Le prime 200 righe.
Hvað ef ég gæti sett hann fyrir framan þig?
Manninn sem eyðilagði líf þitt?
Ef ég gæti ábyrgst að þú kæmist upp með það,
myndirðu drepa hann?
Aldrei gera í gær það sem ætti að gera á morgun.
Ef þér loksins tekst það skaltu aldrei reyna aftur.
Blackmore-krossinn.
Mér skilst að hann sé númer tvö.
Til hamingju.
Þú hefur þjónað með sæmd.
Svo þetta er búið?
Skipunin frá stjórninni kemur fljótlega.
Lokaskipunin?
Já.
Og sprengjuvargurinn?
Það er ekki lengur þitt vandamál.
Ég þarf ekki að minna þig
á mikilvægi lokaverkefnis þíns.
Svo þú skalt hvíla þig.
Sérhver grunaður maður menntar okkur.
Gerir okkur betri í því sem við gerum.
Enginn meira en þessi viðsjáli félagsblindingi.
SPRENGJUTILRÆÐI Í BOSTON DREPUR FIMM
Hann er skilvirkur.
Með nákvæmar tímasetningar.
Fjölmiðlar hafa kallað hann Sprengjuskussann.
Við stoppuðum hann núna.
10 ÁRUM SÍÐAR - ENN ENGINN GRUNAÐUR
En þetta var aðeins lítil árás.
Þetta er stóra áætlunin hans.
Mars 1975.
Hann breytir stöðugt deginum.
Sprengingin mun jafna tíu húsaraðir í New York við jörðu
og drepa rúmlega 11 þúsund manns.
Allt sem við höfum gert til að stöðva hann hefur mistekist.
En ég var nálægt því núna.
Bara ein tilraun í viðbót.
Ágræðslurnar hafa gróið.
Uppbyggjandi ígræðslurnar eru stöðugar.
En þú skilur
að þú munt líta öðruvísi út en þú manst.
Augun munu lagast.
Þú ættir að ná þér vel fyrir þetta lokaverkefni.
Og svo verð ég leystur frá störfum.
Það eru ekki bara líkamlegu áverkarnir.
Þú hefur unnið fleiri stundir á vettvangi
en nokkur hinna fulltrúanna sem mér hefur verið úthlutað.
Hætturnar eru raunverulegar.
Örin eru farin að gróa ágætlega.
SÁLFRÆÐIMAT geðrof - skapsveiflur - þunglyndi
Skemmdirnar á raddböndunum hafa minnkað
en munu ekki vaxa aftur nákvæmlega eins.
Þar fer söngferill minn.
Þú verður smátíma að venjast þessu.
Ég hef breyst svo mikið
að ég efast um að mín eigin móðir myndi þekkja mig.
Skipunin barst loks í dag.
Ég geri ráð fyrir
að það hafi verið óumflýjanlegt.
Þegar þú hlustar á þetta verða sjö ár liðin.
Fyrsta verkefni okkar
er alveg jafnmikilvægt og það síðasta.
Hvert þeirra færir okkur nær lokaáfangastað okkar.
Herra, réttu upp hægri höndina.
Sverð þú að hafa í heiðri þær reglur
-sem lýst er í T.B.R. lögum 7286? -Ég geri það.
Sættirðu þig við að öll frávik frá verkefnislýsingu
munu leiða til herréttarhalda? Og ef þú verður sakfelldur
þýðir það aftöku með banvænni sprautu.
Já.
Þakka þér fyrir, herra.
Þakka þér fyrir.
Tíminn. Hann nær okkur öllum.
Jafnvel þeim sem vinna við það sama og við.
Það má víst segja við séum snjallir.
Jesús minn, það hljómar hrokafullt að segja þetta upphátt.
Allt í lagi.
Ég skal orða það betur.
Það mætti víst segja
að við séum fæddir í þetta starf.
06 NÓV
Sjáðu þetta viðundur.
Gerðu svo vel, Derek.
Hvað má bjóða þér?
Gamlar nærbuxur.
Gamlar nærbuxur. Án klaka?
Skildu flöskuna eftir.
Eftir útlitinu giska ég á að þú sért ekki að fagna.
Eftir útlitinu?
Hvernig lít ég út?
Ég var bara að spjalla. Jesús minn.
Hann er kominn niður!
Hæ, félagi, tvo í viðbót.
Eftirdrykk, er það ekki?
Þú ert nýr.
Ég hef unnið hér í hálfan mánuð.
