Esimesed 200 rida.
Fjandans!
Fyrirgefðu! Þetta var alveg óvart.
Nei!
Hættu nú!
Nate!
Ég hef tak á þér.
Hjálp, ég er að detta!
BOSTON 15 ÁRUM ÁÐUR
Ég hef tak. Svona.
Guð minn góður! -Ekki hafa hátt.
Skildirðu ekki að ég sagði þér að bíða?
Ég sagðist ætla að koma með þér.
Við leitum að sýningu á landkönnunarferðunum.
Hafðu ekki hátt.
Kúlutyggjó?
Þetta er það síðasta. Deilum því.
Asni.
Jæja, gáfnaljós, hver er þetta?
Of létt. Ferdinand Magellan. Fyrstur til að sigla umhverfis heiminn.
Vitlaust.
Magellan komst ekki allan hringinn. Hann eignaði sér það bara.
Hver fjandinn. Þarna er það.
Hvað?
Komdu hingað.
Fyrsta kortið af öllum heiminum.
Veistu hverju Magellan leitaði að?
Gulli.
En hann komst ekki heim.
Er allt gullið þá glatað?
Týnt. Ekki glatað.
Það er munur á. Ef eitthvað er týnt
er hægt að finna það.
En við erum svo heppnir að hafa sjóræningjablóð í æðum.
Arfur frá sjálfum Francis Drake.
Eða svo sögðu mamma og pabbi.
Stundum held ég að þau séu einhvers staðar.
Eins og þau hafi villst.
Þau villtust ekki. Þau eru dáin.
Þetta kort er mjög verðmætt.
Látum vaða.
Svona nú.
Förum.
Þið þarna! Kyrrir.
Fjandans.
Við komum með þá hingað í virðingarskyni, systir.
En þetta er hans þriðja brot.
Sæktu pjönkur þínar, Sam.
Þú getur ekki látið þá taka hann.
Kveddu hann.
Hver andskotinn?
Þeir læsa mig ekki inni. Útilokað.
Ég kem með þér.
Ekki í þetta sinn.
Komdu hingað.
Hefurðu séð mig án þessa nistis?
Nei.
Svo þú veist að ég skil það aldrei við mig.
Ég verð alltaf hjá þér.
Það stendur, „Sic parvis magna“.
„Mjór er mikils vísir.“
Það á við um okkur.
Förum nú, stráksi.
Ég verð að drífa mig.
Ég kem og sæki þig, Nate.
Ég lofa því.
Mundu að þú ert kominn af Drake. Ég elska þig.
NEW YORK NÚTÍMINN
Ja hérna, er þetta ekki starfsmaðurinn mikli og fyrrverandi, hann Nate?
Sá mikli er í það minnsta rétt.
Goldie, ég kom með dótið þitt. -Takk.
Hvernig gekk í gær? -Vel.
Var hann sætur? -Mjög sætur.
Gott.
Afsakaðu.
Fyrirgefðu.
Hvað má ég færa þér?
Vodka og tónik. -Hættu nú.
Fyrsti drykkur kvöldsins. Prófaðu mig.
Ég veit ekki. Negroni.
Ne... hvað?
Ég er að grínast.
Negroni.
Fyrst blandaður árið 1919 fyrir Camillo Negroni greifa
þegar hann setti gin í stað sódavatns í drykkinn sinn, Americano.
Ég hef ekki séð þig hér áður.
Þetta er ekki mitt hverfi.
Hvaðan ertu?
Greenwich. -Það hljómar vel.
Barþjónarnir þar kenna ekki sögu.
Barþjónarnir í Greenwich blanda ekki svona Negroni.
Viltu hafa reikninginn opinn? Opinn víst. Pabbi á peningana.
Sígarettan.
Uppfinning Alfonsos Cigaretti árið 1462.
Ég er að grínast. Ég veit ekki hver fann upp sígarettuna.
Þú ert dálítið skrýtinn. En líka dálítið sætur.
Þá er ég dálítið móðgaður en líka dálítið montinn.
Hérna.
Svona nú.
Þetta er bara betra. Ég hef reynt að hætta.
Kannski er þetta merki.
Eða kannski vantar þig kveikjara sem virkar.
Þetta gamla drasl?
Hann virkar.
Stelpan þarna með sjóðinn.
Hún var rétta markið.
Ég veit ekki hvað þú ert að segja. -Víst veistu það.
Þú ferð varlega, án áhættu, ræðst ekki í of mikið strax.
Leiðréttu mig ef það er rangt.
