Patton

Patton

Download Icelandic Subtitle

Release info

Patton 1970 WEB-DL DSNP
A Commentary by ChristopherCavco

Tags

Web-DL
web-dl
web
WEB-DL
Published on: 2022-07-09
Downloads: 19
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Í réttstöðu!

Setjist.

Ég vil að þið munið...

að ekkert kvikindi hefur unnið styrjöld...

með því að deyja fyrir ættjörðina.

Stríð eru unnin...

með því að láta hitt fíflið deyja fyrir ættjörðina.

Karlar...

allt það sem þið hafið heyrt um að Bandaríkin vilji ekki berjast...

við viljum halda okkur utan við stríðið...

það er tóm djöfuls tjara.

Bandaríkjamenn...

njóta þess af gömlum vana að berjast.

Allir sannir Bandaríkjamenn njóta kvalafulls bardaga.

Þegar þið voruð strákar...

dáðust þið allir að meistaranum í glerkúluspili...

fljótasta hlauparanum, leikmönnum í efstu deild, hörðum boxurum.

Bandaríkjamenn dá sigurvegarana...

og þola ekki þá sem tapa.

Bandaríkjamenn leika alltaf til sigurs.

Mér er ekki sárt um þann sem tapaði og hló.

Bandaríkjamenn hafa aldrei tapað og tapa aldrei stríði...

af því að tilhugsunin um að tapa...

þykir þeim andstyggileg.

Nú...

her er hópur.

Hann lifir, étur, sefur og berst sem hópur.

Þetta um einstaklinga er tómt kjaftæði.

Fýlupokarnir sem skrifuðu um einstaklingshyggju...

í Saturday Evening Post...

vita ekki meira um sannan bardaga en þeir vita um hórdóm.

Við höfum besta matinn og búnaðinn...

besta baráttuandann...

og besta mannskap heims.

Vitið þið...

ég vorkenni kvikindunum sem við eigum í höggi við.

Ég geri það vissulega.

Við skjótum ekki aðeins skepnurnar...

við tökum innan úr þeim...

og notum iðrin úr þeim til að smyrja skriðdrekana með.

Við myrðum húnaskepnurnar í stórum stíl.

Jæja.

Sumir ykkar drengjanna...

veit ég að hugsa...

hvort þið verðið hræddir í skothríð. Hafið ekki áhyggjur af því.

Þið megið trúa...

að þið gegnið allir skyldu ykkar.

Nasistarnir...

eru óvinurinn.

Rjúkið í þá!

Látið þeim blæða! Skjótið þá í magann!

Þegar þið leggið höndina...

í klístruga klessu...

þar sem var rétt áður andlit besta vinar ykkar...

vitið þið hvað þið eigið að gera.

Það er eitt enn sem ég vil að þið munið.

Ég vil ekki heyra nein boð um að við "höldum stöðunni."

Við höldum engu. Látum húnana um það.

Við sækjum sífellt fram. Við höfum ekki áhuga á að halda í neitt...

nema óvininn.

Við höldum í nefið á honum og spörkum í rassinn á honum.

Við lúberjum hann látlaust...

og við förum gegnum hann eins og skítur gegnum gæs!

Nú...

það er dálítið...

sem þið getið sagt þegar þið komið aftur heim.

Og þið megið þakka guði fyrir það.

Eftir 30 ár þegar þið sitjið við arininn...

með sonarson ykkar á hnénu...

og hann spyr:

"Hvað gerðir þú í seinni heimsstyrjöldinni miklu?"

Þurfið þið ekki að segja:

"Nú...

ég mokaði skít í Louisiana."

Jæja þá, kvikindin ykkar.

Þið vitið hvernig mér líður.

Ég skal stoltur...

fylgja ykkur öðlingunum í bardaga hvenær sem er...

hvar sem er.

Það var ekki fleira.

KASSERINE-SKARÐI Í TÚNIS, 1943

Arabar þurfa mat og fatnað.

Þeir afklæða lík okkar manna áður en við getum jarðsett þau.

Frásagnir virðast hafa verið allnákvæmar.

61 brynvarið farartæki, 45 tonn af skotfærum...

25 40mm byssur, þrír sjálfvirkir skriðdrekar.

Að ótöldum sprengjuvörpum, vélbyssum, rifflum...

skammbyssum, sjónaukum, beltis- sylgjum, hermannasokkum.

1800 hermenn.

RABAT, MAROKKÓ

Menn okkar hylla þig, hershöfðingi...

fyrir glæsilega innrás á láði og legi inn í Afríku...

og fyrir það hve vel þér hefur tekist að stjórna landi okkar.

Ég naut verunnar hér, yðar ágæti.

Ég hefði heldur viljað vera í Túnis að berjast við Þjóðverja.

"Ljónin skjálfa í bælum sínum þegar hann nálgast."

Ég er hrifinn, yðar ágæti.

Stórkostlegt.

Bara að okkar menn litu svo vel út.

Hershöfðingi, hvað finnst þér um Marokkó?

Ég er hrifinn, ágæti.

Þetta er blanda af Biblíunni og Hollywood.

-Börðust mennirnir í Kasserine? -Já, herra.

Að bandaríski herinn skyldi bíða slíkan ósigur...

þegar hann barðist í fyrsta sinn gegn Þjóðverjum...

