The Equalizer

The Equalizer

Download Icelandic Subtitle

Release info

The Equalizer 2014 BluRay 1080p DTS-HD MA 7 1 x264-EPiC
A Commentary by rippmaster

Tags

BluRay
x264
1080
TS
HD
Published on: 2021-04-22
Downloads: 169
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Þýðingarmestu dagar ævinnar eru dagurinn sem þú fæddist

og dagurinn sem þú uppgötvar hvers vegna. -Mark Twain.

Starfsmaður í byggingavörudeild.

Ég hélt að þú hefðir klárað þetta verk. -Eigandinn vill breikka innkeyrsluna.

Þegar þeir greiða... -Mega þeir ráða.

Takk. -Já, sjáumst.

Þeir láta þá nýju taka próf. -Eins og slökkviliðsmenn.

Þú þurftir víst ekki að keyra hjólapall í gamla starfinu?

Sekur.

Hvernig gengur, Jenny?

Betur núna.

Hvernig gengur, herra McCall? -Vel, Ralphie.

Hvað ertu með? -Túnfisk.

En brauðið? -Glútenlaust heilhveiti.

Og sósan? -Refasmári, lárpera og olíusósa án eggja.

Það eru bein í túnfisknum.

Hvað? Kartöflur eru grænmeti.

Mér finnst stökkur matur góður. -Gulrætur eru stökkar. Og þurrkuð söl.

Ég er maður, ekki kanína.

Þarft að léttast til að verða öryggis- vörður og prófið er eftir viku.

Þú baðst um hjálp en ef þú vilt ekkert leggja á þig...

Já.

Framför ekki fullkomnun.

Engar franskar. -Engar franskar.

Hver þarf bragð?

Gamli maðurinn og hafið

Sjáumst seinna, J. -Hafðu það gott, Billy.

Farðu til fjandans.

Takk. -Ekkert að þakka.

Er hann búinn að veiða fiskinn?

Hann krækti í hann.

Mikið var.

En fiskurinn er stór.

Ég veit ekki hvort hann getur innbyrt hann.

Æ, nei.

Hann berst með kjafti og klóm.

Kannski er hann of gamall.

Ég hélt að þú vildir hætta að borða hvítan sykur. -Já.

Hvenær? -Bráðlega.

Er það? Hann er slæmur fyrir raddböndin.

Líkami, hugur, andi, manstu?

Ég keypti tæki fyrir upptökur.

Þú ert örugglega góð.

Af hverju segirðu það?

Innsæli.

Jæja, sjáumst seinna, Jake.

Sjáumst seinna, elskan.

Láttu mig vita hvernig fer með fiskinn.

Já. -Sjáumst.

Þá skuldarðu mér 100 dali. Sjáðu.

Við erum að veðja um hvað þú gerðir áður.

Hvað þú starfaðir.

Ég segi hjá tryggingafélagi.

Nei. Hann var miðlari á Wall Street.

Ég var Pip. -Varst þú dólgur?

Nei. Ég var Pip. P-I-P.

Hver andskotinn er það? -Af hverju blótarðu svona mikið?

Gladys Knight 8 The Pips, þið vitið.

Sjáðu þetta!

Hættu nú! -Hættu.

Ekki gera þetta. Ekki.

Flott!

Og snúning?

Bíðið aðeins.

Og renna. -Flautaðu svo!

Ég ætla að fletta þessu upp.

Ég fletti því upp. -Gerðu það.

Hver þeirra ert þú?

Sá til hægri.

Gerðu það aftur!

Þetta er ekki hann.

Þetta er hann með hárið.

Hann er sköllóttur. -Þá er þetta hárkolla.

Flott. -Þetta er hann.

Halló, Jake. Ömurlegt kvöld.

Já, það er harka á götunni.

Gjörðu svo vel.

Takk.

Náði hann honum?

Fiskinum?

Já. Hann náði honum.

Það endar þá vel.

Ekki alveg.

Gamli maðurinn batt fiskinn við byrðinginn

og reri heimleiðis.

Það blæddi úr fiskinum og hákarlarnir komu.

Þeir átu fiskinn alveg upp til agna.

Það var sóun.

Nei. Það veltur á hvernig maður lítur á það.

