Avengers: Infinity War

Avengers: Infinity War

Download Icelandic ondertitel

Release informatie

Marvel Studios' Avengers Infinity War 2018 WEB-DL DSNP
Een commentaar door ChristopherCavco
Íslenska

Tags

Web-DL
web-dl
web
WEB-DL
Gepubliceerd op: 2021-05-13
Downloads: 152
Slechthorend: No

Voorbeeld van Icelandic ondertiteling

De eerste 200 regels.

Þetta er Statesman, flóttaskip Ásgerðinga.

Það var gerð árás á okkur. Ég endurtek, árás.

Vélarnar eru óvirkar og lífsbjörgunarbúnaður gefur sig.

Óska aðstoðar allra skipa í nágrenninu.

Við erum 22 stökkpunkta frá Ásgarði.

Hér eru aðeins fjölskyldur Ásgerðinga og fáir hermenn.

Þetta er ekki herskip. Ég endurtek, ekki herskip.

Hlustið og fagnið.

Þið eruð þess heiðurs aðnjótandi að vera bjargað af Títaninum mikla.

Þið álítið þetta ef til vill þjáningu.

Nei.

Þetta er sáluhjálp.

Alheimurinn hallast nær jafnvægi sökum fórnar ykkar.

Brosið.

Því að jafnvel í dauðanum eruð þið orðin börn Þanosar.

Ég kannast við það að tapa.

Að finnast ég hafa sárlega rétt fyrir mér...

en verða undir engu að síður.

Það er óhuggulegt.

Maður kiknar í hnjáliðunum.

En ég spyr, til hvers?

Þið megið óttast þau eða forðast þau

en örlögin mæta ykkur þrátt fyrir það.

Og nú eru þau hingað komin.

Eða öllu heldur...

er ég kominn.

Þú talar of mikið.

Ofurteninginn.

Eða höfuðið á bróður þínum.

Þú ert væntanlega hrifnari af öðru.

Já, það er rétt.

Dreptu hann.

Allt í lagi, hættu.

Við erum ekki með Ofurteninginn.

Hann eyðilagðist í Ásgarði.

Þú ert alveg óþolandi, bróðir.

Ég fullvissa þig um það, bróðir,

að sólin mun skína á okkur á ný.

Bjartsýni þín á sér enga stoð hérna, Ásgerðingur.

Í fyrsta lagi er ég ekki Ásgerðingur.

Í öðru lagi...

eigum við Hulk.

Leyfðu honum að skemmta sér.

Alfeður...

látið svartagaldurinn flæða í gegnum mig einu sinni...

að lokum.

Þetta voru mistök.

Nei!

Þú færð að deyja fyrir þetta.

Í auðmýkt...

bugta ég mig fyrir dýrð þinni.

Enginn annar hefur haft mátt,

eða öllu heldur göfuglyndi,

til að beita ekki aðeins einum heldur tveimur Óendanleikasteinum.

Alheimurinn allur er þér innan seilingar.

Það eru tveir steinar á jörðu.

Finnið þá, börnin mín, og færið mér þá á Títan.

Faðir, við bregðumst þér ekki.

Má ég skjóta einu að?

Ef þið farið til jarðar vantar ykkur leiðsögumann.

Ég hef sjálfur reynslu á því sviði.

Ef þú lítur á mistök sem reynslu.

Ég lít á reynslu sem reynslu.

Almáttugi Þanos,

ég, Loki, prins Ásgarðs,

Óðinssonur,

réttmætur konungur Jötunheima,

hrekkjaguðinn,

heiti þér hér með...

ódrepandi tryggð minni.

Ódrepandi?

Þú ættir að vanda orðavalið betur.

Þú...

verður aldrei...

guð.

Nei!

Engin upprisa í þetta sinn.

Nei, Loki.

Áttu virkilega enga peninga?

Tenging við hið efnislega slítur mig frá hinu andlega.

Ég segi það í matsölunni.

Kannski færðu frumspekilega samloku.

Bíddu, ég gæti átt 200.

Dali?

Rúpíur. -Hvað er það mikið?

Einn og hálfur dalur.

Hvað langar þig í?

Ég hefði ekkert á móti túnfisksamloku.

Þanos er að koma.

Hann kemur.

Hver?

Bíddu róleg.

Ég skal útskýra. -Þú þvaðrar.

Nei. -Ég skil þig ekki.

Þú kannast við að þurfa að pissa í draumi.

Já. -Allt í lagi.

Svo hugsarðu: "Engin salerni. Hvað á ég að gera?

