La unuaj 200 linioj.
Flórída-háskólinn í Gainesville
- Áfram, áfram, áfram! - Áfram, áfram!
Já! Já!
Guð minn góður!
Ekki gráta.
Aldrei láta þær sjá þig gráta, Haley.
Þú vinnur næst.
Er það ekki? Hvað ertu?
Ha? Hvað ertu?
Ég er topprándýrið.
Já, þú ert það.
Topprándýrið, allan daginn.
Hæ, hvað segirðu?
Er allt í lagi? Ég hef hringt í allan morgun.
Fyrirgefðu, seint í rúmið og snemma á æfingu.
Ertu á æfingu, í miðjum fellibyl?
Rúm milljón manna neyðist til að yfirgefa heimili sín.
Hann átti að fara fram hjá.
Færðu ekki viðvaranir í símann? Þið lendið illa í þessu.
- Louie minn... - Hæ, vinur. Sjá þig.
Hæ. Hæ.
Hvað með það, Haley, heyrðu. Hefurðu heyrt frá pabba?
Nei, hvers vegna?
Hann svarar ekki í símann.
- Hann hefur líka vakað fram eftir. - Ég verð að vita hvort hann er óhultur.
Þeir hafa þegar rýmt alla suðurströndina.
Kannski er hann farinn.
Eða að gera eitthvað heimskulegt eins og að þrauka þetta.
Þú þekkir hann.
Hvað sagði mamma?
Mamma er í París.
Já, með draumaprinsinum?
Ekki láta svona.
Pabbi hefði átt að vera búinn að svara mér, eins og vanalega.
Ég skal koma við hjá honum.
- Ertu klikkuð? - 75 Suður verður Auður.
Ég get verið komin eftir tvo tíma.
Ekki vera bæði þarna í 5. stigs fellibyl.
Hvers vegna hringdirðu?
Því ég hélt, að þú hefðir heyrt frá honum.
Ég hef ekkert heyrt.
Ekki lengi.
- Voruð þið að rífast aftur? - Hann rífst við mig.
Þið eruð nákvæmlega eins.
Já, og þú ert líkari mömmu.
Samúðarfull úr öruggri fjarlægð.
Jæja, gleymdu þessu.
- Beth, ég verð að fara. - Farðu varlega.
Sendu skilaboð ef þú heyrir eitthvað.
- Ég elska þig. - Sömuleiðis.
- Bless. - Bless, dúllan mín.
...kannski 241 kílómetri á klukkustund.
Þetta er fáránlegt. Það getur ekki verið.
Er það fyndið? Hlustaðu á þetta.
Láttu það koma.
Lögreglan í Pasco-sýslu hefur varað
fólki við að skjóta á fellibylinn.
Er bannað að skjóta fellibyl?
Það er hættulegt!
Flórída er stattu á þínu ríki, eftir allt.
Hvort það er! Þess vegna er ég hér.
KRÓKÓDÍLABÚGARÐUR
Hringi í Pabba
Þú hefur náð samband við Dave Keller, hjá Dave Keller byggingaverktökum.
Ég er líklega uppi í stiga. Vinsamlegast lesið inn skilaboð.
Pabbi, þetta er Haley. Hringdu aftur.
Beth hefur áhyggjur af þér.
Allt í lagi.
Þvílíkt skítaveður.
Ég sver það, ef þú ert farinn...
Hægan, hægan. Hægðu á þér. Hægðu á þér, hægðu á þér.
Fyrirgefðu, fröken. Við getum ekki hleypt...
Haley. Hvað segirðu?
Sæll, Wayne.
Hvernig gengur?
Ég hef átt betri daga. Rýmingaráætlunin ærir alla.
Þessi reyndi að komast fram hjá.
Ekkert fellibyljapartí í ár?
Ég held ekki.
Hvað segir systir þín?
Pabbi þinn sagði að hún byggi í Boston.
Já, allt gott að frétta.
Hún bað mig um að líta við hjá honum.
Ég get ekki leyft þér það.
Stormurinn hefur snúist til vesturs og stefnir hingað.
- Við hleypum engum í gegn. - Gerðu það, Wayne.
Hann svarar ekki í símann.
Ég þekki vegina hérna og verð eldsnögg inn og út, ég lofa því.
Mér þykir það leitt, Haley. Ég vildi geta hjálpað þér en...
Ég get það ekki. Þú mátt ekki fara þér að voða.
Allt í lagi, ég skil.
