Pierwsze 200 wierszy.
Auli.
Sauður. Hvar lætur hann sjá sig?
Pabbi sagðist hafa séð leirgeddu í Indian-mýrarfeninu.
Leirgeddu? Kannski gómum við hana núna.
Hvað meinarðu með "við"? Ekki meinarðu okkur tvo?
Þessi fiskur tilheyrir mér.
Þú mátt heimsækja hann þegar hann verður kominn upp á vegg.
Elskan?
Þú gleymdir hitabrúsanum.
Hæ, Ariel.
Sjáumst.
Þetta er minn fiskur.
Svona já.
Bara bíta einu sinni almennilega...
Náði þér!
Fjandinn.
Heyrðu, fáviti!
Lækkaðu í útvarpinu. Þú hræðir burtu fiskana.
Viltu lækka í útvarpinu?
Hvaða pirringur er í þér?
Ég sá hana.
Leirgedduna?
Eftir að ég varpaði akkeri, stakk hún upp kolli hjá drumbinum þarna.
Hún leit á mig, brosti og synti ofan í leðjuna.
Brosti hún?
Skrambinn sjálfur. Hvað er hún stór í ár?
Á stærð við Buick. Ég hefði náð henni ef þú hefðir ekki birst.
Þú gætir ekki veitt flatlús af ódýrri hóru.
Hvernig líður systur þinni annars?
Ég sá Sven niður við stíflu.
Hann segir að sú saga gangi
að ættingi Rick Ragettis ætli að kaupa Beitubúð Chucks.
Ætlar Ítali að reka búðina hans Chucks?
Það verður fyrsta beitubúðin í Wabasha sem mafían rekur.
Hvað ertu að gera?
Ég kom á undan.
Ég hef jafn mikinn rétt á að vera hér eins og þú.
Þú ert óheillakráka. Ég vil ekki að þú skemmir staðinn.
Finndu þér þinn eigin stað.
Hvaða fýla er í gangi?
Og lækkaðu í þessu.
Hvert ertu að fara?
Ekki langt.
Hvað gengur að honum? Hann verður skrýtnari með hverju ári sem líður.
Þú hefur ekki kjark til að vaða í mig lengur!
Ariel hefur látið gelda þig!
Sjáum hvort þú ert maður eða...
Láttu þér þetta að kenningu verða.
Sauður!
Gott og vel, mannandskoti.
Burt með þig!
Er þetta ekki fallegt?
Hraunlampinn?
Engillinn.
Ariel segir að hann verndi húsið.
Farðu nú ekki að venjast honum. Við förum um leið og húsið er til.
Hvað hefurðu verið lengi vakandi?
Um stund.
Hvað varstu að gera?
Horfa á þig.
Ég er vöknuð!
Það er ljóst.
Daginn.
Farðu niður. Ég kem niður rétt strax og útbý morgunverð.
Hún hatar mig.
Hún hatar þig ekki. Hún er bara ekki ýkja hrifin af þér.
Mér datt í hug að athuga nokkra sali fyrir brúðkaupið.
Ég talaði við pabba. Hann er búinn að bóka sal.
Er það?
Það er frábært.
Fékk hann Radisson?
Nei.
Pepin-danshöllina?
Það hefði verið frábært, en nei.
Konunglega danssalinn?
Þú ert langt frá því.
Hvað er þá eftir?
Slippery's-ölstofan.
Þú ert ekki að grínast.
Við höfðum annað í huga, ég veit.
Mig langaði einmitt að hafa það á bar með hnetudrasli á gólfinu.
Þetta er ölstofa.
Þetta er bar.
Ég bið hann að afpanta. Við finnum annan stað.
Gleymdu því.
Ertu viss?
Ég stakk upp á því að þeir aðstoðuðu við undirbúning.
Ég verð að segja
að hugmyndin var góð.
Það er gaman að þeim semst.
Það er ótrúlegt hvað þeim kemur vel saman.
- Ha! - Manstu "ha"?
Þú vannst ekki, ég hætti. Ég hef öðrum hnöppum að hneppa.
Hvað er það?
Við þurfum að skipuleggja brúðkaup. Þú manst?
Hvernig gæti ég gleymt því?
Sé þig síðar.
