The first 200 lines.
Takið eftir. Flug 217 frá Feneyjum á Ítalíu.
Farþegar sæki farangur á færiband númer tvö.
Heitt.
Ég sæki dótið mitt á morgun.
Hringdu áður. Ég gæti verið í bólinu með ókunnugri stelpu.
45 mínútna bið eftir leigubíl. Þetta er fáránlegt.
Ostur og hrísgrjón.
Þú klesstir því rækilega. Þakka þér kærlega fyrir.
Mig vantar far.
Farðu frá.
Inn með þig.
Reyndu nú að halda bílnum á veginum.
NÝGIFT
- Geturðu ekki farið nær? - Ég vil ekki rispa lakkið.
- Hvað þú gera hér, Tom Leezak? - Opnaðu hliðið, Yuan.
Þú og Tom ekki saman lengur.
Opnaðu hliðið.
Þessi virðist þung.
Farðu burt með þessa druslu.
Undireins, prinsessa.
Segðu ekki orð.
- Eru mamma og pabbi heima? - Þau fóru á lungnaþembuballið.
Róleg, Lilla mín. Við göngum frá þessu með Tom.
Sarah...
Kyle.
Ég er kominn. Þú getur farið þegar þú vilt.
Þetta er hjá Tom og Söru. Við getum ekki svarað,
við erum í brúðkaupsferð um Evrópu.
Sendu stóra brúðargjöf annars hringjum við ekki í þig. Í alvöru.
Fékk skilaboðin. Leitt að brúðkaupsferðin var ömurleg.
Hafðu ekki áhyggjur. Þegar þú kemur aftur tökum við þig í bjórmeðferð.
Þetta er Peter. Ég var að vona að þú værir heima.
Tom, ef þú ert að hlusta, ég vorkenni þér, félagi.
- Hvar varstu? Sendingin byrjar eftir fimm. - Ég gekk hingað til að hugsa málin.
Hvað gerðist?
Sambandið var fullkomið en hjónabandið eyðilagði það.
Þú sást það, við vorum sem sköpuð hvort fyrir annað.
Já, manni varð óglatt.
Takk, Fred.
Blár. 28.
Taka sér stöðu. Byrja.
Til mín. Til mín.
Bolti.
Fyrirgefðu.
Ertu ómeidd?
Já. Þetta var grútmáttlaust.
Skál, Sarah McNerney.
Skál, Tom Leezak.
Hvað gerirðu þegar þú ert ekki Joe Montana?
Ég vinn á KNR-útvarpsstöðinni.
Upplýsingar um umferð.
Svo ég hef minn eigin kynni í beinni útsendingu.
Nei. Einhvern tíma kynni ég vonandi íþróttafréttir.
Sem stendur les ég bara fréttir af umferð.
Á næturvakt aðra hverja viku.
Og í afleysingum.
- Ertu sá Tom? - Hefurðu heyrt í mér?
Já, ég hringdi fyrir viku klukkan þrjú um nótt.
Þú sagðir að hraðbrautin væri greiðfær
en ég sat föst fyrir aftan stóran flutningabíl í þrjá tíma.
Sarah frá Beverly Hills.
Sem kallaði mig hálfvita.
Við urðum ansi æst.
Mjög æst.
Það var komið fram yfir háttatímann þinn.
Hvað veist þú um það? Ég var að vinna við uppboð. Ég er vikastúlka hjá Sotheby's.
Þá ertu í markaðsfræði í Stanford, gáfnaljós í fremstu röð.
- Ég er í listasögu í Wellesly í öftustu röð . - Í öftustu röð.
Ég líka. Fjölmiðlafræði í Burbank.
- Viltu heyra baráttusönginn? - Nei, takk.
Gott hjá þér.
Þú ert þó ekki dóttir Dans McNerney,
eins af eigendum Lakers og Dodgers?
Ég sé að það er rétt.
Ertu tilbúinn að tapa rosalega í biljarð?
Láttu þig dreyma. Ég var í barnagæslu á biljarðsstofu.
Þú ert öruggur með þig, hálfviti.
Bags.
Þannig var það. Mánuði seinna fórum við að búa saman.
Af hverju giftumst við þegar sambandið var svo gott?
- Ég veit það ekki. 10 sekúndur. - Af hverju giftist fólk?
Er nokkuð vit í að vera með sömu manneskju alla ævi?
- Fólk breytist. Það þroskast. - Þú ert í útsendingu.
Við værum kannski ennþá saman hefði ég beðið hennar almennilega.
Bónorðið er mikilvægt og ég klúðraði því.
ÚTSENDING
Þetta er Tom Leezak með umferðarfréttir klukkan 2.06 að morgni.
Sem stendur eru sjö farartæki á hraðbrautum Suður-Kaliforníu
svo það er hægt að fara á hjólabretti á hraðbraut 405.
Við fáum nýjar fréttir af umferð eftir tíu mínútur
á KNR-umferðarfréttastöðinni.
Úsendingu lokið. Þú verður að einbeita þér.
Hættu að hugsa um bónorð og hjónaband.
