لومړۍ 200 کرښې.
Jakkaföt sýnast vera gerð úr tveimur hlutum:
jakka og buxum.
En þessir tveir hlutar, sem virðast báðir heilir,
eru gerðir úr fjórum ólíkum efnum:
bómull, silki, angóraull
og ull.
Þessi fjögur efni eru sniðin í 38 aðskilda hluta.
Til að sníða, móta
og setja þessa hluta saman
þarf ekki minna en 228 skref.
Fyrsta skrefið er mæling.
"Mæling" þýðir þó ekki
að nota einfaldlega málbandið.
Tomma hér eða tomma þar. Alls ekki.
Það er ekki hægt að búa til góða flík
fyrr en maður skilur þann sem mun fá hana.
Allur fatnaður segir manni eitthvað.
Ég hef fengið herramenn til mín sem segja:
"Mér er sama hverju ég klæðist."
Og ef það er satt, segir það ekki eitthvað líka?
Hver er viðskiptavinurinn? Og hvað vill maður segja um hann.
Hvað geturðu séð við manninn sem kemur inn um dyrnar?
Er hann óframfærinn,
hokinn eins og klukkuvísir á síðdegi?
Eða stendur hann keikur
með þráðbeint bak?
Er hann litríkur maður
sem heimtar að láta taka eftir sér?
Eða er hann maður í sauðalitunum
sem blandast í iðandi margmennið?
Er hann maður sem er sáttur við stöðu sína...
eða þráir hann eitthvað meira?
Og hver vill þessi maður verða?
Og hver er hann innst inni?
Mældu út manninn.
Þegar maður skilur hver hann er...
Hr. Boyle.
...getur maður hafist handa.
Bank, bank.
-Hvernig ganga viðskiptin? -Gott kvöld.
Þetta eru falleg jakkaföt.
Mjög falleg. Ertu að sauma þau fyrir pabba?
Ekki þessi.
Ertu að sauma svona fallegt fyrir einhvern annan? Hvern?
Herra Richie, þú veist að ég get ekki rætt um herramennina.
Erum við það? Herramenn.
Sjá þennan enska sem vill ekkert segja.
-Faðir þinn kom hingað. -Er það?
Í gær.
Hann sagði að reksturinn þinn væri að færa út kvíarnar.
Hann sagði að ég ætti að sauma ný jakkaföt fyrir þig til að fagna því.
Hvað finnst þér, Francis? Ný föt?
-Ekki í kvöld. -Við höfum nægan tíma.
Ekki í kvöld.
Er þetta frá samtökunum?
Enski, gerðu mér greiða.
Farðu og athugaðu með ritarann þinn.
Hafið mig afsakaðan, herrar mínir.
Þetta eru samtökin. Þarna er látúnshringurinn.
Opnaðu bréfið og sjáðu hvað stendur.
Kom einhver póstur?
Viltu tala um það?
-Um póstinn? -Að þeir ráku þig út.
Hvað er í kassanum?
-Ég á hann. -Skoðum hann.
Allt í lagi.
Leyfðu mér að giska.
Skakki turninn í Pisa?
Ég hef aldrei skilið hvað er merkilegt við hann. Hann hallar bara.
Eiffel-turninn?
Ég á hann.
Þá gefst ég upp.
Hvað er þetta?
Ég skal sýna þér.
-Mér finnst ég aftur kominn heim. -Er þetta ekki fallegt?
Þetta er klukka.
Ólíkt sumum, hef ég aldrei séð hana í eigin persónu.
-Þetta er samt klukka. -Á bökkum Thames.
-Hefurðu séð klukkur í Chicago? -Já. En...
Þær eru ótrúlega líkar þeim í London.
Allt í lagi.
Ég mun aldrei skilja þig.
Jæja,
þú hefur aldrei verið myndarlegur herramaður
á ákveðnum aldri.
Þú hefur ferðast um allan heiminn.
Þú gast opnað verslun hvar sem er.
-Samt ertu hérna. -Hvað er að þessum stað?
Mér detta nokkrir hlutir í hug.
Sumir hlutir finnast alls staðar.
Það skiptir því ekki svo miklu hvar ég er. Ég er með skærin mín.
Hvað þarf maður annað en það?
Og ég hef þig.
Ekki að eilífu.
Einmitt.
Ben bíður.
Einhvern veginn...
ætla ég að komast burt héðan.
Til London?
Til London.
Og Madrid.
Og Barcelona. Og Marokkó.
Og til Parísar.
Veistu hvernig það gæti gerst mun fyrr?
-Með korti? -Með launahækkun.
Ég ætla að athuga hvort herra Richie þarfnist mín.
Oft kemur illur...
-Hvað sagðirðu? -Þetta er bara orðatiltæki.
Fyrirgefðu mér. Ég meinti ekkert illt.
