The first 200 lines.
Lífið er frekar einfalt.
Það skiptist í langar bíðstundir með einstaka snöggum breytingum.
Það er allt og sumt.
Þetta er mín kenning:
Snöggu breytingarnar?
Þær móta líf þitt,
lögun þess.
Það þarf bara eina breytingu til að skilgreina þig
og hún verður eina minningin um þig
og þú veist það.
Þú finnur það um leið og það gerist
og heimurinn breytist til frambúðar.
Þú breytist til frambúðar.
Jæja, krakkar. Sjáumst seinna.
-Ég elska ykkur. -Ég elska þig líka, pabbi.
Koss. Sjáumst.
-Elska þig. -Bless, pabbi.
Sjáumst seinna.
Bless.
Ég er að hlaða! Sjáðu, ég er að hlaða.
Daginn, hr. Harris! Ég er mikill aðdáandi þinn!
Ég trúi ekki á örlögin.
Ekki á karma eða tilviljanir,
engar samsæriskenningar eða annað slíkt kjaftæði.
Hlutirnir gerast bara.
Og lífið?
Það er bara það sem gerist
á meðan maður óskar þess að vera einhver annar eða annars staðar.
Við hvern varstu að tala?
Engan. Ég var í símanum.
Hvað ertu að gera þarna?
Ertu nokkuð að reykja aftur?
Láttu ekki svona, mamma. Þú veist að ég er hættur.
Loftið verður þungt inni hjá mér.
Ég vildi bara fá frískt loft.
Gleymirðu ekki einhverju?
Ég er utan við mig í dag.
Hérna. Ég þreif þá og allt.
Takk, elskan. Ég veit ekki hvað ég gerði án þín.
Ég skil ekki hví þú ert í skónum.
Þú hrópar bara og stynur af hliðarlínunni.
Ég er að kenna þeim leikinn undurfagra.
Ég þarf skóna mína í dag svo ég geti hlaupið
og deilt út styrktareyðublöðum
til pabbanna sem munu gefa þér mikið fé fyrir góðgerðastarfið þitt.
Gleymdu þeim.
Athugaðu bara hvort Ravi hafi frétt eitthvað.
Ég geri það.
Láttu mig um það.
Bless, elskan.
Daginn! Hvernig hafið þið það?
Allt í lagi? Hvað segirðu gott, Hal?
-Allt gott. En þú? -Gott.
Hvað segirðu gott?
Ég er með mikilvæga tilkynningu frá frúnni.
Hún skipuleggur skemmtihlaup til styrktar fötluðum börnum.
Skemmtunin verður að fylgjast með henni
og mjúku líkamshlutum hennar hlaupa um Battersea.
En...
Gætuð þið gert ykkar besta fyrir hana?
-Allt í lagi. -Kærar þakkir, strákar.
Takk.
Einhverjar fréttir, Ravi?
-Engar áhyggjur. Öllum meðmælum reddað. -Flott.
Spennandi tímar.
Það er frábært. Takk fyrir.
-Kærar þakkir. -Ekkert að þakka.
Já, hún verður hæstánægð.
Það skiptir okkur miklu. Takk fyrir, Rav.
Jæja, strákar! Komið hingað!
Er allt í lagi?
Já. Af hverju?
Þú virðist aðeins annars hugar.
Það er allt í lagi með mig.
Ég vildi að ég þyrfti ekki að stelast,
vera svona dul.
Það var hann sem svaf hjá barnapíunni.
Fyrirgefðu. Ég meinti ekki...
Þetta er allt í lagi.
Þú þarft ekki að minna mig á það.
Fyrirgefðu. Ég ætla bara...
Ég ætla bara...
Sko...
Ég fann þetta um daginn.
Guð minn góður.
Manstu eftir þessu kvöldi?
Það var fyrsta kvöldið sem ég hitti þig.
-Já, það var það. -Það er rétt.
Og þú hefur ekkert breyst.
Já, einmitt.
En svo liðu tíu ár og ég orðin tveggja barna móðir.
Hefurðu íhugað að byrja aftur?
Að leika?
-Nei. -Af hverju ekki?
Ég veit ekki hvernig ég færi að því.
Þú hlýtur að geta hringt í einhvern
sem gæti bent þér í rétta átt.
Ég get tekið nýjar andlitsmyndir af þér,
tekið nokkrar svipmiklar ljósmyndir,
mjög leikaralegar.
