처음 200줄입니다.
FELIX FIXARI SETJIÐ PENING Í
Ég heiti Ralph og ég er vondur karl.
Ég er 274 cm á hæð og 290 kg.
RUSLAHAUGUR
Ég er dálítið skapstór.
ÞÚ FÆRÐIR TRJÁSTOFNINN!
Það er auðvelt að æsa mig upp, ég neita því ekki.
Hvað fleira?
Ég er rústari. Ég starfa við að rústa.
ÉG RÚSTA ÞESSU!
Ég er góður rústari. Sá besti sem ég þekki.
Leikurinn snýst um að fixa hluti. Bókstaflega, Felix fixari yngri.
FIXAÐU ÞAÐ, FELIX!
ÉG GET FIXAÐ ÞAÐ!
Auðvitað er sá sem heitir Felix fixari góði karlinn.
Hann er ágætur góður karl.
Hann fixar allt vel.
NÆSLAND
Ef maður fær töfrahamar frá föður sínum,
hversu erfitt er það?
JÚHÚ!
Ef hann væri venjulegur verktaki og smiður
væri hann ekki svona fljótur að laga skemmdirnar eftir mig.
ÞÚ FIXAÐIR ÞAÐ
Þegar Felix stendur sig vel fær hann medalíu.
Eru veittar medalíur fyrir að rústa vel?
Ha, segi ég.
Nei, svo er ekki.
FYRSTA BORÐI LOKIÐ
FYRIR 30 ÁRUM
Ég hef gert þetta í 30 ár.
Ég hef séð marga leiki koma og fara.
Það er sorglegt. Ég hugsa til gauranna úr Asteroids.
Búmm, horfnir. Centipede? Hver veit hvað varð um hann?
Fast starf í leiktækjasal er ekkert slor. Ég er lánsamur.
Það er bara...
Það er erfitt að njóta starfsins þegar öllum líkar illa við mann.
Í DAG
Leiktækjasalurinn er lokaður.
Þvílíkur dagur. Eigum við að fara til Tappa?
Ef þú splæsir.
Hættum í dag.
Kannski liði mér ekki svona ef betra tæki við eftir vinnu.
En svona er þetta. -Vel gert, allir.
Felix og Næslendingarnir fara í íbúðirnar sínar
sem hann hefur fixað og allir bara...
Fólk fer heim til sín og ég til mín
en ég bý á ruslahaug.
Ég kalla það ekki ruslahaug því það er svo skítugt hjá mér.
Ég bý bókstaflega á ruslahaug.
Þangað fer allt ruslið, múrsteinar og byggingarefni.
Það er heimilið mitt.
Ég ætti ekki að kvarta.
Ég á múrsteina og trjástofn.
Þetta virðist óþægilegt en þetta er fínt.
En ef ég á að vera fullkomlega hreinskilinn
sé ég hvernig allir klappa Felix á bakið,
gefa honum kökur og þakka honum
og eru glaðir að sjá hann.
Stundum hugsa ég...
mikið hlýtur að vera ljúft að vera góði karlinn.
VONDU-ANON Einn leik í senn
Góð reynslusaga, Ralph.
Við vondu karlarnir þekkjum þetta allir
og höfum sætt okkur við það.
Í alvöru? -Hérna.
Ég heiti Zangief og er vondur.
Sæll, Zangief. -Sæll, Zangief.
Ég skil þig, Ralph. Þegar ég lenti á botninum
kramdi ég mannshöfuð eins og spörfuglsegg á milli læranna.
Ég hugsaði: Því ertu svona vondur?
Því ertu ekki líkari góða karlinum?
Síðan áttaði ég mig.
Ef Zangief er góður,
hver á þá að kremja mannshöfuð eins og egg á milli læranna?
Ég sagði: Zangief, þú ert vondi karlinn,
en það þýðir ekki að þú sért vondur.
Fyrirgefðu, ég náði þessu ekki.
Uppvakningur, vondur. -Halló.
Sæll, Uppvakningur.
Zangief segir að skilgreiningar færi ekki hamingju.
Góður. Vondur.
Þú verður að elska þig.
Hérna. -Já.
Ég skil. Passaðu þig. Þetta lekur.
Spurning, Ralph.
Við höfum boðið þér á fundi árum saman
og loksins mætirðu í kvöld.
Hvers vegna? -Ég veit það ekki.
Mig langaði að koma.
Það tengist líklega því
að nú á leikurinn 30 ára afmæli.
Til hamingju með afmælið.
Takk, Satan. -Það er reyndar Satín.
Skilið. En þetta er málið...
Ég vil ekki vera vondi karlinn lengur.
Ekki rugla forritinu, Ralph.
