لومړۍ 200 کرښې.
Halló, elskan. Þetta er ég.
Mig langaði að við borðuðum saman í dag.
Þú ert döpur á svipinn.
Það er mjög eðlilegt. Það er mannlegt að vera dapur.
Tilfinningar eru ekki slæmar.
Mér þykir það leitt. Ég reyni að fá þá til að skipta um skoðun
og leyfa þér að fara aðeins út.
Nei!
Ó, Guð!
Morgan. Róaðu þig.
Það er allt í lagi.
Aðgangur að fyrirmælum fyrir SynSect.
Mál númer 6B1138.
Raddkennsl. Kynntu þig.
Lee Weathers.
Áhættustjórnun.
Aðgangur leyfður.
Gjörðu svo vel að bíða.
Góðan dag, Weathers.
Afsakaðu stuttan fyrirvara
en við metum afar mikils snögg viðbrögð vegna þessa.
Eins og sést af samantektinni eru smáatriðin glopótt.
Við vitum af atviki sem varðar L-9 frumgerðina
á einni rannsóknastofu okkar.
Vanalega myndum við senda öryggislið
en þar sem genarannsóknir á L-hópnum eru sérlega viðkvæmar
töldum við betra að sýna gætni.
Við viljum ekki endurtaka atvikið í Helsinki.
Hafðu starfsfólkið á staðnum
og leggðu mat á verkið eftir sálfræðimatið.
Ben Shapiro frá sálfræðideildinni yfirheyrir viðfangsefnið með þér.
SynSect hefur lagt umtalsvert fé í afurð L-hópsins og...
ja, það má segja að þeir hafi þurft að bíða ansi lengi.
"Shortleaf."
Lee Weathers. Ég á fund hér.
Vísindaliðið er samrýmdur hópur
svo það er ekki ólíklegt að vikið hafi verið frá fyrirmælunum.
Láttu mig vita af gangi mála.
Staðfest. Eyða skýrslu.
Fröken Weathers.
Ted Brenner. Ég er verkefnastjórinn. Við töluðum saman á netinu.
- Gaman að kynnast þér. - Ég skal taka töskuna.
- Gekk vel að rata hingað? - Já.
Ég veit ekki hvort þér hefur verið tilkynnt um það
en við vorum að fá fréttir af að Shapiro hafi tafist.
Já, ég veit af því.
Það er leitt.
Hann ætti að koma í fyrramálið svo ef þér er sama að bíða...
Það er víst ekki um annað að ræða.
Hérna, gjörðu svo vel.
Þú hefur baðherbergi með sturtu.
Hér er nóg af heitu vatni.
Ég skal með ánægju sýna þér staðinn ef þú vilt.
Mig langar reyndar að hitta Cheng og Ziegler.
Endilega. Þeir eru spenntir að hitta þig.
Og Kathy Grieff.
Kathy.
Ég hef ekki litið til hennar í dag...
Segðu henni að ég vilji hitta hana þegar þú gerir það.
- Að sjálfsögðu. - Og Morgan.
Sem allra fyrst.
Ég skal láta Ziegler vita.
Þú munt trúlega sjá að skil fjárfestingar okkar
þrátt fyrir yfirstandandi örðugleika,
eru sérlega góð.
- Takk fyrir, Ted. - Já.
Þetta er Lee.
Þú getur hafist handa.
Þetta snýst ekki bara um L-9.
Einhver hefur gert alvarleg mistök.
Notaðu daginn til að skoða teymið vel.
Auðvitað.
Með greiningu Shapiros á morgun fæ ég skýrari mynd.
Ég vonast líka til að sjá Morgan í dag.
Ég gæti þurft að beita þrýstingi.
Farðu varlega.
Tryggðu að allra öryggisráðstafana sé gætt.
En um fram allt, gættu fjárfestingarinnar.
Fæ ég staðfest að ég hafi fullt leyfi frá þér?
- Algjörlega. - Gott.
Ég heiti Amy.
- Sem styðst við atferliskenninguna. - Já, einmitt.
Ég var að lesa greinina þína um prófun blandaðrar taugakerfistækni
- og var mjög hrifin. - Takk.
En það er gömul grein. Ég man ekki hvað ég skrifaði.
Mér sýnist þér hafa tekist að framkvæma margt af því.
Ég skal trúa því.
Þú ert ekki nærri eins ógnvænleg og ég hélt.
Það væri gaman að spjalla en ég þarf að koma mér fyrir.
Ég skal láta þig í friði.
Erfitt með að þekkja sín mörk. Stendur það í skýrslunni minni?
Eitthvað því líkt.
Þú veist líklega meira um mig en ég sjálf.
Ég myndi ekki segja það.
Ég skil það.
