Boss Level

Boss Level

Icelandic 字幕をダウンロード

リリース情報

Boss Level 2020 BluRay-isl
解説: rippmaster

タグ

BluRay
公開日: 2023-05-05
ダウンロード: 40
聴覚障害者向け: No

Icelandic字幕のプレビュー

最初の200行です。

Farðu á fætur og varaðu þig.

Skór, buxur.

Beygja sig. Bolur. Varúð til vinstri.

Ég tek þetta.

Verjast og slá.

Hnífur skiptir um hönd.

Snúa og hvolfa.

Jæja. Vill einhver kaffi?

Hugsið ykkur að vakna hvern einasta dag

við einhvern fávita eins og herra Góðan daginn

sem reynir að kljúfa ykkur í herðar niður með sveðju.

Í alvöru.

Þetta hefði getað verið gaman um hríð.

Þú ert dauður.

Þegar ég jafnaði mig á áfallinu

og áttaði mig á því hvað væri að gerast,

eftir næstum 140 skipti,

varð þetta drullupirrandi.

Ég vil að þetta hætti.

En ég veit vel að þetta hættir ekki.

Þið vitið að sumir segjast geta eitthvað með lokuð augun

og ykkur finnst þeir hljóma eins og hálfvitar en...

Hvað um það. Fylgist með þessu.

Því miður, félagi. Þeir halda að þú sért ég.

Sama hvað ég hef séð þetta koma oft fyrir íbúðina mína

get ég ekki annað en hugsað: Fjandinn, þetta er leiguíbúð.

Leigusalinn er nú þegar algjör skíthæll

og ég fæ trygginguna aldrei til baka.

Þetta var ekki alltaf svona.

Einu sinni var ég hamingjusamur. Það er alveg satt.

Ég átti konu sem ég elskaði

en nú er ég bara pirraður.

Fjandinn, verð að stökkva.

Ég hef ekki hitt á bílinn nákvæmlega 22 sinnum.

Vitið þið hvernig það er að falla niður af fjórðu hæð?

Það er ógeðslega sárt.

Herra Kaldi-karl á sportbílnum

öskrar eins og ég sé að nauðga honum í hvert sinn.

Hann rænir bílnum mínum!

Það er satt.

Næstu asnar sem reyna að drepa mig eru á fjölskyldubílnum.

Taktu fram úr öllum.

Ekki skipta þér af akstrinum. -Ég geri það ekki.

Esmeralda bílstjóri og Pam.

Ég veit ekki hvort þetta eru réttu nöfnin þeirra

því ég stoppa aldrei til að heilsa þeim.

Eftir rútuna gengur allt alveg ágætlega og...

Bíddu, fjandinn hafi það. Var rútan komin?

Nei.

Jesús minn.

Guð?

Ekki vorkenna mér.

Tilraun 79

Þetta helvíti gerist daglega.

Áður fyrr kvartaði ég undan því að allir dagar væru eins

en síðan rann 9. maí upp

og nú eru allir dagar eins.

Sama öskrið þegar ég vakna, sama fíflið með sveðjuna

og alltaf það sama með örlitlum frávikum.

Andskotans...

Það eina sem breytist aldrei...

er að ég dey

hvern einasta dag.

Ég dey.

Hér er brot af því besta.

í sannleika sagt veit ég ekki af hverju þau vilja drepa mig

eða hvað ég hef gert til að eiga þetta skilið

en þau eru svo helvíti mörg. Þið hafið hitt Pam.

Hún gerði mér þetta 14 sinnum áður en ég negldi tímasetninguna.

Tilraun 69

Þessi litla engilfríða beygla heitir Guan Yin.

Hvernig veit ég hvað hún heitir?

Ég heiti Guan Yin.

Guan Yin gerði þetta.

Nafnið þýðir gyðja miskunnar. Hún hlýtur að fíla kaldhæðni.

Tilraun 88

Ég kalla þetta litla kokhrausta fífl Kaboom.

Hvað segirðu, sæti?

Djöfulsins furðudvergur. Hvað ertu að gera?

Ég kann ekki að meta svona stæla.

Ég gaf þeim öllum gælunöfn. Pam, Brosi,

þýsku tvíburarnir og Roy númer tvö,

en hann er einhver asni sem er nauðalíkur mér.

Tilraun 104

Stundum tekst mér að drepa þau.

En það skiptir ekki máli.

Þau finna mig alltaf

og drepa mig á endanum.

Ég heiti Guan Yin.

Guan Yin gerði þetta.

Ég veit ekki hvers vegna, ég upplifi sama daginn aftur.

Ég hef aldrei fengið tíma til að komast að því.

Helvítis lætin byrja um leið og ég opna augun.

Tilraun 48

Jemma er eina konan sem ég hef elskað

og sú eina sem hefur svörin sem mig vantar.

Halló.

Ég er að leita að dr. Jemmu Wells.

Hver er þetta?

Þetta er maðurinn... eða kærastinn hennar, Roy.

