The first 200 lines.
Hjálp.
Hjálpaðu mér!
Hjálpaðu mér, Drottinn.
Ég er að deyja.
Hvað er þetta?
Krabbamein?
Náðuga María mey, verndaðu mig og leiðbeindu á dauðastund minni.
Þetta er próf.
Dreptu það.
Dreptu það.
Sue Snell og Tommy Ross, áfram nú.
Drífið ykkur, dömur! Út í laugina! Hetturnar á!
Chris og Sue, áfram nú!
Ég vil að þið náið þremur sendingum í röð.
Við erum að útskrifast, fröken Desjardin.
Já, Sue!
Náið honum.
Ekki vera hræddar við boltann, dömur.
Jæja, áfram nú.
Gott og vel, Carrie White. Komum Carrie inn í leikinn.
Þú getur ekki alltaf staðið á hliðarlínunni. Áfram nú.
Carrie gefur upp. -Já, Carrie White!
Gerðu það, Carrie! Já, já.
Kastaðu honum. Gerðu það. Gefðu upp.
Hver andskotinn?
Rosalega fyndið, Chris.
Ertu ómeidd? -Já.
Hamingjan góða.
Éttu skít.
Hann gerði það þó ekki? -Jú.
Þú ert að skálda þetta.
Hann kom til mín og ég sagði: "Þú verður að teygja fram höndina..."
Nú lýgurðu.
Hjálp! Hjálp! Hjálpið mér!
Hjálpið mér.
Burt með þig, viðundur! -Ég bið þig.
Almáttugur. Sjáðu hvað þú gerðir við skyrtuna mína.
Ég bið þig! -Hættu! Róaðu þig.
Ég held að mér sé að blæða út. Ég bið þig.
Hamingjan góða. Þetta er tíðarblóð. -Mér blæðir. Ég held að ég sé að deyja.
Hvað þá? Hamingjan góða.
Hjálpið mér!
Þú ert bara á túr.
Troddu bara í gatið.
Hjálpið mér! -Almáttugur!
Hún klíndi á þig. -Hjálpið mér!
Troddu bara í gatið!
Hjálp!
Troddu í gatið! Troddu í gatið!
Mér þykir þetta leitt. Nei!
Nei!
Troddu í gatið! Troddu í gatið!
Ekki, stelpur! Frá!
Dömur.
Hamingjan góða. Jæja. Gott og vel. -Hjálpaðu mér.
Jæja, vina, stattu upp. Við skulum þrífa þig.
Hjálpaðu mér. -Carrie, svona nú.
Stattu upp. Geturðu staðið upp? -Þetta er sárt!
Þetta er sárt! Það er eitthvað að. Það er eitthvað að.
Allt í lagi. Um hvað ertu að tala?
Fröken Desjardin, ég held að hún viti ekki að hún sé á túr.
Nei!
Gott og vel, Sue. Komdu þér héðan! Það er engin hjálp í þér.
Nei! Nei! -Róaðu þig!
Komið ykkur allar út! Strax! Út!
Jæja, andaðu djúpt. Komdu hingað.
Svona. Þetta er í lagi. Það er í lagi með þig, vina.
Þetta er alveg eðlilegt.
Veistu hvað þetta þýðir?
Jæja, vina.
Líður þér betur?
Get ég fært þér verkjatöflu?
Kannski safa eða eitthvað? -Safa? Í alvöru, Henry?
Kannski viltu bara að við látum þig í friði.
Carrie mín, mér þykir mjög leitt að ég sló þig.
Ég hefði átt að takast betur á við þetta.
Það er alveg eðlilegt fyrir ungar stúlkur að byrja með tíðir.
Reyndar gerist það yfirleitt dálítið fyrr.
Er þetta fyrsta skiptið þitt?
Vina, skilurðu hvað er að gerast í líkama þínum?
Veistu hvað þetta þýðir? -Hvað?
Ég veit ekki. Ég fann eitthvað hreyfast þarna niðri.
Vina mín.
Kannski ættirðu að tala við ráðgjafa um það
eða hjúkrunarkonuna.
Ég þarf að vita hver byrjaði að kasta...
hlutum.
Það var Chris Hargensen og allar vinkonur hennar.
-Cassie... -"Carrie."
Carrie, hóf Chris Hargensen þetta?
Vina, þú þarft ekki að vernda þær. Það sem þær gerðu var ófyrirgefanlegt.
Það lítur ekki út fyrir að Carrie muni beina fingri að neinum
svo, fröken Desjardin, þú þarft að komast til botns í þessu.
Láttu refsinguna hæfa glæpnum.
Allt í lagi.
Carrie, þú færð frí frá íþróttum út vikuna.
Lærðu bara af sjálfsdáðum. Á bókasafninu.
Já. Við verðum að hringja í mömmu þína.
Hvað þá?
Við verðum að hringja í móður þína, Carrie.
Ég veit að hún hefur verið ósátt við okkur
eftir að ríkið bannaði henni að hafa þig í heimanámi
en við verðum að láta hana vita af þessu.
