As primeiras 200 linhas.
ÁR: 2022 STAÐUR: NEW YORK ÍBÚAFJÖLDI: 40.000.000
Fyrsta stig brottflutnings.
Útgöngubann eftir eina klukkustund.
Útgöngubann eftir eina klukkustund.
Þetta samtal við ríkisstjórann Henry C. Santini...
...er í boði Soylent Red og Soylent Yellow...
...orkuríks grænmetisþykknis...
...og hins nýja, ljúffenga Soylent Green...
...kraftaverkafæðu úr orkuríku svifi...
...safnað saman úr heimshöfunum.
Vegna gríðarlegra vinsælda þess er núna lítið til af Soylent Green.
Munið að á þriðjudaginn er Soylent Green-dagurinn.
Og núna, Santini ríkisstjóri.
Þakka þér fyrir, Richard. Takk fyrir.
Ánægjulegt að geta talað við íbúa New York-borgar.
Kjaftæði.
Hvað grófstu upp í þessum kössum sem ég lét þig fá?
Matthewson...
...morð.
Utan við lögsagnarumdæmi þitt, handan borgarmarkanna í Fíladelfíu.
Chergov, morð.
Fór heim í gær.
Donaldson, margar nauðganir.
Á feril í Bronx.
Það má framselja hann.
Koma honum burt frá Manhattan.
Hvað um Zolitnikoff?
Gefðu mér smá tíma.
Það hefurðu sagt mér undanfarna þrjá daga.
Ég finn ekki skrárnar.
Ég vann lengi í þeim á gagnasafninu í gær.
Talaði við annan hvern rannsóknarmann sem var þar.
Á Manhattan eru 20 milljónir manna atvinnulausar...
...og bíða bara eftir starfi mínu og þínu líka.
Ég vil ljúka þessu máli og afgreiða það.
Hvers konar kraftaverk ætlastu til að ég geri?
Ég er venjulegur rannsóknarlögreglumaður, vinn ekki á ríkisbókasafni.
Ég veit ekki því ég er að þessu.
Af því það er starfið þitt. Þér þykir líka vænt um mig.
- Smjörlíkið er myglað. - Fjandinn.
Zolitnikoff, engin gögn. Matthewson, engin lögsaga.
Chergov, heima. Og Donaldson, framselja.
Borðaðu eitthvað.
- Ég er ekki orðinn nógu svangur. - Það er ekki slæmt.
Bragðlaust, lyktarlaust klístur.
Þú veist ekki betur.
Í öllum...
Veistu, þegar ég var lítill...
...var matur, matur.
Áður en vísindatöframennirnir okkar eitruðu vatnið...
...menguðu jarðveginn, útrýmdu plöntu- og dýralífi.
Þegar ég var ungur var hægt að kaupa kjöt hvar sem var.
Egg voru til. Alvöru smjör. Ferskt salat í búðunum.
Ég veit það, Sol. Þú sagðir mér það.
Hvernig getur nokkuð þrifist í svona loftslagi?
Hitabylgja allan ársins hring.
Gróðurhúsaáhrifin. Allt brennur upp.
Allt í lagi, monthani.
Borðaðu Soylent Green og vertu rólegur.
Ég kláraði það í gærkvöldi. Ég var svangur, fjandakornið.
- Ég næli í meira á þriðjudaginn. - Gerðu það.
Ég vil ekki lenda í öðrum óeirðum.
Farðu af hjólinu. Ég hleð rafhlöðurnar áður en ég fer.
- Þú færð hjartaslag. - Ef heppnin er með mér.
Ég hef hjólað umhverfis hálfan hnöttinn.
Veistu, ég er orðinn dauðleiður á þér.
Já, en þér þykir vænt um mig.
Aftur næturvakt. Ég verð ansi lengi.
Fáðu þér matarbita.
- Hvað þá? - Gakktu á Guðs vegum.
Bjáni.
Gilbert?
Sæll, hr. Donovan.
Ég er með svolítið handa þér.
Sestu inn.
Frábært.
Er þetta ekki handunnið?
Ertu með orðin á hreinu?
Ég skil þau ekki þótt ég verði 100 ára.
Þú verður það ekki.
Allt í lagi.
Svona!
Gaman að heyra þig hlæja.
- Komdu að leika. - Nei, takk.
- Þakka þér fyrir leikfangið. - Gott að þú skulir vera ánægð.
Ég skal gera svolítið fyrir þig.
Ertu tilbúin, ungfrú Shirl? Það er orðið áliðið.
Farðu bara.
Af birgðaskránni að dæma er lítið til af öllu.
Gott og vel, en ég kem með dálítið óvænt.
Ég eyddi fimm flugskipum með einni rakettu.
Ekki sem verst af viðvaningi að vera.
- Ég er með útivistarpassann þinn. - Gott. Ég hélt ég hefði týnt honum.
Þetta gera 279 dali og 15 sent.
Sléttir 279 fyrir hr. Simonson.
Kvittaðu, Brady.
