As primeiras 200 linhas.
Úr fyrri þáttum:
Harry er það eina sem ég á og þú reyndir að taka hann frá mér.
Fyrstu minjagripirnir mínir.
Ég vissi það ekki þá en þeir áttu eftir
að verða hræðileg mistök.
Hvað fæ ég fyrir þetta? - Eyrnalokkarnir eru gervi, ekkert.
Ef þú vilt ekki lokkana, má ég þá eiga þá? - Endilega.
Deb? - Farðu, maður!
Ég gerði grín að þér, en þetta þarna var...
Við höfum ekki getað snúið neinum Kólumbíubúanna
svo okkur vantar nýja leið inn.
Einhvern sem getur náð til Estrada. - Einhvern sem þú getur treyst.
Þetta er Brian, sonur minn.
Og þessi litli engill er Dexter. - Halló, Dexter.
Svo margir morðingjar ganga enn lausir og geta haldið áfram.
Þekktirðu hann?
Hann tók fé að láni frá röngum aðila,
óþverra sem kallaður var "Handsome" Tony Ferrer.
Ferrer fer heim til Renes,
miðar byssu við hliðina á honum og segir að ef hann borgi ekki
fyrir næsta föstudag fari næsta kúla í hausinn á honum.
Þegar Ferrer var farinn sá Rene að kúlan hafði farið
í gegnum vegginn og hitt mömmu hans í höfuðið.
Hún lést samstundis.
Heyrðirðu um son Powells dómara? Hann er horfinn.
Halló? Má ég fara?
Þessi hræðilegi glæpur, rán og limlesting á varnarlausu barni
er ekki bara árás á fjölskylduna
heldur árás á alla Miami-borg.
Jimmy sást síðast á göngu á leið sinni
í skóla heilagrar Theresu á fimmtudag
klukkan sjö að morgni.
Fingur í öskju. Hann hefði átt að gera mig spenntan.
Nándin við verk samskrímslis. En fingur af barni...
Er allt í lagi, vinur? - Já.
Harry hafði áhyggjur af að þetta myndi rifja upp foríðina,
rífa ofan af áföllum úr æsku.
Ég vissi það eitt að ég vildi fá blóð.
Rannsakendur eru sem stendur að rannsaka nánasta umhverfi
og leita að vitnum. Ef einhver hefur upplýsingar
er hann beðinn að hafa samband við vísbendingalínuna.
Hafa borist einhverjar kröfur frá mannræningjanum?
Engin skilaboð af neinu tagi. - Þau eru í fingrinum.
Það þarf rúmlega þriggja kílóa átak til að saga
í gegnum bein af þessari þykkt. - Bein úr barni.
Hreint sár, ekkert hik.
Hann hefur trúlega notað eitthvað með fjöðrun.
Garðklippur. Sá sem þetta gerði er vanur ofbeldi.
Powell dómari á sögu um hörku gagnvart eiturlyfjahringunum.
Gæti þetta verið hefnd? - Við skoðum allar hliðar.
Þetta er öllum óskiljanlegt en enginn á erfiðara
en fjölskylda Jimmys.
Við viljum fullvissa samfélagið í Miami um
að við gerum allt til að leysa málið og finna hinn seka.
Og við hinn ábyrga segi ég að ég hætti ekki
fyrr en Jimmy er kominn heilu og höldnu til fólksins síns.
Ef þú sleppir honum ekki muntu gjalda það dýru verði.
Fréttirðu það? Það verður snápur frá FSU á leikjunum.
Nei? Nú verð ég að verða fyrirliði í undanúrslitum.
Það myndi tryggja mér styrkinn.
Bjáni. - Er þetta keppinauturinn?
Kjaftæði, ég skúraði gólfin með henni alla leiktíðina
og þjálfarinn veit það. - Pabbi borgar búningana...
Við vitum samt hvernig þetta er. Stelpurnar kjósa þig.
Ekki þegar hún heldur sundlaugarpartí um helgina
meðan foreldrarnir eru í Aspen. - Aumingi.
Eigum við að ryðjast inn í það? Skíta í laugina?