Sjáumst á morgun.
Lærlingur úrsmiðsins kom í gær. Hann er mjög indæll.
Hver?
Neðar í götunni. Hann er afar myndarlegur.
Ertu að reyna að fá mig á stefnumót með manninum sem vinnur í úrabúðinni?
Hann er lærlingur hjá úrsmiðnum.
-Þessi með litla yfirvaraskeggið? -Já, eins og Errol Flynn.
Þú þarft ekki að segja mér hverja ég á að hitta.
-Ég meinti það ekki þannig. -Þú meintir það svona:
"Ég sá þig brosa til Richie Boyle áðan
og núna er ég hræddur um að þú sért með óþokkum".
Þeir eru kannski viðskiptavinir, en þeir eru ekki herramenn.
Þeir hefðu getað blekkt mig í þessum fínu fötum frá þér.
Ef við stunduðum bara viðskipti við engla hefðum við fljótt enga viðskiptavini.
Leyfum við öllum viðskiptavinum að hafa læsta skápa baka til?
Þú varst að brosa til hans.
Ég hef eytt allri ævinni í kringum ómenni eins og Richie Boyle.
Ef maður vill halda honum fjarri
horfir maður beint í augu hans og þykist vera hluti af hans hópi.
Ég þarf ekki að hafa auga með þér.
-Einmitt. -Þú getur séð um þig sjálf.
Þú ert ekki...
-Þú veist. -Ég veit.
Pabbi minn var skíthæll. Taktu þessu því sem hrósi.
Ég geri það.
Ég veit
að þú vonar að ég byrji að dýrka þetta eins og þú.
Það geri ég ekki.
Að ég muni þjálfa mig,
læra iðnina.
Að ég taki jafnvel við versluninni einn daginn.
En ég vil það ekki. Ég vil ekki þitt líf.
-Þú átt rétt á þínu eigin lífi. -Já.
Þú ert gáfuð, ung kona sem ætlar að ferðast langt héðan.
Ég mun gera það. Og þá vil ég ekki að þú verðir einn hérna.
Þú þarft ekki að hafa auga með mér heldur.
Þú ert nú ekki, þú veist...
Gott og vel.
Ef þú vilt þessa launahækkun þarftu fyrst að læra
hvernig ferningur lítur út.
Þeir voru hérna.
Heyrðu.
Hvaða bók er þetta? Ég hef alltaf velt því fyrir mér.
Ekki snerta neitt.
-Ég sagði ekki snerta neitt. -En fallegt.
Hann vill hafa hlutina á ákveðinn hátt.
Allt í lagi.
En sá gaur.
Honum er annt um það sem hann gerir.
Þess vegna er hann sá besti.
Eins og einhver annar sem ég þekki.
Ertu að djöflast í mér?
-Ha? -Ertu að djöflast í mér?
Ertu að gera grín að mér?
-Nei, elsku Richie. -Því ég er enginn brandari.
Ég er ekki að gera grín.
Komdu hingað.
Hvað er að, elskan?
-Gerði hann eitthvað? -Gerði hver eitthvað?
-Francis. Gerði hann eitthvað aftur? -Til helvítis með Francis.
-Hann er ekki í fjölskyldunni. -Ég veit.
-Hann er ekki einu sinni Íri. -Ég veit.
Hann heldur að það sé uppljóstrari.
-Allt í lagi. -Já.
-Einhver að kjafta í La Fontaine-hópinn. -Hver?
Skiptir engu. Hann er með ofsóknaræði. Hefur talað við pabba mánuðum saman.
Pabbi hlustar á hann. "Hann Francis.
Hann er svo snjall. Þú gætir lært margt af honum."
Elskan, þú ert sá næstæðsti.
Pabbi þinn hlustar á þig. Engar áhyggjur. Hverjum er ekki sama um Francis?
Heldurðu að ég viti ekki hvað Francis gerði fyrir pabba?
Heldurðu að ég hafi ekki fengið að heyra það þúsund sinnum?
Sex kúlur. Ég skil það.
Það er bara því ég var ekki viðstaddur.
-Þá hefði það verið ég. -Það hefðir verið þú.
Þú veist það, ekki satt?
Francis heldur að hann geti stjórnað með pabba mínum
án mín.
Hvað var þetta?
Ég veit ekki...
-Þegiðu. -Allt í lagi. Fyrirgefðu.
Ég vil ekki vekja hann.
Heyrðu.
-Varstu að leita að þessum? -Þarna voru...
Veistu hvað mér líkar við þig?
Hvað?
Þú munt fara langt.
Laukrétt hjá þér að ég fari langt.
-Út um dyrnar! -Róleg.
Næsta skref er að hanna.
Fyrir suma getur þetta verið ánægjulegasta skrefið.
No comments yet. Be the first to leave one.