Í viðureigninni við Rommel þurfum við besta skriðdrekamanninn okkar.

Mann nógu harðan til að sameina þetta lið.

-Patton? -Hugsanlega.

Guð hjálpi okkur.

II. STÓRDEILD AÐALSTÖÐVAR

Liðsforingi...

hvar er foringinn á vaktinni?

-Hann sagðist fara að raka sig. -Af hverju er hann ekki á vakt?

Hann þurfti víst að raka sig.

Við fáum nýjan hershöfðingja í dag.

Hver er að sparka í mig?

Afsakaðu, herra.

-Hvað ertu að gera þarna niðri? -Ég reyni að sofna, herra.

Aftur niður.

Þú ert sá eini hér sem veit hvað hann reynir að gera.

Já, herra.

-Brad, hvernig í fjandanum líður þér? -Vel, George. Gaman að sjá þig.

Við töldum allir að þú kæmir ekki fyrr en klukkan 0900.

Já, mér skildist það.

Þú þekkir drenginn minn, Dick Jenson.

Brad, segðu mér eitt.

-Hvað ert þú að gera hér? -Ike vildi fá skýrslu um Kasserine.

Ég verð að vera hér sem áhorfandi...

en gef Ike milliliðalaust skýrslu.

Þú ert að njósna.

Gefðu mér samband við bækistöðvar Eisenhowers hershöfðingja.

Segðu mér, Brad...

hvað gerðist í Kasserine? Allt fór á annan endann.

Allt virðist hafa farið úrskeiðis.

Ef við skutum 75 mm skotum sendu þýskarar 88 mm til baka.

Skriðdrekar þeirra eru með dísilvélar.

Þótt okkur tækist að hæfa þá héldu þeir áfram. Skriðdrekar okkar...

Mannskapurinn kallar þá "purpurahjartakassana."

Geymirinn springur ef sprengjubrot lendir á honum.

Ég varaði þá við.

Ég talaði við einn dátanna um hálfskriðdrekana.

Ég spurði hvort kúlur úr vélbyssum kæmust gegnum brynvörnina.

Hann sagði: "Nei, herra.

Þær koma inn um eina hliðina og skrölta talsvert."

Þeir áttu víst erfitt með að samhæfa loftvarnir.

Það voru engar loftvarnir.

-Smith hershöfðingi er í símanum. -Afsakaðu, Brad.

Bedell?

Ég hringi vegna Bradleys og starfa hans hér.

Mig vantar góðan næstráðanda. Ég vil að Brad verði aðstoðarmaður minn.

Gengurðu frá því við Ike?

Þakka þér fyrir, Bedell.

Þú njósnar ekki lengur fyrir Eisenhower, þú vinnur hjá mér.

-Er það í lagi? -Í góðu lagi.

Dick. Ertu með stjörnurnar?

-Já, herra. -Komum þeim fyrir.

Hvað er að, Brad? Forsetinn útnefndi mig.

Það verður ekki opinbert fyrr en öldungadeildin samþykkir það.

Nú...

hún hefur sína áætlun og ég hef mína.

George...

ef þú værir skipaður aðmíráll tyrkneska sjóhersins...

eiga aðstoðarmenn þínir að geta seilst...

eftir réttum einkennismerkjum.

Hvað um það, til hamingju. Hamingjuóskir fyrir tímann.

Veistu...

ég held að stjörnurnar taki sig betur út á grænni skyrtu.

Sagði ég þér frá búningnum sem ég útbjó handa skriðdrekamönnum?

Það var grænt leður, rauðar rendur...

og röð af koparhnöppum hér niður.

Og efst var gylltur fótboltahjálmur.

Herinn hafnaði honum auðvitað.

Fjandi var hann fallegur.

Lloyd Fredendall er á förum.

George, það er eitt enn sem ég setti í Kasserine-skýrsluna.

Sumir drengjanna okkar voru dauðhræddir.

Það er skiljanlegt.

Jafnvel besti refahundur óttast skothvellina í fyrsta sinn.

Ég man...

að ekkert hræddi mig jafnmikið og hugmyndin um...

að kúla stefndi beint á nefið.

Einhverra hluta vegna var ímynd byssukúlu í nefið á mér...

hryllilegri en nokkur annar möguleiki.

Ég get skilið það, nefið er svo glæsilegt.

Veistu af hverju þessi hópur varð svo illa úti?

Blindur maður gat séð það á svipstundu.

Þeir starfa ekki sem hermenn. Koma ekki fram sem hermenn.

Hví að berjast eins og hermenn?

Það er öldungis hárrétt. Aginn er sáralítill.

Eftir stundarfjórðung byrjum við að breyta þessum drengjum...

í ofstækismenn, voðamenni.

Þeir gleyma hræðslu sinni við Þjóðverjana.

Ég bið þess bara að þeir glati ekki hræðslu sinni við mig.

Snemma á fótum, hershöfðingi? Morgunmat?

Hafa allir yfirmennirnir lokið morgunverðinum?

Hér er opið frá 6 til 8.

Flestir yfirmannanna eru að koma, herra.

Segðu yfirmönnunum að matsalurinn sé lokaður.

En klukkuna vantar bara kortér í átta.

Framvegis opnarðu klukkan 6 og enginn kemst inn eftir kl. 6.15.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left