처음 200줄입니다.
Samkvæmt öllum þekktum lögmálum loftaflsfræðinnar
ætti býfluga ekki að geta flogið.
Vængirnir eru of litlir til að hefja feita búkinn til flugs.
Býflugan flýgur samt vitanlega
af því býflugum er sama hvað mönnum finnst ómögulegt.
Gult, svart, gult, svart. Gult, svart.
Svart og gult! Aðeins meira fjör.
HUNANG
Benni! Morgunmatur!
Ég kem!
Dokaðu við.
Trúirðu að þetta sé að gerast? - Ég get það ekki. Ég sæki þig.
Flottur.
Notaðu stigann. Pabbi þinn borgaði mikið fyrir hann.
Fyrirgefðu. Ég er spenntur.
Hér er sá sem útskrifast. Við erum stolt af þér, vinur.
Góðar einkunnir, allt B.
Mjög stolt.
Mamma! Þú eyðileggur greiðsluna.
Það er kusk á lónni. - Þetta var ég.
Veifaðu okkur. Við verðum í röð 118 þúsund.
Benni, ég bannaði þér að fljúga í húsinu.
BÝFLUGUMYNDIN
Nettenging niðri
Er þetta lógel? - Svolítið. Það er útskrift í dag.
Ég hélt að það tækist ekki.
Þrír dagar í grunnskóla, þrír dagar í miðskóla.
Það var hallærislegt.
Gott að ég tók dagsfrí á milli og fór á puttanum um búið.
Þú varst breyttur þegar þú komst til baka.
Læturðu þér vaxa yfirvararskegg, Aggi? Það fer þér vel.
Fréttirðu af Frankie? - Já.
Ætlarðu í jarðarförina? - Nei.
Allir vita að menn deyja ef þeir stinga.
Maður eyðir því ekki á íkorna. Þvílíkur fauti.
Hann hefði getað vikið sér undan.
Gaman að fella skemmtigarð inn í daglegt líf.
Þess vegna þurfum við ekki frí.
Talsverð fyrirhöfn, miðað við kringumstæður.
Adam, í dag erum við menn. - Já!
Bý-menn. - Amen!
Halelúja!
Nemar, kennarar, virðulegu býflugur.
Takið vel á móti Býleist rektor.
Velkomin Nýja Býborg og útskriftarhópur...
9.15.
Þar með lýkur athöfninni.
Og þið hefjið störf hjá Hunax Samsteypunni.
Veljum við starf í dag?
Ég frétti að það væri bara kynning.
Verið vakandi! Þá byrjar það.
Hafið hendur og fálmara í vagninum allan tímann.
Hvernig ætli það verði? - Svolítið óhugnanlegt.
Velkomin til Hunax, deildar í Hunangkó,
hluti af Hexagon.
Þetta er það!
Þið býflugurnar hafið unnið alla ævi að því
að geta unnið alla ykkar ævi.
Hunangsferlið hefst þegar Kornjaxlarnir flytja blómvökva í búið.
Leyniformúla okkar
er litbætt, ilmbætt og froðusíuð
þannig að hún verður að sætu sírópi
með einstökum gullgljáa sem þið þekkið sem...
Hunang!
Flott stelpa. - Hún er frænka mín!
Er hún það? - Við erum öll skyld.
Hjá Hunax keppum við stöðugt að því
að bæta allar hliðar tilveru býflugunnar.
Þessar býflugur prófa höggþol nýrra hjálma.
Hvað ætli hann hafi í laun? - Ekki nógu mikið.
Hérna er það nýjasta, Farmallinn.
Hvað gerir hann? - Nær hunangstaumum
sem hanga eftir að hellt hefur verið niður.
Geta allir unnið á Farmalanum?
Auðvitað. Flest býflugnastörf eru lítil. En býflugur vita
að hvert lítið starf sem er vel gert hefur mikla þýðingu.
En veljið það af kostgæfni
af því þið verðið í starfinu sem þið veljið alla ævi.
Sama starfinu alla ævi? Það vissi ég ekki.
Hverju breytir það?
Það gleður ykkur að vita að býflugur hafa ekki átt frídag
í 27 milljónir ára.
Látið þið okkur vinna í hel?
Við reynum það vissulega.
Hunax
Svakalegt!
Hverju breytir það? Hvernig geturðu sagt það?
Eitt starf til eilífðar? Það er fráleitt val.
Ég er feginn. Við þurfum bara að taka eina ákvörðun í lífinu.
En því var okkur aldrei sagt þetta?
Því að spyrja um nokkuð? Við erum býflugur.
Við erum fullkomnasta þjóðfélag á jörðinni.
Finnst þér aldrei að þetta gangi aðeins of vel hérna?
Nefndu eitt dæmi.
Ég veit það ekki. En þú veist hvað ég á við.
Ekki vera fyrir í hliðinu. Safaflugsveit nálgast.
Bíddu við.
Þetta eru Kornjaxlar!
Ég hef aldrei séð þá í návígi.
Þeir vita hvernig það er utan búsins.
Sumir koma ekki aftur.
Sælir, Jaxlar! - Sælir, Jaxlar!
Blómasafi
Þið stóðuð ykkur vel.