Roy Pulver höfuðsmaður í Delta-sérsveitinni.

Hver er þetta?

Ég heiti Clive Ventor ofursti.

Yfirmaður Jemmu.

Þangað til nýlega.

Er hún þarna?

Nei, því miður.

Veistu hvenær hún kemur aftur?

Það er ansi stór spurning sem ég vísa beint til æðri máttarvalda.

Ha?

Hún er dáin.

Hvað segirðu?

Mér þykir leitt að vera boðberi válegra tíðinda

en fröken Wells datt illa og hálsbrotnaði í gærkvöldi.

Eftir slys á rannsóknarstofunni

þar sem hún vann fram eftir og líklega útkeyrð.

Nei.

Mætti ég spyrja hvar þú ert?

Einn. -Tveir.

Þetta var ekkert helvítis slys.

Þrír.

Af hverju er hún dáin? Hver myrti hana?

Ég hef aldrei lifað nógu lengi til að komast að því.

Hvar vorum við? Já, rútan. -Tilraun 140

Andskotinn.

Hann virðist ákveðinn.

Elskan, þetta er kúreki.

Mér sýnist ég þurfa að taka þetta alvarlega.

Hver djöfullinn!

Fjandinn hafi það.

Andskotinn.

Ég held að þær hafi átt þetta skilið.

Sæll, Roy.

Sæll, Jake.

Þú ert eins og dauðinn að skíta. Hvað kom fyrir þig?

Ég fór öfugu megin fram úr. Allt í góðu. Gerist alltaf.

Gæti ég fengið stóra flösku af Baijiu, takk?

Veistu hvað, Jake? Hafðu það tvær flöskur.

Tvær! Jesús minn.

Gjörðu svo vel, herra Skorpinn af Lifur.

Bara grín.

Alkar allra landa sameinist!

Maður lifir aðeins einu sinni.

Þú gengur ekki að morgundeginum vísum.

Andskoti satt, félagi. Andskoti satt.

Drengurinn kann að taka á því.

Hvernig geturðu drukkið svona?

Hvernig getur þú það ekki?

Margir sérfræðingar á sviði innanlandsöryggis,

hafðu í huga að ég er einn þeirra,

telja að næstu hryðjuverkaárás verði beint gegn áfengi.

Hér á landi er alkóhólismi

og lotudrykkja í kringum 38 prósentin

svo ef einhver ætlaði að þurrka út...

Þessi lúsablesi heitir Dave.

Hann er öryggissérfræðingur hjá einhverju einkafyrirtæki.

Það er sama hvernig ég svara

þegar hann spyr hvernig ég geti drukkið svona.

Hann fer alltaf beint í sömu helvítis ræðuna.

Ég veit hvað hann á eftir að segja orðrétt.

Ég veit nákvæmlega hvað gerist frá því ég stíg fæti hingað inn.

Klukkan 11.05 kemur kínversk afburðakona í sverðfimi.

Tólffaldur heimsmeistari.

Fjandinn, Dai Feng.

Roy, hún er einn frægasti... -Kínverski Wudang-meistarinn?

Tólffaldur... -Heimsmeistari.

Hef ég sagt þér frá henni? -Hundrað sinnum.

Ég man ekki eftir því. -Ég man það.

Pedro, borð handa Sifu Feng.

Sæl, fáðu þér sæti.

Það er vegna Sifu Feng sem ég þarf að flýta mér hingað dag hvern.

Ef ég kem eftir klukkan 11 nær hún síðasta sætinu við barinn.

Fjandinn, hún starði á mig.

Hefurðu verið með konu?

Hvað segirðu? -Hefurðu verið með konu?

Ég held að ég hafi náð einni á öngulinn, ef þú skilur.

Það er líklegra að það vaxi typpi úr enninu á þér, Jake.

Í kringum hádegið..

Mér líður svolítið illa yfir því sem gerist næst.

Ég dýrka að sjá hann detta. Afsakið það.

Ég ætti að vara hann við en þetta er drullufyndið

og ég hef ekki mikið að hlæja að þessa dagana.

Þú færð engar vinnuslysabætur. Enginn trúir þessu.

Klukkan 12.20 fer Dave skítbuxi loksins aftur í vinnuna.

Þú skalt vona að hryðjuverkamennirnir

ákveði ekki að eitra Baijiu-birgðir heimsins.

En fyrst skilar hann af sér þessum stórgóða brandara.

Þú fattar.

Einum of. -Sestu, Dave.

Hvað segirðu?

Ég vil segja þér sögu.

Ég er blindfullur í dag.

Örlítill snúningur á stríðssögunni.

Ég tala um fyrri dauðdaga þegar ég hef drukkið of mikið.

Hefurðu verið skotinn í andlitið, Dave?

Ha?

Ég var skotinn í andlitið.

Svo gerðist svolítið fyndið áður en ég dó.

Það er langt síðan.

Kúlan var af hlaupvídd 45.

コメント

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left