처음 200줄입니다.
Hæ, Nat!
Við erum báðar á hvolfi.
Þú dettur á undan mér.
Nei, þú.
Þú ert alveg að detta.
Sagði að þú dyttir á undan.
Ég sagði það!
Ég sagði það!
Mamma!
Hvað gerðist?
Hún datt á hnéð. -Meiddirðu þig í hnénu?
Ég skal kyssa á bágtið. Svona.
Svona, litla mín.
Stattu upp. Allt í lagi.
Komdu, hugrakka stelpa.
Sársaukinn styrkir þig bara.
Ekki satt? -Jú.
Er það? -Sjáðu.
Skógarstjörnur.
Vitið þið hvað?
Þessar tilheyra Lampyridae-ættinni.
Þetta ljós sem þið sjáið
er vegna efnahvarfa sem kallast...
lífljómun.
Það er kominn matur.
Sagðirðu lífsrjómi?
Lífsrjómi, alveg rétt.
Matur!
Matur, stóra stelpa.
Mig langar í makkarónur og ost.
Makkarónur og ost? Veistu hvað mig langar í?
Kavíar og kampavín.
Taktu servíettur.
Taktu þetta líka. Takk.
Viltu sækja dressingu fyrir pabba?
Allt í lagi.
Grænar baunir eru besta grænmetið.
Pabbi er kominn heim.
Hæ, pabbi.
Hæ, elskan.
Er allt í lagi?
Hvernig var dagurinn ykkar?
Mamma kenndi mér um lampapöddur.
Lampapöddur. -Ég meiddi mig í hnénu.
En nú finn ég ekki til.
Við sáum blysbjöllur í garðinum.
Það var hápunktur dagsins. -Nei.
Hve langan tíma höfum við?
Veit það ekki. Kannski klukkutíma.
Ég vil ekki fara.
Ekki segja þetta.
Stelpur.
Munið þið þegar ég sagði að við færum einn daginn í ævintýraferð?
Þetta er dagurinn. -Jibbí!
Jæja, förum þá.
Mér þykir það leitt.
Flýtum okkur. -Takk.
Mig vantar skó.
Þú þarft enga skó.
En ég er svöng. -Veistu hvað?
Það eru ávaxtalengjur í bílnum.
Skildu þetta eftir. Farðu og bíddu í bílnum.
Ertu með það? -Já.
Eina eintakið? -Eina sem brann ekki.
Hvert förum við?
Heim.
Enga vitleysu, mamma.
Við fórum að heiman.
Ég vil hlusta á lagið mitt.
Flýttu þér, Yelena mín.
Áfram, Nat. Flýtum okkur.
Við verðum að hlaupa.
Komdu, elskan.
Farðu með mömmu.
Fljót, Nat. -Ég kem.
Spennið beltin.
Jæja. -Hvar er pabbi?
Hann er alveg að koma.
SKJÖLDUR
Mamma?
Mamma!
Komdu hingað.
Allt í lagi. -Allt í lagi.
Beygðu til hægri.
Mamma, þér blæðir.
Það er allt í lagi.
Eldsneytisgjöfina fram.
Haltu henni stöðugri.
Togaðu í stýrið í 55 hnútum.
Teljum saman.
45, 50... -45, 50...
Togaðu. Þú getur það.
Togaðu af öllu afli.
KÚBA
Allt í lagi.
Stattu upp, mamma.
Sársaukinn styrkir þig bara, manstu?
Rauði verndarinn snýr aftur.
Rauði verndarinn snýr aftur sigri hrósandi.
Ég grátbið þig. Ekki fleiri leyniverkefni.
Ég vil komast í hasar og fara í búninginn.
Ég vil snúa aftur.
Dreykov hershöfðingi, þetta tók rúm þrjú ár.
Fyrirgefðu, mamma.
Ég er hrædd.
Haltu fast í hreina hjartað.
Náðirðu þessu?
Hvað með North-stofnunina?
Brunnin til ösku.
Þetta fer allt vel.
Hvernig líður Melinu?
Hún tórir. Hún er svo sterk.
Mamma? -Mamma?
Pabbi!
Ég sé um þetta.
Pabbi! -Yelena!
Pabbi! -Slepptu henni!
Ekki snerta hana!
Ég skýt.
Ekki snerta hana!
Ég drep ykkur alla!
Ég skýt.
Ekki snerta hana.
Elskan mín.
Réttu mér nú byssuna.
Ég vil ekki fara aftur þangað.
Ég vil vera í Ohio.
Þið megið ekki taka hana.
Ekki gera það.
Hún er bara sex ára.
Þú varst yngri.
Allt í lagi.
Komdu hingað.
Þið spjarið ykkur.
Vitið þið hvers vegna?
Því að stelpurnar mínar eru þær sterkustu í heiminum.
Þið passið hvor aðra, allt í lagi?
Þetta fer allt vel á endanum.
Það er töggur í þessari.
Hvað heitir hún?
Natasha.
Natasha.
Nei!
Fjarlægið þær vanhæfu.
Þessa...
og hana.
Nei!
Yelena!
Taktu þetta! Nei!
Nei!
Rauða herbergið er heimilið þitt núna.
Sleppið mér! Nei!
Njósnarar á meðal vor.
RÚSSAR Í OHIO
ELDSVOĐI Í NORTH
Sigla undir fölsku flaggi í heilum fjölskyldum...
21 ÁRI SÍĐAR
Þeir eru á þakinu, herra. -Sveit 1 í sjónlínu.
Við lokum öllum útgöngum.
Verið vel á verði.
Ég sendi alfa-sveit inn.
Natasha Romanoff gerðist brotleg við Sokóvíu-sáttmálann.
Hún réðst á konung Wakanda.
Þetta verður víti til varnaðar.
Já?
Ekki gera þetta.
Hvað?
Eltast við mig.
Það er vandræðalegt og örvæntingarfullt.
Ég hélt að þú hringdir til að semja við mig.
Frá mínum bæjardyrum er aðilinn á flótta...
sá örvæntingarfulli.
Frá mínum bæjardyrum sýnist mér þig vanta svefn.
Var þetta önnur hjartaaðgerðin?
Ekki hafa áhyggjur af mér.
Við náðum Barton, Wilson og hinum gaurnum,
ótrúlega smækkunarfanganum.
Rogers er á flótta. Þú ert vinalaus.
Hvert geturðu farið?
Ég átti mörg líf áður en við kynntumst, Ross.
Þú hefðir ekki átt að leggja þetta á þig. Ég er farin.
Romanoff?
Hreiðrið er tómt, Ross ráðherra.
Rakningarbúnaðurinn hennar.
MAROKKÓ
Sé skotmarkið. Bíð eftir pakkanum.
Ég sé hliðarskotmark.
Skjótum á þremur.
Fimm, fjórir...
Hún sá okkur og sprengdi reyksprengju.
Hún hleypur með pakkann. Vertu uppi. Ég fer niður.
Oksana.
Nei.
Hvað hef ég gert?
Frelsaðu hinar.
Yelena, hver er staðan?
Yelena, hver er staðan?
Komdu til leiðtogans.
Dreykov hershöfðingi, hún er liðhlaupi.
Fæ ég leyfi til að virkja Taskmaster-verkefnið?
No comments yet. Be the first to leave one.