American Crude

American Crude

Download Icelandic Subtitle

Release info

American Crude 2008 DVDrip
A Commentary by rippmaster

Tags

DVD
DVDRip
dvdrip
dvdr
Published on: 2021-10-08
Downloads: 19
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Ó, þvílíkan flækjuvef má flétta þegar náungann skal svíkja og pretta.

Svo orti Bill Shakespeare. Hann vissi þetta fyrir 500 árum.

Klækir og svikabrögð hafa hrundið af stað styrjöldum,

eytt konungdæmum,

jafnað við jörðu mestu heimsveldum sögunnar.

Það var hrár lygavefur sem ég spann sem leiddi mig til glötunar.

Sjáið þennan náunga? Þetta er ég, Johnny Grand.

Ekki alls fyrir löngu hafði ég allt.

Stórt hús í úthverfinu, yndislegt líf, nóg af pening.

Sagan fjallar um það hvernig ég tapaði því öllu.

Þetta er vinkona mín, Carlos, gamall kúnni og fangi.

Nema hvað hún er nýsloppin með smáhjálp undirritaðs.

Ég fér í laganám í góðum tilgangi

en einhversstaðar villtist ég af leið.

Felonious Spinks, vinur Carlosar.

Stundum elskhugi, stundum blóraböggull.

Hann spilar á hana næstum því jafnvel og hann spilar á saxófón.

Þetta er konan mín, Jane. Hún vill vera ofan á.

Hún verður að stjórna.

Hefur alltaf gert.

Johnny.

Johnny.

Jörð til Johnny.

Hvað? Sagðirðu eitthvað?

Við erum að elskast og þú ráfar enn og aftur í eigin heim.

Um hverja dreymdi þig? -Ég var að reyna að koma ekki.

Ég vil fá þig inn í mig.

Þetta er besti vinur minn, Bill.

Bill gerði skyssu. Hann treysti mér.

Drífðu þig, ég vil ekki verða of seinn aftur.

Ég hef ekki einu sinni náð að farða mig.

Geturðu ekki gert það í bílnum?

Ég vil ekki fá viðurnefnið herra og frú Svifasein.

Byrjaðu ekki.

Ég sver það.

Þetta er fyrrum kærasta mín og ástin í lífi mínu, Olivia.

Hún og Bill giftast í næstu viku.

Hvað ertu að gera? Hættu.

Slepptu.

Hvað átti þetta að þýða?

Ég vil barn.

Ekki ég. -Synd, því ég hef egglos.

Þú sagðist vera á pillunni.

Ég laug.

Varstu að neyða mig til að gera þig ólétta?

Má ég kynna Gigi LaRush, framandi dansara. Mjög hæfileikarík.

Ég náði samkomulagi

vegna hennar þriðja brots með því að útvega dómaranum mellu.

Gigi skuldar mér greiða.

Fjandans vaskur.

Þessa stundina er pípulögnin helsta vandamálið hennar.

En um miðnætti verður það morð.

Þetta er Enrique. Að eigin sögn er Guð á hans bandi.

Hann rænir ungum stúlkum og selur þær í gróðaskyni.

Fyrir löngu síðan skildi hann Carlos eftir til að deyja.

Fortíðin mun ásækja hann áður en nóttin er öll.

Og þetta er minn kæri faðir.

Blekkingameistari og rotinn inn að beini.

Fullkominn repúblikani.

Hann veit það ekki ennþá en fall hans verður hátt.

Báturinn fer í fyrramálið.

Færðu mér aðra í kvöld.

Svipaða og þá síðustu.

Klappstýru.

Huggulega og unga.

Táningsstelpu.

Má ég kynna Tammy Snow.

Það sem hún þráir er að geta uppfyllt drauma sína.

Þetta eru þátttakendurnir og þetta er kvöld

hins mikla harmleiks sem breytti lífi mínu.

Og svona byrjaði það.

Um hverja varstu að hugsa?

Hvenær?

Þegar við vorum að elskast og þú varst víðsfjarri í öðrum heimi.

Hverja sástu fyrir þér? -Ég sagði þér það,

ég sá enga fyrir mér, ég var að einbeita mér.

Þig dreymir um aðrar konur, þú sagðir það sjálfur.

Það gera allir menn, það er ekki málið.

Ég vonaði að ég nægði.

Taktu það ekki persónulega, ekkert okkar er það.

Hver var tilgangurinn með hjónabandinu?

Hjónabandið þjónar fullkomlega eðlilegum og félagslegum tilgangi.

En rómantískt.

Það er nauðsynlegt, það greinir okkur frá öðrum dýrum.

Þú átt bágt, veistu það?

Þú þarft að taka eina af þessum gleðipillum eða þannig.

Af hverju telurðu mig alltaf úr jafnvægi þegar þú gagnrýnir mig?

Ertu það ekki? -Hver er ekki í ójafnvægi?

Þú ert ekki beinlínis fyrirmynd að andlegu heilbrigði.

Svo nú er ég brjáluð.

Sko, ráðsemi. Ég á mér ekki viðreisnar von.

Þannig ferðu að, þannig fara konur að.

Halló? -Manny.

Hæ. -Hæ.

Þetta er hr. Grand. -Hr. Grand, gaman að heyra í þér.