Ég kyssi ekki hringinn hennar.
Eigum við að horfa á morðmyndir heima hjá mér í staðinn? - Ojá.
Bíddu, ekkert kókaín?
Sagðirðu ekki að bróðir þinn hefði sambönd?
Hann hafði það en vinur hans átti ekkert.
Ég verð með nóg af brennivíni. - Ég get útvegað kók.
Hryllingsmyndakvöld heima hjá mér? - Meiriháttar.
Er ekki pabbi þinn lögga? - Allt í lagi ef þú þorir ekki.
Ertu hrædd?
Hvernig í andskotanum ætlar þú að útvega kókaín?
Það veit ég ekki.
Ekkert hefur frést frá mannræningjunum.
Engin lausnargjaldskrafa, ekkert.
Þetta virkar eins og hefnd.
Powell hefur eflaust eignast sinn skerf óvina gegnum tíðina.
Já, mannshvarfadeildin hefur nóg að gera.
Listi grunaðra hlýtur að vera langur.
Vonum bara að þetta endi ekki í morðdeildinni, herrar mínir.
Haldið þið áfram, ég sé um þetta. Fylgist með og lærið.
Vinnur þú hér? - Já, í meinafræðideildinni.
Hann vinnur þarna en ég get aðstoðað þig.
Batista rannsóknarlögreglumaður. Angel.
En nafnið er misvísandi. - Hvar er skrifborðið mitt?
Afsakaðu? - Maria LaGuerta, rannsóknarlögreglumaður.
Ég vinn hér núna.
Og ég hef ekki samskipti við vinnufélaga utan vinnu.
Þarna er hún, kona dagsins.
Ég sé að þið hafið allir hitt Mariu LaGuerta.
Ég er vanur að segja nokkur orð til kynningar,
en það er betra að kynna þig með þínum eigin orðum.
Og ég vitna í Miami Herald.
"Miami Metro hefur látið fjölda morðmála sleppa í gegn.
Einkum eiturlyfjneytendur, vændiskonur og heimilislausa.
Þessi mál eru kölluð EMA, engin mennsk aðkoma.
Þessu þarf að breyta. Ekkert eitt líf er öðru dýrmætara".
Lögreglustjóri sendi hana því hingað til að taka til.
Guði sé lof.
Gleymdirðu hetjuskikkjunni í bílnum?
Hvað skal segja?
Ég forðast ekki erfiðar spurningar. - Merkilegt.
Þar til í gær bar enginn upp þessar spurningar.
Það er einmitt það sem ég meina. - Aftur að vinna.
Þar sem köld mál æsa þig svona upp, Maria,
þá er hrúga af pappírsvinnu þarna sem þarf að skrá inn
fyrir nýja, rafræna gagnagrunninn.
Rannsóknarlögreglumaður, kafteinn.
Hvað er að honum? Og af hverju er hann svona reiður?
Hún fór með þetta út fyrir fjölskylduna.
Við löggur hugsum um okkar fólk.
Við hugsum um okkar fólk. Ég þráði það.
Og vildi byrja á að afgreiða þann sem slapp. Tony Ferrer.
Ég sá fréttamannafundinn.
Frekar sjúkt að fara svona með krakkann. - Helvíti kjarkað.
Son dómarans?
Við Becky þekkjum Powell-hjónin vel.
Strákarnir spila fótbolta saman.
Ég gleymdi... Það er komin dagsetning á réttarhöldin
fyrir Levi Reed, innbrotsmorðingjann.
Það mátti ekki seinna vera. - Hefur kærastan sagt eitthvað?
Nei, hún var svo vímuð að hún vissi ekki hvaða dagur var.
Þetta verður hola í höggi. Lokaðu dyrunum. - Já.
Hafðu auga með þeirri nýju, Mariu. Ég treysti henni ekki.
Ég skynjaði það. - Hún er metnaðargjörn.
Hún vildi komast að í morðdeildinni,
baktalaði okkur í fjölmiðlum og neyddi mig til að ráða sig.
Ef hún klúðrar einhverju... - Þá kem ég beint til þín.
