As primeiras 200 linhas.
Draumar eru skilaboð úr djúpinu.
Plánetan mín, Arrakis, er svo falleg þegar sól er lágt á lofti.
Svífandi yfir sandöldunum
má sjá kryddið í loftinu.
Við dagsetur lenda kryddþreskivélarnar.
Aðkomumennirnir vinna hratt til að forðast hita dagsins.
Þeir fara ránshendi um landið í augsýn okkar.
Grimmd þeirra gagnvart þjóð minni er það eina sem ég þekki.
Þessir aðkomumenn, Harkónar, komu hingað löngu áður en ég fæddist.
Þeir stýrðu kryddframleiðslunni og urðu viðbjóðslega ríkir.
Ríkari en sjálfur keisarinn.
Hermenn okkar gátu ekki frelsað Arrakis undan Harkónum
en dag einn, samkvæmt skipun keisara, voru þeir farnir.
Af hverju valdi keisarinn þessa leið?
Hverjir verða næstir til að kúga okkur?
DUNE FYRSTI HLUTIFYRSTI HLUTI
ÁRIÐ 10191
CALADAN HEIMAPLÁNETA ATREIDES-ÆTTARINNAR
Gott að þú vaknaðir snemma.
Faðir þinn heimtar fullan skrúða fyrir boðbera keisara.
Fullan skrúða?
Herklæði?
Viðhafnarklæðnað.
Til hvers er þetta ef allt er ákveðið?
Siðareglur.
Takk fyrir.
Þú skalt láta mig færa þér það.
Notaðu Röddina.
Mamma, ég er nývaknaður.
Færðu mér vatnið.
Glasið heyrir ekkert. Skipaðu mér fyrir.
Færðu mér vatnið.
Næstum því.
Næstum því?
Það tekur mörg ár að læra tækni Bene Gesserit, Paul.
Þú ert þreytulegur.
Fleiri draumar?
Nei.
Öfgafullar sveiflur á hitastigi og hamfaraveður
gera lífsskilyrði utan borga Arrakis virkilega slæm
og öflugir sandstormar geta skorið í gegnum málma.
Aðeins ættbálkar innfæddra sem kallast Fremenn
hafa aðlagast nógu vel til að þrauka af.
Þeir kjósa að lifa á afskekktustu svæðum Arrakis
og deila djúpauðninni með risavöxnum sandormum
sem Fremenn kalla Shai-Hulud.
Nálægðin við kryddið hefur veitt ættflokknum áberandi blá augu
eða augu Ibads.
Lítið er vitað um Fremenn
utan þess hvað þeir eru hættulegir og óáreiðanlegir.
Vegna árása Fremanna er kryddvinnslan sérlega áhættusöm.
Fremenn líta á kryddið sem heilagt ofskynjunarlyf
sem viðheldur lífinu og veitir gríðarlega heilsubót.
Innan Keisaraveldisins nota leiðsögumenn geimferðagildisins kryddið
til að finna öruggar leiðir á milli stjarna.
Án kryddsins væru ferðalög á milli pláneta óhugsandi
og þar af leiðandi er þetta langdýrmætasta efni veraldar.
Brostu, Gurney.
Ég er brosandi.
Hvað kostar þau að ferðast alla þessa leið fyrir svona formsatriði?
Þrír gildisleiðsögumenn.
Samtals 1,46 milljónir og 62 sólaris fram og til baka.
Með góðfúslegu leyfi Shaddams IV af Corrino-ættinni,
sem vermir hásæti gyllta ljónsins
sem Padishah-keisari hins kannaða alheims,
stend ég frammi fyrir ykkur sem boðberi valdaskipta.
Því til vitnis fylgja meðlimir keisarahirðar,
fulltrúar geimferðagildisins og Bene Gesserit-systir.
Keisarinn hefur talað.
"Atreides-ættin skal samstundis taka við stjórn Arrakis
og hafa yfirumsjón með plánetunni."
Þiggið þér boðið?
Við erum Atreides-ættin.
Við hlýðum hverju kalli og bregðumst engum trúnaði.
Keisarinn óskar þess að við stillum til friðar á Arrakis.
Atreides-ættin þiggur boðið.
Atreides! Atreides! Atreides!
Atreides!
Innsigli yðar.
Er þetta þá afgreitt?
Það er afgreitt.
-Hvernig gekk? -Stélkambarnir eru of lausir.
-Við lögum það. -Takk, vinur.
Redda því.
Duncan.
Stráksi minn.
Blessaður.
Paul, stráksi minn.
Þú ferð til Arrakis á morgun.
