The first 200 lines.
TIL SÖLU
Ögrið skynseminni. Ögrið öllu sem þið þekkið.
Einstakt ferðalag yfir í heim hins dulræna og yfirnáttúrulega.
Stórkostlegi töframaðurinn Peter Vincent.
Velkomin í Ógnarnóttina.
Á Hard Rock hótelinu og spilavítinu í Las Vegas.
Velkomin aftur. Í norðurhluta Las Vegas, í Hillcrest Bluffs
var kona á leið út úr verslun þegar maður reyndi að bíta hana.
Öryggisvörðurinn fældi hann í burtu.
Ef þið hafið séð...
Í alvöru? Í alvöru? Nú ríf ég þig niður í parta.
Fylgstu með mér rústa þér. Þú ert búin að vera.
Er hjólið bilað?
Þessi haugur hefur engan metnað. Engar hreðjar.
Doris, viltu að ég hjálpi þér með ruslið?
Ég hef þetta, takk.
Gaman að sjá þig, Char-Char. Þú ert orðinn stór.
Heyrðu, stráksi. Ekki góna á nágrannana.
Hún merkti rassinn á sér. Ég las þetta bara.
Ætlar hann ekki að færa gáminn?
Jafnaðu þig á þessu.
Stælar.
Þú ert eitthvað stressaður.
Er það Amy? - Nei, Amy hefur ekki sparkað mér ennþá.
Það getur verið stressandi að fá það sem maður vill.
Einkum þegar maður er ekki vanur slíku. Meira að tapa.
Ertu aftur farin að lesa asnalegu sjálfshjálparbækurnar?
Þær virka alls ekki.
Ekki skellinaðran heldur.
Þú tapar þér yfir ruslagámi.
Þetta er sjónmengun.
Ég vil fá fólk í hverfið í stað aragrúans sem flytur burt.
Flott orð, aragrúi. - Halló.
Hjálpaðu mér.
Þegar Perry-hjónin bjuggu þarna...
Þau voru bestu nágrannar í heimi en þau fluttu.
Varstu ekki ánægð þegar húsið var keypt?
Hann er ekki að grafa sundlaug. Hvaðan kemur öll steypan?
Góð spurning. Njósnaðu meira um hann til að komast að því.
Hann er í næsta húsi. Það kallast ekki að njósna.
Það kallast að vera eftirtektarsamur.
Sæl, frú Brewster. - Sæl, elskan. Sælar, stelpur.
Ed hringdi aftur. - Var það?
Ef þú vilt ekki tala við hann skaltu segja honum það.
Það er einmitt það sem ég forðast.
Kemurðu hjólinu ekki í gang? - Hafðu trú á mér.
Þarftu þá ekki að fá far með okkur?
Amy! Guð minn góður.
Charley? - Já.
Veistu hvað? - Hvað?
Við erum á réttum tíma. - Gott.
Þú ert of áhyggjufullur. - Nei.
Jú, víst. Þú ferð í áhyggjuhaminn.
Hvernig er áhyggjuhamurinn? - Áhyggjuhamur.
Ég fer ekki í áhyggjuham og set ekki upp þennan svip.
Alltaf.
Sælar, dömur. - Þið eruð flottir.
Í alvöru? Mokkachino?
Þú verður að hætta að fá far með stelpunum.
Bursta þær á þér hárið, folinn minn litli?
Chuck er öruggur með sig.
Glæsilegt. Flottir skór.
Purpurabrúnir. - Já, andskotinn hafi það.
Ég fer á æfingu eftir skóla.
Þarf ég að bjóða þér á loka- ballið? Förum við ekki saman?
Ég í smóking sem passar ekki og allt heila klabbið.
Nei, enginn í efsta bekk mætir á ballið.
Ég vissi það.
Það er ekki töff. - Ég veit.
Jæja, bless. - Bless.
Fannstu töfralampa, maður?
Færðirðu gelluguðunum fórn? Hvernig nældir þú í hana?
Þetta er bara sjarminn.
Grjótharður sjarmi.
Hann á ekki einu sinni bíl. - Í alvöru.
Ben Wegener? - Já.
Nick Straley?
Nick?
Courtney Frank? - Já.
Adam Johnson?
Adam?
Steve Danton? - Já.
Matt Hofstetler? - Já.
Ellen Mclntosh? - Já, fröken Granada.
Samuel Silverman?
Fjandinn hafi það. Hvernig náðirðu þessari mynd?
Hún þráir athygli.
Gaur, ég held að það ætli að tala við okkur.
Áttu smástund aflögu?
Bara þið tveir? En sætt.
Nú getur hann kennt þér allt um aula-og lúðaskapinn.
Þarftu ekki að fara að ríða einhverjum dræsum?
Jú, reyndar.
Þetta er mikilvægt, Brewster.
Hvað segirðu, Ed?
Þú veist að Adam er horfinn. - Hvað áttu við með því?
Ég næ ekki í hann í gegnum skilaboð, síma eða neitt.
Þú tókst kannski eftir því að ýmsa fleiri vantar hingað.
Krakkar skrópa í skólann. Það er algengt.
Hvað á ég að gera? - Hitta mig heima hjá honum eftir skóla.
