Greenfield.
-Herra. -Hvað ertu að gera í Búkarest?
Vinna, herra. Eða að reyna það.
Skjóta fólk og brenna grunaða.
Kallarðu það vinnu?
Í dag, gerðist óþekktur bandarískur ferðamaður
ofbeldisfullur á fótboltaleik.
No comments yet. Be the first to leave one.