The first 200 lines.
Fröken Lemmon! Fröken Lemmon!
Fröken Lemmon!
Hvað...?
Doktor Warfield!
Biddu prófessor Kelp að koma hingað strax.
En ég held að prófessor Kelp sé að kenna núna.
Hann var að kenna. Heyrirðu ekki?
Náðu nú í hann!
Eldurinn er hérna.
Náðu í öxi! Náðu í öxi!
Allt í lagi, allir saman á hurðina.
Passið ykkur! Passið ykkur!
Ó, ó... afsakið.
Ó, þetta er hræðilegt!
Ó...!
Ó..Ó..
Guð minn...!
Prófessor Kelp?
Er allt í lagi með þig? Og ef svo er, hvar ertu þá?
Guð minn...
Doktor Warfield vill hitta þig á skrifstofunni.
Doktor Warfield? -Já, undir eins.
Ég notaði of mikið...
Kelp.
Hve lengi hefurðu starfað við þennan háskóla?
Ja, ég myndi segja, ö...
...áður en ég var í nemendaráði, USC, þrjú ár...
Nei, ég fór í framhaldsnám, auðvitað, tvö ár...
Ég tók grasafræði í einum ákveðnum skóla...
Ég hafði ákveðið, læknisfræði, grasafræði, helst einhver vísindi...
Ég skal byrja þegar ég útskrifaðist...
Hve lengi?!
Tvö ár og 22 mínútur núna.
Kelp, ég man að þegar þú komst hingað,
sagði ég þér og öðrum nýjum kennurum,
að ég liði ekki að starfsfólk notaði starfsaðstöðu háskólans
fyrir sínar eigin tilraunir.
Var mál mitt ekki nógu skírt?
Gott, ég vissi að mig minnti þetta rétt.
Og var það ekki um sex vikum síðar
að þú gerðir frekar áhugaverða tilraun í tíma?
Sjáum til. Ég held að það hafi varðað íblöndun efnis við bensín
í þeim tilgangi að auka skilvirkni sprengivélarinnar.
Rétt? -Já, það var eitthvað í þá átt...
Manstu hvert íblöndunarefnið var?
Já, reyndar, þegar þú nefnir það, íblöndunarefnið var
3 hlutar kolefni, 5 hlutar vetni, 1 hluti nitur, 3 hlutar súrefni.
Sem er auðvitað...? -Nítróglusserín.
Niðurstöður voru...? -Neikvæðar.
Og...? -Háværar.
Háværar!
Þetta var stærsta sprenging í sögu þessa eða nokkurs háskóla.
Það eru tvö ár síðan. Menn tala enn um það í dag.
Fyrst þú nefnir það, þá sá ég hann Phips um daginn.
Þú manst að Arnold Phips var mættur þennan dag.
Já, virkilega, hvað sagði hann?
Honum líður mun betur. Sárabindin verða fjarlægð eftir tvær vikur.
Ja, smá... Einmitt! Þetta er einmitt það sem ég meina!
Þú ert stórhættulegur.
Prófessor Kelp, trúðu mér, ég veit hvað ég er að tala um.
Þetta er mannlegt eðli.
Fólki líkar bara ekki að kennarar sprengi börn þess í loft upp.
Reyndu að skilja að ég skil
að vísindamenn og uppfinningamenn hafa sínar kenjar.
Einstein þoldi ekki klippingu, da Vinci vildi mála og Newton...
Varðaði það ekki fíkjur?
Þess vegna skil ég líka að þú hefur margar samskonar kenjar.
Skildu þær eftir í skápnum þegar þú mætir á morgnana.
Og taktu þær endilega heim með þér á kvöldin.
Allt í lagi, Kelp, slakaðu á.
Ég er viss um að við munum ekki þurfa að ræða þetta framar. Er það rétt?
Ó, án efa, þú hefur hárrétt...
...nel, við munum ekki þurfa að árétta þetta.
Við tölumst ekki við...
Það er, við þurfum aldrei að tala saman aftur. Við ræðum ekki samtöl.
Við ættum í raun ekki að ræða um tal.
Prófessor, samtali okkar er lokið.
Þakka þér, doktor... -Kelp.
Já?
Úrið þitt...
...gerir það...
...alltaf...?
Ó, nei, bara þegar ég opna...
Þetta er grænmetið þitt.
Sæl, hvernig hefurðu það?
"Þess vegna hefur maðurinn um aldir
verið forvitinn..."
Prófessor Kelp. -Já, Worfshefski?
Ég þarf að fara... -Þarftu á klóið?
Því finnst þér þú þurfa að biðja um leyfi til að fara?
Nei, það sem ég ætlaði að segja er að...
...ég þarf að fara á ruðningsæfingu.
Ruðningsæfingu?
Á þessum tíma? Hvað með nám þitt?
Ja, Coughman, þjálfari,
hann bað mig að reyna að losna úr fyrsta tíma í morgun...
Losna úr fyrsta tíma?
Gerði hann það? Að losna úr fyrsta tíma?
Ef þú hefðir lært eitthvað í fyrsta tíma,
ég á þar við fyrsta bekk,
værirðu ekki í svo mikilli þörf fyrir að læra núna.
Beiðni þinni er hafnað. Vinsamlegast fáðu þér sæti.
Ég vil ekki heyra minnst á þessa heimskulegu æfingu.
Þú hefur enga ástæðu til að skamma mig svona.
Ég var kannski aðeins of fljótfær.
Það var ekki fallegt að kalla æfinguna mína heimskulega.
