200 baris pertama.
BROWN-SETRIÐ EYÐILAGT
Október er talningarmánuður.
Statler Toyota-umboðið er því með bestu tilboð ársins
á öllum 1985 árgerðum af Toyota.
Þú finnur ekki betri bíl
á betra verði og með betri þjónustu annars staðar í Hill Valley.
Það er Statler Toyota í miðbæ Hill Valley.
Öldungadeildin ætti að greiða atkvæði um málið í dag.
Yfirmenn á Kjarnorkurannsóknarstofu Kyrrahafsins
neita orðrómi um að glataða plútóníuminu
hafi verið stolið úr geymslu þeirra fyrir tveimur vikum.
PLÚTÓNÍUM- ÞJÓFNAÐUR
Hryðjuverkahópur frá Líbíu hefur lýst ábyrgð á stuldinum.
Yfirmenn segja nú að þetta hafi verið reiknisvilla.
Alríkislögreglan sem rannsakar málið hefur ekkert um það að segja.
Doksi?
Doksi?
Halló! Er einhver heima?
Komdu hingað, Einstein.
Hvað gengur á? Guð.
Jesús!
Þetta er ógeðslegt.
PLÚTÓNÍUM - VIÐKVÆMT
AÐLÖGUN
AÐALORKA
AÐALREKILL
YFIRDRIF
HLJÓÐFÆRI EÐA HEYRNARTÓL
Rokk og ról.
-Hei. -Marty, ert þetta þú?
-Doksi. Hvar ertu? -Guði sé lof að ég fann þig.
Hittu mig hjá klasanum í kvöld kl. 01:15.
Ég gerði tímamótauppgötvun. Ég þarf hjálp þína.
-Á þessum tíma nætur? -Já.
Hvað gengur á?
-Hvar hefurðu verið alla vikuna? -Að vinna.
-Er Einstein hjá þér? -Já, hann er hérna.
Þú hafðir kveikt á tækjunum alla vikuna.
Tækin. Það minnir mig á eitt, Marty.
Ekki tengja magnarann. Það er hætta á yfirhleðslu.
Ég skal hafa það í huga.
Gott. Ég sé þig í kvöld. Ekki gleyma því.
Kl. 01:15 við klasann.
Einmitt.
-Heyri ég í klukkunum mínum? -Já, klukkan er átta.
Fullkomið! Tilraunin heppnaðist! Þær eru nákvæmlega 25 mínútum of seinar!
Bíddu aðeins, Doksi.
-Ertu að segja mér að klukkan sé 08:25? -Nákvæmlega.
Fjandinn! Ég er of seinn í skólann.
Velkomin í borgina HILL VALLEY
MENNTASKÓLINN Í HILL VALLEY
-Jennifer. -Marty, ekki fara þessa leið.
Strickland er að leita að þér.
Ef þú næst, verður það fjórða áminningin í röð.
Komdu. Ég held að okkur sé óhætt.
Þetta var ekki mér að kenna. Doksi vanstillti klukkurnar sínar.
Doksi?
Ertu enn að sniglast í kringum dr. Emmett Brown, McFly?
Áminning handa þér, fröken Parker.
Og handa þér, McFly. Þetta er víst sú fjórða í röð.
Ég skal ráða þér heilt, ungi maður.
Dr. Brown er hættulegur. Hann er snælduvitlaus.
Þú lendir í vandræðum í hans félagsskap.
Já, herra.
Þú átt við viðhorfsvanda að stríða. Þú ert slæpingi.
Minnir á föður þinn þegar hann var hér. Hann var slæpingi líka.
Má ég fara núna, hr. Strickland?
Hljómsveitin þín sækir um að fá að spila fyrir skólaballið.
Hvers vegna að ómaka sig? Þú átt ekki möguleika.
Líkist þeim gamla allt of mikið.
Enginn úr fjölskyldunni hefur haft neitt fram að færa í sögu skólans.
Sagan mun breytast.
Næsta.
Allt í lagi, félagar, rokkum.
ÁHEYRNARPRÓF - SVEITIR
Flott.
Við erum Pinheads.
Einn, tveir, þrír.
Þetta dugir. Takk, strákar.
Bíðið.
Þið eruð of hávaðasamir.
Næsta.
Næsti hópur.
Goldie Wilson borgarstjóri í endurkjör.
Framfarir er einkennisorð hans.
"Of hátt." Ég trúi þessu ekki.
Við fáum aldrei tækifæri til að spila fyrir almenning.
Þetta er ekki heimsendir, Marty.
Ég held að tónlistarbransinn henti mér ekki.
En þú ert góður og prufusnældan þín er frábær.
Þú verður að senda hana til útgáfufyrirtækisins.
-Það er satt sem doksi segir. -Ég veit.
Þér eru allir vegir færir ef þú vilt.
Það er gott ráð.
En ef ég sendi spóluna og þeim líkar hún ekki?
Ef þeir segja að ég sé ekki góður?
Hvað ef þeir segja: "Þú átt enga framtíð?"
Ég get ekki tekið slíkri höfnun.
Ég er farinn að tala eins og pabbi.
