Pierwsze 200 wierszy.
Strákar, gerum þetta!
Gray?
Gæskur, hvað ertu að gera?
Hvað er þetta? Af stað.
Áfram, vinur. Flugið fer eftir tvo tíma.
Flugvöllurinn er 36 mínútur héðan, 60 í mikilli umferð.
Hve margar mínútur að koma þér út í bíl?
Hve margar af þeim?
-Gafstu skrímslinu undir rúminu? -Já.
Hringdu í mig á hverjum degi
og sendu mér myndir svo ég gleymi ekki hvernig þú lítur út.
Ég verð bara viku í burtu.
Zach.
Þú ert ekki að fara í stríð. Svona nú.
Komdu.
-Ég sé þig síðar. -Ég elska þig.
-Bless. -Bless.
Ertu búinn að spenna beltið?
Ég veit að þetta er erfitt, ljúfur.
Verður í lagi með þig?
Er allt rétt á þessu?
Ég dauðöfunda þig.
Þetta verður svo gaman. Ég elska þig.
Og ég elska þig.
Allt í lagi. Fínt.
Jæja, láttu bróður þinn fá þessar.
Haltu á þessum. Geturðu haldið á þeim?
Elskan, þú þarft að passa þessa.
Já.
Heyrðu.
Hlustaðu á móður þína.
Passaðu bróður þinn. Svaraðu í símann.
Mér er alvara. Það er græni takkinn. Ýttu á hann þegar þú sérð nafnið mitt.
Og mundu,
ef eitthvað eltir þig, hlauptu.
Svona nú.
-Jæja. -Þú ert fyndin. Komdu.
-Bless, strákar. -Bless.
-Ég sakna ykkar nú þegar. -Já.
Og þannig fór þá síðasti fjölskyldumorgunverðurinn.
Því þarftu að segja svona lagað?
Hringdirðu í systur þína?
Ég fékk bara talhólfið.
Þetta verður í lagi. Hún sér um 20.000 manns á dag, ekki satt?
Hún hlýtur að ráða við tvo til viðbótar.
JUAN SANTAMARÍA FLUGVÖLLUR KOSTA RÍKA
Hve stór er eyjan?
Stór.
En hvað er hún þung?
Þetta er delluspurning.
Þegar það var opnað fyrst voru átta tegundir.
Núna eru 14 grasbítar og sex kjötætur.
Það gera 50 tonn af mat á viku.
Velkomin til Isla Nublar, aðseturs Júraheims.
Við vonum að þið eigið örugga og ánægjulega dvöl hjá okkur.
ZACH OG GRAY MITCHELL
Hvar er Claire frænka?
VELKOMIN TIL ISLA NUBLAR
Þau ykkar sem eru fremst í lestinni ættu að geta séð aðalhliðið.
JÚRAHEIMUR
Vinsamlegast fylgið reglum garðsins.
Verið í viðeigandi klæðnaði, þar á meðal skóm og bolum, öllum stundum.
Frænka ykkar hittir ykkur klukkan eitt. Getur hann hægt ferðina?
Nei.
Komið nú!
Frænka ykkar útvegaði ykkur viðhafnaraðgang
svo þið getið farið í öll tækin án þess að bíða í röð.
Af stað.
Hún sagði að við þyrftum að bíða.
Ég vil ekki bíða lengur.
Hal Osterly, aðstoðarforstjóri. Jim Drucker, illa hærður.
Erica Brand, á betra skilið.
Hal, Jim, Erica.
Og ég er Claire.
Þrem mínútum of sein.
Velkomin í Júraheim.
Þó að tekjurnar aukist með hverju ári
er rekstrarkostnaðurinn hærri en nokkru sinni fyrr.
Hluthafar okkar hafa verið þolinmóðir en verum raunsæ,
engum þykir risaeðla merkileg lengur.
Fyrir 20 árum þótti af-útrýming göldrum líkust.
Í dag líta krakkar kambeðlu sömu augum og fíl í borgardýragarði.
Það þýðir ekki að þróun gripa hafi dregist aftur úr.
DNA uppgrafararnir okkar uppgötva nýja tegund á hverju ári.
En neytendur vilja þær stærri, háværari og með fleiri tennur.
Góðu fréttirnar?
Framfarir okkar í genasamsetningu hafa opnað alveg nýjar víddir.
Við höfum lært meira af erfðafræði á síðasta áratug
en af beinauppgreftri í heila öld.
Svo,
þegar þið segist vilja kosta sýningargrip,
hvað hafið þið í huga?
Við viljum verða spennt.
Vilja það ekki allir?
Hamfaraeðlan. Fyrsti genabætti blendingurinn okkar.
Hvernig fáið þið tvær ólíkar tegundir af risaeðlum til að, þú veist…
Hamfaraeðlan var ekki ræktuð. Hún var hönnuð.
Hún verður 15 metrar að lengd fullvaxin.
Stærri en grameðlan.
Í hvert sinn sem við höfum afhjúpað nýjan grip hefur aðsóknin snaraukist.
Fréttamiðlar um allan heim, stórstjörnur á meðal gesta.
Augu alls heimsins.
Hvenær verður hún tilbúin?
Hún er það nú þegar.
Drífið ykkur!
Slakaðu á.