Gaman að heyra í þér líka.

Manstu eftir samtalinu sem við áttum í síðustu viku?

Varðandi lambið? -Hárrétt.

Ó, já. -Ef þú skorar í kvöld

þá færðu eitt þúsund að launum.

Eitt þúsund? -Rétt, eitt þúsund.

Er það nokkuð mál? -Nei, alls ekki.

Það vildi ég heyra.

Allt í lagi. -Gott og vel.

Ekkert mál, bless.

Já, væna.

Ég veit hvað tímanum líður.

Þetta er móðir mín.

Daginn sem hún sótti um skilnað datt hún niður stigann.

Pabbi sagði að það hefði verið slys. -Uns dauðinn aðskilur okkur.

Þetta ætti að duga.

Hvert var vandamálið?

Það sem ég get ályktað út frá aðstæðum

þá var getnaðarvörn flækt í frárennslislögninni.

Góðu fréttirnar eru þær að vaskurinn er í lagi.

Ruslkvörnin olli vandræðunum. Og þessi...

Þessi félagi hér.

Hann er ábyrgur fyrir að spýta öllu upp.

Heyrðu, Jim,

ég er frekar auralítil eins og er. Get ég fært þér eitthvað

eða gert eitthvað fyrir þig?

Ég gæti þegið mjólkurglas.

Ég á ekki mjólk, bara rjóma með kaffinu.

Það væri afbragð.

Kaffi? -Nei, rjóma takk.

Viltu glas af rjóma? -Það væri frábært.

Hæ, brettastrákur.

Er vefmyndavélin enn í ólagi?

Þú ætlaðir að vera í sambandi á fimmtudaginn en hringdir aldrei.

Hvað er að? Leyfa mamma og pabbi þér ekki að leika?

fyrirgefðu — þau lokuðu á mig

ég er í tölvu vinar míns

Í kvöld? Allt í lagi. -Snoppufríð.

Eins gott að þú mætir. Vonandi ertu jafngóður og þú hljómar.

Ratarðu í miðbæinn? -Þekki hann eins og körfuna mína.

Þú ert óþekk lítil kisulóra.

Ég bý rétt austan við ráðstefnuhúsið

á 8. stræti og...

Helvítis einskisverða drasl.

Hvernig bragðast rjóminn, Jim?

Góður. -Veistu, Jim,

ég er orðin dálítið sein Í vinnuna, kannski...

...i þetta eina skipti þá áttu inni hjá mér?

Ég veit hvað þú gerir.

Þú þarft ekki að stimpla þig inn.

Mér þykir það leitt, en ég læt engan skulda.

Ég vænti greiðslu eftir hverja þá vinnu sem ég inni af hendi.

Og þú veist það.

Já, ég veit.

Fyrirgefðu, ég átti ekki að spyrja.

Hvað má bjóða þér?

Hráki og pússun ætti að duga.

Allt í lagi.

Já, elskan. Góð stúlka.

Sestu inn, Carnelito, þú keyrir.

Hvar er stelpan?

Ég hélt að þú ætlaðir að útvega mér drátt í kvöld.

Vertu rólegur, hún er í skottinu.

Í skottinu? -Í skottinu.

Er hún skutla?

Hún er algjört óargadýr.

Hvað ertu að gera?

Hvað áttu við? -Rekur á eftir mér,

kvartandi undan seinagangi

og gefur svo náunganum á undan séns eins og ekkert sé.

Hvaða máli skiptir einn bíll?

Þetta segja þeir allir, Bill.

Einn bíll og síðan sá næsti og síðan næsti og þá næsti.

Þetta er um eitthvað annað. -Um hvað er þetta, Bill?

Johnny og Jane.

Þú vilt ekki fara.

Mér finnst erfitt að umgangast þau eins og er.

Af hverju? Ég skil ekki.

Ertu skyndilega þroskaðri en þau?

Já, svipað og þegar maður þroskast og trúir ekki lengur á dreka.

Það er kominn tími á breytingar.

Hvað í fjandanum var þetta?

Fíflið tók næstum framendann af bílnum.

Öskraðu ekki á mig, þetta var ekki mér að kenna.

Ég er ekki að öskra á þig!

Ég er pirraður.

Láttu hann þá ekki komast upp með þetta.

Gerðu eitthvað í því.

Eins og hvað? -Ég veit ekki, eitthvað. Hvað sem er.

Gefðu honum fingurinn. Segðu honum að fara til fjandans.

Keyrðu upp að honum. Sittu ekki aðgerðalaus.

Komið, helvítis fíflin ykkar! Andskotans viðrini!

Komið bara!

Ertu að reyna að drepa okkur?

Kannastu við brjálæðinga í umferðinni?

Náunginn gæti verið vopnaður.

Þú ert alltaf svo gætinn. Svo helvíti fyrirsjáanlegur.

Af hverju ertu svona reið?

Ég veit það ekki.

Það væri gott ef þú vissir það.

Því við ætlum að gifta okkur í næstu viku

og ég ætla ekki að eyða ævinni í að réttlæta sjálfan mig.

Við getum ekki uppfyllt allar okkar þarfir. Við tökum því sem gefst.

Flest fólk breytist ekki.

Karlar og konu munu aldrei skilja hvort annað til hlítar.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left