200 baris pertama.
Vaktinni lýkur klukkan níu.
Segðu þjálfa að ég sæki þig aðeins of seint.
Allt í lagi.
Gangi þér vel í dag.
Takk.
Heyrðu.
Ef ég gæti það ...
myndi ég hvetja þig í stúkunni.
Ég veit. Í næsta leik.
Heyrðu, Bron?
Gleymdirðu einhverju?
Elska þig, mamma.
Elska þig líka, vinur.
Jæja, rústaðu þeim.
SKEMMTISKRÍPÓ
Hvað segirðu, Bron?
Hvað segirðu, Malik?
Sjáðu hérna. Þessi er handa þér.
Pabbi gaf mér nýjan með litaskjá.
Ef hann frýs slærðu bara í hann.
Virkar alltaf.
Takk, maður.
Vinnum nú leikinn.
Hvað er títt, doksi?
Heyrðu, hvar er Bron?
LeBron James!
Hvað er títt ...
-Hvað er þetta? -Skrambinn.
Ekkert svona.
Komdu þér inn á völlinn. Hvað ertu að gera?
Hei!
Hreinsið fyrir Bron!
Enginn annar má skjóta.
Haltu boltanum, Bron.
Skjóttu.
Hreinsið!
Þú getur þetta. Þinn heimur.
Fjandinn sjálfur!
Þetta er allt í lagi.
Fjandinn.
Komið hingað til mín.
Komið til mín.
Heyrðu, vinur.
Ég er ekki vonsvikinn vegna tapsins.
Það er ekki málið.
Þú þarft að gefa allt en gerðir það ekki núna.
LeBron.
Þig skorti einbeitingu.
Rétta hugarfarið byrjar áður en þú stígur inn á.
Áður en æfingin byrjar.
Allir spila tölvuleiki.
LeBron.
Þetta snýst bara um þig.
Þú ert besti leikmaður sem ég hef þjálfað.
Þú getur orðið einstök stórstjarna
ef þú einbeitir þér að körfubolta frekar en einhverri ...
afþreyingu.
Þú nærð aðeins árangri með erfiði.
Þú getur notað körfuboltann til að breyta öllu.
Fyrir mömmu þína, sjálfan þig og alla sem þér er annt um.
Viltu það?
KALLI KANÍNA
LeBron James er sérsniðinn fyrir NBA.
Tveir metrar og 109 kg ...
ÞRISVAR BESTUR Í OHIO
HINN ÚTVALDI
Hann er með allan pakkann.
Fyrsta valrétt í NBA-nýliðavalinu 2003
nýta Cleveland Cavaliers til að velja LeBron James.
Hér er hann ásamt móður sinni, Gloriu.
Verðmætasti leikmaður NBA í ár er ...
Nú í haust fer ég til Miami.
LeBron James skorar fyrstu körfuna
sem leikmaður Miami Heat.
Besti leikmaðurinn
í úrslitakeppni NBA 2012.
NBA-meistaratitillinn 2013
fer aftur til Miami!
Ég neita að þegja og dripla.
Við erum í Hvíta húsinu.
Mamma, ég meikaði það.
LeBron James fer aftur til Cleveland.
Ég geri það ...
sem færir borgarbúum hamingju.
Elska ykkur. Ég er kominn heim!
ÆSKUVINUR UMBOÐSMAÐUR
Einstök bandarísk saga.
NÝR SKÓLI JAMES
Þvílík vörn hjá James! Leik lokið!
Cleveland!
Þetta er handa ykkur!
LeBron er kominn í Lakers.
Hér kemur LeBron!
Þetta er algjör draumur í dós.
Tvær sekúndur.
Flautukarfa frá James? Auðvitað.
HEIMILI JAMES-FJÖLSKYLDUNNAR LOS ANGELES - Í DAG
Hvenær verður leikurinn tilbúinn? Þetta hefur tekið mánuði.
Hann er að verða klár.
Ertu klár að segja pabba frá leikjabúðunum um helgina?
