The Time Machine

The Time Machine

Download Icelandic Subtitle

Release info

The Time Machine 1960 dvd remux-dussin
A Commentary by byggarebob
OCR från DVD. Halvhjärtad resultatgranskning.

Tags

DVD
REMUX
Published on: 2020-01-20
Downloads: 46
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

TÍMAVÉLIN

Afsakaðu, Filby!

- Þetta er mjög dónalegt af honum! - Hann hefur bara tafist.

Þetta er alger tímasóun.

Ef hann kemur ekki þá hef ég margt þarfara að gera.

Talaðu. Hvað er það, kona?

Er okkur boðið til kvöldverðar eða hvað?

Svo virðist vera.

- Hve langt er síðan hann fór? - Ég er ekki viss. Margir dagar.

Ég hef varla séð hann lengi.

Hann fer aldrei úr vinnustofunni nema til að sækja matinn sinn.

En hann sagði mér frá matarboðinu og skildi eftir fyrirmæli.

Þakka þér, frú Watchett.

- Hvað stendur þarna? Hvað er að? - Í rauninni ekkert.

George segir að við eigum að byrja kl. 8 þótt hann sé ekki kominn.

Walter, hvað er klukkan?

Kvöldverður er framreiddur, herrar mínir.

Það fyrsta sem ég heyri af viti í allt kvöld.

Skrítið. Hann er oftast nákvæmur og stundvís.

Hann hefur okkur að fíflum með því að koma ekki. Það er dónaskapur.

- Að ekki sé minnst á tímasóunina. - Já. Tímasóun.

George býr yfir þeim kosti að eiga besta vínkjallara á Englandi.

Og frú Watchett er heimsins besta eldabuska.

Ég skal skála fyrir því.

- Drottinn minn. Hvað gerðist? - Þetta er ekkert.

Dálítill matur.

Drykkur.

- Ég þekkti þig ekki. - Frú Watchett.

Geturðu ekki talað? Hvað kom fyrir þig?

- Látið hann í friði. - Ágætt.

- Ég verð að segja frá meðan ég man. - Reyndu að slaka á.

Þú hefur nægan tíma.

Það er rétt, David.

Ég hef það einmitt.

Alveg nægan tíma.

Við vorum saman fyrir fimm dögum...

síðasta dag ársins 1899.

Í þessum kassa er árangur tveggja ára vinnu.

Ég vildi ljúka verkinu áður en ný öld hæfist.

Mér tókst það naumlega.

- Skál, herrar mínir. - Frábært, vinur.

Já, en hvað er þetta?

Það tengist tímanum.

Ég hef alltaf haldið fram að þessi þjóð...

þurfi áreiðanlegan tímamæli.

Sjóherinn þarfnast hans.

Landherinn þarfnast hans fyrir stórskotaliðið.

Þú gast ekki gert betur, George. Faldirðu þig vegna þessa?

Mjög snjallt hjá þér.

Ég efa að George tali um nýjan tímamæli.

Nei, David.

Þegar ég tala um tímann á ég við fjórðu víddina.

Áfram, George.

Það er ekki hægt að sjá eða finna fyrir fjórðu vídd.

Væri ykkur sama þótt þið rifjuðuð upp þrjár fyrstu víddir fyrir mig?

Filby. Þú hlýtur að hafa lært eitthvað í skólanum.

Vilt þú útskýra það, doktor?

Vissulega.

Ef ég fer eftir beinni línu fram eða aftur...

er það ein vídd.

Þegar ég fer til hægri eða vinstri eru víddirnar tvær.

Þegar ég fer upp eða niður...

eru víddirnar þrjár.

Tökum kassann sem dæmi.

Kassinn hefur þrjár víddir, lengd, breidd og hæð.

Hver er fjórða víddin?

Aðeins kenning. Enginn veit hvort fjórða víddin sé til.

Þvert á móti.

Fjórða víddin er eins raunveruleg og hinar þrjár.

Þær gætu ekki verið til án hennar.

Hvað áttu við?

Tökum kassann sem dæmi.

Hann hefur þrjár fyrstu víddirnar.

- Hvað er inni í honum? - Ég kem að því.

Lítum fyrst á þetta.

Við hunsum fjórðu víddina af því að við hreyfumst ekki með henni.

Við getum færst með hinum þremur: Upp, niður, fram, til hliða, aftur.

En þegar kemur að tímanum erum við fangar.

Skilurðu mig, Bridey?

Nei.

Þú hefur skýrt þetta vel en samt skil ég það ekki.

Er ekki margt sem þú skilur ekki?

Fjöldamargt.

Samt neitarðu ekki að trúa þessu.

- Ekki ef ég sé sannanir. - Gott, Walter.

Herrar mínir, ég bið ykkur...

að verða vitni að hreyfingu...

innan fjórðu víddar.

- Læknir, viltu hjálpa mér? - Vissulega.

Þetta er fallegt.

- Athyglisvert. - Mjög gott, George.

Heillandi.

Hvað er þetta?

Aðeins tilraunalíkan.

- Stærra tæki þarf til að flytja mann. - Til að flytja mann? Hvert?

Til framtíðar eða fortíðar.

Þetta er tímavél.

Þú sagðir brandarann. Til hvers er þetta tæki?

Ég hef sagt ykkur það.

Stærra tækið getur flutt farþega um tímann.