-Hann er ekki svo slæmur. -Slepptu þessu.
Hann lánar þér bílinn annað kvöld.
Sjáðu jeppann.
-Þessi er flottur. -Bakkaðu honum.
Einhvern daginn, Jennifer.
Væri ekki frábært að fara upp að vatninu á jeppanum?
Taka með svefnpoka.
Liggja undir stjörnunum.
-Hættu þessu. -Hverju?
Veit mamma þín um annað kvöld?
Ertu að grínast? Mamma heldur að ég sé á leið í útilegu með strákunum.
Hún myndi brjálast ef hún vissi að ég væri með þér.
Ég fæ fyrirlestra
um hluti sem hún gerði ekki sem barn.
Ég held að konan hafi fæðst nunna.
Hún reynir að hafa þig sómasamlegan.
Henni gengur það illa.
Hræðilega.
Björgum klukkuturninum.
Wilson bæjarstjóri stendur fyrir því að skipt verði um klukkuna.
Turninn varð fyrir eldingu fyrir 30 árum og klukkan hefur ekki gengið síðan.
Við hjá Varðveislufélagi Hill Valley
viljum að turninn standi óbreyttur
sem hluti af sögu okkar og arfleifð.
-Hérna eru 25 sent. -Takk.
-Ekki gleyma að fá bækling. -Einmitt.
Björgum klukkuturninum!
Hvar vorum við?
-Hérna. -Jennifer!
-Það er pabbi. Ég verð að fara. -Einmitt.
-Ég hringi í kvöld. -Ég verð hjá ömmu.
Ég læt þig hafa símanúmerið.
Bless.
BJÖRGUM KLUKKUTURNINUM
Ég elska þig! 555-4823
LYON FASTEIGNIR
Bravó, Tangó, Delta 6-2-9.
Toga bíl í geymslu. Vill einhver svara kallinu.
Fullkomið.
Ég trúi ekki að þú hafir lánað mér bílinn án þess að vara mig við blinda blettinum.
-Blinda blettinum? -Ég hefði getað drepist.
Biff, ég tók ekki eftir
að bíllinn hefði blindan blett þegar ég ók honum.
Sæll, sonur.
Ertu blindur, McFly?
Hvernig skýrirðu þá flakið þarna úti?
Biff, get ég reiknað með
að tryggingarfélagið þitt borgi skemmdirnar?
Tryggingarfélagið mitt? Þetta er þinn bíll.
Tryggingin þín ætti að borga. Hver á að borga fyrir þetta?
Ég hellti niður bjór við áreksturinn.
Hver borgar hreinsunina?
Og hvar eru skýrslurnar mínar?
Ég hef ekki lokið þeim enn en ég hélt að þær væru ekki...
Halló? Er einhver heima?
-Hugsaðu, McFly. Hugsaðu! -Allt í lagi.
Ég verð að ná að endurprenta þær.
Veistu hvað gerist ef ég skila skýrslunum með þinni handskrift?
Ég verð rekinn.
Ekki viltu að það gerist?
-Er það? -Auðvitað ekki.
Ég myndi ekki vilja að það gerðist.
Heyrðu. Ég lýk við skýrslurnar í kvöld
og kem með þær strax í fyrramálið.
Ekki of snemma. Ég sef út á laugardögum.
Skórinn er óreimaður.
Ekki vera svona auðtrúa, McFly. Staðurinn er orðinn fínn.
Ég læt draga bílinn heim til þín
og fæ bara léttöl í staðinn?
Á hvað ertu að horfa?
Skilaðu kveðju til mömmu þinnar.
Ég veit hvað þú ætlar að segja, sonur, og það er rétt. Þú hefur rétt fyrir þér.
En... Biff er yfirmaður minn
og ég stend mig illa í svona þrasi.
En bíllinn, pabbi.
Hann rústaði honum.
Ég þurfti bílinn á morgun, pabbi.
Veistu hversu mikilvægt þetta var fyrir mig?
Hefurðu hugmynd um það?
Ég veit, það eina sem ég get sagt er...
Mér þykir þetta leitt.
Trúðu mér, Marty, þú ert betur settur
án þess að hafa áhyggjur af ruglinu
sem fylgir því að spila á dansleik.
Þetta er rétt. Þú þarft ekki á þessu að halda.
Krakkar, við verðum að borða kökuna sjálf.
Joey frændi fékk ekki reynslulausn.
VELKOMINN HEIM JOEY FRÆNDI
Það væri skemmtilegt ef þið mynduð senda honum línu.
Til Tukthús-Joey?
Hann er bróðir þinn, mamma.
Já, það er meiriháttar skömm að eiga frænda í fangelsi.
Við misstígum okkur öll, börn.
-Fjandinn. Ég er of seinn. -Gættu orða þinna, David!
Komdu og kysstu mömmu þína áður en þú ferð.
Vertu fljót, mamma. Ég missi af strætó.
Sjáumst síðar, pabbi.
Tími til að skipta um olíu.
Marty. Ég er ekki símsvarinn þinn.
Á meðan þú snérist í kringum bílinn
hringdi Jennifer Parker tvisvar.
No comments yet. Be the first to leave one.