Первые 200 строк.
Við ættum ekki að vera hér eftir myrkur.
Leggðu gildruna við hellismunnann.
Vantar þig lækni?
Ég er læknir.
Er þetta ekki stórkostlegt?
Vampírur eru fiðurléttar,
en þær geta fellt næstum tíu sinnum stærri skepnu.
Hvað notarðu sem beitu?
Býðurðu þig fram?
Á förum.
Borgaðu mér núna.
Áður en sólin sest.
Láttu rýtinginn fylgja og við erum sáttir.
GRIKKLANDI - 25 ÁRUM ÁÐUR
Við getum annast þig betur hér.
Hér vilja allir hjálpa þér.
Michael, þetta er Lucian. Lucian, Michael.
Michael þekkir þennan stað betur en ég.
Vertu góður.
Halló. -Halló, Milo.
Ég heiti Lucian.
Sá sem var hér áður hét Milo. -Nei.
Hann var líka nýi Milo.
Þar áður var annar nýr Milo hér.
Ég man ekki eftir fyrsta Milo.
Hvað hefurðu verið hér lengi?
Frá því ég man eftir mér.
Er ekki enn búið að lækna þig? -Það er engin lækning.
Það vantar eitthvað í erfðaefnin okkar.
Eins og stykki í púsluspili.
Og þar til það finnst
er eina lífsvonin að skipta um olíu þrisvar á dag.
Hvað myndirðu gera ef þú gætir verið eðlilegur?
Bara í klukkutíma?
Ég hugsa ekki um það.
Sjáið viðrinin! Sjá þau!
Best að fara ekki út þegar skólanum lýkur.
Eins og Spartverjar
erum við fáliðaðir gegn margnum.
Milo?
Milo!
Hjúkrunarkona?
Lucian.
Lucian!
Með þessu?
Hópur vísindamanna vann við að smíða þessa vél
og þú lagaðir hana með kúlupenna?
Í New York er skóli fyrir börn með afburðagreind.
Ég held að ég geti fengið þá til að greiða námskostnað
og útvega læknisaðstoð vegna sjúkdóms þíns.
Þú gætir stundað nám þar, ræktað hæfileikana.
Þú hefur náðargáfu, Michael.
Ég gæti ekki fyrirgefið mér ef hún færi til spillis.
„Kæri Milo,
þetta er ekki kveðjubréf.
Ég ætla að finna lækningu
svo við getum orðið geðvondir, gamlir karlar.
Þinn vinur, Michael.
P.S. Þú áttir ekki að opna þetta.
Nú geturðu ekki brotið það saman aftur.
Sjáumst í sumar.“
Nei.
„Kæri Milo...“
Má ég fá bréfið mitt? -Hvað?
Má ég fá bréfið mitt?
Hérna þá.
Gerðu það.
Ekki!
Hættið.
Hættið, í Guðs bænum! Farið þið!
Má ég sjá þig.
Hann ætlaði að stela bréfinu mínu!
Milo, hættu.
Hættu þessu.
Hvað með Milo?
Ég annast Milo.
Hann þarfnast mín.
Michael Morbius lauk doktorsritgerð 19 ára gamall
og varð fljótlega þekktur
sem helsti fræðimaður heims á sviði blóðsjúkdóma.
Þróun hans á tilbúnu blóði
hefur bjargað fleiri lífum en penisillín.
Michael Morbius, gjörðu svo vel að stíga fram
til að taka við verðlaunum þínum
frá hans hátign konungi Svíþjóðar.
Ég trúi ekki að þú hafir hunsað konung Svíþjóðar.
Kóng og drottningu, þeirra tryggu þegna,
alla Skandinavíu og vísindasamfélagið allt.
Hver gerir slíkt?
Við vitum bæði að ég er sérvitur.
En veistu hvað,
ég geymdi dagskrána.
Þarna ertu.
Halló, Bancroft læknir. -Halló, Anna.
Eigum við að tefla? -Ég held ekki.
Nú þegar Morbius er kominn aftur
ættirðu kannski að prófa hvernig það er að tapa.
Það verður ekki af því.
Michael.
Já?
Áttu lausa stund?
Auðvitað.
Nýtt í safnið þitt.
Morbius læknir er í klípu.
Ég er í klípu.
„Ég get ekki þegið verðlaun fyrir aukaafurð misheppnaðrar tilraunar.“
Stofa eitt.