Einhver sér mig.

Ég pissa í buxurnar." -Svo vaknarðu og þarft að pissa.

Já. -Já.

Allir kannast við þetta.

Þetta er það sem ég á við.

Þessu tengt, dreymdi mig í nótt að við ættum barn.

Það var svo raunverulegt.

Við skírðum hann eftir sérvitra frændanum. Hvað hét hann?

Ég skil. -Já, Morgan.

Þú vaknaðir... -Auðvitað.

...og hélst að við ættum...

Von á barni. -Já.

Já? -Nei.

Mig dreymdi það. Það var svo raunverulegt.

Ef þig langaði í barn

hefðirðu ekki gert þetta.

Gott að þú minntist á það. Þetta er ekki neitt.

Bara geymsla fyrir nanóagnir.

Þú auðveldar þér þetta ekki. -Þetta má aftengja.

Þú þarft þetta ekki.

Ég fór í aðgerðina. En ég reyni að vernda okkur

og afkomendur okkar.

Ef það skyldi vera skrímsli í skápnum.

Frekar en... -Skyrtur.

Þú þekkir mig svo vel.

Almáttugur. -Þú klárar setningar mínar.

Þú ættir að eiga skyrtur í skápnum.

Já.

Engar fleiri óvæntar uppákomur.

Förum út að borða í kvöld.

Montum okkur af hringnum.

Engar óvæntar uppákomur, nokkurn tíma.

Ég ætti að lofa því.

Já. -Ég geri það.

Takk.

Tony Stark.

Ég er dr. Stephen Strange. Þú verður að fylgja mér.

Til hamingju með brúðkaupið.

Ertu að gefa miða á eitthvað?

Við þurfum hjálp þína.

Það er ekki ofsögum sagt að örlög alheimsins séu í húfi.

En hverjir eruð "þið"?

Sæll, Tony.

Bruce.

Pepper. -Sæll.

Er allt í lagi?

Við upphaf alheimsins var ekki neitt.

Síðan...

þeytti stóri hvellur sex frumkristölum

þvert yfir ósnortinn alheiminn.

Hver Óendanleikasteinn stjórnar einum grunnþætti tilverunnar.

Rúm.

Raunveruleiki.

Máttur.

Sál.

Hugur.

Og Tími.

Segið mér nafnið aftur.

Þanos.

Hann er plága sem ræðst á plánetur og tekur hvað sem hann vill.

Hann drepur helming íbúanna.

Hann sendi Loka.

Árásin á New York var af hans völdum.

Þá er komið að því.

Hve langan tíma höfum við?

Hver veit? Hann náði Máttar- og Rúmssteinunum.

Hann er þegar orðinn öflugasta vera alheims.

Ef hann nær öllum sex steinunum...

Þá gæti hann eytt lífinu á hértil óhugsandi máta.

Sagðirðu virkilega "hértil óhugsandi"?

Hallarðu þér virkilega upp að Geimkatlinum?

Er þetta það?

Ég leyfi þetta.

Ef Þanos vantar alla sex skulum við henda þessum í sorpkvörnina.

Það er ekki hægt.

Við sórum þess eið að vernda Tímasteininn með lífi okkar.

Ég sór að forðast mjólkurvörur

en svo nefndu Ben & Jerry's bragðtegund eftir mér.

Starkaður hnetuís. -Ekki slæmur.

Of kalkkenndur.

Súkkulaði Hulk-ís er uppáhaldið okkar.

Er hann til? -Málið er að hlutir breytast.

Eiður okkar um að vernda steininn breytist aldrei.

Steinninn gæti verið besta vopnið gegn Þanosi.

En hann er að sama skapi besta vopn hans gegn okkur.

Ekki ef við sinnum okkar starfi.

Hvert er þitt starf, fyrir utan að búa til blöðrudýr?

Að vernda veruleika þinn, drullusokkur.

Gætum við aðeins hinkrað með þessar samræður?

Staðreyndin er sú að við höfum þennan stein hérna.

Vision er þarna úti með Hugarsteininn

og við verðum að finna hann.

Það er gallinn.

Hvað áttu við?

Fyrir hálfum mánuði slökkti hann á senditækinu og lét sig hverfa.

Hvað segirðu? -Já.

Týndirðu öðru ofurvélmenni?

Ég týndi honum ekki. Hann er meira. Hann þróast.

Hver gæti fundið Vision?

Fjandinn.

Líklega Steve Rogers.

Frábært.

Hugsanlega.

Opmerkingen

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left