Þið eruð ófreskjur! Flugviðundur! Stórkostlegt.
Hvar skyldu þeir hafa verið? - Ég veit það ekki.
Dagurinn þeirra er ekki skipulagður. Fljúga út í buskann, gera bara eitthvað.
Maður verður bara ekki Kornjaxl. Menn fæðast í það.
Fleiri frjókorn en við eigum eftir að sjá.
Þau eru bara stöðutákn. Býflugur gera of mikið úr því.
Kannski. Nema maður sé þakinn þeim og dömurnar sjá mann þakinn þeim.
Þessar dömur? Eru þær ekki frænkur okkar líka?
Fjarskyldar. Fjarskyldar.
Sjáið þessa tvo.
Tveir búskussar. - Stríðum þeim svolítið.
Það hlýtur að vera hættulegt að vera Kornjaxl.
Já. Eitt sinn negldi björn mig fastan við svepp.
Hann tók um hálsinn á mér með hramminum og sló mig með hinum!
Ég ætlaði aldrei að geta rotað hann.
Hvað gerðirðu meðan á þessu stóð?
Ég reyndi að gera yfirvöldum viðvart.
Ég get skrifað eiginhandaáritanir.
Var ekki svolítill gustur þarna í dag, félagar?
Jú, gustur.
Við kýlum á sólblómabreiðu 10 km héðan á morgun.
10 kílómetra? - Benni!
Það er stutt fyrir okkur en þú treystir þér kannski ekki til þess.
Kannski. - Nei!
Við förum kl. 09.00 frá J-hliði.
Jæja, býflugnastrákur. Ertu nógu mikil býfluga?
Það gæti verið. Það ræðst af því hvað 09.00 merkir.
Þú lést mér bregða, pabbi.
Veistu á hverju þú hefur mestan áhuga?
Margt kemur til greina. - En maður fær bara eitt.
Leiðist þér stundum að sinna alltaf sama starfinu?
Leyfðu mér að segja þér eitt um hræruna.
Maður tekur sleif og snýr henni hring eftir hring.
Maður finnur takt. Það er fallegt.
Því meira sem ég hugsa um það
þá er hunangsfagið kannski ekki rétta sviðið fyrir mig.
Ætlaðirðu að búa til blöðrudýr?
Óþægilegt fyrir veru með brodd.
Sonur þinn veit ekki hvort hann vill fara í hunangsfagið.
Benni, mikið ertu stundum fyndinn. - Ég er ekki fyndinn.
Þú ferð í hunangið. Sonur okkar, hrærarinn!
Ætlarðu að verða hrærari? - Enginn hlustar á mig!
Þú færð sko sleifar.
Ég get sagt hvað sem er. Ég fæ maurahúðflúr!
Opnum hunangið og fögnum!
Ég læt kannski gata frambolinn. Raka fálmarana af.
Giftist engisprettu. Fæ mér gulltönn og kalla alla "lagsi"!
Mikið er ég stoltur.
Við byrjum að vinna í dag! - Dagurinn er í dag.
Drífðu þig! Öll góðu störfin fara.
Já. Einmitt.
Frjótalning, áhættubý, hellarar, hrærarar, móttaka, háreyðing...
Er það enn laust? - Tvö eftir!
HRATSKÖFUN
Þú færð annað!
Hvað fékkstu? - Hratsköfun.
Ný bý?
Já! Fyrsti dagurinn okkar! Við erum tilbúnir!
Veljið nú.
Viltu byrja? - Nei, byrja þú.
Ja hérna. Hvað er laust?
Staða klósettvarðar er alltaf laus og ekki af þeirri ástæðu sem þú heldur.
Nokkur möguleiki að komast á Farmalinn?
Já.
FARMALL LOKAĐ
Það er því miður lokað.
Staða vaxtæknis er laus.
Farmallinn opnaðist aftur.
Hvað kom fyrir?
Býfluga dó. Þá myndast glufa. Hann er dauður. Annar dauður.
Dauð. Hálfdauð. Tvær dauðar í viðbót.
Dauð upp frá hálsi, niður frá hálsi.
Mikið er þetta erfitt!
Suða, kæling, höggþoli, hellari, hrærari,
suðari, býtalningamaður, kuskmaður, randstjóri,
mauravörður. Benni, hvað ætti ég...?
Benni!
Sólblómabeðið er í fjórðungi níu.
Hvar ertu?
Ég ætla út. - Hvert?
Þangað út. - Nei!
Ég má til, áður en ég fer að vinna það sem eftir er ævinnar.
Þú deyrð! Þú ert óður!
Annar á línunni.
Ef einhver þorir fær kóresk blómabúð við 83. götu
rósirnar sínar í dag.
Sælir, strákar.
Sjáið þennan. - Sáum við hann ekki í gær?
Aðgangur bannaður.
Það er allt í lagi, Lúlli. Hann fer með okkur.
Finnst þér lánið leika við þig?
Kvitta hérna. Fangamark hérna.
Takk.
Í dag er spáð rigningu
og eins og þið vitið geta býflugur ekki flogið í rigningu.
Farið gætilega. Varið ykkur á sópum,
No comments yet. Be the first to leave one.