Mad City

Mad City

Unduh Subtitle Icelandic

Informasi rilis

Mad City 1997 DVDrip
Komentar oleh rippmaster

Tag

DVD
DVDRip
dvdrip
dvdr
Diterbitkan pada: 2021-08-01
Unduhan: 30
Tuna Rungu: No

Pratinjau subtitle Icelandic

200 baris pertama.

SAMBANDSBANKI FOOTHILL

Hr. Burns, hefurðu eitthvað að segja um hugsanlega ákæru á þínar hendur?

Ég verð að fara á sjúkrahúsið. Konan mín er veik.

Mér þykir það leitt. Þú getur kannski sett þig í spor þeirra...

sem hafa verið rúnir ævisparnaði sínum.

-Hvað um þá? -Ég hef ekkert að segja.

-Hversu marga hefurðu sært? -Ég hef ekkert að segja.

Veistu hversu margir...

eldri borgarar yfir 65 ára aldri...?

Hr. Burns hafði ef til vill ekkert að segja fyrir framan KXBD...

en hann neyðist kannski til að tala fyrir framan saksóknara.

Eftirgrennslan þessa fréttamanns sem hér stendur var hvati rannsóknar...

á Ralph Burns og hlutverki hans í Sambandsbankahneykslinu.

-Við notum þetta ekki. -Við erum einir með þessa frétt.

-Þetta eru getgátur. -Hreint ekki.

Leyfðu mér að ná honum aftur. Segðu honum að svara spurningunum.

-Af hverju? -Þú ert ekki dómari eða við kviðdómur.

-Þú þekkir hann, ekki satt? -Já, ég þekki hann.

-Þú spilar með honum golf. -Á stundum.

Konan hans er með krabbamein. Hann er undir þrýstingi. Láttu hann vera.

Bíddu. Þrjár spurningar.

Nei, nei og aftur nei.

Hann er þorpari. Hann stal peningum.

Hann tók sparnað eldri borgara.

Við birtum að hann hafi ekkert að segja og lokum málinu.

Við sitjum ekki fyrir honum á vinnustað hans.

Ég vil ekki sitja fyrir honum. Ég vil bara spyrja hann einnar spurningar.

Þú ert vægðarlaus, veistu það?!

Þú virðist gleyma að við sjáum um fréttaflutning...

af þessu svæði fyrir fólkið á þessu svæði.

Og við erum ekki að fara neitt. Erum við að fara eitthvert, Max?

-Ef þeir vildu mig aftur í New York... -Þeir vilja þig ekki.

Þú ættir að sætta þig við það. Ég gerði það.

Síðan ég kom fyrir 11 mánuðum, hefur áhorfið farið úr 3 í 9 punkta.

Afsakið!

Afsakið, gott fólk!

Hver á að kyssa rassinn á Max Brackett þessa vikuna fyrir að bjarga rásinni?!

Bankafréttin gæti látið þig líta út eins og alvöru fréttastöð.

Nei, ekki hér. Það er strik sem ég fer ekki yfir.

-Ég er ekki að biðja þig um það. -Jú, þú ert að því.

Nei. Ég segi: Þú færir strikið og þú getur birt fréttina.

Ertu á leið á safnið?

Já, ég ætla að reyna að ná því inn fyrir hádegið.

Hr. Brackett tekur að sér þetta verkefni.

Ríkið hefur sagt upp einhverju fólki þarna.

Frábær frétt. Þú ættir að hafa skilning á þessu.

-Ég verð að klára að klippa. -Ég skal gera það. Til hvers eru vinir?

Þú ert algjör hálfviti.

-Hvað er ég? -Dásamlegur maður.

Af hverju ferðu ekki á safnið með hr. Brackett?

Þú getur myndað þarna niður frá. Við notum efnið kannski í kvöld.

Hún er í starfsreynslu!

Vertu þá lærimeistari hennar. Kenndu henni að "færa strikið."

Ég er hommi.

NÁTTÚRUFRÆÐISAFNIÐ

Hr. Brackett...

Max.

Má ég setja á þig hljóðnema?

Við látum safnvörðinn útskýra af hverju safnið standi frammi fyrir niðurskurði.

Og svo finnum við nokkra íbúa til að segja okkur...

að án safnsins sé borgin hundageymsla.

Svo, til að sinna ferli þínum vel, býðurðu mér í hádegismat.

-Þú verður að svara. -Þú ert tilbúinn.

Er þetta svarið?

Þú gerðir þetta vitlaust.

Það er betra að setja hann á jakkaboðunginn.

Geturðu aðstoðað mig? Við erum að leita að safnverðinum.

Ég þekki þig. Úr sjónvarpinu, ekki satt?

-Einmitt. -Þú ert náunginn úr sjónvarpinu.

Þú ert náunginn á safninu.

Nei, ég er öryggisvörðurinn.

-Á safnið í fjárhagserfiðleikum? -Hvort það á.

Við vorum tveir. Hinum var sagt upp.

-Er það virkilega? -Maður veit aldrei hver er næst.

Hinkraðu aðeins. Kannski fáum við þig til að segja þetta í mynd.

Í alvöru?

Frú Banks er þarna inni.

Einmitt. Við borgum ekki mikið.

Meira en það sem ég vinn mér inn hér.

Þetta eru ekki Móhíkanar, hr. Brackett. Mivokar eru frá norður-Kaliforníu.

Fortíð þeirra er mjög verðmæt.

Við erum með til sýningar núna stærsta safn indíánakarfa...

sem hefur verið tekið saman af safni af þessari stærð.

Sumir kunna að segja að það sé ekki ábyrgt...

að veita peningum til deyjandi stofnunar.

Þá skulum við loka bókasöfnum, söfnum og sinfáníuhljómsveitum.

