Las primeras 200 líneas.
MOSKVU, 1985
Já? - Það komst upp um þig.
Farðu beint í sendiráðið. - Allt í lagi.
Hvað er þetta? Hvað er á seyði?
Fröken, komdu með okkur.
Komdu með okkur. - Nei, bíðið aðeins.
Góðan daginn. Hvar er Robert?
Hættu þessu. Stöðvum hann.
Komdu með okkur.
Ég er að þýða. - Stattu á fætur.
Ég er að þýða. Hvað gengur á?
Sýndu mér skilríkin þín.
Ég er bandarískur ríkisborgari.
Er eitthvert vandamál?
Komdu með mér.
Frú. - Hringdu í Hartman sendiherra.
Þetta er kóði 13. - Hvað segirðu?
Ég er diplómati. Hringdu strax í hann.
Bíddu hérna.
Ég vil að þú færir þínu fólki skilaboð.
Geturðu gert það fyrir mig?
Þakka þér fyrir.
LEYNIÞJÓNUSTA BANDARÍKJANNA
Andskotinn.
5 ÁRUM SÍÐAR
MOSKVU, 1990
Ég hef bara fundið þrjár.
En ég á eftir að leita á einum stað, á markaðnum.
Ég hitti mann á klúbbnum í gær sem gaf mér ábendingu.
Einn af glaumgosum bæjarins.
Guð má vita hvað bíður mín en það er á leiðinni á flugvöllinn.
Já, auðvitað. Bless.
Gættu að því hvar þú gengur.
Fyrirgefðu. Hvað má bjóða þér?
Ég tala ekki rússnesku. Talarðu ensku?
Ensku, kínversku, frönsku, japönsku, hvað sem þú vilt.
Hvað líst þér á?
Mér líst best á þig.
Ég leita að stúlkum fyrir módelskrifstofu í París.
Ég finn stjörnur morgundagsins. Viltu verða fyrirsæta í París?
Ég hef nóg að gera hérna. - Að selja dúkkur?
Nei, ég er í háskóla að læra líffræði.
Þú getur haldið því áfram. Margar stúlkurnar eru í námi.
Ég veit ekkert um fyrirsætustörf. - Þú hlýtur að vera fljót að læra.
Við sjáum um allt saman.
Þjálfun, húsnæði, landvistarleyfi og pappíra.
Hvað heitirðu? - Anna.
Anna, gætirðu tekið slæðuna niður svo að ég sjái hárið á þér?
Stórfenglegt.
Sæl og velkomin. Get ég aðstoðað?
Já. - Anna.
Velkomin til Parísar, á nýja heimilið þitt.
Hvernig líður þér? - Vel.
Ég skal taka þetta. Þetta er umboðsskrifstofan.
Hvernig var flugið? - Æðislegt.
Það er gott að heyra. Ég skal kynna þig fyrir öllum.
Dorothée sér um að bóka verkefni. Sú besta í bransanum.
Ég hringi seinna. Komdu sæl.
Tveir kossar í Frakklandi. Ég sendi út myndir af þér.
Allir tapa sér yfir þér. Hinar stelpurnar eru afbrýðisamar.
Gjörðu svo vel. - Takk.
Við erum með nokkrar Önnur svo að þú verður Anna M.
Það þýðir ást á frönsku. Skál.
Er nýja stjarnan mætt og enginn lætur mig vita?
John McKee, stjórinn. - Ánægjulegt að sjá þig.
Mér skilst að Dorothée ætli að sjá um þig.
Ég veit ekki hvor ykkar er heppnari.
Það er ég. - Allt í lagi.
Viltu sjá íbúðina þína? - Endilega.
Velkomin á nýja heimilið.
Ekki týna lyklunum. Þeir eru rándýrir.
Byrjum á mikilvægasta herberginu, eldhúsinu.
Þar er hin fræga Inge. - Inge sem er pirruð.
Guði sé lof að Inge heldur öllu hreinu.
Hérna er borðstofan og loks stofan með Petru og Soniu.
Halló.
Takk, Inge. - Éttu skít, Inge.
Þær eru fyndnar..
Þessar búa ekki hérna. Þær eru á leið til Tókýó.
Herbergið þitt er hérna.
Æ, röng Anna. Það eru svo margar Önnur hjá okkur.
Hvað? Ég hringi á eftir.
Skápar, skápar, skápar. Þetta er Renata.
Halló. - Hæ.
Herbergið þitt og baðherbergið þitt.
Þetta er Maude. - Sæl.
Sæl.
Anna.
Ef þig vantar eitthvað
veistu hvar ég er.
Þakka þér fyrir.
Ég skal sýna þér herbergið þitt.
Ta-da!
Ekki það sem þú bjóst við en þegar þú færð meira að gera
getum við flutt þig í eigin íbúð.
Fjörið byrjar á settinu.
Farðu þangað á morgun. Fyrsta ljósmyndatakan.
Þarf ég ekki að læra þetta? - Reynslan skiptir öllu.
Mario Conti er einn sá besti.
Þú ert í góðum höndum. Verð að fara.
Slökkvið á helvítis tónlistinni. Þetta er enginn næturklúbbur.
