Les 200 premières lignes.
Eftir árin sjö á sjó ég landið eygi
Og ég kemst nú loks úr heimshafanna klóm
Hefur dreymt um þessa borg á hverjum degi
Þarna kem ég brátt að landi
Heyri hafnarbjölluhljóm
Land fram undan!
Ég á rifna yfirhöfn og snjáða tösku
Bless, matsveinn.
Og á skónum ansi vegleg göt má sjá
Afsakaðu, kokkur.
Kominn tími til að rísa
Upp úr ösku
Verð að vinna eins og skepna
Til að hafa í mig og á
Alla ævi hef við súkkulaði brasað
Ég mun selja það við mikla gleði og glaum
Gangi þér vel, Villi!
Ég á tólf silfurskildinga
Í vasa
Bless, kokkur!
Og í hattinum draum
Hér má finna margan nafntogaða brytann
Hjá Brandino eða á Parisienne-bar
- Veitingahúsakort? - Takk.
Ég fékk lítið kort sem vísar mér á bitann
SÆLKERASLÓÐ
En hvar áður voru tólf
Nú eru tíu skildingar
Mestu kræsingar við öllum hérna blasa
Þrjá skildinga.
En ég okurverði gef að vísu gaum
Þú brýtur, þú borgar.
Ég á...
Fimm, sex, sjö.
Sex silfurskildinga í vasa
Og í hattinum draum
- Bursta frakkann? - Nei, takk.
- Ilmvatn? - Láttu mig vera.
SÆLKERASLÓÐ
Og loks...
Á sælkeranna slóð
SNIGILS GÆÐASÚKKULAÐI
Ég vissi að reynslan yrði góð
FÍNASTA SÚKKULAÐI FINKUGRUBBA
Eins og þú lýstir, mamma
Og miklu meira en það
Við sérhvert horn má finna Frægan súkkulaðistað
Hingað liggja allir örlaganna þræðir
Mun ég hrapa eða svífa í hæstu hæðir?
Súkkulaðið mitt er allt sem frá mér flæðir
Og í hatti
Á ég draum
Já!
WONKA HÁTÍÐAROPNUN
Enga dagdrauma.
TIL LEIGU DAGDRAUMASEKT
Já, og hagsældin hér enga getur flúið
Ef þeir sýna iðjusemi við sitt fag
Enginn sagði að það yrði svona snúið
Bara að láta silfurskildingana
Endast heilan dag
Gætirðu gefið mér skilding fyrir náttstað, ljúfur?
Auðvitað.
Hérna. Taktu allt sem þú þarft.
Þakka þér fyrir.
Ég á einn silfurskilding enn í vasa
Og í hattinum draum
Svona.
Einn drykk fyrir háttinn.
Allt í lagi.
Halló. Nei, hættu þessu. Farðu.
Snáfaðu burt!
Burt með þig! Burt!
Hættu!
Sestu.
Afsakaðu Tedda.
Hann hefur óvenjulegan áhuga á fótleggjunum á þér.
Hljóta að vera buxurnar.
Ég fékk þær frá bréfbera í Minsk.
Það er málið.
Teddi myndi eyða öllum deginum í að elta bréfbera ef hann gæti.
Ekki satt, karlinn?
Ætlarðu nokkuð að sofa þarna, vinur?
Aðeins eina nótt.
Á sama tíma á morgun verð ég ríkur.
Á sama tíma á morgun verður þú gaddfreðinn.
Hvaða vitleysa.
Kannski er of kalt fyrir útilegu.
En ég hef því miður ekki efni á herbergi.
Það var leitt að heyra.
En það vill svo heppilega til
að ég þekki aðila sem gæti hjálpað þér.
Er það?
Hér er þetta, herra Wonka. Heima er best.
Farðu með skítugar loppurnar af hurðinni, hundskratti.
Eins gott að þú sért með ginið, Bleikir.
Ég er með nokkuð betra en gin, frú Skrúbba.
Ég er með gest.