Gætirðu litið við hjá honum ef þú hefur tíma?
- Ég skal reyna það. - Takk.
Aktu varlega.
Skilaðu kveðju til systur þinnar.
- Geri það. - Allt í lagi.
Snúðu við.
Skítt með það.
Heyrðu! Heyrðu! Heyrðu! Stoppaðu!
Allir vegir framundan eru lokaðir.
Svaraðu.
Stopp!
Augnablik. Kyrr þarna.
Fellibylurinn Wendy fer beint yfir ríkið okkar.
Við hvetjum alla íbúa að hlusta á allar opinberar tilkynningar.
Ef þið eruð á rýmingarsvæði verðið þið að forða ykkur strax.
Þið getið ekki biðið.
Við... Við getum ekki komið ykkur til bjargar.
Vonandi hugsa allir foreldrar í ríkinu,
"Hvernig tryggi ég öryggi fjölskyldu minnar?"
VEGUR LOKAÐUR VEGUR Á KAFI
Pabbi?
Pabbi?
Pabbi!
Hæ. Halló, Sugar.
Hæ, stelpa.
Hvar er pabbi?
Ég hef saknað þín.
Hvar er pabbi? Hvar er hann?
Ég finn ekki pabba en Sugar er hérna. Hann hefði ekki farið án hennar.
Þetta er eins og draugabær. Allir eru farnir.
Gerðu það, komdu þér í öruggt skjól,
þótt þú þurfir að leita í neyðarskýli.
Gæti hann hafa farið í gamla húsið?
Nei, það hefur verið í vörslu síðan þau skildu.
Hér er allt fullt af myndum af okkur tveimur og mömmu.
Íbúðin er hræðileg. Þetta er niðurdrepandi.
Ekki liggja þeim á hálsi fyrir þetta. Það var sameiginleg ákvörðun.
Ég ætla að kíkja í húsið.
Ekki dirfast. Ég vil ekki...
Ég rakst á Wayne, fyrrverandi kærastann þinn.
Hann var ekki kærastinn minn.
Hvað sem þú segir.
Ég man þegar pabbi gekk inn á ykkur tvö.
Hvernig geturðu munað það? Þú varst bara...
Ég var 8 ára.
- Je minn. - Sködduð fyrir lífstíð.
Ég fæ aldrei að gleyma þessu.
Aldrei nokkurn tíma.
Ekki þennan svip.
Ég ætlaði að koma oftar í heimsókn en bara... Það er nóg að gera.
Ég reyni að lifa mínu eigin lífi, þú skilur.
Ég dýrka að koma á fenjasvæðið.
Hiti, raki,
og mývargur.
Gæti það verið verra?
Þú ert undantekningin.
Litla loðkrúttið mitt.
Guði sé lof.
Komin að húsinu. Fann bílinn hans.
Komdu, Sugar.
Í VÖRSLU TIL SÖLU HJÁ EIGANDA
Pabbi!
Halló?
Ertu hérna, pabbi?
Pabbi?
Marco! Polo! Einhver?
Pabbi!
Pabbi!
Hvar er hann, stelpa?
Svaraðu.
6 ósvöruð símtöl frá Haley 25 ósvöruð símtöl frá Beth
NEYÐARTILKYNNING Viðvörun um stórhættu
Rafhlaða að tæmast
Fjandinn.
Je, minn eini.
Sugar? Hvað er að, stelpa?
Fjárinn.
Er hann þarna? Heyrirðu í honum? Pabbi?
Pabbi? Pabbi!
Verð ég ekki að fara niður?
Allt í lagi.
Allt í lagi.
Allt í góðu.
Kapalgaurarnir gera það reglulega.
Pabbi?
Bíddu hérna.
Guð minn góður.
Pabbi?
Fjandinn.
Pabbi!
Ég sver það, pabbi.
Enginn annar en þú kæmi hingað niður í fellibyl.
Hart og hátt. Besta harða og þunga tónlist í Flórída.
Hart Rokk Útvarp 98,5.
Besta harðarokkstöðin í Flórída.
Pabbi!
Pabbi!
Pabbi. Nei.
Fjandinn.
Fjandinn.
Fjandinn. Pabbi.
Pabbi.
Þú andar. Allt í lagi.
Hvað gerðist? Pabbi?
Guð minn góður.
Allt í lagi.
Ég verð að koma þér á spítala undir eins.
Allt í lagi.
Andskotinn.
No comments yet. Be the first to leave one.