The first 200 lines.
ÓSKRÁÐ NÚMER
Mamma fór út úr bænum. Komdu. Ókeypis matur.
Amber: Gerðu betur.
Ólæstur vínskápur.
Amber: SELT!
ÓSKRÁÐ NÚMER
Helvítis heimasíminn hringir látlaust.
Amber: Er Wes að bögga þig?
Halló? -Halló.
Er Cristina þarna?
Hún er ekki heima. Get ég tekið skilaboð?
Ég er vinur hennar af fundunum… Æ, djöfulsins.
Vinur djöfulsins?
Sko, við hittumst á fundum. Charlie, hún er með númerið mitt.
Farið þið saman á fundi?
Ég hefði ekki átt…
Segðu að Charlie hafi hringt.
Ég geri það, Charlie,
ef þú segir mér hvaða fundi þú átt við.
Er það AA eða NA?
Hún lýsti þér einmitt svona.
Gæti verið kærasti mömmu.
Talar hún um mig á fundum?
Amber: Í alvöru?
Ég má ekki tala um það.
Hvað segir hún um mig?
Hún elskar þig mjög heitt.
Hvað elskar hún í mínu fari?
Hún elskar hvað þú ert skapandi.
Á kafi í listum, sjónvarpi og kvikmyndum.
Margir dýrka kvikmyndir.
Hún sagði að þú dýrkaðir hrollvekjur
og að þið ættuð það sameiginlegt.
Hún er stolt af því að hafa gert þig að aðdáanda.
Er það? -Já.
Hún sagðist velta einu fyrir sér:
Hver er uppáhaldshrollvekjan þín?
The Babadook. Frábær hugleiðing um móðurhlutverkið og sorgina.
Er það ekki of snobbað?
Það er háfleygur hryllingur.
Hvað þýðir það, háfleygur hryllingur?
Óhugnanlegar myndir með flókna tilfinningalega og þematíska undirtóna.
Ekki bara subbuleg vitleysa með eintómum bregðuatriðum.
Hljómar óspennandi.
Hefurðu séð Stab?
Einu sinni, held ég.
Þegar ég gisti hjá vinkonu, 12 ára.
Býrðu í Woodsboro og þekkir ekki Stab?
Móðir þín dýrkar þessa mynd og talar oft um hana á fundum.
Hversu vel manstu eftir þeirri fyrstu?
Ég veit það ekki. Hún var dæmigerð fyrir tíunda áratuginn.
Fáránlega oflýst og allir með skrýtið hár.
Manstu eftir byrjuninni?
Ekki beint.
Byrjaði hún ekki á drápssenu? Það er alltaf þannig.
Jú, alveg rétt.
Stúlkan er ein heima.
Hún svarar í símann og fer að tala við morðingjann
sem neyðir hana til að spila leik.
Vilt þú koma í leik…
Tara?
Allar dyr læstar
Kveikt á kerfi.
Þetta var einhver klikkhaus. Ég læsi húsinu.
WTF? Er allt í lagi?
Allt í fína.
Þú ættir að svara.
Hvernig vissirðu að síminn hringdi?
Amber?
Þetta er ekki Amber.
SVARAÐU Í SÍMANN, TÍK.
SVARAÐU EÐA AMBER DEYR.
Þetta er ekki fyndið, Amber.
Ég sagðist ekki vera Amber.
Amber er alveg sérstaklega aðlaðandi í kvöld.
Hún ætti ekki skilja símann eftir á glámbekk fyrir aðra að klóna.
Hvað viltu?
Ég sagðist vilja fara í leik við þig.
Spurningaleik um Stab, þrjár lotur.
Ef þú hringir í lögguna deyr hún. Ef þú svarar rangt deyr hún.
Foreldrar hennar eru ekki heima. Ég kemst inn á 15 sekúndum.
Viltu upphitunarspurningu?
Ég sagðist ekki þekkja myndirnar.
Spyrðu um eitthvað sem ég þekki.
Spyrðu mig um It Follows eða Hereditary.
Spyrðu mig um The Witch.
Ég spyr um fyrstu myndina.
Hvaða íbúi Woodsboro var kynntur til sögunnar sem aðalpersóna seríunnar?
Það er Sidney Prescott!
Sidney Prescott sem bjó á Álmstræti.
Það er rétt. Þú átt eftir að pluma þig vel.
Jæja, fyrsta spurning…
Nei, ég svaraði rétt. Teldu það með.
