Las primeras 200 líneas.
Við upphaf 21. aldar urðu hvörf í þróun mannkyns.
Náttúrulegt úrval sem leiddi til að sterkasta,
vitrasta og hraðasta fólkið fjölgaði sér meira en aðrir,
ferli sem einu sinni hafði ræktað fram göfgustu eiginleika manna
fór nú að laða fram aðra eiginleika.
Joey Buttafuoco... -Flestar framtíðarsögur samtímans
spáðu framtíð sem væri siðmenntaðri og gáfaðri.
En með tímanum virtist allt stefna í öfuga átt,
heimsku. Hvernig gerðist það?
FRAMTÍÐARBÆR
Framþróun launar ekki endilega gáfur.
Þegar engin rándýr voru til að vinsa úr hjörðinni
fór framþróun einfaldlega að umbuna þeim sem fjölguðu sér mest
og þau gáfuðu urðu tegund í útrýmingarhættu.
TILVIKSSKOÐUN: TREVOR & CAROL GEGN CLEVON
Að eignast börn er svo mikilvæg ákvörðun.
Trevor: gáfnastig 138 Carol: gáfnastig 141
Við bíðum rétts tíma.
Auðvitað er það ekkert sem maður kastar sér út í.
Alls ekki.
Ó, fjandinn, ég er aftur ólétt. -Skollinn, ég á of marga krakka.
Clevon: gáfnastig 84
Ég hélt þú værir á pillunni eða eitthvað.
Fjandinn, nei. -Skollinn, ég hef átt við Brittany.
Brittany? Nei, þú gerðir það ekki...?
5 árum síðar
Við getum alls ekki átt barn núna.
Ekki eins og markaðurinn er, nei. -Nei, það væri ekki vit í því.
Komdu hingað, tæfa. Honum er sama um þig.
Já, eitthvað líkar honum hérna.
Hún skiptir mig engu, ljúfan. -Clevon!
Ó, fjandinn, það var ekki ég. -Skíthællinn þinn.
5 árum síðar
Við höfum loksins ákveðið að eiga börn
og ég ásaka engan, en það gengur ekki vel.
Og stoðar þetta?
Ég segi bara að áður en ég ákveð að fara í glasagetnað, ættir þú...
Það er alltaf ég, ekki satt?
Það er ekki sæðistal mitt.
Já, ég ætla að ríða ykkur öllum.
Clevon yngri: gáfnastig 78
Gott, sonur.
5 árum síðar
Clevon er heppinn að vera á lífi.
Hann reyndi að fara á þotuskíði frá stöðuvatni í sundlaug
og fékk járnstöng í klofið.
En vegna framfara í stofnfrumurannsóknum
og góðs starfs læknanna Krinski og Altschuler
ætti Clevon að ná aftur fullri getnaðarhæfni.
Lúkurnar af mínu dóti.
5 árum síðar
Því miður lést Trevor af hjartaslagi
við sjálfsfróun til að ná út sæði til gervifrjóvgunar.
En ég á nokkur frosin egg
svo um leið og sá rétti birtist, veistu...
ÆTTARTRÉ
Og þannig hélt það áfram kynslóðum saman, þótt fáir eða engir tækju eftir.
En á árinu 2005, á herstöð rétt utan við Washington, D.C
var óbreyttur bókavörður hersins,
óafvitandi, um það bil að breyta mannkynssögunni.
Áfram, skíthæll. Svona, farðu með hann í fangelsi.
Heyrðu, Bauers.
Þetta er Peterson, afleysingamaður. -Afleysingamaður? Á að leysa mig af?
Já, var þér ekki sagt það? -Nei.
Eitthvert nýtt verkefni. Það er allt mjög leynilegt og skrítið.
Ég vil ekki nýtt verkefni. Ég er alltaf að segja Metsler það.
Ég er góður í þessu. -Góður í hverju? Að sitja á rassinum?
Enginn kemur nokkurn tíma hingað.
Mér finnst það frábært. Enginn truflar mig, mér getur ekki mistekist.
Geti ég verið hér átta ár enn, kemst ég á eftirlaun.
Ég er á réttri hillu.
Geturðu ekki losað mig við þetta? -Nei, alls ekki í þetta sinn.
Það kemur frá hæstu stöðum. -Jesús, ég skil þetta ekki.
Hví ég? Hvenær sem Metsler segir: "Leiðbeindu, fylgdu eða farðu frá",
þá fer ég frá.
Þegar hann segir það, áttu ekki að velja "að fara frá."
Þú átt að skammast þín til að leiðbeina eða að minnsta kosti fylgja.
Það fær mig ekki til að skammast mín.
Heyrðu, Jói, þú átt ekkert val. Þú átt bara að fylgja.
Sem sagt fylgja mér upp, núna.
Nú þegar? Ætti ég ekki að þjálfa hann?
Hann kann að sitja á rassinum og horfa á sjónvarp allan daginn.
Af stað.
Herrar mínir, þetta er Jói Bauers.
Fyrsti þátttakandi í manndvala.
Eins og þið vitið, hafa árum saman
margir bestu hermanna okkar og herstjóra
oft gegnt allri sinni herþjónustu án þess að lenda í orrustu.
Með Manndvalaáætluninni getum við geymt okkar bestu menn
frysta á besta aldri, til að nota þegar þeirra verður mest þörf.
Jói hér er ekki einn okkar bestu.
Hr. Bauers var valinn einkum vegna þess hve ótrúlegt meðalmenni hann er.
Einstakt meðalmenni á öllum sviðum.
GREINDARVÍSITALA BLÓÐÞRÝSTINGUR
Alveg furðulegt.
Mesta meðalmenni í gervöllum hernum.