Sé þig.
Jæja, pabbi.
Hún er hér.
Leirgeddan?
Hún er við sandrifið.
Veistu að fjandans fiskurinn er eldri en ég?
Takk.
Hvað er þetta?
Þetta er léttbjór.
Ég er 40 kíló og þú færir mér þessa froðu?
Ariel setti mig í aðhald því kólesterólið er of hátt.
Ég skal segja þér eitt.
Ég varð 95 ára á fimmtudaginn var.
Ég hef aldrei stundað íþróttir.
Ég fer á fætur á morgnana
og reyki sígarettu.
Síðan borða ég fimm sneiðar af beikoni.
Og í hádeginu fæ ég mér beikonsamloku.
Og með kaffinu...
Beikon.
Fullan disk.
Og kvöldmaturinn er oftast í fljótandi formi.
Samkvæmt megrunarsérfræðingunum
átti ég að lúta í gras fyrir þrjátíu árum.
En árin líða og hér er ég enn.
Og þeir stráfalla.
Veistu?
Stundum velti ég fyrir mér
hvort Guð hafi gleymt mér.
Þetta kennir manni bara, ha?
Hvað?
Kennir manni hvað?
Um hvað ertu að tala?
Þú sagðist drekka bjór, borða beikon
og reykja sígarettur og lifa lengur en sérfræðingarnir.
Og?
Mér datt í hug að það væri boðskapur.
Nei, það er enginn boðskapur.
Mér finnst sagan bara góð.
Það er allt og sumt.
Mér finnst sagan góð.
Góðan dag.
Gaman að sjá þig, sömuleiðis.
Mikið ertu falleg í dag.
Ertu þyrst?
Kláraðu nú að drekka.
Drekktu nú.
Svona já.
Svona já. Kláraðu það allt.
Er þetta ekki yndislegur dagur?
Ekki sem verstur.
Er allt í lagi með þig?
Mér líður prýðilega. Af hverju?
Ég komst ekki hjá því að heyra þig tala við blómin.
Plöntur og blóm eru lífverur
sem bregðast við rödd og snertingu eins og aðrar lifandi verur.
Þú ættir að prófa þetta.
Ég er með kaktus á baðinu en við höfum um ekkert að tala.
Ég þarf að drífa mig.
Sjáumst.
Ég ætla að elda kínverskt í kvöld. Má bjóða þér í mat?
Ég er búinn að ráðstafa kvöldinu.
Ertu viss?
Takk, samt.
Ég þakka góðan hug.
Hvað gerist þegar Bonnie og Clyde reynast vera Bonnie og Bonnie.
"Lesbíu bófar," næst hjá Geraldo.
Lesbíur. Nammi.
Bíddu, þetta er fast. Viltu...
Já, en ég vil fá.
Má ég?
Þú verður að bíða.
Af hverju setjum við ekki allt út í?
Setjum allt út í.
Ég þarf að fá lánað Phillips-skrúfjárn.
Hæ, Jacob. Hefurðu verið hér lengi?
Phillips...
Er ekki tímabært að þú farir að hitta konur?
Hvaða?
Til dæmis Florence Gilbert, henni líst vel á þig.
Hún líkist Ernest Borgnine.
Er það svo slæmt?
Hvað með Jane Clark?
"Frumskógar-Jane."
Hún er loðnari en ég. Hún er loðdýr í Guðs bænum.
Doris Zabrinski?
Ég veit að hún er dálítið þybbin en hún er stangveiðikona.
Doris Zabrinski
er dáin.
Er það?
Hún kafnaði við að borða stafla af pönnukökum fyrir tveimur vikum
í góðgerðarmorgunverði hjá Lions.
Ég held hún hafi viljað fara á þennan hátt.
Hlustaðu á mig,
þú getur ekki setið hér og beðið eftir nýrri Ariel.
Takk fyrir skrúfjárnið.
Hvað?
Manstu þegar þú varst lítill
og mamma þín bakaði rabarbaraböku fyrir afmælið mitt?
Hún blés út eins og blaðra.
Fékk skelfileg útbrot.
Hún vissi ekki að hún hefði ofnæmi.
Hún vissi það.
No comments yet. Be the first to leave one.