Allir hefðu svarað þessu rétt. Sidney er í öllum myndunum nema nýjustu.
Fyrsta spurning:
Hver skrifaði bókina sem myndirnar eru byggðar á?
Gellan í sjónvarpinu!
"Gellan í sjónvarpinu" er ekki nógu nákvæmt svar, Tara.
Gale Weathers!
Það er Gale Weathers, helvítið þitt.
Það er rétt. Amber gæti lifað til að sjá sólarupprásina.
Önnur spurning: Hver lék heimsku tíkina í byrjuninni á fyrstu myndinni
sem svaraði í símann og var svo skorin í tætlur?
Éttu skít.
Er það lokasvar?
Ef þú svarar ekki telst það rangt svar.
Leikarar
Tíminn líður.
Tikk-takk, tikk-takk, tikk-takk…
Heather Graham!
Rétt! Þú náðir að redda þessu.
Þá er það lokaspurningin:
Hver var morðinginn í fyrstu myndinni?
Ég veit það, helvítið þitt.
Það var Billy Loomis!
Hann var kærasti Sidneyar og Luke Wilson lék hann.
Ég náði þér, fíflið þitt.
Ég náði að svara rétt.
Því miður, Tara. Það er bara ekki rétt svar.
Hvað segirðu?
Þetta var víst rétta svarið.
Rétt svar er Billy Loomis og Stu Macher.
Tveir morðingjar í fyrstu myndinni.
Nú verður einhver að deyja.
Amber, ég kem!
Andskotinn!
Kveikt á kerfi.
Hringi í lögreglu.
Lögreglan er á leiðinni, fíflið þitt.
Slökkt á kerfi.
Dyr ólæstar
Kveikt á kerfi.
Slökkt á kerfi.
Kveikt á kerfi.
Slökkt á kerfi. Kveikt á kerfi.
Slökkt á kerfi.
Kveikt á kerfi.
Halló?
Aukaspurning, Tara.
Gerðu það, hættu.
Komst ég inn í húsið áður en þú kveiktir aftur á kerfinu?
Hjálp!
Modesto í Kaliforníu
Fyrirgefðu, fröken?
Hvað tókstu? -Standpínupillurnar þínar.
Gangi þér vel að ná honum upp.
Þú…
Þú ert standpínupillan mín.
Nei, nei.
Er allt í lagi?
Já.
Þú þarft ekki að vakta mig. Ég er ekki brothætt.
Ég veit allt um það.
Wes Hicks. Manstu eftir mér?
Hringdu strax, vegna Töru.
Fjandinn.
Sam? -Hæ, hvað er að frétta?
Það var ráðist á Töru.
Ha? Er hún…
Hún er á lífi en mikið særð.
Hún var…
stungin.
Stungin? Hver andskotinn!
Hún fór í aðgerð og læknirinn sagði að allt hefði gengið vel.
Hún hvílir sig núna.
Ég veit að sambandið er stirt…
Ég kem strax.
Hún jafnar sig, Sam. Við sjáumst fljótt.
Bíddu, Wes!
Er sökudólgurinn fundinn?
Það er best að þú komir hingað.
Wes.
Hún sagði að hann hefði verið með Draugafésgrímu.
Það var ráðist á systur mína.
Ég verð að fara.
Bíddu, ég fer með þér.
Nei, Richie…
Ég fer með þér, Sam.
Allt í lagi. -Já.
Takið eftir, Pardusar. Allar kennslustundir og frístundir
falla niður á morgun til að tryggja almannaheill.
Þetta var Sam.
Kemur hún? -Já.
Þá verður allt enn verra.
Ég meina bara að vegna alls sem er í gangi núna
ættum við að gera samband okkar enn innilegra á þennan hátt.
Hann vill tengjast mér með staðsetningarappi.
Það er skynsamlegt þegar morðingi gengur laus.
Þá veistu alltaf um mig og ég veit um þig.
Eins og abbó hrellikærasti.
Og þú hrellir mig á móti eins og abbó kærasti.
Er þetta af því að þið hafið ekki sofið saman?
Góður punktur. Ég vil ekki hljóma
eins og hnakki sem vill bara negla kærustuna.
Frábært!
Ekki gera það, Liv. Brjálæðingur gengur laus.
Feldu þig frekar.
Enga samfélagsmiðla, símamyndavélar eða GPS.
Þakka þér fyrir, Edward Snowden.
Mamma þín yfirheyrði mig vegna árásarinnar á Töru.
No comments yet. Be the first to leave one.