Ekki um rúm, heldur tíma.

Ef þú ferð til framtíðar klúðrarðu þá ekki málum?

Framtíðin er komin. Henni verður ekki breytt.

Ætli það?

Það er mikilvægasta spurningin sem ég vonast til að svara.

Er hægt að ráða örlögunum og breyta því sem á eftir að gerast?

Ég fyrirgef þér ef þú hefur sturlast.

- En ef þú sóar tíma okkar... - Nei. Þið eruð vitni að þessu.

- Þið sjáið en hlustið ekki. - Hvað sjáum við?

Tilraunina sem ég ætla að gera.

Ég skal lýsa þessu fyrir ykkur. Tímaferðalangurinn er í hnakknum.

Stjórntækin fyrir framan.

Gerum þetta almennilega. Vonandi geturðu séð af vindli.

Gefum okkur að vindillinn...

sé tímaferðalangurinn.

Handfangið fyrir framan hann stjórnar ferðinni.

Sé því ýtt fram fer maðurinn fram í tímann...

en aftur í tímann sé því ýtt aftur.

Því fastar sem þrýst er því meiri verður hraðinn.

Þessa litlu tilraun verður aðeins hægt að gera einu sinni.

Ef hún heppnast tapa ég líkaninu. Þess vegna þarf ég vitni.

Byrjaðu, George.

Reiðubúnir, herrar mínir?

Réttu mér höndina.

Nú er ég forviða.

Þetta tókst.

- Hvert fór tækið? - Fór?

Ekkert í venjulegum skilningi. Það er enn hér.

En er ekki lengur í nútíðinni.

Það ferðast um tímann. Nánar tiltekið til framtíðar.

Ætlastu til að við trúum þessu?

Vissulega.

- Þú sagðir að það hefði ekki færst. - Það er rétt.

Af hverju sjáum við það þá ekki?

Af því að við erum hér inni 31. desember 1899

en líkanið gæti verið komið hundrað ár fram í tímann.

Óvíst er hvort þetta hús verður hér eftir 100 ár.

En tímavélin er í sama rými...

og áður en ferðin hófst.

Ef það er í sama rými af hverju finnum við það ekki?

Rýmið sem þú setur hönd þína um er rými dagsins í dag.

Þú getur ekki lagt lófann á rými morgundagsins.

Rými breytist ekki!

Rýmið sem er hér nú á að vera hér til eilífðar.

Nei, Philip, tíminn breytir rýminu.

Þessi slétta hér kann að hafa verið hafsbotn fyrir löngu.

Eftir milljón ár gæti hátt fjall staðið hér.

Ef þetta er rétt hvað heldurðu að þú getir gert með svona tóli?

Tóli?

Ég ætla í ferðalag inn í framtíðina.

Eða kannski langar lækninn til að fara.

Sjáðu til, George.

Segjum að þú farir til 50. aldar.

- Hvernig kemstu til baka? - Ég ætla að taka þá áhættu.

Heyrðu nú, George.

Ég veit ekki hvað þú heldur en við erum ekki bjánar.

Við erum hagsýnir kaupsýslumenn.

Mig langar að spyrja þig:

Hvað um það þótt þú hafir fundið upp tímavél?

Hvaða gagn er að henni? Hver kaupir hana? Hvað á hún að kosta?

Hefurðu hugsað um alla viðskiptahagsmunina?

Nei, alls ekki.

George...! Það geisar stríð í Suður-Afríku.

Búar berjast. Þjóðin þarfnast uppfinningamanna eins og þín.

Ég get komið þér í kynni við þá í hermálaráðuneytinu.

Hvað heldurðu, David?

Dr. Hillyer kom með góða ábendingu, George.

Þetta er skynsamlegra.

Ég byrja strax á þessu.

Drottinn minn. Tími til að fara.

Já, ég er viss um að við erum allir með áform.

- Er allt í lagi, George? - Já, það er ekkert að mér.

Kemurðu, Bridewell?

Takk fyrir komuna.

- Góða nótt. - Gleðilegt nýár.

- Gleðilega nýöld, George. - Góða nótt.

Gleðilegt nýár.

BÚAHERINN VANN ENNN EINN SIGUR

Ég taldi betra að vera hér.

Vertu ekki að ómaka þig. Það er ekkert að mér.

Það er ekki rétt.

Þú hefur hegðað þér skringilega í mánuð.

Ég skal fara þegar þú hefur sagt hvað þú ert að hugsa.

Þakka þér fyrir það en ég vil fá að vera í friði.

Þú hefur breyst, George. Gífurlega.

Mér þykir fyrir því.

Viltu svara mér einni spurningu í hreinskilni?

Ég skal reyna það.

Af hverju á tíminn hug þinn allan?

Af hverju ekki?

Svaraðu ekki út í hött.

Sannleikurinn er sá að mér er ekki annt um tímabilið sem ég lifi á.

Fólk deyr ekki nógu hratt.

Það ákallar vísindamenn...

um að finna upp ný og áhrifameiri vopn til að eyða lífi á jörðinni.

Ég er sammála þér.

Ég tek undir það en við erum hér nú og verðum að nýta tímann sem best.

Kannski þú. Ekki ég.

Þá það. Farðu í ferðalagið í þessu tóli þínu.

Hvað ætli þú verðir?

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left