Þú hefur verk að vinna eins og allir aðrir hér.
Ef ég get hjálpað þér skaltu ekki hika við að biðja mig.
Ég met það mikils. Takk.
Var þér sagt að við borðum klukkan átta?
Skip eldar ofnbakað pasta.
Öllum finnst það gott. Er það ekki?
Jú.
Komdu sæl.
- Þú ert Skip. - Já.
Þú ert ráðgjafinn frá aðalskrifstofunni.
Ég er næringarfræðingurinn og eldhúsþrællinn.
Svo ef þú þarfnast einhvers segðu til.
Viltu eitthvað? Vatn?
Bjór? Prótínhristing?
Nei. Ekki neitt, takk.
Mitt dýrlega framlag til vísindanna.
- Ferðu á veiðar? - Já. Hér er allt ferskt.
Ég er ekki slæm skytta.
Þarna ertu.
- Þú hefur hitt Skip. - Já.
Ziegler er að ljúka smá verki.
En við gætum litið inn til Kathy.
- Gaman að hitta þig. - Sömuleiðis.
Kathy, Brenda. Þetta er Lee frá aðalskrifstofunni.
Sæl, Finch. Kathy, gaman væri að spjalla.
Ég er til í allt.
Ég sagði Bren það og lækninum líka.
Ég sagði öllum að ég þyrfti ekki að vera í þessu fjandans rúmi.
En enginn vill víst hlusta á mig.
Hún var að fá lyfjagjöf.
Ég vil tala við hana einslega.
- Hún þarf að hvílast. - Það tekur stutta stund.
Það er allt í lagi.
Við verðum hér frammi.
Hvernig líður þér?
Ekki eins illa og mætti ætla.
Því get ég lofað.
Þetta var ekki Morgan að kenna.
Það var mér að kenna.
Ég var...
kærulaus.
Hún var í slæmu skapi.
Fyrirtækið þarf ekki að hafa áhyggjur af mér. - Við erum áhyggjufull.
Alltaf þegar starfsfólk er í hættu.
Nei. Það er ekki... Mér urðu á mistök.
Ég átti ekki að rugla hana.
Morgan er ekki "hún".
Það er hvorugkyns.
Þú hefur rangt fyrir þér.
Hún er snjöll.
Hún er snjallari en við öll. En það gerir Morgan ekki sérstaka.
Það var gleði í hjarta hennar
áður en við tróðum henni aftur í þennan kassa.
- Hefurðu ekki hitt hana? - Ekki ennþá.
Þú munt skilja það. Þú munt sannarlega skilja það.
Hér er ekkert gefið mál.
Ég er bara að leita svara. Upplýsinga.
Þú lýgur.
Þú brosir
en ég sé hvað þú ert.
Þú ert fjandans launmorðingi.
Láttu þér batna.
Nei, fyrirgefðu.
Það eru þessi ömurlegu lyf. Ég er ekki með sjálfri mér.
Hún er góð stelpa.
Hún varð bara ráðvillt, bara um stund.
Það getur hent alla.
- Í alvöru. - Láttu þér líða betur.
Ziegler.
Fröken Weathers.
- Ánægjulegt. - Já. Svo sannarlega.
Leitt að dvölin hafi verið lengd að óþörfu.
Það er allt í lagi. Við aðlögumst.
Viltu ekki koma mér inn í málin?
Já. Sestu.
Myndun gervilífsýna var tiltölulega einfaldur hluti af verkinu.
Þegar kemur að seinni hlutanum flækist málið.
Líkt og töframenn
blekktum við taugakerfið til að taka örtækni okkar sem eigin lífssýni,
til að kvikna meðal þeirra.
Svo meðan á ræktun stendur
fer örflagan að koma sínu eigin tungumáli að,
sínum eigin skipunum.
Vöxtur lífverunnar
örvast jafnt og þétt
þegar hún bregst við og endurskapar nýju hvatana.
Já, ég hef lesið um efnið.
Já. Auðvitað.
Eins og þú veist...
var Morgan okkar þriðja tilraun.
Fyrsta viðfangsefnið þróaði með sér innvortis sérkenni útvortis.
Það virkar ekki. Það hægir á sér.
Það dó skömmu eftir svokallaða fæðingu þess.
Og næsta viðfangsefni...
Líkamlegur vöxtur þess var heillegri
en það var hrjáð af andlegum vanda.
Þetta styrkti ákvörðun okkar
um að byrja með tilfinningalega þroskaðra eintak.
Svo... eftir tvö ár...
kom það loksins...
litla tímamótaskrefið okkar.
Við vissum strax að Morgan var sérstök.
Mjög árvökul, mjög móttækileg.
Þarna ertu!
Greind hennar óx stöðugt.
No comments yet. Be the first to leave one.