Með framvarðsveitinni.
Já, ég fer á morgun með framvarðsveitinni.
Ég vil fara með þér.
Viltu það?
Svarið er því miður nei.
Duncan.
Viltu láta draga mig fyrir herrétt?
Hvað gengur á?
Get ég treyst þér fyrir einu?
Alltaf. Þú veist það.
Mig hefur dreymt drauma.
Um Arrakis og Fremenn.
Allt í lagi.
Og hvað?
Ég sá þig.
Ásamt Fremönnum.
Svo ég finn þá.
Þar höfum við það. Þetta er góðs viti.
Lanville!
Ég sá þig liggja í valnum.
Eftir bardaga.
Mér leið eins og ef ég hefði verið þar
værirðu enn á lífi.
Í fyrsta lagi dey ég ekki.
Þú tekur mig ekki alvarlega.
Viltu þess vegna fara?
Sjáðu nú til.
Draumar eru gott efni í sögur
en það mikilvægasta gerist þegar við vökum.
Þá látum við hlutina gerast.
Sjá þig. Ertu orðinn stæltari?
Er það?
Nei.
Heyrðu.
Sjáumst á Arrakis, stráksi.
Faðir, ég vil fara með Duncan Idaho í könnunarleiðangurinn á Arrakis.
Ég lærði tungu Fremanna og kem að gagni.
Kemur ekki til mála.
Þú ferð eftir nokkrar vikur eins og við hin.
Ég hef æft mig alla ævi.
-Til hvers ef ég má ekki taka áhættu? -Þú veist það, Paul.
Þú ert framtíð Atreides-ættarinnar.
Og afi barðist við naut til gamans.
Já.
Sjáðu hvernig það endaði.
Ég þarfnast þín mér við hlið.
Gríðarlegar hættur bíða okkar á Arrakis.
Hvaða hættur?
Fremenn? Eyðimörkin?
Pólitískar hættur.
Höfðingjaættirnar fylgja okkur og það ógnar keisaranum.
Með því að færa stjórn Arrakis frá Harkónum til okkar
leggur hann grunninn að stríði
sem veikir báðar ættirnar.
En ef við stöndum fastir fyrir og nýtum sannan kraft Arrakis
verðum við sterkari en áður.
Hvað áttu við?
Með kryddvinnslu og baráttu gegn Fremönnum?
-Engu betri en Harkónar. -Nei.
Með því að vinna með Fremönnum.
Ég sendi Duncan Idaho til að vinna að því.
Hér á Caladan ríkjum við með öflugum her á lofti og á legi.
En á Arrakis þurfum við að virkja eyðimerkuraflið.
Ég vil fá þig á ráðsfund.
Til að læra af mér.
Hvað ef ég er það ekki?
Ekki hvað?
Framtíð Atreides-ættarinnar.
Ég vildi ekki heldur taka við af föður mínum.
Ég vildi verða flugmaður.
Ég vissi það ekki.
Afi þinn sagði: "Sannur mektarmaður sækir ekki eftir því að stjórna.
Hann er kallaður til starfsins og svarar kallinu."
En þótt svar þitt verði nei
verður þú samt það eina sem ég krefst af þér.
Sonur minn.
Ég fann mína leið að embættinu. Kannski finnur þú þína.
Í þeirra minningu...
skaltu reyna.
Ekki snúa baki í dyrnar.
Hversu oft þarf að segja þér það?
Ég þekkti þig á fótatakinu, Gurney Halleck.
Einhver gæti hermt eftir göngulagi mínu.
Ég þekki muninn.
Ert þú nýi vopnameistarinn?
Í fjarveru Duncans Idaho geri ég mitt besta.
Veldu vopn.
Þetta var langur dagur.
Syngdu frekar fyrir mig.
Þú ert ókurteis.
Komdu.
Komdu.
Gamli maður.
Hægfara blað sker í gegnum hlífina.
Ég er ekki í rétta skapinu.
-Rétta skapinu? -Já.
Hvað kemur það málinu við?
Þú berst þegar þú þarft, burtséð frá skapinu.
Berstu nú!
Komdu!
Ég náði þér.
Já.
En líttu niður, herra.
Þú hefðir dáið með mér.
Þú fannst rétta skapið.
Verður þetta svona slæmt?
Skilurðu þetta ekki?
Þú áttar þig ekki á alvarleika stöðu okkar.
Í heil 80 ár tilheyrði Arrakis Harkonnen-ættinni.
Þeir áttu kryddakrana í 80 ár.
Geturðu ímyndað þér auðinn?
No comments yet. Be the first to leave one.