Big Hero 6

Big Hero 6

Icelandic 字幕をダウンロード

リリース情報

Big Hero 6 2014 WEB-DL DSNP
Íslenska

タグ

Web-DL
web-dl
web
WEB-DL
公開日: 2021-07-03
ダウンロード: 136
聴覚障害者向け: No

Icelandic字幕のプレビュー

最初の200行です。

HÖFN SAN FRANSOKYO

Stattu á fætur.

Sigurvegarinn, með fullkominni gjöreyðingu...

Yama!

Hver er næstur?

Hver þorir að stíga inn í hringinn með Litla-Yama?

Má ég prófa?

Ég er með vélmenni sem ég smíðaði sjálfur.

Snáfaðu, stráksi.

Húsreglur. Þú verður að borga fyrir að berjast.

Er þetta nóg?

Hvað heitirðu, drengur?

Hiro Hamada.

Vertu tilbúinn með bottann þinn, Zero.

Tveir bottar stíga inn

en aðeins einn stígur út.

Keppendur tilbúnir?

Berjist.

Þetta var fyrsti bardaginn minn. Má ég prófa aftur?

Enginn þolir þá sem eru tapsárir, pjakkur.

Farðu heim.

Ég á meiri peninga.

Keppendur tilbúnir?

Berjist.

Mega-botti, rústa.

Nú er Litli-Yama búinn að vera.

Hvað?

Þetta getur ekki staðist.

Ég er jafnhissa og þú.

Byrjendaheppni.

Viltu berjast aftur, Yama?

Enginn svindlar á Yama.

Kennið honum ráðningu.

Ræðum þetta betur, félagar.

-Sestu á hjólið. -Tadashi.

Góð tímasetning.

Æ, nei.

-Er allt í lagi? -Já.

-Ertu meiddur? -Nei.

Hvað varstu að hugsa, þöngulhausinn þinn?

Þú útskrifaðist 13 ára úr menntaskóla og gerir þetta.

Þarna eru þeir.

Haltu fast.

Já.

Botta-at er ólöglegt. Þú verður handtekinn.

Þetta er ekki ólöglegt.

Það er ólöglegt að veðja á þetta, en það gefur vel af sér.

Ég er í banastuði og ekkert fær mig stöðvað.

Æ, nei.

Sæl, Kata frænka.

Eruð þið ómeiddir? Segið það.

-Allt í góðu. -Allt í lagi.

Gott.

Hvað voruð þið þöngulhausarnir að hugsa?

Ég hef gert mitt besta í uppeldi ykkar í tíu ár.

Er ég fullkomin? Nei.

Veit ég eitthvað um börn? Nei.

Hefði ég átt að kaupa bók um uppeldi?

Líklega.

Hvað ætlaði ég að segja?

-Fyrirgefðu. -Við elskum þig, frænka.

Ég elska ykkur líka.

Ég lokaði snemma vegna ykkar bófanna.

Á bítskáldakvöldi.

Streituát, ykkar vegna.

Komdu, Mochi.

Þetta er rosalega gott.

Bættu Kötu frænku þetta áður en hún borðar allt á kaffihúsinu.

Auðvitað.

Vonandi lærðirðu þína lexíu.

Algjörlega.

Ætlarðu á annan bardaga?

Í hinum enda bæjarins. Ég næ honum ef ég flýti mér.

Hvenær ætlarðu að nýta þennan ofurheila í þér?

Á ég að fara í háskóla eins og þú?

Svo aðrir geti kennt mér það sem ég veit?

Ótrúlegt.

Hvað hefðu mamma og pabbi sagt?

Ég veit það ekki.

Þau dóu þegar ég var þriggja ára, manstu?

Heyrðu.

Ég skal skutla þér.

Í alvöru?

Ég ræð því ekki hvort þú ferð en þú færð ekki að fara einn.

Geggjað.

TÆKNISTOFNUN SAN FRANSOKYO

Hvað erum við að gera í nördaskólanum þínum?

Bardaginn er í hina áttina.

ÞJARKARANNSÓKNIR

Ég þarf að sækja svolítið.

Verðum við lengi hérna?

Slakaðu á, stóra smábarn. Stökkvum inn og út.

Þú hefur aldrei séð rannsóknarstofuna.

Frábært, ég fæ að sjá nördastofuna þína.

Varúð.

Rafmagnssegulfjöðrun?

Heyrðu.

Hver ert þú?