Ég hef aldrei séð svona skærhvítan lit.
Eruð þið að reyna að brenna sjónhimnurnar? Lagið þetta..
Afsakaðu, herra.
Velkomin á miðjan aldur.
Guð minn góður, fyrirgefið hvað ég er sein, stelpur.
Ég þurfti að taka jarðlestina. Ég fann hvergi leigubíl.
Hvað segirðu, elskan?
Guð, hvað er þetta? - Ekki neitt.
Ég var ung og vitlaus.
Hver var það ekki?
Finnið eitthvað. Heyrðu, Katrín mikla.
Klæddu þig í þetta.
Hættið að maka drasli á andlitið á henni.
Það var lagið. Þetta kalla ég almennilega tónlist.
Allir úr rammanum mínum.
Burt með ykkur öll. Allt í lagi?
Er þetta komið?
Líttu til mín.
Svo skaltu brosa. Slakaðu á og brostu.
Áfram. Snúðu þér.
Þetta er leiðinlegt. Snúðu þér.
Kyrr. Allt í lagi. Settu brjóstin fram.
Framar með brjóstin. Allt í lagi.
Meiri tilfinningu. Þetta er frábært.
Já. Allt í lagi.
Já.
Já, vertu klikkuð.
Sæl, Anna. - Sæl, Renata.
Hvað eruð þið að gera inni hjá mér?
Þú fékkst stærsta rúmið. - Mitt er of lítið.
Vertu með okkur. - Nei, takk.
Þetta verður bara í nótt.
Færðu þig. Hættu þessu.
Gjörðu svo vel.
Oleg, vinur minn. Gott að þú komst.
John.
Hvaðan kemurðu í þetta sinn?
Héðan og þaðan.
Alþjóðlegi dularfulli maðurinn. Komdu hingað.
Við fundum glæsilegar nýjar stelpur.
Þetta er Milena, sú brasilíska sem við stálum frá Elite.
Suðuramerísk gullnáma.
Hver er þetta, þarna? - Anna M.
Nýkomin frá Moskvu. Á ég að kynna þig?
Ég er með of mikla flugþreytu. - Nei, komdu.
Falska hógværðin virkar ekki. Þú ert meðeigandi.
Komdu og heilsaðu nýjasta starfsmanninum.
Ég skal færa þér eitthvað. - Takk.
Anna, leyfðu mér að kynna Oleg Filenkov.
Hann er landi þinn og meðeigandi í fyrirtækinu.
Komdu sæll. - Minniháttar meðeigandi.
Ég leyfi ykkur að ræða málin og spjalla um föðurlandið.
Skál. - Skál.
Þetta er brjálað partí. Býrð þú í París?
Ég á íbúð í London en bý í Sankti Pétursborg.
Til Evrópu á veturna.
Það er engin borg fallegri á vorin.
Ég held partí á hverju ári til að fagna komu vorsins.
Það yrði mér sannur heiður ef þú gætir komið.
En það er september núna.
Þú verður fljótt fullbókuð og ég vil ná þér strax.
Já, ég hef nóg að gera hérna. Þetta gerist allt svo hratt.
Ef ég byði þér út að borða
væri það of hratt?
Nei, nei. - Hvað er að?
Ekki neitt. Þetta er bara of snemmt.
Mætti ég fá meira kampavín?
Auðvitað, en Anna... Það eru liðnir tveir mánuðir.
Við hittumst næstum daglega og það hefur verið yndislegt.
En þú kyssir mig og ferð svo frá mér.
Svo kyssirðu mig aftur. Er ég bara leikfang?
Nei, auðvitað ekki. Það er bara...
Mér þykir leitt að segja það
en ég vil ekki vera ein af þeim sem þú kastar svo frá þér.
Ég býð þér á alla viðburði og í öll kvöldverðarboð.
Þú fylgir mér út á hverju kvöldi
og ég monta mig af þér fyrir framan alla í París.
Hvað meira get ég sagt til að sannfæra þig?
Takk. Ég veit það ekki.
Kannski geturðu sagt mér eitthvað um sjálfan þig.
Hvað áttu við?
Hvernig er starfið þitt? Hvað gerir þú?
Ég óttast að þú sért njósnari eða eitthvað.
Elskan, þetta er innflutningur og útflutningur. Hundleiðinlegt.
Annað slagið fer ég kannski aðeins yfir löglegu línuna.
Hvað áttu við?
Það hefur verið sett viðskiptabann á fjölda landa í heiminum.
Hver tapar mest á því? Þjóðarleiðtogarnir? Aldrei.
Almennir borgarar þjást mest og ég reyni að hjálpa þeim.
Hvernig? - Fólk þarf að fá matvæli.
Lyf, olíu og hráefni. Ég útvega það allt saman.
Matvæli og lyf?
Og vopn annað slagið.
Síðan hvenær teljast vopn vera hráefni?
Ef þau eru notuð til að verja frelsið.
Eru mörg lönd sem þú hjálpar svona?
Sýrland.
Líbýa og Sómalía.
Hættu, ég vil ekki vita meira. - Tsjetsjenía.
No comments yet. Be the first to leave one.