Hr. Brady?
Heldurðu að ég hafi gleymt því? Nei.
Þú vildir fá svolítið sérstakt og ég fékk það. Komdu hingað.
Hversu oft get ég boðið viðskiptavini svolítið verulega stórkostlegt?
Sjáðu.
Nautakjöt, ungfrú Shirl.
Svona nautakjöt hefurðu ekki séð fyrr.
Hvað viltu?
Þig, hr. Simonson.
Ég vissi að bráðum kæmi að því.
Mér var sagt að segja að þeim þætti það leitt...
...en þér er ekki treystandi lengur.
Það er rétt.
Þeir geta ekki hætt á að eitthvað slæmt gerist.
Rétt hjá þeim.
Þá...
...er þetta rétt?
Nei, ekki rétt.
Nauðsynlegt.
Hverjum?
Guði.
Ég gerði hefðbundna könnun. Hann var á lífi 10:35.
- Hvað heitirðu aftur? - Charles.
- Charles hvað? - Bara Charles.
Það er fullkomlega löglegt.
Hér hafa ekki verið vandræði árum saman, ekki árum saman.
Skannarnir og viðvörunarbúnaðurinn biluðu á fimmtudaginn var.
- Komdu. Lítum á þetta. - Já, það var á fimmtudaginn.
Vandamálið er varahlutir.
Upprunalegi framleiðandinn er hættur að starfa.
Menn okkar framleiða varahluti.
Það tekur þá heila eilífð.
Ekkert gengur, í rauninni ekkert. Ótrúleg vandamál sem ég glími við.
Ég verð að segja hinum leigjendunum það.
Á ég að hringja til þeirra og segja að hr. Simonson í 22A hafi verið slátrað?
Skannari og viðvörunarbúnaður, það besta sem völ er á.
Við ættum að hafa fleiri verði.
- Ég sagði stjórninni... - Bíddu.
Við ættum að hafa fleiri verði.
Thorn spæjari, 14. lögreglustöð.
Tab Fielding. Ég var lífvörður hr. Simonsons.
Húsgagn?
- Já. - Í eigu Simonsons?
- Einkaeign eða í eigu hússins? - Hússins.
- Hvar er Simonson? - Í stofunni.
Komdu.
- Hvert er fullt nafn hans? - William R. Simonson.
Starf?
- Ríkur. - Ríkur hvað?
Lögfræðingur. Í stjórnmálum.
Ég hélt að hann væri sestur í helgan stein.
Eru matarbirgðir í húsinu?
Já, herra.
Að hugsa sér.
Færðu mér vín.
- Það er utan lögsagnarumdæmis þíns... - Slakaðu á.
Þú vinnur ekki lengur fyrir hann.
Samningnum við þig var rift.
Ég fékk greitt út þennan mánuð.
Sæktu flöskuna.
Yfirmaður þinn streittist lítið á móti.
Hann var ekki sú manngerð.
- Flestir vilja lifa. - Fyrst þú segir það.
Þú ert draumur.
Búrbon! Hver and...
Hvar varst þú, lífvörður, þegar yfirmanni þínum var slátrað?
- Hann sendi okkur í búðir... - Okkur?
Stúlkan og ég. Þú veist, Shirl.
Og hvað?
Við komum aftur um 11. Ég sá farið eftir kúbeinið á dyrunum og hljóp inn...
...en það var greinilega...
Kanntu að skrifa?
Já.
Farðu inn í anddyrið og skrifaðu skýrslu handa mér.
Nefndu allar ferðir þínar í kvöld og í gær...
...og atvinnunúmerið þitt. Allt í lagi.
Allt í lagi.
Hann væri á lífi ef við hefðum ekki farið.
Þú þarft ekki að sjá eftir neinu. Hann sagði okkur að fara.
Hann vildi deyja.
Þetta var heimskur, viðvaningslegur innbrotsþjófur. Engum að kenna, Shirl.
Elskan, enginn átti sök á þessu.
Ertu að vinna að skýrslunni?
- Ég reyndi bara að... - Já, ég veit það.
Hvað heitirðu? Shirl?
Já.
Komdu aðeins hingað, Shirl.
Komdu.
Lokaðu dyrunum.
Sýndu mér hendurnar.
Hvað hefurðu komist oft í kast við lögin?
- Aldrei. - Ég heyri ekki hvað þú segir.
Aldrei!
Engir nýir marblettir.
Tuskaði hann þig ekki til? Þú ert heppin.
- Hann lamdi mig aldrei. - Hvað þá?
Hann var herramaður. Hann misþyrmdi mér aldrei.
Ég vildi óska að hann hefði verið eilífur.
- Nema þú hafir verið lauslát. - Nei.
- Kannski með lífverðinum? - Nei, ég er heiðarleg.
Spyrðu Charles. Ég held ekki framhjá.
Svona nú.
Ég myndi aldrei stofna starfinu í hættu.
Sástu líkið þegar þú komst aftur?
No comments yet. Be the first to leave one.