-Ég heiti... -Gógó. Hiro, bróðir minn.

Velkominn á nördastofuna.

Já.

Ég hef aldrei séð rafmagnssegulfjöðrun á hjóli.

Engin mótstaða, hraðskreiðara hjól.

En ekki nógu hraðskreitt...

ennþá.

Vertu kyrr. Stattu aftan við línuna.

Wasabi, þetta er Hiro, bróðir minn.

Sæll, Hiro. Tilbúinn að heillast.

Gríptu.

Ja, hérna.

-Geislaskautað plasma? -Já.

Með segulafmörkun fyrir ofurnákvæmni.

Hvernig finnurðu eitthvað í þessari óreiðu?

Ég er með ákveðið kerfi.

Allt hérna á sinn stað og allt er á sínum stað.

-Mig vantar þetta. -Ekki.

Þetta er stjórnleysi. Samfélagið þarf reglur.

Afsakið.

Farið frá.

Tadashi.

Almáttugur, þú hlýtur að vera Hiro.

Ég hef heyrt svo mikið um þig.

Frábær tímasetning.

Slatti af volframkarbíði.

180 kíló. Komdu hingað.

Nú verður þú hrifinn.

Örlítil perklórsýra, smávegis kóbalt,

og vottur af vetnisperoxíði, hitað upp í 500 gráður á Kelvín.

Er þetta ekki ansi magnað?

Þetta er svo bleikt.

Þetta er það besta.

Ég veit.

Kemískur málm-mulningur.

Ekki slæmt, Sítrónuhunang.

Sítrónuhunang? Gógó? Wasabi?

Ég missti wasabi einu sinni niður á mig.

Einu sinni.

Freddi finnur upp á gælunöfnunum.

Hver er Freddi?

Þessi hérna.

Vertu óhræddur, þetta er búningur, ekki raunverulegt andlit og líkami.

Nafnið er Freddi.

Skólalukkudýr á daginn, en á kvöldin...

er ég líka skólalukkudýr.

Hvert er aðalfagið þitt?

Ég er ekki nemandi

heldur áhugamaður um vísindi.

Ég hef reynt að fá Hunang til að útbúa formúlu

sem breytir mér í eldspúandi eðlu

en hún segir að það séu ekki vísindi.

Það eru ekki vísindi.

Ekki heldur smækkunargeislinn sem ég bað Wasabi um?

-Eða hvað? -Nei.

Hvað með ósýnilegu samlokuna?

Hiro.

Hugsið ykkur að borða samloku og allir álíta ykkur geðbiluð.

Hættu þessu.

Geislaaugu? Kitlfingur?

Gerist aldrei.

Hvað með vaxtarmeðal?

Hverju hefur þú unnið að?

Ég skal sýna þér það.

Límband?

Mér þykir leitt að segja þetta en það er búið að finna það upp.

Heyrðu.

Gaur.

Ég hef unnið að þessu.

Halló, ég heiti Baymax

og er heilbrigðis- þjónustufélaginn þinn.

Ég sá að þig vantaði aðstoð þegar þú sagðir:

"Ái".

Hjúkrunarvélmenni.

Á skalanum 1 til 10, hversu mikið finnurðu til?

Líkamlega eða andlega?

Ég skal skanna þig.

Skönnun lokið.

Þú ert með örlítið sár á framhandleggnum.

Ég mæli með sótthreinsandi úða.

Rólegur, hvað er í úðanum?

Helsta innihaldsefnið er basítrasín.

Það er bömmer. Ég er með ofnæmi fyrir því.

Þú ert ekki með ofnæmi fyrir basítrasíni.

Þú ert með vægt ofnæmi

fyrir hnetum.

Ekki slæmt.

Hefur farið mikil forritun í þetta?

Hann er forritaður með 10.000 lækningameðferðum.

Kubburinn er það sem gerir Baymax að Baymax.

Vínyl?

Já, ég vildi að hann yrði ekki ógnandi heldur krúttlegur.

Eins og gangandi sykurpúði.

-Ekki móðgast. -Ég er vélmenni.

Ég get ekki móðgast.

-Litrófsmyndavélar? -Já.

-Títaníumgrind? -Koltrefjar.

Þá er hann enn léttari.

Geggjaðir hreyfihvatar. Hvar fékkstu þá?

-Við hönnuðum þá hérna. -Í alvöru?

Já, Hann getur lyft 450 kílóum.

Þegiðu.

コメント

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left