Gamli maðurinn hitti sinn mesta andstæðing

þegar hann hélt að hann væri of gamall.

Hann sá sjálfan sig í fiskinum.

Hann...

virti hann fyrir að berjast.

Af hverju sleppti hann fiskinum ekki?

Hann verður að vera gamli maðurinn og fiskurinn að vera fiskurinn.

Maður verður að vera sá sem maður er í þessum heimi.

Sama hvað gerist.

Þú hefur kúnna.

Ég vil það ekki.

Hvað?

Geturðu ekki fengið aðra?

Hann vill þig.

En þessi kúnni er svín.

Hann bíður fyrir utan.

Hvað skulda ég? -Hafðu ekki áhyggjur af því.

Farðu að vinna. -Takk, Jake.

Halló, elskan. Hvernig hefurðu það?

Toga svo. Toga.

Toga! Toga!

Áfram nú.

Átta, sjö, sex, fimm,

fjórir, fjórir, fjórir.

Áfram með þig.

Ég get það ekki. -Getur ekki?

Hvað ef þetta væri ég?

Létirðu mig deyja úr reykeitrun? Ég er 86 kíló.

Hvernig ætlarðu að draga mig úr brennandi húsi

ef þú getur ekki dregið dekkið?

Ég er ekki nógu sterkur.

Ekki efast, drengur. Efinn drepur. Stattu upp.

Svona, stattu upp.

Hott, hott.

Taktu þér stöðu, viðbúinn,

toga.

Hver verður öryggisvörður?

Ég!

Hver verður öryggisvörður? -Ég!

Hver verður öryggisvörður?

Það var lagið.

Þetta var gott. Endurtökum það.

Fullt af eitri eins og þú vilt hafa það.

Áttu afmæli?

Nei, starfsfélagi minn. Ég vildi ekki sóa þessu.

Til hamingju með afmælið, starfsfélagi.

Hvað ertu gamall?

Hvað ert þú gömul?

Það skiptir engu.

Fyrirgefðu, ég brýt reglurnar.

Nei. Komdu og sestu.

Sestu.

Sestu.

Jæja þá.

Komdu og sestu. -Allt í lagi.

Er ég ekki að trufla þig?

Nei.

Jæja?

Ég veit ekki.

Mig langaði bara að heyra kyrrláta rödd.

Áður en allt verður vitlaust.

Allt í lagi.

Ég heiti Teri. -Bob.

Gott.

Þú lítur ekki út eins og Bob.

Jæja? Takk.

Þú lítur út eins og Robert.

Robert les svona bækur.

Bob horfir á sjónvarp.

Rétta nafnið mitt er Alina.

Hvað kom fyrir andlitið á þér?

Dálitið heimskulegt.

Þetta er ekki faglegt. Segðu mér hvað þér finnst.

Lögin mín Alina "Teri"

Söngkonan Alina.

Við vitum bæði hvað ég er.

Ég held að þú getir verið hvað sem þú vilt vera.

Kannski í þínum heimi, Robert.

Það gerist ekki í mínum heimi.

Breyttu heiminum þínum.

Enginn hringur.

Þú ert ekki með giftingarhring. -Nei.

Bíður engin eiginkona heima? -Nei.

Var eiginkona?

Einu sinni.

Særðirðu hana?

Hún særði mig.

Ég hitti marga ekkla.

Það er eitthvað í augnaráðinu.

Það er ekki sorg.

Frekar eins og...

týndur, veistu?

Lestu alltaf bækur?

Konan mín las.

Hún var að lesa 100 bækur sem allir ættu að lesa.

Hún komst upp í 97 svo mér fannst...

að ég ætti að prófa það.

Þá hefðum við eitthvað að tala um þegar við hittumst.

100 bækur!

Svei mér þá.

Hvað ertu búinn að lesa margar? -91.

Fyrirgefðu, þessi fjandi.

91 bók.

Þú ert næstum búinn. -Næstum því.

Hvað ætlarðu þá að gera?

Fara í söngnám.

Svo stofna ég kleinuhringja- framleiðslu.

Það er satt.

Af hverju hlærðu?

Það er gott að vaka á þessum tíma. -Er það?

Þá er svo dimmt.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left