Jæja? Hvernig gengur?
Það hefur verið rólegt.
Fólk heldur sig heima.
Út af vonda Sprengjuskussanum?
Já, ætli það ekki.
Frábært.
Eins og það sé öruggara að fela sig.
Hræðir hann þig ekki?
Að hafa áhyggjur af furðufuglum í jarðlestunum breytir engu.
Það er satt.
Ég hef ekki séð þig hérna.
Kemurðu oft?
Ertu hommi eða hvað?
Hvað er að þér?
Heyrðu!
Ég var að grínast, maður.
Þetta var ekki fyndið.
Segðu mér þá einn góðan.
-Brandara? -Já, svona nú.
Þú veist, skotleyfi. Svona nú.
Nei, ég kann enga.
Þú vinnur á bar. Þú hlýtur að kunna brandara.
Nei, ég er lélegur í bröndurunum. Ég man þá aldrei.
Einn brandara?
Allt í lagi, ég kann einn.
En hann er ekki fyndinn.
Ég hlusta.
Jæja, maður gengur inn á bar.
-Jesús minn. -Bara að grínast. Nei, nei.
Ég er með einn góðan.
Hvort kemur á undan, hænan eða eggið?
Haninn.
Sko? Ég er hræðilegur.
Er þetta sá besti sem þú kannt?
-Já... -Þetta er ekki fyndið.
Ég sagði þér það.
En hugsarðu einhvern tímann um það?
Um hvað?
Þú veist, hvort kemur á undan.
Ætli mér sé ekki sama.
-Ég hef um annað að hugsa. -Allt í lagi.
Þú ert stórlax, sjáðu til.
Þú hefur mikilvægum hlutum að gegna.
Hvað gerirðu?
Það sem ég verð að gera.
Það er erfitt að vinna fyrir sér, það er víst.
Hvað veist þú um erfiðleika?
Jafnmikið og hver annar, held ég.
Hvað segirðu um eins mikið og einstæð móðir?
Hvað meinarðu með því?
Fyrir fjögur sent á orðið skrifa ég lífsreynslusögur.
"Einstæða móðirin" er höfundarnafn mitt.
Er þér alvara?
Já.
Einmitt. Einmitt!
Hvernig gengur?
Það gengur vel. Ég hef vikulegan dálk.
Ég skrifa hann, þeir prenta hann, ég borða.
Er það ekki?
-Lestu verk mín? -Já, já.
Ertu hissa á því?
-Já, dálítið. -Af hverju?
Þú passar ekki inn í lýðfræðina.
Lýðfræðina?
-Lýðfræðilega skiptingu. -Einmitt.
Brotnar konur sem vilja vera sáttari
við ömurlegt líf sitt með því að lesa
ólánssögur um ástarsorgir og svik
sem er smurt á glanssíður
25 senta sorptímarita.
„..HANDTEKIN...
Já, einmitt.
Þú ert nú aðeins of harður við sjálfan þig.
Þetta er rusl.
Ég hélt ég hefði hæfileika í að segja sögur en hver trúir því?
Seg þú mér það. Þú hefur lesið þær.
Ég verð að viðurkenna að ég hef átt nokkrar
dimmar nætur þegar ég hef leitað til þín
eftir smáinnsæi inn í kvenmannshugann.
Mér sýnist þú hafa góðan skilning á hugarfari kvenna.
-Hugarfari kvenna? -Já.
Já, ég þekki hugarfar kvenna.
Ég ætti að gera það.
Ertu giftur? Áttu systur?
Þú myndir ekki trúa mér ef ég segði þér það.
Það eina sem þetta starf hefur kennt mér
er að sannleikurinn er furðulegri en skáldskapurinn.
Ég hef heyrt ótrúlega hluti.
Ekkert kemur mér lengur á óvart.
Þú veist ekki hvað ótrúlegt þýðir.
Jæja? Láttu á það reyna.
Gerðu svo vel. Ég sé um þetta.
Gleymdu því. Ég segi þér það ekki.
Þú óttast að það sé ekki nógu gott.
-Heldurðu að þetta virki? -Já.
Erum við tólf ára?
Svona nú.
Ég veðja restinni af flöskunni að ég hef bestu sögu sem þú hefur heyrt.
Ég veðja fullri flösku.
Hvað segirðu?
Ef ég tapa?
Bættu bara 20 við þjórféð.
Því ekki það?
Heyrðu.
No comments yet. Be the first to leave one.