Nei.
Vina, við eigum engra kosta völ. Við verðum að segja henni hvað gerðist.
Nei.
Carrie.
Hey. Hey, þú.
Tina, fáðu mér hann. Komdu með hann.
Þetta er snilld. Sjáðu þetta myndband.
Troddu í gatið! Troddu í gatið!
Hún fór á túr. Á höndina á mér.
Það er viðbjóðslegt.
Það var á hendinni á mér og skyrtu Sue. Það var svo viðbjóðslegt.
Mér þykir leitt að þú þurftir að koma í skólann í dag, mamma.
Förum inn, litla snót.
Þú þarft að koma inn með mér.
Mamma, því sagðirðu mér það ekki?
Ég var svo hrædd, mamma. Ég hélt ég myndi deyja.
Þær hlógu að mér og fleygðu hlutum í mig.
Við tölum um þetta inni, Carrie.
Nei.
Ég vil tala um þetta hér. Ég vil ekki fara inn með þér.
Klikkaða Carrie, klikkaða Carrie!
Klikkaða Carrie, klikkaða Carrie.
Drottinn, hjálpaðu barninu mínu.
Hún er villt.
Mamma, hættu þessu.
Mamma!
Ég vil ekki koma þér í uppnám.
Svo þú ert orðin kona.
Og Guð gerði Evu úr rifi Adams.
Og hvað, Carrie? Segðu það. -Nei, mamma.
Segðu það. -Talaðu við mig.
Talaðu bara við mig. -Og Eve var veiklunda.
Ég vil bara að þú talir við mig. -Og fyrsta syndin var synd samfara.
Og fyrsta syndin var synd samfara.
Því sagðirðu mér þetta ekki, mamma?
Og Guð lagði bölvun á Evu. Og sú bölvun var blóðbölvunin.
Ég segi það ekki.
Það stendur ekki einu sinni í Biblíunni. Það stendur hvergi þar.
Ó, Drottinn. Hjálpaðu litlu stúlkunni að sjá syndir sínar.
Sýndu að ef hún hefði haldið sakleysi sínu
hefði hún ekki orðið fyrir blóðbölvuninni líkt og Eva.
Ég er ekki Eva, mamma. Ég syndgaði ekki.
Þú fórst í sturtu með hinum stúlkunum. Þú varst með lostafullar hugsanir.
Allir verða að fara í sturtu. Allir. Þannig eru reglurnar.
Þú þarft að vera frábrugðin því Hann getur séð þig.
Ég vil ekki vera frábrugðin. Ég vil vera eins og þær.
Hann finnur syndafnykinn á þér og Hann mun refsa þér.
Ég læt það ekki henda þig. Alls ekki.
Drottinn miskunni sig.
Nei. "Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu
og trúfesti hans frá kyni til kyns."
Sálmur 100, 5. vers.
Ég læt þig ekki fara í skólann.
Þú getur það ekki. -Við skulum biðja saman.
Til að bjarga okkar veiku klækjakvendasyndasálum.
Þú sagðir mér þetta ekki og þær hlógu.
Ég syndgaði ekki heldur þú.
Ég gerði það ekki.
Ég syndgaði ekki.
Farðu inn í skápinn þinn.
Nei, mamma. -Farðu inn í skápinn og biðstu fyrir.
Biðstu fyrir.
Nei.
Nei!
Nei!
Slepptu mér! Mamma! Hættu!
Farðu inn í skápinn og biddu um fyrirgefningu. -Nei!
Biðstu fyrir. -Mamma! Hjálp!
Nei, mamma! -Svona nú.
Ég bið þig! Hjálp!
Biðstu fyrir, litla snót. Biddu um fyrirgefningu. -Slepptu mér!
Hleyptu mér út!
Mamma!
Guð, þú ert ömurleg!
Hjálpaðu mér. Hjálpaðu mér.
Hvað?
Mér þykir þetta leitt. -Hvað?
Heyrðu. Hvað er að?
Mér varð illilega á í dag, Tommy.
Hvað, þetta með Carrie? -Veistu af því?
Já, allir vita af því
en þú berð ekki ábyrgð á því sem Chris gerir.
Já, en ég gerði það líka.
Hentir þú túrtöppum í Carrie White?
Ég sparkaði eitt sinn í rifbeinin í stráki.
Já, á meðan hann var í roti.
Af því strákurinn barði mig í klessu hvern einasta dag í 6. bekk.
Danny Patrick.
Baðstu Carrie afsökunar? -Baðst þú Danny Patrick afsökunar?
Nei, en við erum ekki lengur í 6. bekk.
Ekki.
Hann var ömurlegur við mig.
Hvað hefur Carrie White nokkurn tíma gert þér?
Og þess vegna, dömur mínar og herrar, missti hann bílprófið.
Hvers vegna ekurðu þá enn?
Ég þarf ekki bílpróf ef þeir ná mér ekki.
Tölvupóstur Jackies, tölvupóstur Jackies!
No comments yet. Be the first to leave one.