Þarftu alltaf að rýta? Þú ert eins og grís með hár.
Sjáðu mig. Ég er sætasti voffinn í heiminum.
Tyggðu þá af fyrir mig. Kastaðu boltanum.
Mér er alvara.
Ég er að lesa.
Sæktu hann.
Það var ekki líkt Bags að elta dúfur.
Þetta var grimm dúfa.
Hann stökk á hana.
Hún var að stríða honum.
Og garga.
Í fyrstu kurraði hún.
Þú veist hvernig þær... Hún náði athygli hans.
Hann þolir ekki slík hljóð.
Svo breyttist það í skerandi...
Þú ert að ljúga.
- Hvað? - Nasavængirnir þenjast þegar þú lýgur.
Þenjast.
Þeir þenjast ekki. Ég er ekki að ljúga.
Fyrirgefðu, elskan. Þetta er bara svo sárt.
Viltu lofa að ljúga aldrei að mér?
Ég lofa því.
Ég elska þig svo mikið.
Ég vil giftast þér, Tom Leezak.
Ég vil það líka.
Af hverju komstu með Dodgebíl að framan? Leggja honum við bakdyr.
Opnaðu hliðið.
Þá förum við.
En óvænt ánægja.
- Velkominn í fjölskylduna. - Takk, frú McNerney.
Þú getur kallað mig Kisulóru.
Takk Kisulóra.
Dásamlegt.
Kampavín fyrir alla.
Hættu þessu, Dickie.
Yngsta dóttir mín.
Litli uppreisnarseggurinn.
Og þú. Þú ert...
Óvænt ánægja.
Takk fyrir.
Ég vona bara að ég verði...
allt sem ég get verið
í þessari fjölskyldu.
Ég elska Söru.
Meira þarf ég ekki að vita.
Þú misstir af bátnum, Prentiss.
Já, Dan.
Svo sannarlega.
Ég átti að bjóða Söru út í stað þess að vinna 19 stundir á dag á skrifstofunni.
Ég óska ykkur báðum til hamingju.
Af öllu hjarta.
Takk, Peter.
- Þú ert lánsamur. - Ég veit það.
Takið ykkur glas í hönd og rísið.
Eru allir tilbúnir?
- Hvað er Peter að gera hér? - Hjálpa pabba með samning.
Fyrir auði, heilsu og hamingju.
Jæja, Lilla, farðu út á völlinn.
Leezak, vertu tilbúinn á vængnum. Þú getur þetta. Engar áhyggjur.
- Vertu rólegur. - Hvað áttu við?
Af hverju henda slæmir hlutir gott fólk? Segðu mér það.
- Hún er mjög ákveðin. - Kaþólsk.
- Hann er pólskur. - Ég veit. Ég varaði þig við...
Sjáum hvað Leezak er með í buxunum.
Tilbúinn? Af stað.
- Tilbúin? - Af stað.
Eruð þið tilbúnir?
Byrja.
Taka sér stöðu.
Þetta var gróft.
- Hvað ertu að gera? - Ég datt.
Ég er enn með fánann. Þetta er í lagi.
Þú ert alltaf svo fljótfær.
Þið byrjið að búa saman eftir mánuð. Níu mánuðum síðar
eruð þið trúlofuð.
Ég veit að þú elskar hann
en stundum þarf meira en ást til að viðhalda hjónabandi.
Þú þarft að vera nógu gömul til að þekkja sjálfa þig og hann.
Hann er villtur og hvatvís og sprenghlægilegur
og óvenjulegur og þar að auki er hann einbeittur og staðfastur.
Hann er allt sem ég vil. Og við erum svo ástríðufull...
Ég öfunda þig.
Við hefjumst þá handa í fyrramálið
við að skipuleggja brúðkaupið.
Það halda víst allir að við séum brjáluð.
Hvenær fórum við að hafa áhyggjur af hvað öðrum finnst?
Ertu viss um að þú viljir ekki giftast manni eins og Peter?
Ef ég vildi vita nákvæmlega hvernig líf mitt yrði
myndi ég giftast manni eins og Peter.
En mér finnst frábært að vita það ekki.
Druslulega risíbúðin þín er frábær. Bíldruslan þín.
Ég vil byrja nýtt líf með þér.
Farðu.
Hjónaband er eins og fjárfesting í fyrirtæki.
Langtíma hagsmunir þess eru best metnir án tilfinningasemi.
Aðalatriðið er að við elskum hvort annað. Það eitt skiptir máli.
Góða nótt, herra.
Til hamingju, herra Leezak.
Pabbi gamli er mættur.
Ég vona að hún hlaupi ekki út undan sér.
Hvað áttu við?
Sarah er frábær, ekki misskilja mig. En ríkar stelpur verða hræddar.
Valdamikill pabbi og fjölskylduauður veldur miklum væntingum.
Væntingar virka eins og sveppasýking á hjónabönd.
Það verður engin sveppasýking í okkar hjónabandi.
Við verðum hamingjusöm á hverjum degi, alla ævi.
Nema hún komist að því að þú hafir drepið hundinn.
No comments yet. Be the first to leave one.