Ertu nokkuð að verða túrbó?
Nei, ég verð ekki túrbó. Ekki láta svona.
Er það túrbó að þrá vini eða medalíu?
Eða kökusneið annað slagið?
Er það túrbó að þrá meira í lífinu?
Já.
Við skiljum þetta.
En við breytum því ekki hverjir við erum.
Þegar þú sættir þig við það skánar leikurinn og lífið.
Einn leik í senn, Ralph.
Ljúkum þessu á Vondukarlastaðfestingunni.
Ég er vondur og það er gott.
Ég verð aldrei góður og það er ekki vont.
Ég vil enginn vera frekar en ég.
RÚSTAÐU ÞESSU RALPH
Sjáumst í næstu viku.
Ég kemst ekki með nasl í næstu viku.
Stattu þig, Ralph.
Uppvakningur, ekki gleyma öxunum þínum.
AUSTURHLIÐ - SALERNI LEIKJAMIÐSTÖÐ
TIL LEIKJAMIÐSTÖÐVAR
Stígðu til hliðar. Handahófskennd leit.
Handahóf? Þú stoppar mig alltaf.
Ég er spennujafnari að sinna mínu starfi.
Nafn? -Lara Croft.
Nafn? -Ralph rústari.
Hvaðan kemurðu? -Frá Pac-Man.
Komstu með ávexti? -Nei, enga ávexti.
Hvert ertu að fara? -Til Felix fixara yngri.
Eitthvað tollskylt? -Ég hata þig.
Ég heyri það oft. Áfram.
Vondur karl.
Ef þið yfirgefið leikinn skuluð þið vera vel á verði
og alls ekki deyja.
Ef þið deyið utan leiksins lifnið þið ekki við.
Aldrei. Leik lokið.
FELIX FIXARI YNGRI
TEKNIR ÚR SAMBANDI HJÁLP
Gjörðu svo vel.
Þetta er ferskt frá Pac-Man.
Standið ykkur.
Nafn?
VIÐ ELSKUM ÞIG, FELIX
Til hamingju með 30 ára afmælið?
Þau halda veislu án mín.
Pac-Man? Buðu þau honum?
Kirsuberjaeltandi punktaætan er ekki í leiknum okkar.
Frábær veisla. -Takk, vinur.
Þú verður að koma á dansgólfið.
Fixaðu það, Felix. Fixaðu það, Felix.
Þetta er örugglega Maríó. Seinn eins og vanalega.
Ég skal.
Þetta er Ralph.
Hann rústar öllu.
Felið fínu glösin. -Losaðu okkur við hann.
Ég skal tala við hann.
Haldið áfram.
Get ég aðstoðað þig, Ralph?
Sæll, ég vildi athuga með þig.
Ég sá eitthvað springa yfir húsinu ykkar.
Þetta voru bara flugeldar.
Flugeldar? Allt í lagi.
Á einhver afmæli?
Þetta er líkara fögnuði.
Leikurinn okkar er orðinn 30 ára.
Er það í dag?
Ég veit. -Ég man aldrei dagsetningar.
Til hamingju með daginn.
Takk, Ralph. Sömuleiðis.
Þau koma með kökuna eftir smástund.
Sæll, Glen. -Ralph.
Kaka? Ég hef heyrt talað um þær.
Aldrei smakkað þær.
Enginn hendir kökum svo þær enda aldrei á haugunum.
Ég hef aldrei smakkað köku.
Alltaf langað að smakka köku.
Langar þig nokkuð að koma inn og fá þér sneið?
Halló, allir.
Allt í lagi með mig. Ég er stálsleginn.
Þið þekkið öll Ralph.
Góða kvöldið.
Góða kvöldið, Nell, Lucy, Don og Dana...
Díanna. -Stóri Geir.
Hvað er hann að gera hérna?
Hann kom að fá sér kökusneið.
Ég er stór hluti af leiknum, þannig lagað.
Hvað ert þú að gera hérna?
Sjáið kökuna.
Ég er svo aldeilis. Þú slóst sjálfri þér við, María.
Við erum öll á þakinu.
Hver hæð er uppáhalds- bragðtegund íbúans.
Norwood er rauð lagkaka.
Sekur.
Sítróna handa Lucy og rommkaka handa Geir.
Felix fær... -Heyrðu, María?
Hvaða bragð er af drullunni sem ég sit fastur í?
Súkkulaði.
Ég hef aldrei verið mikið fyrir súkkulaði.
Ég vissi það ekki.
Eitt í viðbót.
Ég vil ekki vera með leiðindi en þessi reiði karl...
Kakan mín. -Hann yrði kátari
hérna uppi með öllum hinum.
No comments yet. Be the first to leave one.