-Gekk vel að svæfa? -Já, allt í góðu.
Evie var samt lengi að sofna.
-Ég fer og kíki á hana. -Heyrðu, Emily...
Þú átt að hringja á undan þér.
Ég gerði það en þú varst greinilega upptekin, svo að...
Hvað viltu?
Áritaðan bol og að kyssa börnin okkar,
er það í lagi?
Farðu þá. Áheyrendur þínir bíða.
-Langar þig ekki að koma með? -Nei.
Bless, Max.
Gott kvöld aftur, dömur mínar og herrar.
Má ég biðja um þögn
því það er kominn tími tíl að hitta sjálfan aðalmanninn.
Bjóðið velkominn gestgjafa okkar,
fyrrum fyrirliða enska ruðningsliðsins, sanna hetju
og okkar eigin bardagahetju, Maximus Moore.
Takk fyrir, Dan.
Kærar þakkir.
Eins og amma mín sagði:
"Það er gott að fá mikið klapp við fyrstu kynni."
En í alvöru talað, kærar þakkir fyrir stuðninginn við samtök okkar.
Markmið okkar er að safna jafnvel enn meira fé
og hvetja þá sem hafa það erfiðara en við til að spila ruðning
og kannski læra líðsaga.
Slakið á og við sýnum ykkur myndbandið
af því frábæra starfi sem við höfum unnið. Takk.
MAX MOORE SAMTÖKIN
-Segið sís. -Sís!
-Flott. -Takk, stelpur.
-Takk. -Ó,já.
-Sjáumst. -Sjáumst seinna.
-Bless, Max. Sjáumst. -Já.
Ertu viss?
Ég fæ ekkert heima hjá mér, er það?
Heldurðu að hún sé ennþá með þessum ljósmyndara?
Tussa.
Hvað ætlarðu að gera?
Sjáum hvernig henni líkar að láta loka á kreditkortið sitt.
-Í alvöru? -Já.
Hringdu í félaga þinn og láttu hann sækja kók.
-Já. -Ég sé um þessar tvær.
Mér finnst að myndin hafi ekki komið mjög vel út.
-Það er allt dautt hérna. -Ekkert um að vera!
Förum á VIP-svæðið.
Ha?
Heldurðu að við komumst inn?
Sjáðu. Láttu mig sjá um þetta.
-Já. -Komdu.
Ég er með.
Gakktu áfram.
Ertu með stimpil?
Hvað um þetta?
Ég held ekki.
Þetta er ekki fyrir þína líka, góði.
Okkur var boðið.
Við erum með borð. Treystu mér.
Ég efast um það.
Og þú angar af grasi.
Þú þarft að fara úr klúbbnum strax.
Svona nú, bróðir. Hvar er samkenndin?
Ég þekki þig ekki og þú ert ekki bróðir minn.
-Farðu frá. -Við viljum ekki þekkja þig!
Djöfuls negrafáviti!
Helvítis aumingi! Éttu skít!
Fávitar!
Djöfuls skíthæll!
Andskotinn!
Komdu hérna!
Farðu af mér!
Slepptu honum!
Láttu hann vera!
Drullastu af mér.
Drullastu af mér.
Slepptu!
Sleppið mér!
Sleppið mér!
Sjá hvað kötturinn kom með inn.
Hvað kom fyrir andlitið á þér?
Ekkert, mamma. Ég rann. Ég fékk mér aðeins í glas.
-Með hverjum varstu? -Sean, félaga mínum.
Hann er klár strákur.
Hann kom sér örugglega ekki Í svona ástand.
Þetta mun líta vel út í atvinnuviðtölum.
Þetta er allt í lagi. Treystu mér.
Passaðu bara að Amelia komist í kirkju á réttum tíma.
Hvað segist, vinan? Ertu tilbúin?
Það er fýla af þér.
"Tafarlaus mæting fyrir rétt..."
Heyrðu! Þetta kemur þér ekki við.
-Ertu á leið í fangelsi aftur? -Hvað?
Nei. Auðvitað ekki.
Ég fer bara í réttinn með ólétta hvíta stelpu
og þeir dæma mig til samfélagsþjónustu.
Heyrðu.
Ég fer aldrei þangað aftur, skilurðu?
Ég lofa þér því.
Komdu nú.
Förum áður en við lendum bæði í vandræðum.
ROYAL COURT LEIKHÚSIÐ
No comments yet. Be the first to leave one.