Þar að auki á hann enga fjölskyldu, er ókvæntur og einkabarn,
og báðir foreldrar látnir, svo hann er tilvalinn,
enginn kemur með óþægilegar spurningar, fari eitthvað úrskeiðis.
Okkur gekk ekki eins vel
að finna kvenveru við hæfi í röðum okkar
og neyddumst til að leita í einkageirann.
Þetta er Rita. Eins og Jói, er hún án nánustu fjölskyldu.
Rita samþykkti að taka þátt í þessari tilraun
gegn smágreiðslu og að fallið yrði frá vissum afbrotaákærum.
Við urðum hinsvegar að semja við melludólginn hennar,
mann sem gengur undir nafninu Magnaður, þannig stafað af honum.
M-A-G-N-A-Ð-U-R-R
Með tveimur R-um, eins og hann segir: "Fyrir tvöfaldan skammt mansals."
Magnaður féllst á að lána okkur Ritu í nákvæmlega eitt ár
og þegja yfir því gegn vissri tilhliðrun
borgaryfirvalda gagnvart starfi hans.
En fyrst var það erfiða verkefni að ávinna sér traust hans.
Collins, gætum við hlaupið yfir þessi tækniatriði?
Vissulega, leyfðu mér bara að ljúka.
Sjáið þið, ást dólgs er mjög ólík ást venjulegs...
Collins!
Gott. Við höldum áfram.
Þetta er samt heillandi heimur.
Jesús, Collins.
Já, það er...
H.H.E.Dvalakistur LEYNILEGT
Alla vega, tilraunin, þar sem þessi tvö verða
í þurrfrosti í nákvæmlega eitt ár, frá og með morgundeginum.
Eins og þið vitið er þetta háleynilegt.
En takist þetta, teljum við að fólk megi geyma ótiltekinn tíma.
Þetta er hálftruflað, ekki satt?
Í hvaða herdeild ert þú?
Ó, ég er ekki í hernum. -Ó, í einkageiranum. Ég skil.
Hvað fæstu við?
Svona sitt af hverju. -Það er stórkostlegt.
Ég öfunda fólk sem getur lifað af slíku.
Að gera bara sitt af hverju.
Granni minn Glen gerði höggmyndir með keðjusög
og seldi svo á flóamarkaðinum.
Já.
Ertu þá listamaður eða hvað? -Já.
Gerirðu málverk eða...? -Já, málverk.
Ó, fínt.
Hvað málarðu helst?
Ég veit ekki. Bara fólk og ávexti og drasl.
Það hlýtur að vera fínt að geta lifað af að gera það sem manni líkar.
Það er nú ekki eins og af er látið.
Jæja, hver vill fara fyrst? -Ég.
Hver fj...? Nei, andskotinn.
Nei, þetta viltu naumast, með leiðslur í æð og allt.
Hvað er að? -Magnaður sagði mér ekki
að ég yrði sett í líkkistu með leiðslum og öllum fjandanum.
Nei, nei, hafðu ekki áhyggjur. Það er öruggt, treystu því.
Bíddu, hver er Magnaður? -Hann er kærasti minn.
Hvernig veistu að þessi fjandi er öruggur?
Þeir vita hvað þeir gera. Engar áhyggjur.
Þeir hafa prófað þetta á hundum og allt.
Lyfin svæfa okkur,
við vöknum eftir ár, þú ferð aftur að mála. Allt í lagi.
Allt í lagi. -Magnaður, sérstætt nafn.
Er hann hollenskur?
Því ég þekkti hollenskan skiptinema.
Hann hét Magnús.
Jæja, skepnurnar, við erum næstum tilbúin. Leggist nú útaf.
Slakið á.
Sjáumst eftir ár.
Manndvalaáætlunin
var ein metnaðarfyllsta tilraun hersins
og ein hin leynilegasta.
HÁLEYNILEGT
En hún var ekki óháð mistökum manna.
Frost.
Herforingi handtekinn við tilraun til vændisreksturs!
Magnaður fær "Tvöfaldan skammt" fangavistar
Skömmu eftir handtöku Collins
og ógurlegt hneykslið sem af henni leiddi, var herstöðinni lokað.
Ekki var einu sinni ár liðið og öll áætlunin gleymdist einfaldlega.
HÉR BYGGJA RISABORGARAR
Illa leit þetta út fyrir Jóa, en verra fyrir mannkynið.
Meðan Jói og Rita lágu í dvala, liðu árin
og mannkynið varð æ heimskara með ógnvænlegum hraða.
MEÐALGREIND
RISABORGARAR
SPARKRASSAR
Sumir bundu miklar vonir um að stjórn erfðaeiginleika
RASSRIÐLAR
myndi leiðrétta þessa þróunarhneigð.
En því miður var mestum hugsuðum og fjárveitingum
beint gegn hárlosi og að lengja stinningu.
Á meðan varð fólksfjölgunarsprenging og greind hnignaði áfram
uns mannkynið gat ekki lengur einu sinni leyst grundvallarvandamál.
Eins og sorp, sem hafði öldum saman verið hlaðið upp skipulagslaust
en það leiddi til sorpskriðunnar miklu árið 2505
sem kom af stað atburðum sem breyttu heiminum að eilífu.
Andartak. - Næst, á Ofbeldisrásinni:
Alveg nýtt Æ! Pungurinn á mér!
Fyndið.
ÞÍÐA
Gaurinn fékk það í punginn.
Pungurinn á mér.
Mamma?
Hvar er...? -Bíddu. Þegiðu.
Hvar er Collins foringi? -Þegiðu.
Næstu viku í Æ! Pungurinn á mér! , Hormel fer til Parísar.
No comments yet. Be the first to leave one.