Forsíða: „Bandarískur vísindamaður hafnar Nóbelsverðlaunum.“
Veistu að fólk vill gefa fé til Nóbelsverðlaunahafa?
Það er sáttara við fjárfestingu sína.
Það væri gott að þér entist tími til að þiggja það.
Þú gengur of nærri þér.
Veit okkar örláti velgjörðamaður, Milo, hvað við erum að fást við?
Hvað er ég að fást við?
Blöndun erfðaefna úr mönnum og leðurblökum.
Ég veit ekki um... -Um hvað ég er að tala?
Kannastu ekki við það?
Ég kannast ekkert við það.
Kannski hjálpar þetta upp á minnið.
Ég myndi ekki fara þarna inn.
Þetta er...
fiskabúr. En fyrir...
fljúgandi spendýr.
Ég skil.
Vinir sem ég kom með frá Kosta Ríka.
Hvenær ætlaðirðu að segja mér það?
Hvernig náðirðu í aðgangslykilinn minn?
Fyrstu sex tölustafirnir í pí aftur á bak. Þú notar það fyrir allt.
Þú ættir að breyta því.
Þú gætir misst leyfið vegna þess.
Ég þarf það ekki mikið lengur.
Hins vegar þarft þú það.
Til er nokkuð sem kallast „trúverðug afneitun“.
Þú ættir að þakka mér.
Þetta eru einu spendýr jarðarinnar
sem hafa þróast til að nærast eingöngu á blóði.
Til að drekka það
framleiða þessar leðurblökur munnvatn sem inniheldur einstaka blóðstorkuvara.
Svo kenning þín er að takist að skeyta erfðaefnum vampíru saman við þín eigin
gæti líkami þinn framleitt þennan sama blóðstorkuvara.
Já.
Það væri lækning.
Með hvaða tilkostnaði?
Samruni ólíkra tegunda er arfleifð sem við berum í líkama okkar.
Vírusar hafa lætt kjarnsýru sinni yfir í okkar kjarnsýru
í hundruð þúsunda ára.
Það er þróun. Þetta er annað.
Það held ég ekki.
Við þurfum að láta reyna á mörkin, taka áhættu.
Án þess eru engin vísindi.
Engin læknisfræði.
Engin tímamótaskref.
FERLI LOKIÐ BLENDINGSFRUMUR HEILAR
Ágætt.
Tilraunaviðfang fyrir frumusamruna 117.
Svona nú.
Tilraun á viðfangi 117 lauk með...
líffærabilun.
Ég vil ekki að þú særist.
Ég ætti að vera löngu dáinn.
Af hverju lifi ég enn ef ekki til að bæta þetta?
Til að bjarga Milo mínum besta vini.
Og öllum öðrum okkar líkum.
Ekki svona.
Morbius, það er Anna.
Hitinn hækkaði mikið og nýrun eru að láta sig.
Það þarf að halda henni sofandi svo hún fái ekki slag.
Hundrað milligrömm af própófól. -Já.
Strax.
Það er allt í lagi.
Við önnumst þig.
Svona þá.
Svona þá.
Þakka þér fyrir.
Við látum þig sofa um stund.
Langan og góðan lúr.
Michael.
Það virkaði.
Michael Morbius.
Hér eru bæklaður maður sem vilja hitta stjórann.
Michael! Komdu hingað!
Meðan ég er bæklaður geturðu verið áhyggjulaus.
Þú mætir of seint.
Ég var prófa nokkuð nýtt sem kallast „vinna“.
Ég kannast ekki við orðið.
Nei, það held ég ekki.
Hvað með þessa ribbalda?
Ég vann í spilum við rússneska herramenn.
Þeim fannst heppni hans víst ótrúleg. -Einmitt.
Öllu heldur ómöguleg.
Hvernig líður eftirlætissjúklingi okkar?
Vill hann enn stytta sitt stutta æviskeið?
Já. En þér ferst að tala. Það er voðalegt að sjá þig.
Segir sá sem er í... Er þetta teppi eða hvað?
Afsakaðu, ég fékk ekki boð um að klæðast fyrir jarðarför.
Einmitt.
Við sjáumst seinna.
Og þú...
Dyrnar standa alltaf opnar þér.
Við hjá Horizon söknum þín. Við höfum not fyrir snilli þína.
No comments yet. Be the first to leave one.