ആദ്യത്തെ 200 വരികൾ.
Ver hjá mér, Drottinn, í neyð minni.
Ég óttast eigi drepsóttina sem læðist um í dimmunni
eða sýkina sem geisar um hádegið.
Ver hjá mér, Drottinn, í neyð minni.
Sköpun þín, Drottinn, er hæli mitt.
Ég hef gert hinn hæsta að athvarfi mínu.
Ver hjá mér, Drottinn, í neyð minni.
18. júlí 1981
skrásettu Ed og Lorraine Warren andasæringu Davids Glatzel.
Hann var átta ára gamall.
Ver hjá mér, Drottinn, í neyð minni.
Eigum við að taka pásu?
Elskan... er allt í lagi með þig?
Já, allt í fína.
Ég man ekki eftir öðru svona tilfelli.
Hann ætti að reyna að sofna. -Já, komdu.
Ég skal fylgja honum upp. -Nú?
Já.
Þakka þér fyrir.
Þakka þér fyrir, Arne. -Ekkert mál. Komdu, vinur.
Hann þolir varla meira af þessu. -Hann þarf þess ekki.
Nú gengur þetta hraðar því andasæringin var samþykkt.
Séra Gordon er á leiðinni.
HERBERGI DAVIDS
Þú ert hugrakkur drengur, vissirðu það?
Ég var smávaxinn í uppvextinum.
Ég þekki það að vera lagður í einelti.
En...
En það er smáræði miðað við það sem þú gengur í gegnum.
Mér finnst ég ekki hugrakkur.
Að vera hugrakkur þýðir ekki að þú sért ekki hræddur.
Það þýðir að þú sért hræddur en þraukir samt.
Þetta verður allt í lagi.
Ég læt ekkert illt koma fyrir þig.
Ég lofa því.
Arne, hvenær ætlarðu að biðja systur mína um að giftast þér?
Veit ekki hvað þú átt við.
Hættu. -Nei, alveg satt.
Nei! Hjálpið mér!
Nei, nei, nei!
David! -David! Hvar er hann?
David!
Hvað er að? Er allt í lagi?
David, hvað gengur á?
David.
Nei!
Séra, við verðum að gera þetta strax!
Berum hann í bílinn og ökum í kirkjuna.
Nei, séra. Undir eins.
Nei! Nei! Nei!
Haldið í handleggina. Ekki sleppa.
Hjálpa þjóni þínum sem treystir þér, Guð.
Vertu honum, Drottinn,
sem traust vígi gegn óvininum.
Klæðist alvæpni Guðs
til þess að standast vélabrögð djöfulsins.
Gegn myrkravaldi þessa heims.
Gegn illskunni.
Hvað er að, Lorraine?
Þetta er í lagi.
Lorraine.
Drottinn minn! Sendu honum hjálp frá helgidómnum
og styddu hann frá Síon.
Drottinn, bænheyrðu mig.
Drottinn!
Nei. Séra!
Séra!
Hvar er sjúkrakassinn? -Í eldhúsinu.
Ég sæki hann.
Ed, flýttu þér!
Fljótur, Ed!
Ed. Flýttu þér, Ed!
Ergo, draco maledicte et omnis legio diabolica,
adjuramus te per deum, vivum per deum.
Omnis satanica potestas.
Þetta virkar ekki!
Vivum per deum, ego te, immunde spiritus.
Hvað? Bíddu, David.
Hættu þessu! Hvað? Hvað?
David! David! Hjálpið mér!
Hvað ertu að gera? David!
Hjálpið honum!
David, hættu þessu! David!
Láttu hann vera. -Ekki tala við hann.
Láttu hann vera, sagði ég. Þetta er lítill drengur, heigull.
Ekki tala við hann, Arne.
Ég stoppa hjartað í þér, gamli karl.
Ed!
Heyrðu!
Hlustaðu á mig. Horfðu á mig.
Horfðu á mig. Þú ert enn þarna, David.
Láttu hann í friði.
Láttu hann í friði og taktu mig.
Taktu mig. Heyrðu, taktu mig frekar.
David!
Láttu hann í friði og taktu mig!
Nei.
Nei, nei.
David, David!
David, er allt í lagi? Heyrðu.
David, farðu með mömmu.
Já, David.
Ed? Ed, elskan!
Hvað?
Hringið í neyðarlínuna!
Guð minn góður.