Það er rangt. Og það er lokað.
Farðu nú.
Victor Sullivan. Þú mátt kalla mig Sully.
Takk. Ég geri það ekki. En takk samt.
Ég er að byrja á stóru verki. Mig vantar hjálp.
Ráfarðu inn á bari í leit að samstarfsmanni?
Ég býð þér alvöru leið héðan burt.
Tækifæri til að sjá staði sem þú lest bara um.
Hvað segirðu?
Þú ferð mannavillt, Victor.
Ég er ekki mark á bar.
Og suma hér langar að komast heim.
Farðu út.
Gott og vel.
Bless þá.
Láttu mig fá bjór, Goldie.
Sjálfsagt.
VICTOR SULLIVAN EINKAVIÐSKIPTI
ÞÚ SKALT EKKI STELA!
Tíkarsonurinn.
Passaðu þig, maður.
Fyrirgefðu, ég sá þig ekki.
SKIP MAGELLANS
Þolinmæðin telst ekki til þinna dyggða.
Ertu hissa að sjá mig?
Ekki hið minnsta. Ég blandaði drykk fyrir þig.
Shirley Temple. En fyndið.
Og armbandið?
Í efstu skúffunni í skrifborðinu ef þú vilt það.
En ég held þú hafir komið vegna stærri verkefna.
Nei, ég vil bara armbandið.
Ertu búinn?
Nei.
Þetta virðist verðmætt.
Nú er ég búinn.
Af hverju kortið? Þú stansaðir strax við það.
Það virðist vera upprunalegt.
Virðist ekki. Er það.
Hver fjandinn.
Þessi lína sýnir leið Magellans til að sigla umhverfis heiminn.
Hann varð fyrstur. Þú kannt söguna.
En hann varð ekki fyrstur.
Magellan dó á einhverri strönd á Filippseyjum.
Skipstjórinn, Juan Sebastián Elcano lauk ferðinni ásamt 17 öðrum.
Líka þekktir sem hinir 18 alræmdu.
Ég þekki söguna en þetta var ekki landkönnunarferð
heldur leit að gulli. En það er bara saga.
Nei. Ég er ekki sammála.
Þessar ferðir voru óskaplega dýrar.
Of dýrar fyrir Spánarkonung.
Það var einkafjármagni að þakka að ferðin var farin.
Moncada-ættin. -Já.
Fjármagnaði krossferðirnar, Rannsóknarréttinn, fasista Francos
og allan hrylling sem hægt er að hugsa sér.
Þeir buðu Magellan þessa miklu könnunarferð
ef hann kæmi til baka með gullið.
Hve mikið gull? Í dölum í dag? Örugglega fimm milljarða.
Það er stærsti fjársjóður sem er enn ófundinn.
Mig hefur dreymt um þetta síðan ég var lítill.
En einhvern veginn vissirðu það.
Þegar Sam sagðist eiga yngri bróður
sem var jafn spenntur fyrir þessu trúði ég því ekki.
Þekkirðu Sam bróður minn?
Við vorum eiginlega vinir.
Það er ekkert lítið miðað við mína félaga.
Sjáðu.
Sjá hann. Hann er með skegg.
Hvar er hann? Hvenær tókstu þetta?
Tæp tvö ár síðan í San Sebastián á Spáni.
Við vorum að nálgast gröf Elcanos þar sem Sam hélt dagbók hans væri
með staðsetningu gullsins. Svo hverfur hann.
Hringir ekki, svarar ekki, engin skilaboð. Hann hunsaði mig.
Það er honum líkt.
Hefur hann ekki samband?
Sam? Nei.
Ekki einu sinni póstkort?
Nei, engin kort, símtöl, skilaboð, rafpóstur, ekkert.
Ég veit ekki hvað gerðist milli ykkar en ef við finnum gullið
held ég að við myndum finna hann.
Hvað segirðu um það?
Sam fór þegar ég var tíu ára.
Hann hringdi stöku sinnum og lofaði að koma aftur.
Sá Sam sem þekkti hvarf fyrir löngu síðan.
Nei. Finndu einhvern annan.
Ja hérna. Ég er víst að missa það.
ST. FRANCIS HÆLI FYRIR MUNAÐARLAUSA
Ég vildi að þú værir hér, bróðir.
Hér er heill heimur sem þú hefur ekki séð,
en þú munt sjá hann. Ég lofa því.
Halló, stráksi. Hvað tafði þig?
Hvenær leggjum við í hann?
Það verður haldið uppboð.
No comments yet. Be the first to leave one.