Því sagðirðu það ekki?
Komdu inn, herra.
Velkominn á Gistiheimili og þvottahús Skrúbbu og Bleikis.
Vertu eins og heima hjá þér og yljaðu þér við eldinn.
Gin?
Núðla!
Já, frú Skrúbba?
Leggðu bókina frá þér og færðu gestinum gin.
Garmurinn er hálffrosinn.
Takk, frú Skrúbba. Þið eiginmaðurinn eruð mér góð.
Eiginmaður?
Hann?
Eiginmaður.
Vildirðu það ekki?
Nei.
Ég bíð eftir miklu betri manni en þessum lata ónytjungi.
Skál í boðinu.
Þetta er alveg rótsterkt.
Virkar sem eldsneyti.
Hvað má bjóða þér? Herbergi?
Já, en...
Herra Wonka er á flæðiskeri staddur.
Nei, þú segir ekki.
Það er því miður satt.
En hagurinn vænkast brátt.
- Nú? - Sjáðu til...
ég er töframaður,
uppfinningamaður og konfektmeistari.
Strax í fyrramálið, á Sælkeraslóð, ætla ég að afhjúpa
undraverðasta sköpunarverk mitt.
Þið verðið agndofa þegar ég kynni...
Teketil?
Nei, hann er bara fyrir te.
Augnablik.
Þetta fer í kássu.
Þetta er hérna.
Engar áhyggjur. Ég sé að þú ert hugvitsmaður.
Við höfum það sem þú þarft.
Frumkvöðlapakkann okkar.
Nóttin kostar skilding
en greiðslufrestur er til 18 á morgun. Er það nægur tími?
Meira en nægur tími.
Takk fyrir.
Minna má það varla vera fyrir ókunnuga í neyð.
Kvittaðu hérna og allt er klárt.
Allt í lagi.
Lestu smáa letrið.
Hvað segirðu?
Þakka þér fyrir, Núðla.
Hvað sagði hún?
- Hver? - Stúlkan.
- Hvaða stúlka? - Það hljómaði eins og...
"lestu smáa letrið" og það...
SKILMÁLAR
Það heldur bara áfram.
Ekki hlusta á Núðlu, Wonka. Hún er sködduð.
Sködduð?
Munaðarleysingjaheilkenni.
Munaðarleysingjaheilkenni?
Munaðarleysingjaheilkenni.
Munaðarleysingjaheilkenni.
Hún var sett í þvottarennuna
þegar hún var barn og ég tók hana að mér.
Ég hef gert mitt allra besta
en hún er tortryggin að eðlisfari.
Hún sér samsæri í hverju horni.
Stúlkugreyið.
Ég veit.
Þetta er dæmigerður samningur
en þér er velkomið að lesa hann.
Ég renni yfir hann.
Þetta er allt í fína.
Í alvöru?
Halló.
Velkominn til Skrúbbu.
KOMDU YFIR NÓTT OG GISTU AÐ EILÍFU!
Gjörðu svo vel.
Frumkvöðlasvítan.
Þarna er rúmið, vaskurinn og sápan
og minta á koddanum.
Frábært.
En vingjarnlegt fólk.
Núðla!
Ó, Núðla!
Já, frú Skrúbba?
Ég leitaði að þér.
Hvað viltu?
Kenna þér lexíu, bókaormur.
- Hvað gerði ég? - Þú veist það, krakkagerpi.
- Vertu kyrr. - Ekki.
Ef þú truflar viðskiptin aftur
færðu að dúsa í kofanum í viku. Skilurðu það?
Já, frú Skrúbba. Mér þykir þetta leitt.
Það er eins gott.
Þá er komið að því, mamma.
Dömur mínar og herrar á Sælkeraslóð,
ég heiti Villi Wonka
og ég ætla að sýna ykkur kostulegt konfekt,
makalausan mola
og ofurgott gotterí
sem er engu öðru líkt.
Hafið hátt og hlustið hljótt.
No comments yet. Be the first to leave one.