The first 200 lines.
Góðan daginn. Velkominn í Sparisjóð Williamsburg.
Ég skal finna boðtæki handa þér
og þú færð aðstoð frá þjónustufulltrúa
um leið og hann losnar.
Hvað með þetta?
Þetta lýsist upp og titrar.
Rauðu ljósin blikka. Það fer ekki fram hjá þér.
Hvar á ég að bíða?
Á biðstofunni.
Gjörðu svo vel.
Ég sé yfirdrátt á tékkareikningnum.
Þú virðist ekki hafa fengið inn greiðslur
í nokkra mánuði frá...
Wechsler-stálsmiðjunni.
Ég hef hringt vikum saman.
Ég fæ engin skýr svör.
Hvað með þessa tilkynningu um eignaupptöku á húsinu?
Þetta er sú gula. Þá ertu kominn í vanskil.
Afborganir á húsnæðisláninu þrefölduðust á einni nóttu.
Þú varst á kynningarvöxtunum sem runnu út í janúar.
Þess vegna kallast þeir kynningarvextir.
Þeir endast ekki. Skilurðu?
Nýju vextirnir eru töluvert hærri
þannig að mánaðarlegar afborganir hækka verulega.
Okkur er skylt að tilkynna þér þann möguleika við endurfjármögnun.
Þú gerðir það. - Hvað?
Þú seldir mér þetta rusl.
Joe Harding.
Já, ég sé nafnið.
Leyfðu mér að líta á minnispunktana mína.
Skilmálar kynntir.
Ég sagði þér sjálfur
að vextirnir gætu hækkað við endurfjármögnunina.
Manstu eftir því?
Þú sagðir mér
að líkurnar á að vextirnir yrðu hærri en kjörvextir
væru hverfandi.
En hugsanlegar.
Þú seldir mér "hverfandi" líkur.
En ég sagði að þetta væri hugsanlegt. - Sjáðu til, Chuck.
Dóttir mín og dótturdóttir búa hjá mér.
Hún er sjúkraliði, í láglaunastarfi.
Hún vildi að dóttirin kæmist í betri skóla svo þær fluttu til mín.
Margir gera það. - Já, þar sérðu...
Ég má ekki missa húsið.
Engar áhyggjur.
Þetta var gul viðvörun.
Sú rauða er mun alvarlegri.
Má ég tala við einhvern annan?
Hvern? - Einhvern greindari?
Dömur mínar og herrar, takk fyrir athyglina.
Við komum til að taka út.
Aðrir en gjaldkerar
eiga að leggjast niður á bakið
með hendur og fætur upp í loft eins og kisur.
Allir niður.
Gjaldkerar.
Ekki vera svo vitlausir að ræsa þögla viðvörunarkerfið.
Við viljum síst af öllu sjá löggur hérna.
Yrði það ekki subbulegt?
Upp með hendur.
Af hverju? Af hverju hérna? Hvað gerði ég?
Heyrðu.
Ég fylgi starfsreglunum.
Vertu bara rólegur.
Fylgi reglunum. - Heyrðu.
Þú lætur skjóta þig.
Herrar mínir, það er betra að hafa hljótt.
Ég er að fá krampa.
Slakaðu á og sestu upp.
Ekki þú. Eins og kisa.
Haldið áfram að troða. Koma svo.
Þú mátt fá þetta.
Verst að þú ert fórnarlamb spillts kerfis sem þjónar ekki almenningi.
Ég hef stundað viðskipti hérna í 40 ár.
Þú ert bara reikningsnúmer.
Þetta er smáræði en þú mátt taka það.
Nei, ég tek ekkert frá þér.
Það er skylda samfélagsins að hlúa að öldruðum.
Chuck er skítsama um mig.
Chuck.
Ert þú Chuck? - Já.
Ég heiti Chuck.
Ætlarðu að hirða húsið af manninum?
Ekki persónulega. - Réttu mér veskið þitt.
Sjáðu, ég er með...
Hér er nóg af öllu. Reiðufé og allt.
Kort í ræktina. Taktu það, ég mæti aldrei.
Fimmtán sekúndur.
Kisa.
Haltu kjafti.
Til allrar hamingju er samveru okkar lokið.
Ekki hringja á lögregluna í eina og hálfa mínútu.
Skotbardagar enda aldrei vel.
Það er til lyf við þessu.
Lítur út eins og klíkuflúr.
Mjög nákvæmt.
Sami listamaður hefur flúrað þá alla.
Ef þið finnið tattústofuna
finnið þið listamanninn og hann vísar á bankaræningjann.
Virðist borðleggjandi.
Takk fyrir það, gamli.
Þú ættir að sækja um hjá lögreglunni.
