The Space Between Us

The Space Between Us

Baixar Legenda em Icelandic

Informações de lançamento

The Space Between Us 2017 1080p BluRay DTS-HD MA7 1 x264-iFT
Um comentário por rippmaster

Tags

BluRay
x264
1080
TS
HD
Publicado em: 2021-07-10
Downloads: 35
Deficientes Auditivos: No

Pré-visualização das legendas em Icelandic

As primeiras 200 linhas.

"Ég vil fara til Mars.

Ekki bara í heimsókn. Ég vil búa þar.

Því þá væri ég lifandi sönnun þess að líf á Mars sé mögulegt.

Sönnun þess að ef þörf krefði

gæti mannkynið byrjað upp á nýtt.

Við erum í vanda og það er okkar sök.

Tími okkar er á þrotum og móðir Náttúra gerir enga samninga.

Við megum ekki gefast upp. Ekki núna.

Mars er blómleg pláneta og tilbúin fyrir líf.

Auðlindir Jarðar kunna að vera á þrotum

en það er ein auðlind sem við skulum ekki hunsa.

Hún er sú dýrmætasta og hún er...

takamarkalaus:

Hugrekki."

Ég skrifaði þessi orð...

Ég skrifaði þessi orð þegar ég var tólf ára.

Bréf mitt til Hvíta hússins.

Ég ímyndaði mér aldrei að forsetinn myndi lesa þau upphátt fyrir þjóð

sem syrgði missi enn einnar áhafnar geimfara.

Mig óraði aldrei fyrir því

að ég yrði kallaður "Táknmynd hugprýði",

"Ungur maður með einstaka hugsjón".

Og framhaldið er...

það er ekki liðin tíð.

Heldur aðeins upphafið.

Svo hér erum við öll. Þökk sé Genesis Geimtækni

fer Magellan-61 eftir 20 tíma af stað með sex geimfara til Mars.

Ekki í heimsókn heldur til að búa þar, fyrstu sönnu borgararnir á Mars!

Frá æskuhugsjón til mesta geimstórvirkis

sem heimurinn hefur reynt:

Byggðin sem kallast Austur-Texas á Mars.

Jæja, segið það með mér.

Bætið bara við vatni!

Já!

Hvað sem ég er

stenst ég engan samanburð við þessar sex hetjur,

þessi lifandi dæmi um takmarkalaust hugrekki.

Og að því sögðu

vil ég gefa orðið leiðangursstjóra

þessa sögulega leiðangurs,

yfirgeimfaranum Söru Elliot.

Afsakið að við höfum aðeins tíma fyrir tvær spurningar.

Þið vitið hvernig þetta er kvöldið fyrir ferðalag.

Scott Hubbard frá Geimferðatíðindum. Ungfrú Elliot,

hvernig tilfinning er það að fórna næstu fjórum árum af lífi þínu á Mars?

Þetta er ekki fórn. Þetta er tækifæri.

Ég er auðmjúk, spennt og þakklát fyrir tækifærið til að verða landnemi.

Ungfrú Elliot, ertu ekki hrædd í ljósi sögunnar og hættunnar?

Auðvitað.

Ég óttast að ég gæti brugðist leiðangrinum á einhvern hátt.

Mér var kennt að fólk sem tæki áhættu án ótta væri hugrakkt.

Miklu hugrakkari eru þeir sem taka áhættu þrátt fyrir ótta sinn.

Hugrekki er ótti sem hefur farið með bænirnar sínar.

Fullkomið.

T mínus tíu.

Níu. Átta.

Sjö. Sex.

Fimm. Fjórar.

Þrjár. Tvær.

Ein. Núll.

Kvíknun.

Flugtak.

Flugtak hjá Magellan-61.

Viðbúin tengingu við Mars flugfarið.

Hraði Magellan er góður.

Gættu að rekinu, Sarah.

Snerting.

Ekki strax! Ekki strax! Ekki strax.

Handstýrð tenging staðfest.

Förum til Mars! Förum til Mars!

TVEIM MÁNUÐUM SÍÐAR

Er í lagi með þig?

Já, mér líður vel.

Sarah, má ég eiga við þig orð?

Hvað er málið?

Sýnið mér það.

Við getum ekki snúið leiðangrinum við, er það?

Læknir, hvernig líður henni?

Fyrir utan það að vera dauðhrædd? -Henni líður vel.

Þetta er hörmulegt.

Nathaniel, hún á von á sér skömmu eftir komuna.

Við þurfum að búa okkur undir þetta.

Geimfari hegðaði sér á óábyrgan hátt

og NASA þarf að ákveða hvað skal gera um leið og barnið er fætt.

Ákveða hvað?

Hvenær eigi að flytja þau til baka.

Tom, það er stærra mál sem þarf að huga að.

Fóstrið er í þyngdarleysi allan meðgöngutímann.

Það á sér engin fordæmi.

Við förum ekki í fjölmiðlana.

Við höldum þessu innanhúss í bili.

Við þurfum að afla meiri upplýsinga.

Hvað ertu að segja? -Við gerum skammtímaáætlun.

Við látum dr. Loh taka á móti barninu á Mars.

Við höldum þessu leyndu. Við bíðum þetta af okkur.

Sarah kann að hafa sýnt óábyrga hegðun en hún er ekki lengur bara geimfari

og þetta er ekki bara ákvörðun Genesis.

Hún er núna móðir.

Þetta er líka hennar ákvörðun.