Ef við lærum ekki af fortíð okkar, erum við...

dæmd til að endurlifa hana.

Já, Mort.

Ég sé risaeðlur.

Það sem við óttumst í dag er að safnið hljóti sömu örlög.

Það er rétt, Mort.

Það er einmitt það sem við óttumst.

Mjög gott. Takk fyrir.

Þetta er í lagi, Mort.

Við erum búin.

Gott. Þú hlýtur að hafa gert þetta áður.

Almáttugur, nei. Það hef ég ekki.

Mér þykir vænt um þetta safn. Langafi minn stofnaði það.

Einmitt. Ég þakka þér fyrir að hafa hitt okkur og óska þér góðs gengis.

Komdu hingað niður.

Hér við hliðina eru uppstoppaðir fuglar. Komið og skoðið.

Láttu mig hafa hljóðnemann. Náðu einhverju af þessu.

Annar er frá Krítartímabilinu, hinn frá Júratímabilinu.

Ég veit. Komdu, förum.

Af hverju eru þeir saman?

Viltu fara út og taka yfirlitsmyndir?

Hvar er baðherbergið? Ég ætla að taka mig til.

Hafðu vélina tilbúna. Ég ætla að taka smá kynningu fyrir kvöldfréttirnar.

Fyrirgefðu.

Fyrirgefðu.

Ég stend fyrir framan safnið...

þar sem fortíðin hefur rekist á harðæri nútíðarinnar.

Raunar stendurðu við pissuskálina á safninu og gettu hver er kominn.

Vinur þinn, typpið.

Ágætur, heiðarlegur, ungur maður.

Nei, hann er ekki hvorki ungur né heiðarlegur lengur.

Segðu mér, typpi hvað segirðu um stöðu mína?

Max, ég held að þú ættir að fara að pakka niður .

Ég get það ekki. Þeir notuðu mig þar.

Það er meira en gerist hér.

Talandi um notkun...

ég er hálfveikur fyrir...

þessari ungu myndatökustúlku sem vinnur fyrir þig.

Í alvöru?

Hún gæti verið dóttir mín. Ég veit það. Akkúrat fyrir mig.

Þú ættir ekki að vera hér.

Frú Banks. þú verður að hlusta á mig.

Ég þarf ekki að gera neitt slíkt.

-Bara í eina mínútu. -Ég sagði þér að ég gæti ekkert gert.

Ég myndi sætta mig við launalækkun, ha?

Áttu við heyrnarvandamál að stríða?

Nei, ekkert heyrnarvandamál.

Þetta er ekki lengur í mínum höndum.

Þú ert að eyða tíma okkar beggja. Þú verður að fara strax. Strax.

Komdu þér út!

Þegar í stað!

Ætlarðu núna að hlusta?

Ætlarðu að hlusta?

Ætlarðu að gera það?

Ætlarðu að hlusta á mig?

Þú hlýtur að vera að grínast.

Nei, ég er ekki að grínast.

Allt í lagi, stansiði. Stansiði.

Standið þið bara kyrr þarna, ókei?

Og hafið þögn.

Og ekki vera hrædd við byssuna.

Ég verð að tala við hana.

Ég þarf 5 mínútur með þér, það er allt og sumt.

Ég vona að þú beinir þessu ekki að mér.

Þegiðu bara.

Er þetta einhvers konar brandari?

Af því að þetta verður ekkert fyndið þegar lögreglan kemur.

Þegiðu!

Láttu mig hafa lyklana.

Drífðu þig.

Fjárinn.

Komið þið hérna.

Rólega.

Ég vona að við sjáum skothríð.

Bíll tvö, þetta er Laurie.

Samþykkirðu að greiða fyrir símtal frá Max Brackett?

Hr. Brack... ég meina, Max?

Það er maður með byssu hérna.

Hvar ertu?

Á safninu.

Allt í lagi, ég hringi á lögregluna.

Hringdu í Lou. Við förum í loftið. Við hringjum í lögguna þegar þar að kemur.

Ég held að ég ætti...

Það eru alvöru fréttir í gangi hérna. Ekki klúðra þessu.

Allt í lagi, ég hringi í Lou.

Lou, lína 3. Það er Laurie. Þetta er áríðandi.

Brackett aftur. Hvað ertu með?

Byssumann.

Hann er með haglabyssu og strigapoka. Ég giska á fleiri skotvopn.

Hann er með 2 fullorðna og nokkur börn í gíslingu.

Laurie, hversu fljótt geturðu sett okkur í loftið?

Eftir 2 mínútur.

Það er of langur tími.

Segðu Dohlen að gera sig kláran að fara í loftið með Max. Hann er með gíslatöku.

Max, Mort gefur þér merkið. Hlustaðu á mig.

Það eru börn með í spilinu. Við viljum engin látalæti.

Engar áhyggjur. Við erum með gott efni.

Haltu línunni opinni.

Við erum í loftinu.

Við skiptum nú yfir til Max Brackett, sem er á Náttúrufræðisafninu...

þar sem fólki er haldið í gíslingu.

Heyrirðu í mér?

Já, ég heyri. Ég er staddur inn á karlasnyrtingunni...

Fáðu öll myndatöku- og hljóðteymi sem þú getur fundið.

Flestir þeirra eru börn.

Veistu hvað fyrir honum vakir?

Ég veit það ekki. En ég get sagt þér að byssumaðurinn virðist æstur.

Geturðu flúið ?

Heyrirðu í mér?

Hugsaðu um hvað þú ert að gera.

Heyrirðu í mér, Max?

Veit Jen að þú ert hér?

Ég veit ekki hversu mikið lengur ég get...

-Ég vil að þú haldir ró þinni. -Nei, vert þú róleg.

Komentar

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left