Ég bíð eftir rétta augnablikinu.
Rífðu plásturinn af og spyrðu.
Hann segir já við öllu sem þú biður um.
Ég er svo góður.
-Ekki svo góður. -Stór orð.
Stendurðu undir þeim?
Sýndu hvað þú getur.
Ekki láta plata þig.
Náði þér!
Allt í lagi.
Ekkert svona, brói.
Dom.
Hvað var þetta?
Opið færi.
Þegar þú spilar skaltu gefa allt sem þú átt.
Ekki hvað sem þetta var.
Hvar eru frumatriðin?
Við vorum að leika.
Allt sem gerist á vellinum
er vinna.
Er ég ekki að vinna?
Hvað er þá þetta?
Ég varaði þig við þessu.
Þetta er enginn leikur, Dom.
Einbeittu þér frekar en að leika þér.
Rólegur, Darius.
Ég sé allan völlinn.
Hvernig þá?
Bolta.
Sýndu mér bakskrefið sem ég kenndi þér.
Þú getur þetta.
Inn og út, kross, skref til baka.
Þú verður að einbeita þér, Dom.
Darius, sýndu honum þetta.
Fylgstu með mér.
Bolta.
Inn og út, kross, skref til baka og skjóta.
Bróðir þinn hefur verið duglegur að æfa.
Með bolta allan daginn.
Dom. Einbeittu þér.
Körfuboltabúðir um helgina.
Strákarnir verða grimmir.
Kanna hvað þú getur.
Ætlum við nú að gefast upp?
Þú nærð aðeins árangri með erfiði.
Það var lagið. Minn maður.
Tökum á því.
Ekki meiri tölvuleiki.
Jæja, ég er tilbúinn.
Strákar!
Ekki vera úti í allan dag. Kominn kvöldmatur.
Æ, maður.
Í alvöru, Bron?
Hvað er í matinn?
Spagettí og kjötbolla?
-Uppáhaldið mitt. -Fjárinn.
Þú ætlaðir að styðja Dom betur.
Eiga frjálsari stundir með honum.
Við vorum úti saman.
Hversu laus og liðugur get ég verið?
Ég óttast að þú þrýstir of mikið á hann, elskan.
Hann segist vilja bestu þjálfunina
til að verða bestur á vellinum.
Hefurðu talað við son þinn um annað en körfubolta?
Eins og hvað?
Eins og að Dom hafi búið til tölvuleik.
Hann er 12 ára og bjó til eigin tölvuleik.
Já, ég veit. Það er frábært.
Ég verð að þrýsta á hann og forða honum frá óþarfanum ...
Hann þarf ekki þjálfara.
Hann þarfnast pabba síns.
BURBANK Í KALIFORNÍU
WARNER BROS. ÞJÓNUSTUSVÆÐIÐ
LeBron James skorar.
-James ... -LeBron James ...
KÓNGURINN SNÝR AFTUR
KÓNGUR
Ég hef leitað lengi og víða að réttum félaga fyrir gangsetninguna
og loksins fann ég hann.
LeBron James.
Pési, hann er fjölskyldumaður, athafnamaður
og samfélagsmiðlastjarna með milljónir aðdáenda um allan heim.
Algóritmískt er hann meira en íþróttamaður.
Hann er konungur.
Ég veit að ég er bara algóritmi.
Þess vegna þarf ég James konung.
Ég er fastur á Þjónustusvæðinu.
Enginn veit hver ég er eða hvað ég geri.
En það breytist allt í dag.
Í dag kynna Warner Bros. byltingarkennda nýja tækni sem ég hef hannað.
Í dag ...
er komið að mér að skína.
Sjáðu hann bara, Pési.
Hann er lykillinn að öllu saman.
Þegar ég vinn með James konungi
og blanda saman frægð hans og ótrúlegri tækni minni ...
öðlast ég loksins þá viðurkenningu og virðingu
sem ég á sannarlega skilið.
LeBron James, vertu tilbúinn.
Halló.
No comments yet. Be the first to leave one.