Andaðu djúpt. Rembstu, rembstu, rembstu!

Gott. Jæja, andaðu djúpt. Svona. Og rembstu! Rembstu! Gott.

Jæja, gott. Vel gert, Sarah.

Andaðu áfram. Þú stendur þig vel. Þú stendur þig vel.

Rembstu einu sinni enn! -Áfram nú, andaðu djúpt.

Er í lagi með hann?

Vel gert.

Hann lítur vel út.

Sarah. Sarah?

Sarah? -Það hægist á hjartslætti hennar.

Það er eitthvað að!

Þetta er yfirvofandi eftirfæðingarkrampi. Gefið henni tvö milligrömm af lorazepam.

Slakaðu á. Taktu hann.

Sarah, andaðu.

Hún sýnir enga svörun. -Gefið henni 20 milligrömm af...

Fljótur, hún er að kóða.

Svona nú, Sarah, andaðu.

Hve langur tími? -30 mínútur án hjartsláttar.

Stoppaðu. Stoppaðu. Svona nú, stoppaðu. Stoppaðu. Hún er farin. Hún er farin.

Hún er farin.

Herra Shepherd, ertu þarna?

Við misstum hana.

Gott og vel. Þetta er það sem við vitum.

Tveimur þriðja minna þyngdarafl mun breyta innri líffærum barnsins.

Hjartað verður ekki skilyrt til að hafa nægan styrk til að dæla

í þyngdarafli Jarðar. Beinin verða brothætt, líklega í yfirstærð.

Barnið myndi aldrei lifa af ferðina aftur til Jarðar.

Já, en Nathaniel, í augum heimsins

er ekki allur leiðangurinn og Austur-Texas tilraun?

Og yrði okkur ekki fyrirgefið? -Tilraun?

Tom, þetta er ekki mús. Þetta er ekki api.

Þetta er manneskja.

Og í augum heimsins varð yfirgeimfari Genesis Marsleiðangursins

ekki aðeins ólétt heldur lést hún af barnsförum

og dæmdi barn til móðurlausrar tilveru úti í geimnum.

Ímyndaðu þér upphlaupið.

Austur-Texas gengur fyrir peningum, vísindum, góðri trú

og umfram allt góðum almannatengslum.

Við erum ekki bara að tala um leyndarmál, heldur yfirhylmingu.

Það mun fella fyrirtækið.

Nema.

Nema hvað?

Nema við hylmum ekki yfir. Við öxlum fulla ábyrgð.

Við tökumst á við þetta.

Tom, ég vil fara í næstu ferð.

Sem farþegi? -Já.

Nathaniel, í hamingjunnar... Byrjar það.

Nei, þetta er rétt hjá honum. Það er ekki hægt að sýna meiri stuðning.

Takk, Alice. Nákvæmlega.

Ímyndaðu þér starfsandann hjá þeim. Þeir voru að missa foringjann sinn.

Nathaniel, þetta kemur ekki til greina.

Og þú veist það.

Fór eitthvað fram hjá mér?

Læknir, viltu uppfræða Alice, takk?

Vatnshöfuð.

Við fundum það við fyrstu læknisskoðun Shepherds.

Meðfæddur heilagalli. -En góðkynja.

Góðkynja nema hann vilji fara út í geim. Enginn veit hvernig það færi.

Hvað ef ég vil taka þá áhættu? -Því miður.

Það gerist ekki.

Svo barnið verður áfram á Mars?

Ég held ekki...

Við eigum engra kosta völ.

Setjum sem svo að við segjum sannleikann og missum fjármögnunina,

segjum að við fórnum öllu sem við börðumst fyrir,

segjum að við flytjum alla heim. Þið heyrðuð hvað læknirinn sagði,

barnið myndi ekki lifa ferðina af.

Að halda þessu leyndu bjargar fyrirtækinu...

sem bjargar Austur-Texas, sem bjargar barninu.

Svo barnið verður áfram leyndarmál?

Já.

Því miður. Já.

Á ég að sækja bílinn þinn, herra Shepherd?

Hefur heiðhvolfsflug. Hefur heiðhvolfsflug.

Hefur úthvolfsflug. Hefur úthvolfsflug.

Hæðarmörk. Hæðarmörk.

Nálgast útgeim. -Já!

Dragðu úr hraða. Hætta. Yfirhraði.

Dragðu úr hraða. Hætta. Hætta.

Allir farast.

16 ÁRUM SÍÐAR

Þarna ertu.

Kentár, geturðu gert kort fyrir mig?

Hverju viltu kort af, Gardner Elliot?

Leið í gegnum loftræstikerfið frá vistarverum minum

til geymslunnar í Austur-Texas.

Og hvers vegna viltu fá þessar upplýsingar?

Þér kemur það ekki við.

Mér kemur það við. Ég er besti vinur þinn.

Nei. Þú er vél með vanþróaða gervigreind.

Vél sem ég hjálpaði við að smíða.

Þetta særir tilfinningar mínar.

Þú ert ekki með tilfinningar.

Ég er með tilfinningar. Ég er besti vinur þinn.

Ég er kennari þinn. Ég er félagi þinn. Sættumst með faðmlagi.

Útvegaðu mér kort af loftræstikerfinu.

Það eru trúnaðarupplýsingar.

Mér þykir það leitt.

Nei. Mér þykir það leitt.

Þetta eru trúnaðarupplýsingar.

Gardner, ekki.

Comentários

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left