Superman

Superman

Lataa Icelandic -tekstitys

Julkaisutiedot

Superman 1978 Theatrical BluRay-isl
Kommentaari rippmaster

Tunnisteet

bluray
Julkaistu: 2022-10-22
Lataukset: 50
Kuulovammaisille: No

Icelandic tekstityksen esikatselu

200 ensimmäistä riviä.

Tileinkað GEOFFREY UNSWORTH, með ást og virðingu.

JÚNÍ 1938

HASAR TEIKNIMYNDASÖGUR

"Á fjórða áratugnum slapp jafnvel ekki stórborgin Metropolis

við eyðileggingu vegna heimskreppunnar.

Á tímum hræðslu og uppnáms

var það á ábyrgð Daily Planet að koma

upplýsingum til almennings.

Stórborgarblað

þar sem orðstír um einlægni og sannleika hafði orðið að vonarneista

fyrir borgina Metropolis."

Þetta er engin ímyndun.

Ekki hluti af fjörugu ímyndunarafli.

Nei, vinir mínir,

ákærurnar

sem ég hef í höndunum,

eru sérstaklega skráðar hér gegn einstaklingunum

og föðurlandssvikum þeirra. Síðasta áróðursbragð þeirra.

Þetta

eru óyggjandi staðreyndir.

Ég bið ykkur nú um að kveða upp dómsúrskurð

yfir þeim ákærðu.

Gegn þessum

vægðarlausu glæpamönnum

sem hafa einungis taumlaust ofbeldi og eyðileggingu að leiðarljósi.

Gegn konunni, Ursa,

sem með spillingu og hatri á öllu mannkyni

hefur ógnað jafnvel börnunum á plánetunni Krypton.

Að lokum, Zod hershöfðingi.

Sem ráðið gat einu sinni treyst,

er ákærður um að viðhalda vörnum plánetunnar Krypton.

Foringi uppreisnarinnar

og upphafsmaður að þessu laumulega samsæri

um að koma á fót nýju skipulagi á meðal okkar

þar sem hann yrði leiðtogi allra.

Þið hafið heyrt sannanirnar.

Við munum nú hlýða á ákvörðun ráðsins.

Sek!

Sek!

Ákvörðunin verður að vera samhljóða.

Nú er komið að þinni ákvörðun.

Þú einn munt geta sakfellt okkur

og ég mun halda þér einum til ábyrgðar!

Gakktu til liðs við okkur!

Þú hefur áður verið ósammála ráðinu.

Skoðun þín gæti orðið mikilvæg í nýja skipulaginu!

Ég gef þér færi á mikilleika, Jor-El!

Taktu því! Gakktu til liðs við okkur!

Þú munt krjúpa frammi fyrir mér, Jor-El.

Ég sver það! Þótt það taki heila eilífð!

Þú munt krjúpa frammi fyrir mér!

Og dag einn,

erfingjar þínir líka!

Fyrirgefðu mér...

Óþægilegum skyldum hefur verið framfylgt, Jor-El.

Þau hafa hlotið verðskulduð örlög.

Einangrun í alheimstóminu,

eilífur lífsdauði.

Þrátt fyrir það, er það möguleiki til lífs.

Andstætt okkur.

Þetta er sjálfsmorð.

Nei, verra en það, þetta er þjóðarmorð.

Gættu þín, Jor-El.

Ráðið hefur nú þegar metið þessa framandi kenningu þína.

Vinir mínir, þið vitið að ég rasa ekki um ráð fram.

Ég er ekki gefinn fyrir að koma með óhugsaðar yfirlýsingar

og ég segi því að við verðum að yfirgefa plánetuna tafarlaust.

Jor-El, þú ert einn af bestu vísindamönnum Kryptons.

Já, en það er Vond-Ah einnig.

Ég efast ekki um upplýsingar þínar.

Staðreyndirnar eru óyggjandi.

Það er niðurstaða þín sem okkur líkar ekki.

Plánetan springur innan 30 daga.

Ef ekki fyrr.

Krypton er einfaldlega að breyta sporbraut sinni.

Jor-El,

vertu skynsamur.

Vinur minn,

ég hef alltaf verið það. Þú ert brjálaður.

Umræðunni er lokið.

Ákvörðun ráðsins er endanleg.

Reynir þú að skapa

hræðslu og ringulreið meðal almennings,

verðum við að líta á það sem uppreisn.

Mynduð þið ásaka mig um uppreisn?

Er það glæpur að varðveita lífið?

Þú yrðir dæmdur í lífstíðarfangelsi

í alheimstóminu:

Tóminu eilífa

sem þú uppgötvaðir sjálfur.

Muntu hlíta ákvörðun ráðsins?

Ég mun þaga.

Hvorki ég né eiginkona mín,

munum yfirgefa Krypton.

Ertu búinn?

Næstum því.

Þetta er eina lausnin, Lara.

Ef hann verður eftir

mun hann deyja með okkur.