Andasæring Davids Glatzel átti að binda enda á mánaðaþjáningu
en fyrir Arne Johnson var þetta upphafið.
Eftirfarandi harmleikur komst í fréttir á landsvísu
og leiddi Ed og Lorraine Warren
að ískyggilegustu uppgötvun ferilsins.
Byggt á sönnum atburðum.
Frú Warren.
Ástand hans er stöðugt.
Hann fer á hjartadeildina.
Var þetta hjartaáfall? -Já.
Ansi alvarlegt, því miður.
Megum við fara til hans? -Ekki strax.
Við setjum stoðnet í kransæðina
til að tryggja blóðflæði til hjartans.
Jafnar hann sig á þessu?
Við þurfum að gera frekari rannsóknir áður en ég get svarað því.
Mér þykir það leitt.
Láttu hann í friði!
Ekki tala við hann, Arne!
Láttu hann í friði og taktu mig.
Láttu hann í friði!
Ég sé að múmían lifir.
Því leyfðirðu mér að sofa út? -Ég gat ekki vakið þig.
Gastu ekki vakið mig? -Nei, alls ekki.
Það er skrýtið. Þú hefur ekki reynt nógu vel.
Nei.
Buddy, rólegur! -Bruno er fyrir utan.
Bruno er veraldarvanur. Honum er sama.
Nei.
Nei, bíddu. Ég vil spyrja þig að einu.
Jæja, hver er spurningin?
Ekkert stórmál.
Ég var bara að hugsa málið...
Nú er David hólpinn svo að kannski
er best að gleyma þessu öllu og koma okkur burt héðan.
Þú veist. -Áttu við að flytja frá Brookfield?
Því ekki? Ekkert heldur okkur hérna.
Ekki nema fjölskyldan mín og peningaleysið okkar, Arne.
Peningarnir eru smámál.
Við erum bæði í vinnu og búum frítt hér.
Ég var að byrja í þessari vinnu og get ekki hætt núna.
Jesús. -Þar fyrir utan
veit Bruno ekki neitt um hundahald.
Heyrðu.
Ég skal hugsa málið. Allt í lagi?
Ætlarðu að hugsa málið? -Já, ég skal gera það.
Allt í lagi. Svona.
Klæddu þig nú. Ég elska þig.
David verður ánægður.
Hringdirðu í mömmu? -Já.
Sagði að við kæmum seint. -Takk.
Nei, Arne. Hættu að borða.
Frú Haskett, þakka þér fyrir að koma.
Nú förum við.
Ég gerði lista yfir verkefnin þín.
En ég borga þér fyrir að sjá um þetta.
Ekki um helgar.
Þú færð að búa hérna frítt
og ættir því að vinna um helgar og á frídögum.
Andy fær einn bolla, allir hinir tvo.
Magic og Sparky verða sóttir. Ekkert vesen.
En þú þarft að fara út með alla hina seinna í dag.
Ef Ruby verður fyrir býflugnastungu hringirðu í dýralækni.
Númerið hjá honum er á ísskápnum.
Arne, viltu græða auðvelda fimm dali?
Græjurnar eru bilaðar.
Ég skal gera við þær á eftir fyrir 15 dali.
Tíu.
...það var í morgun. -Ég veit.
Ekki segja orð um það. -Ég geri það ekki. Ég lofa.
Bara...
Hann bað mig um að flytja frá Brookfield.
Veistu ekki hvað það þýðir? -Nei.
Var hann ekki að biðja þín? -Ekki beint.
Sagðirðu já? -Ekki beint.
Arne, nennirðu að sækja kjötbakkann?
Já, ég er glorhungraður. En þú?
Já.
Ég skal sækja kjötið.
Dr. Merrick á skurðstofu 6.
Það var gott að sjá Judy aftur.
Verður hún lengi hérna?
Ég veit það ekki. Það fer eftir ýmsu.
Hjúkrunarfræðingurinn sagði að þú hefðir sofið í þessum stól.
Ed myndi skilja það ef þú færir heim í smástund.
Hef ég sagt þér hvernig við kynntumst?
Nei, ég held ekki.
Ég veit að þið voruð ung. Voruð þið í menntaskóla?
Já, við vorum 17 ára.
Ég fór út með vinkonum mínum.
Hann var sætavísir í kvikmyndahúsinu.
Eftir myndina...
fórum við að fá okkur ís.
Hann bauð mér í garðinn en það fór að rigna.
No comments yet. Be the first to leave one.