Ég fylgist með sjónvarpsþáttum
sem kallast Law and Order. Þau leysa glæpina hraðar en þið.
Þú ættir að horfa.
Veistu, í raunveruleikanum
tekur það meira en klukkutíma að leysa glæpamál.
Þá er þetta komið hérna, herra Harding.
Við höfum samband ef okkur vantar frekari upplýsingar.
Þá þarftu heimilisfang og símanúmer.
Það er óþarfi.
Við finnum þig. Það er starfið okkar.
Hvernig litu þeir út?
Erfitt að segja. Þeir voru með grímur.
Ég komst nálægt einum. Karlmanni sem var um 180 cm á hæð.
Hann var með húðflúr á hálsinum
sem ég sagði þér frá.
Ef þeir finna húðflúrarann...
Finna þeir ræningjann. - Einmitt.
Eins og ég sagði þeim.
Þú mátt örugglega ekki tala um þetta.
Var ekki töff að lenda í miðju bankaráni?
Glæpir eru ekki töff.
Hann hefði getað verið skotinn.
Eða verra.
Hvað er verra en að vera skotinn?
Að vera skotinn tvisvar.
Flúrið bendir til þess að glæpurinn sé klíkutengdur.
Við teljum að einn tattúlistamaður hafi flúrað alla í klíkunni.
Ef við finnum listamanninn finnum við sökudólginn.
Borðleggjandi dæmi.
Eins og við sögðum. - Fleiri spurningar?
Þvílíkur fáviti.
Ekki blóta.
Ef þið hafið upplýsingar um þennan tattúlistamann...
Bingó.
"Ræningjarnir komust undan með um 1,6 milljónir dala.
FBI og lögreglan í New York
segjast ekki hafa neinar nýjar vísbendingar."
Hvað með það?
Enginn hlaut skaða af nema tryggingafélagið og það jafnar sig.
Þeir voru svellkaldir.
Þetta var skipulagt út í ystu æsar.
Eins og dans.
Já, kongaröð beint í fangelsið.
Eigum við að spila?
Spyrðu stjórann.
Milton?
Milton.
Hverjum mætum við á velli tvö?
Já, einmitt.
G-52.
Ef ég verð svona slæmur megið þið skjóta mig.
Fékkst þú svona bréf?
LÍFEYRISDEILD
Með ábyrgðarpósti.
Já, herra.
Hefurðu fengið góðar fréttir sem krefjast undirskriftar?
Hefurðu heyrt í einhverjum í stálsmiðjunni?
Ekki ennþá, en við komumst að því hvað gengur á.
Ég þarf að fá lífeyrinn.
Láttu mig þekkja það.
Ég hef svolítið afar mikilvægt að segja.
G-52.
Hjálpum þessum gamalmennum.
Þegar fyrirtækin sameinuðust
hafði Semtech alls ekki í hyggju að hætta rekstri í Bandaríkjunum.
En þar sem dregið hefur úr eftirspurn eftir sérpöntunum
og kostnaður við reksturinn hérlendis eykst stöðugt
hafa þeir tekið þá ákvörðun
að flytja alla framleiðslu til Víetnams.
Starfsemi Wechsler hérlendis
verður lögð niður á næstu 30 dögum.
30 dögum? Ertu að grínast?
Ég skil að þetta eru slæmar fréttir.
Ég get aðeins ávarpað ykkur með yfirvegun.
Fyrirgefðu, herra Lewis.
Sæll, Joe.
Hvað með þetta?
Hvað með lífeyrinn okkar?
Semtech-stálsmiðjan hefur fryst
allar lífeyrisgreiðslur yfir aðlögunartímann.
Hvað þýðir það, að frysta greiðslur?
Wechsler hélt uppi sjóði
til að virða lífeyrissamninga sem voru gerðir fyrir samrunann
en hann átti að renna inn í nýjan lífeyrissjóð
samkvæmt nýjum kjarasamningi.
Í guðs bænum, talaðu mannamál.
Án starfsemi í landinu falla engar lífeyrisskyldur á Semtech.
Lífeyrissjóðurinn verður leystur upp.
Með fullri virðingu, Donald,
er ykkur öllum skítsama um 30 ára erfiðisvinnu annarra.
Án lífeyrisins hef ég ekki efni á leigunni.
Finnum lögfræðing og lögsækjum þessa bjána.
Við verðum dauðir þegar bæturnar skila sér.
Það hentar þeim ágætlega.
Hvenær fór kaffi að kosta 2 dali?
Fyrir áratug.
Guð forði þeim sem vilja froðu. Þeir þurfa að nota raðgreiðslur.
No comments yet. Be the first to leave one.