As primeiras 200 linhas.
pulp /ˈpəlp/ n. 1. Mjúkt, rakt, formlaust efni.
2. Tímarit eða bók sem inniheldur óhugnanlegt efni
og er prentað á óunninn pappír.
American Heritage orðabókin New College útgáfa
Gleymdu því. Of áhættusamt. Ég er hættur svoleiðis rugli.
Það segirðu alltaf, aftur og aftur.
„Ég er hættur, aldrei aftur, of hættulegt.“
Ég veit ég segi það alltaf. Líka alltaf rétt.
En þú gleymir því eftir einn eða tvo daga.
Tja, ég gleymi ekki lengur
héðan í frá mun ég muna.
Veistu hvernig það hljómar þegar þú lætur svona?
Ég hljóma eins og skynsamur maður.
- Hljóma þannig. - Meira eins og önd.
Kvakk, kvakk, kvakk.
Huggaðu þig við það að þú heyrir
það aldrei aftur. Því ég mun aldrei gera það aftur,
þú þarft aldrei að hlusta á kvakið í mér aftur.
- Eftir kvöldið í kvöld. - Hárrétt. Ég kvaka í allt kvöld.
- Get ég fært ykkur meira kaffi? - Já.
- Takk fyrir. - Alveg sjálfsagt.
Eins og staðan er núna
þá ertu að taka sömu áhættu og við bankarán.
Tekur meiri áhættu. Bankar eru auðveldari.
Alríkisbankar eiga ekki að stoppa þig meðan á bankaráni stendur.
Þeir eru tryggðir. Af hverju er þeim ekki sama?
Þú þarft ekki einu sinni byssu í bankanum.
Heyrði af þessum náunga sem fór í bankann
með farsíma.
Hann lætur gjaldkerann fá símann, náunginn á hinum endanum segir:
„Við erum með stúlku mannsins.
Ef þú lætur hann ekki fá peningana þá drepum við hana.“
Gekk það?
Það virkaði. Ég er að tala um þetta!
Bjáni gengur inn í bankann með síma.
Ekki byssu, haglabyssu, fjandans síma.
Hreinsar út. Lyfti ekki litla fingri.
- Meiddu þeir litlu stúlkuna? - Ég veit það ekki.
Það var ábyggilega engin lítil stúlka.
Tilgangur sögunnar er ekki litla stúlkan.
Tilgangurinn er að þeir rændu banka með farsíma.
Viltu ræna banka?
Er ekki að segja að ég vilji ræna banka. Bendi bara á
að það er léttara en okkar starf.
Og ekki fleiri vínbúðir?
Um hvað vorum við að tala? Já, engar fleiri vínbúðir.
Það er heldur ekki jafn skemmtilegt.
Of margir útlendingar eiga vínbúðir.
Víetnamar, Kóreubúar. Tala ekki ensku.
Þú segir: „Tæmdu kassann„“
þeir skilja ekki hvað þú segir.
Taka þetta of nærri sér.
Ef við höldum áfram drepum við eitt grjónið.
- Nei, ég ætla ekki að drepa neinn. - Ég vil heldur engan drepa.
En þeir munu líklega setja okkur í þær aðstæður, við eða þeir.
Og ef ekki grjónið
þá eru það gyðingarnir sem hafa átt búðirnar í fimmtán kynslóðir.
Afi Irving
situr fyrir aftan borðið tilbúinn með byssuna.
Reyndu að gera eitthvað þar
vopnuð síma, sjáðu hvernig það fer.
- Fjandinn. Gleymdu því. Við erum hætt. - Já, og hvað svo? Dagvinna?
- Ekki meðan ég lifi. - Hvað þá?
Garçon, kaffi! Þessi staður.
Garçon þýðir strákur.
- Þennan stað? Kaffihús? - Hvað er að því?
Enginn rænir veitingastað. Af hverju ekki?
Barir, vínbúðir, bensínstöðvar.
Færð kúlu í hausinn ef þú rænir þá staði.
Veitingastaðir eru hins vegar alveg varnarlausir.
Þeir eiga ekki von á að vera rændir. Ekki jafn viðbúnir að minnsta kosti.
Líklega ekki margir hugaðir á svona stað.
Hárrétt. Tryggðir eins og bankarnir.
Stjóranum er alveg sama.
Hann reynir bara að flýja áður en þú byrjar að stúta kúnnunum.
Gengilbeinurnar? Gleymdu þeim.
Ekki séns að þær fórni sér fyrir kassann.
Uppvaskarar, einhverjir Mexíkóar með nokkrar krónur á tímann,
heldurðu að þeim sé ekki alveg sama að þú rænir eigandann?
Kúnnar með fullan munninn af mat
vita ekki hvað er að gerast.
Eina stundina borðandi eggjaköku,
þá næstu miðar einhver byssu á þá.
Sjáðu til, ég fékk hugmynd þegar að við rændum síðustu vínbúð, manstu?
- Kúnnarnir héldu áfram að koma inn. - Já.
Þú fékkst þá hugmynd að taka seðlaveskin.
- Það var frábær hugmynd. - Þakka þér.
Græddum meira á seðlaveskjunum en á búðarkassanum.
- Það gerðum við. - Margir koma á veitingastaði.
Mörg veski.
- Svolítið snjallt, er það ekki? - Mjög snjallt.
Ég er tilbúin. Gerum það. Hér og nú.
- Komdu. - Ókei.
Eins og síðast manstu? Þú sérð um fólkið. Ég sé um staffið.
- Ég elska þig, Pumpkin. - Ég elska þig, Honey Bunny.
Verið róleg, þetta er rán!
Ef þið helvítin hreyfið ykkur
þá drep ég ykkur öll!