Drífið ykkur.
Rólegur, gaur.
Velkomin í Nýjungamiðstöðina þar sem tæknin og forsagan mætast.
Nashyrningseðlan getur tekist á við stóru ráneðlurnar.
Á grísku þýðir nafnið "þríhorna andlit"
en nashyrningseðlan er helmingi lægri en grameðlan.
…eins og hundrað billjón tonn af TNT.
…snýr höfðinu við og lítur yfir öxlina á sér
til að geta miðað betur sveiflunni á hættulegum halanum.
Sýtósín, gúanín, adenín og týmín.
Sömu fjórir hlutirnir í öllu sem hefur lifað.
Ekki labba burt. Mamma borgar mér ekki fyrir að passa þig.
Gray, ert þetta þú?
Claire frænka!
Einmitt, já. Nei, ég verð að hætta. Frændur mínir eru komnir.
Sæll.
Hamingjan góða, þú ert svo indæll.
Ja hérna, Zach.
Síðast þegar ég sá þig varstu…
Það hljóta að vera hvað?
-Þrjú eða fjögur ár síðan? -Sjö.
Sjö ár, en þú varst nálægt því.
Ég sé að þið eruð þegar komnir með armbönd.
Og þetta er fyrir mat.
Zara hugsar vel um ykkur
þar til ég er búin að vinna í kvöld.
Kemurðu ekki með okkur?
Ég vildi að ég gæti það
en á morgun fer ég með ykkur í stjórnstöðina,
sýni ykkur á bak við tjöldin og það allt.
Það verður gaman, ekki satt?
Svo ég sé ykkur í kvöld klukkan sex.
Nei, ekki gleyma að þú ert með…
Auðvitað. Ég sé ykkur í kvöld klukkan átta.
Klukkan hvað farið þið að sofa? Eða farið þið að sofa á mismunandi tímum?
Jæja, góða skemmtun
og hugsaðu vel um þá.
Já. Nei, ég er hér.
Það eru ungu nashyrningseðlurnar tvær. Þær eru aftur að slást.
Á ég að svæfa þær eða kemurðu og sérð um þetta?
-Svæfðu þær bara. -Þær eru á hlaupum.
-Hver er gestatalningin? -22.216.
-Einhver atvik? -Já.
Sex krakkar í Tapað-fundið, 28 hafa fengið sólsting…
Hvar fékkstu þennan?
Þennan? Ég fékk hann á eBay. Já, hann er ansi flottur.
Ég fékk hann á 150 dali en þeir sem eru í fullkomnu standi fara á 300…
Hvarflaði ekki að þér að þetta væri kannski smekklaust?
Bolurinn? Jú, reyndar.
Ég veit að fólk dó. Það var hræðilegt en fyrsti garðurinn var ekta.
Ég ber mikla virðingu fyrir honum. Þau þurftu ekki genablendinga.
Þau þurftu bara risaeðlur, alvöru risaeðlur.
Ekki klæðast honum aftur.
Nei, það stóð ekki til.
-Gekkstu frá samningnum? -Það lítur út fyrir það.
Verizon þráðlaust kynnir hamfaraeðluna.
Það er hræðilegt.
Því ekki að fara alla leið
og leyfa fyrirtækjunum að nefna risaeðlurnar?
Þau eru með alla íþróttaleikvangana.
-Af hverju að stoppa þar? -Af hverju er Vestursléttan lokuð?
Annar þykkhöfði að ráfa fyrir utan svæðið sitt.
En hann er svæfður og tilbúinn til flutnings.
Pepsi-eðla eða Tostito-höfði.
Gæslan sagði ósýnilegu girðingarnar vera öruggar.
Þetta er annað skiptið í mánuðinum.
Það verður skammhlaup í ígræðslunum
þegar þykkhöfðarnir skella hausunum saman.
Hvað er langt þar til þeir ná honum þaðan?
Hann var að fá 5 millígrömm af carfentaníli.
Já, hann er uppdópaður. Sýnum honum dálitla samúð.
Þú skilur að þetta eru alvöru dýr, er það ekki?
Hreinsaðu til á vinnusvæði þínu. Það er allt á öðrum endanum.
Ég kýs að líta á það sem lifandi kerfi.
Rétt nægur stöðugleiki til að hindra að það leysist upp í stjórnleysi.
Þyrla á innleið, Júra 1. Áætlaður komutími, fimm mínútur.
Claire.
Herra Masrani. Þú flýgur.
Ég fékk réttindin.
-Tveir í viðbót. -Ja, eftir tvo daga.
-Einmitt. -Jæja,
-hvernig vegnar garðinum mínum? -Vel.
Það er aukning um 2,5% frá síðasta ári.
Örlítið minna en við höfðum gert ráð fyrir.
Nei, hvernig vegnar honum?
Skemmta gestirnir sér? Njóta dýrin lífsins?
Ánægja gesta er stöðug í rúmlega 90 prósentum.
Við höfum enga leið til að mæla tilfinningaupplifun dýranna.
Jú, auðvitað. Maður sér það í augum þeirra.
Ekki satt?
Auðvitað.
Gott og vel. Sýndu mér nú nýju risaeðluna mína.
Ég hef fulla stjórn.
Hef hana.
No comments yet. Be the first to leave one.