Einmitt.
Tony Ferrer.
Öðru nafni "Handsome Tony".
Hann lagðist á fólk í eigin samfélagi,
lánaði því peninga sem það gat aldrei endurgreitt.
Og losaði sig við það þegar hann hafði blóðmjólkað það.
Þið krókódílaskinnsskórnir þínir hafið nóg að gera.
Regla númer 2 í reglubókinni. Aldrei að drepa sakleysingja.
Þessi maður gerði vel við sig.
Jai alai. Á morgun.
Elskan, ég er kominn heim!
Elskan, ég er kominn heim!
Vill Polly morðingja?
Viltu koma inn?
Tony naut þess að láta fólk vera sér skuldbundið.
Árum saman, án þess að sjá fyrir endann á því.
Fólk yrði aldrei frjálst. Isabella og Luis.
Að fullu greitt? Eða greitt dýru verði?
Isabella, bingó. Heimilisfangið passar.
Hún fór til vinnu í Mama's Bakery eitt kvöldið
og sneri aldrei aftur.
Fjölskyldan tilkynnti um hvarf hennar.
Luis lést úr blóðeitrun eftir að hafa brotnað á báðum fótum.
Fótbrot á þann hátt sem gerist ef þú borgar of seint,
aftur og aftur.
Ég hafði ekki fundið byssu Ferrers.
En það var áhættusamt að taka lán hjá Handsome Tony.
Ekki veistu hvar ég fæ fölsuð skilríki?
Veistu við hvern þú ert að tala? Ég er da Vinci auðkennisfölsunar.
Engar áhyggjur, Tanya heyrir ekki til okkar. Tuttugu dalir.
Ég á bara tíu. - Sem þýðir að þú skuldar mér.
Rosalega. Vertu viðbúinn að borga flautuleikaranum, vinur.
Skrifaðu niður upplýsingarnar.
Af hverju þarftu þetta? Patrick Bateman.
Af hverju ekki Dexter Morgan? - Pabbi er lögga.
Sama eftirnafn. Ef ég verð tekinn kemur hann illa út.
Ertu að spá í að fremja glæp eða eitthvað? - Nei.
Bara fara í partí í kvöld, ég þarf að vera með aldur.
Ég vissi ekki að þú værir djammari.
Við förum á Titty Tuesday í næstu viku.
Það er helmings afsláttur af kjöltudansi á Stir Crazy.
Hljómar... Hræðilega. Skemmtilega.
Masuka, hættu að bjóða fólki á Titty Tuesday.
Það vill enginn fara. - Hún heyrir víst til okkar.
Til hamingju, Patrick. Þú ert 24 ára.
Frábært, morgunverður í kvöldmat aftur.
Ekkert kalkúnabeikonkjaftæði, takk.
Ég ætla að hafa fataskipti, það er skítalykt af mér.
Dex, ég hef ekki séð þig síðan í partíinu hjá Andy. - Rétt.
Þú ert víst orðinn lögga. Ertu þá í búningi?
Ekki lögga, nemi í réttarmeinafræði.
Þessir lokkar. Hvar fékkstu þá?
Deb gaf mér þá.
Finnst þér þeir flottir? - Mjög.
Dex! Kanntu ekki að banka? Drullastu út!
Þú stalst eyrnalokkunum mínum. - Hvað ætlaðirðu að gera við þá?
Ekki áttu kærustu. Þú þekkir ekki typpið á þér frá eyranu.
Krakkar! - Fáðu þá aftur. Núna!
Ég get hjálpað þér að fá þá aftur ef þú gerir svolítið
fyrir mig í staðinn. Mig vantar kók fyrir partí um helgina.
Geturðu bjargað því? - Hvað segirðu? Nei.
Þá skaltu gleyma þessu með eyrnalokkana.
Deb, í alvöru? - Allt í lagi. Ég skal hjálpa þér.
Frábært, sæktu mig á æfingu á morgun og við tölum saman.
Var hann að tala um mig?
Dex, er allt í lagi? Þú hefur ekki snert matinn.
Maturinn þinn?
No comments yet. Be the first to leave one.