En af hverju jörðin, Jor-El?

Fólkið er frumstætt, þúsund árum á eftir okkur.

Hann mun þurfa það forskot til að lifa af.

Lofthjúpur þeirra

mun halda lífi í honum.

Hann mun ögra þyngdarafli þeirra.

Hann mun líkjast þeim.

Hann verður ekki einn af þeim.

Nei.

Þétt sameindasamsetningin mun gera hann sterkan.

Hann verður skrýtinn. Öðruvísi.

Hann verður fljótur. Nánast ósigrandi.

Einangraður. Einsamall.

Hann verður ekki einsamall.

Hann mun aldrei verða það.

Orkustreymið til híbýla Jor-Els er núna í hámarki.

Upplýsingarnar sýna að tapið er sökum misnotkunar á orku.

Rannsakið málið.

Og ef rannsóknin reynist vera rétt?

Hann vissi að hverju hann gekk.

Hann er meira að segja meðlimur ráðsins.

Lögunum verður framfylgt.

Þú munt ferðast langt, litli Kal-El.

En við yfirgefum þig aldrei.

Jafnvel frammi fyrir dauðanum

mun lærdómur lífs okkar

verða þinn.

Allt sem ég á, allt sem ég hef lært, tilfinningar mínar,

allt þetta og meira til,

ánafna ég þér, sonur minn.

Andi minn mun fylgja þér

allt þitt líf.

Þú munt gera styrk minn að þínum eigin,

sjá líf mitt með þínum augum,

eins og ég mun sjá líf þitt.

Sonurinn verður að föður og faðirinn

að syninum.

Þetta er það eina

sem ég get gefið þér, Kal-El.

...sem Einstein kallaði afstæðiskenninguna.

Fellt í kristallana fyrir augum þér,

er fullkomið safn af bókmenntum og vísindalegum staðreyndum

frá öðrum heimum,

sem nær yfir 28 vetrarbrautir.

Gömul kínversk ritverk benda á flókið samband...

Með því að setja þessa jöfnu í óendanlegt veldi, sonur minn...

Fremst þessara krafta verður sjón þín,

styrkur þinn, heyrn þín,

geta þín til að knýja sjálfan þig áfram á næstum ótakmörkuðum hraða.

Saga alheims okkar til forna einkenndist af stríði milli pláneta.

Allar sex vetrarbrautirnar sem þú munt fara í gegnum

geyma eigin lögmál um rúm og tíma.

Þér er bannað að skipta þér af mannkynssögunni.

-Hvað! -Hvað var þetta?

Er þetta ekki dæmigert.

Í öll þessi ár, svona hamingjusöm,

hvað ég hef oft beðið guð um að færa okkur barn.

Elskan, viltu rétta mér tuskuna.

Farðu varlega.

Mundu hvað Frye læknir sagði um hjartað þitt.

Það fyrsta sem við verðum að gera þegar heim kemur er að komast að því

hver fjölskylda drengsins er.

Hann á enga. Allavega ekki hér um slóðir.

Ertu að hugsa það sem ég held þú sért að hugsa?

Við gætum sagt að hann sé barn frænku minnar í Norður-Dakóta

og sé orðinn munaðarlaus.

Jonathan, hann er bara barn.

Martha, þú sást hvernig við fundum hann.

Martha Clark Kent, ertu að hlusta á mig?

Þetta var góður leikur.

Allt í lagi.

Flýtið ykkur, við skulum fara. Hlaðið hjálmunum snyrtilega.

Munið að hafa búningana hreina

fyrir morgundaginn, svo þið lítið út eins og ruðningslið.

Fötin eiga að vera hrein og tilbúin fyrir leikinn á morgun.

Við sigrum Mount Vernon-skólann.

Fæ ég far hjá þér?

Lana?

Hafðu ekki áhyggjur af þessu. Ég tek þetta með hinum útbúnaðinum.

-Takk fyrir, Clark. -Ekkert að þakka.

Heyrðu, hópur af krökkum ætlar heim til Mary Ellen.

Við ætlum að hlusta á plötur. Viltu koma?

Auðvitað.

Það gæti orðið skemmtilegt.

Kent kemst ekki. Hann þarf að gera heilmargt ennþá.

Hvað ertu að segja? Ég var að ljúka við að hlaða...

Öllu þessu?

Ó, Brad!

Komdu, Lana.

Komdu, við skulum fara.

-Hann þarf að ganga frá. -Bless.

-Bless, Lana. -Gakktu frá, Clark.

Bless, Clark.

Sjáumst á morgun. Bless.

Vá! Ég sá strák úti sem hljóp eins hratt og lestin!

Jafnvel hraðar!

Lois Lane, þú ert efni í rithöfund.

-Það máttu þó eiga. -En...

Lois, lestu bókina þína.

Það trúir mér aldrei neinn.

Sjáiði, þarna er Clark!

Kommentit

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left