Athugum hvort allt sé í lagi.
Ég get það ekki, því miður. Ég er upptekinn.
Þú skilur ekki hvað ég er að segja. Adam er horfinn.
Þurfum við að ræða þetta hérna?
Má ég ekki tala við þig lengur?
Rólegur, ekki tapa þér. - Má ég ekki tapa mér?
Viltu ekki að ég tapi mér? Guð, þetta er hræðilegt.
Geislarnir mætast. Gufar menntaskólinn upp?
Á ég að segja vinum þínum hversu vel við þekkjumst?
Ég á við Lego-keppnirnar og Farscape-ráðstefnurnar.
Og búningana. - Þegiðu.
Eða þegar þú tókst Teygjukarlinn minn
og vafðir honum um punginn til að runka þér í klukkutíma.
Hættu þessu. - Komdu þá með mér.
Allt í lagi. Heima hjá Adam eftir skóla.
Ekki vera seinn.
Skilaðu svo Teygjukarlinum.
Veistu hvað ég vil fá í kvöldmat?
Þú veist að þú ert að borða núna.
Þú lést mig gefa þér risadrykk sem pláneta var nefnd eftir.
Það er satt, ég er óseðjandi.
Þú ert það.
Fyrir hvað var þetta?
Ekki neitt.
Afsakaðu að ég skyldi trufla þig og takk fyrir hjálpina.
Er mamma að daðra?
Charley, ég er hjá Adam. Skrýtið að sjá þig ekki hérna.
Manstu eftir myndböndunum af okkur og Adam í sokkabuxum?
Viltu nokkuð að nýju vinirnir sjái þau? Allt í lagi.
Ekki sundlaug? Hvað ertu þá að bralla?
Vandræði með grunninn. Ég þurfti að rífa upp hálfan kjallarann.
Húsunum var hent upp á einni nóttu.
Ég er aldrei hissa þegar þau klikka.
Þetta er í þriðja skipti sem hann bilar.
Vantaði bara nýjan þéttiloka.
Jerry, þetta er Charley, sonur minn, og...
Má ég segja kærasta?
Sæll, ég heiti Amy. - Sæl, Jerry.
Gaman að kynnast þér.
Jerry er nýi nágranninn í Perry-húsinu.
Hann er handlaginn. - Heldur betur.
Afsakaðu óreiðuna, Charley.
Ég lofaði að gámurinn yrði farinn á morgun.
Mér er sama, mamma var...
Jerry vinnur í byggingarvinnu á Aðalgötunni á nóttunni.
Spilarðu körfubolta?
Ég er alltaf til í leik.
Já, nei, ég geri það. Ekki spurning.
Ég geri það. - Hann er safnari.
Hann er heltekinn og sefur fyrir utan búðir til að fá skó.
Ég spila samt. - Það þarf alvörukarlmann til að ganga...
í purpurabrúnum skóm.
Þeir eru flottir.
Ég hefði boðið ykkur inn en þar er allt á rúi og stúi.
Ég hef ætlað að vera... - Góður granni.
Kannski bjóða þér í drykk eða eitthvað.
Fljótlega. - Endilega.
Takk fyrir hjálpina.
Minna mátti það ekki vera.
Guð, því hafnaðirðu honum?
Svona sætur gaur, einhleypur? Hann hlýtur að vera flagari.
Góð greining, mamma.
Ég hef átt í nægu karlaveseni og læt ekki plata mig aftur.
10 mínútur eða ég sendi öllum þetta.
Ég verð að fara. - Hvað segirðu?
Ég hringi í þig. - Núna?
Maturinn er tilbúinn. - Ég borða á eftir.
Er allt í lagi? - Við sjáumst.
Gaur, hvar hefurðu verið?
Þú sagðir eftir skóla. - Strax eftir. Nú er farið að rökkva.
Veistu hvað það þýðir? - Ekki hugmynd.
Leyfðu mér að líta í vasaorðabókina. - Góður.
Halló? Er einhver heima?
Nei.
Þetta er bilun.
Mér þykir sárt að segja þér þetta
en nágranni þinn...
hann er vampíra.
Nágranninn í næsta húsi? - Já.
Jerry? Ég var að hitta hann. - Allt í lagi, Jerry.
Það er ömurlegt nafn á vampíru. Jerry?
Ég skírði hann ekki. Ég segi þér bara frá staðreyndunum.
Gaur.
Halló?
Adam?
Heyrðu, þetta er Ed.
Jesús. - Mér líður eins og asna. Þetta er pappaspjald.
Flott.
Þau eru ekki heima. - Þau eru ekki þau einu. Hlustaðu á mig.
Ég sá frétt á stöð 13 um einhverja konu
sem komst undan manni sem reyndi að bíta hana.
Því gengurðu svona?
Jæja, hlustaðu á mig.
Við Adam skráðum allar árásirnar og mannshvörfin.
Heilar fjölskyldur hverfa. - Það er algengt.
Enginn býr í Vegas. - Þú býrð í Vegas.
Þú ert í miðjunni við hlið hússins hans, Perry-hússins.
Hann dekkti alla gluggana.
Margir gera það.
Þeir vinna á næturnar og sofa á daginn.
No comments yet. Be the first to leave one.