Ókei, segðu mér aftur frá þessum hassbörum.
- Ókei. Hvað viltu vita? - Hass er löglegt þarna, er það ekki?
Jú, það er löglegt en ekki alveg löglegt.
Ég á við, þú bara röltir ekki inn veitingastað
rúllar vefju og reykir.
Þeir vilja að þú reykir heima
eða á sérstökum stöðum.
- Og það eru hassbarir? - Já þetta er í raun svona.
Já, það er löglegt að kaupa það, löglegt að eiga það
og ef þú átt hassbar þá er löglegt að selja það þar.
Það er löglegt að vera með á sér en það skiptir ekki máli
vegna þess, og taktu nú eftir.
Ef löggan stoppar þig í Amsterdam þá mega þeir ekki leita á þér.
Ég á við þeir hafa ekki heimild til þess í Amsterdam.
Maður minn, ég er á leiðinni.
Þetta nægir. Ég fjandans fer.
Ég veit, sykurpúði. Þér myndi líka mest við þetta.
En veistu hvað er það furðulegasta við Evrópu?
- Hvað? - Það eru smáatriðin.
Ég meina, þeir eru með sömu hlutina
og hér, en bara örlítið öðruvísi.
Dæmi.
Ókei, þú ferð í bíó
í Amsterdam og kaupir þér bjór.
Og það er ekki í einhverju pappaglasi.
Ég er að tala um bjórglas.
Og í París geturðu keypt bjór á McDonald's.
Og veist hvað þeir kalla kvartpundara með osti í París?
Ekki kvartpundara með osti?
Nei, þeir eru með metrakerfið þar.
Þeir vita ekki hvað kvartpundari er.
- Hvað kalla þeir hann þá? - Royale með osti.
-„Royale með osti.“ -Hárrétt.
Hvað kalla þeir Big Mac?
Big Mac er Big Mac en hann heitir „le Big Mac“.
„Le Big Mac“.
Hvað kalla þeir Whooper?
Veit það ekki. Fór ekki á Burger King.
Veistu hvað þeir setja á franskarnar í Hollandi í stað tómatsósu?
- Hvað? - Majónes.
Fjandinn!
Ég hef séð það. Drekkja þeim í sullinu.
Oj.
Við hefðum átt að taka með haglabyssur í svona lagað.
- Hversu margir eru þarna? - Þrír eða fjórir.
- Með okkar manni? - Ekki viss.
Svo það þýðir að þeir gætu verið allt að fimm þarna?
- Það er möguleiki. - Ættum að vera með haglabyssur.
- Hvað heitir hún? - Mia.
- Mia. Hvernig kynntust þau Marsellus? - Veit ekki. Bara kynntust.
- Og hún var leikkona. - Í alvöru? Eitthvað sem ég hef séð?
Ég held að stærsta hlutverkið hafi verið í prufuþætti.
- Prufuþætti? Hvað er það? - Þú veist þættirnir í sjónvarpinu?
Ég horfi ekki á sjónvarpið.
Jú, en þú veist af
uppgötvun sem heitir sjónvarp
og þeir sýna þætti í þessari uppgötvun.
Já.
Þeir velja þættina þannig að þeir búa til einn þátt.
Hann er kallaður prufuþáttur.
Þeir sýna hann fólki sem velur þættina
og byggt á niðurstöðunni
þá ákveða þeir hvort fleiri þættir verði gerðir.
Sumir eru valdir og verða sjónvarpsþættir.
Sumir ekki og hætta.
Hún lék í einum sem ekkert varð úr.
Manstu eftir Antoine Roccamora?
Hálfur svartur, hálfur Samói, þeir kölluðu hann „Tony Rocky Horror“?
Já, kannski. Feitur, ekki satt?
Ég myndi kannski ekki kalla hann fitubollu.
Hann átti í vandræðum með þyngdina. Hann er jú Samói.
Já, held ég viti hver hann er. Hvað með hann?
Marsellus fór illa með hann. Orðið á götunni er
að það hafi verið út af eiginkonu Marsellus Wallace.
- Hvað gerði hann henni, reið henni? - Nei, nei. Ekki svo slæmt.
- Hvað þá? - Gaf henni fótanudd.
Fótanudd? Allt og sumt?
- Hvað gerði Marsellus? - Sendi nokkra skunka til hans.
Fóru með hann út á svalir og köstuðu honum niður.
Maðurinn féll fjórar hæðir.
Það var lítill garður fyrir neðan,
eins konar gróðurhús. Hann féll í gegnum það.
Síðan þá hefur hann glímt við málhelti.
Það er algjör synd.
Verð samt að segja að ef þú leikur þér að eldinum þá brennirðu þig.
Hvað áttu við?
Þú nuddar ekki lappirnar á eiginkonu Marsellus Wallace.
Brást hann ekki of hart við?
Ja, Antoine átti líklega ekki vona á því að Marsellus
myndi bregðast svona við, en hann mátti búast við einhverju.
Þetta var fótanudd. Fótanudd er ekkert.
Ég nudda lappirnar á móður minni.
Nei, þetta er snerting á eiginkonu Marsellus.
Ég meina, er þetta jafn slæmt og að sleikja á henni klofið?
- Nei, en þetta er á þeim vallarhelmingi. - Vá, hættu nú alveg.
Að sleikja tík og gefa henni fótanudd
er ekki einn og sami hluturinn.
- Það er það ekki. Sami vallarhelmingur. - Ekki sami vallarhelmingur heldur.
Sjáðu til, kannski beitum við ólíkum nuddaðferðum
en veistu það að snerta fætur eiginkonu hans
og stinga tungunni í það allra helgasta
er ekki sami vallarhelmingur.
No comments yet. Be the first to leave one.