Ég var heimskur að telja æfinguna heimskulega.
Slæmur, slæmur, slæmur.
Kennari! -Þú ættir ekki að vera reiður.
Þú ert að brjóta...
Þar fór sköflungurinn. Worfshefski, þú ert... Worfshefski!
Þú verður að skilja að...
Þú veist ekki hvað þú gerir.
Worfshefski, þú veist ekki hvað þú ert að gera.
Gerið ekki bara eitthvað, sitjjö þarna!
Það er...kennslu lokið!
Þið megið fara.
Get ég aðstoðað?
Ó...
Þakka þér, fröken Purdy, þú ert afar hugulsöm.
Reyndar myndi ég þiggja aðstoðina
því ef þú aðstoðar mig ekki gæti ég dúsað hér alla önnina.
Byrjum á bókinni.
Já...ég veit ekki, ég...
Þú þarft að... Sko...
Bíddu, það er tengt, þú ættir ekki að ýta á þetta.
Togaðu hann bara út.
Ó, þetta small.
Fyrirgefðu. -Það er allt í lagi.
Reyndu að halla þér. -Ó, nei, nei, nei, nei...
Leyfðu mér að... Láttu mig hafa handlegginn...
Má ég fá handlegginn? Halt þú bara hluta líkamans.
Takk, takk.
Takk, fröken Purdy. -Er allt í lagi með þig?
Ó, já, þetta er afar vandræðalegt, fröken Purdy.
Því kallarðu mig ekki Stellu?
Ég hélt það væri Stella Purdy.
Þú meinar að ég skuli kalla þig Stellu. En heimskulegt af mér. Afsakið.
Ég geri það, heimska...Stella.
Ég er í uppnámi. Þetta er afar vandræðalegt.
Í hreinskilni sagt ættirðu ekki að láta slíkt naut angra þig.
Hann er dæmigerður yfirgangsseggur sem nýtur þess að kúga minni mann.
Já, það er rétt, fröken Purdy,
en þú ættir að drífa þig eða þú missir af næsta tíma.
Er allt í lagi?
Ó, já, eins og ég sagði er þetta bara vandræðalegt. Það er í lagi með mig.
Fröken Purdy...
Fröken Pur... Afsakið.
Þú...
ÞVÍ AÐ LÁTA STÓRU STRÁKANA KÚGA SIG?
VERTU SJÁLFUR VÖÐVATRÖLL
Hann er dæmigerður yfirgangsseggur sem nýtur þess að kúga minni mann...
...Kúga minni mann... ...Kúga minni mann...
UM ÞENNAN INNGANG GANGA HINIR VEIKUSTU
SEM VERÐA BRÁTT STERKUSTU MENN Í HEIMI
Ég held ég hafi brotið mig.
Röng leið, herra. Þetta er tækjasalurinn. Þú ert víst nýr?
Ja, ég er ekki glænýr. -Nei, ég meina nýr nemandi.
Mér þykir þetta afar leitt. Ertu meiddur?
Ja, ef maður segði að maður með magasár,
nagla í skónum og flís í fingri yrði fyrir eldingu...
Ef maður segði að hann væri ómeiddur þá er ég ómeiddur.
Gott. Við notum ekki gleraugu hjá Vic Tanny.
Ég tek þau af mér.
Ég vissi ekki að maður ætti ekki...
Það er enginn staður þar sem ég... Er einhver staður þar sem ég gæti...?
Á ég að setja þau í skáp? -Mér þætti það gott. En hugulsamt.
Ég hefði ekki sett þau þarna ef ég hefði vitað að það væri bannað.
Sumir nota þau fyrir ímyndina, ég nota þau fyrir augun.
Skilurðu, "fyrir augun“, það er orðaleikur með "augu".
Ég vona að ég hafi ekki gert neitt rangt með því að hafa þau.
Gætum við byrjað? Ég á að kenna og þarf að drífa mig.
Fylgdu mér. -Dásamlegt.
Ég hef aldrei gert þetta áður. Ég veit ekki hvar skal byrja.
Við byrjum hérna.
Eineggja tvíburar.
Nei, þetta er togtæki. -Togtæki? Hvað gerir það?
Maður togar í það! 15 eða 20 skipti. -Ó, ég skil.
Og farðu varlega. -Auðvitað.
Ég myndi alls ekki reyna of mikið á mig. Takk.
Ekkert að þakka. Gleðilega vöðva.
Já, auðvitað.
Ó, já, ég hef séð þetta í tímaritum.
Ó, þetta er hressandi.
Ó, þetta er stórkostlegt.
Ég sé að ég á eftir að skemmta mér vel með þessu.
".. Ýmsir þættir eru, auðvitað, afstaðan til vetnis.
Það er vetni, sprengifimt og hættulegra en atómið.
Jafn er eyðileggingarmáttur niturs...nitur, jafn..."
Ég komst ekki hjá því að taka eftir, ég stóð hérna,
að þetta er ótrúlegt, hvernig þú ýtir þessu þarna upp.
Það hlýtur að krefjast mikillar þolinmæði.
Og smá vöðva.
Ó, já. Þú ert vissulega... Já, þú ert...
Ég vildi að ég gæti...mér þætti gaman að reyna þetta einhvern tímann.
Ég held að þig skorti þolinmæði fyrir þetta.
Ég hef hitt sem þú nefndir: smávöðva.
Þessi var nokkuð góður!
Hérna, skemmtu þér.
Mig grunar að þetta hafi verið þyngra en ég...
No comments yet. Be the first to leave one.