Planes

Planes

Elŝuti Icelandic Subtekston

Eldonaj informoj

Planes 2013 WEB-DL DSNP
Komentaĵo de ChristopherCavco
Íslenska

Etikedoj

Web-DL
web-dl
web
WEB-DL
Publikigita je: 2021-07-03
Elŝutoj: 19
Aŭdhandikapuloj: No

Antaŭrigardo de Icelandic subtekstoj

La unuaj 200 linioj.

Vel á verði. Viðfangið virðist stefna í 500 km.

Hraði 690, Englar. Um það bil 2.000.

HEIMUR BÍLANNA

FLUGVÉLAR

Hvað tefur hann? Er hann eins góður og sagt er?

Nei, betri.

Ó, já.

Hver var þetta?

Sælar, dömur. Tilbúnar að tapa?

Síðasti að turninum splæsir í eldsneyti.

Ég skal gefa ykkur forskot.

Þið þarfnist þess.

Sjáumst, auli.

Ein sekúnda, tvær sekúndur... Þetta er nóg.

Sjáumst, bjálfar.

Étið...

Dusty!

Vertu vakandi. Þú ert með dagdrauma.

Ég? Nei, nei.

Jú, kannski. En ekki láta svona, Loðmundur.

Hversu erfitt er þetta?

Fljúga beint, beygja. Beint, beygja.

Ertu að gera lítið úr áburðardreifingarvísindum?

Ég er meira en áburðarvél.

Ekki fara að bulla

um heimskuvængjarallið enn eina ferðina.

Fyrirgefðu, þetta kallast Heimsvængjarallið.

Í Þristanna bænum.

Þetta er ekkert bull, ég tek skarpar beygjur

og er með öfluga vél.

-Þú ert með meira. -Hvað?

Lausa skrúfu.

Hver vill hætta áburðardreifingu?

Heiður himinn, engin flugumferð og sterkur ilmur af Vítamín-moltu.

Alveg eins og mamma dreifði.

Ljúffengt.

Þeir segja að lyktarskynið fari fyrst.

Finnurðu lyktina?

Vinnudeginum er lokið.

Áburðarvél sem vill verða keppnisvél.

Keppnisvélar ættu að vilja verða áburðarvélar.

Ég á Vítamín-moltu, já! Vítamín-moltu

Velkomin til PROPWASH JUNCTION

Nú er unnið eldsneyti úr soja- baunum, hirsi og þörungum.

Hollusta. Nei, takk.

-Hvað næst, pistasíuprópan? -Ertu klikk?

Ekkert jafnast á við gamla góða maíseldsneytið.

-Ekki spurning. -Ég samdi slagorð.

Slagorð eru góð.

Þú fretast áfram á maísnum.

Grípandi. Þetta líkar mér.

Mér líka. Þú ert klár, Sindri.

-Sjáumst, Torfi. -Auðvitað.

Dusty Crophopper kallar á Torfa.

Torfi er ekki hérna. Notaðu nýja kallmerkið.

Strut Jetstream kallar á Turbo Coach Truck-zilla.

Tilbúinn í æfingu?

Heldur betur, Strut.

Ungi ræfill.

Ég sé þig, vinur.

Byrjum á maísakrasprettum. Gefðu mér tuttugu.

Haltu áfram, félagi.

-Flott beygja. -Hvað næst?

Prófum trjátoppasvigið.

Já!

Alveg upp og niður.

Ekkert slór. Svona á að gera það. Þú ert flottur.

Stilltu hallann með Höllu-stýri.

Áttu við hallastýrið?

Ó, já.

Frábært.

Olíulagnirnar og olíukælingin er í lagi.

-AN-8 tengihlutarnir í lagi. -Flott.

Bíddu hægur.

-Þú hefur eytt aðalolíuþéttinum. -Í alvöru?

Þú eyðir honum með því að fljúga allt of hratt.

Á langvarandi flugi með allt í botni.

-Það er óskynsamlegt. -Þú gerir það ekki.

Þú ert áburðarvél sem dreifir bara áburði

-og flýgur mjög hægt. -Hægt og lágt.

Nema þú hafir verið í ralli aftur.

Ég? Alls ekki.

Þú varst í banastuði. Eldflaugar hefðu ekki náð þér.

Rosalegt.

Við erum að tala um ljóshraða hérna.

Þú ferð létt með úrtökumótið um helgina.

Shelby.

Ég veit ekki.

Þú ert ekki gerður fyrir kappflug.

Þú ert gerður fyrir áburðardreifingu.

Veistu hvað gerist ef þú reynir of mikið á þig?

Vængjaflökt, málmtæring og túrbínubilun.

Túrbínubilun?

Nei, ég brotlendi.

-Því hlustaði ég ekki á Drífu? -Því hlustarðu ekki á Drífu?

Hún er heimsins besti flugvirki.

-Jesús minn. -Hvað?

-Munaðarleysingjahælið. -Ekki það.

Búmm.

Börnin.

Þetta var ljóslifandi og nákvæm lýsing.

Þess vegna verður þú að koma með okkur á úrtökumótið.

Þú ert ótrúlegur.

Heyrðirðu þetta? Ég er ótrúlegur.

Munaðarleysingjarnir.

Hálfur mánuður þar til Heimsvængjarallið hefst.

Ég held að við eigum góða möguleika, vinur.

Sérstaklega ef ég klára bókina.

Kappflug fyrir aula

Frábær þáttur.

Tíu bestu brotlendingarnar.

-Ekki gott. -Hvernig er þetta hægt?

Hann réttir þetta ekki.

Þetta nær kannski ekki yfir allt sem gæti komið fyrir þig.

-Hvað áttu við? -Ég veit það ekki.

Ég velti fyrir mér hvort við þurfum ekki aðstoð.

Aðstoð frá hverjum?

Til dæmis Skjöldur.

Gömlu Corsair-vélinni í skýlinu?

-Já, hann er stríðshetja. -Hann er gamall fauskur.

Sindri segir að Skjöldur

hafi verið frægur flugkennari í flotanum.

Hann veit ýmislegt.

Hann hefur ekki flogið lengi.

Til hvers að láta ófleyga vél þjálfa mig?

Hann er þó flugvél.

Besta brotlending sögunnar...

Ja, hérna.

Ég er ómeiddur.

Þetta hlýtur að vera sárt.

Hann skaut víst fimmtíu vélar niður.

Ég hef heyrt sögur um deild hans, Jolly Wrenches.

Hörðustu og öflugustu flugvélarnar í flotanum.

Miskunnarlausir morðingjar.

-Bíddu... -Miskunnarlausir.

Þeir skutu þig niður um leið.

Vonandi hefurðu rétt fyrir þér.

Torfi!

Ég bíð hérna.

Sæll, Skjöldur.

Ég ætla að reyna að komast í Heimsvængjarallið.

Ég veit að þú getur ekki flogið lengur

en þú veist hvað þeir segja: Þeir sem ekki geta... kenna.

Þannig að...

Ég á við að þú ert ekki trukkur.

Viltu kannski þjálfa mig?

Þú ert að ná til hans.

Ég heyrði að þú hefðir skotið 50 vélar niður.

Viltu verða vél númer 51?

Nei.

Nei, bíddu.

Töggurinn í mér og reynslan þín geta...

Töggurinn í þér endar sem fitublettur á flugbraut.

Farðu heim. Þetta er þér ofviða, stráksi.

Þú flaugst lengi...

Prófum bakdyrnar.

Lincoln í Nebraska 40° 48' N, LENGD: 96° 40' V

Halló, Lincoln. Sæll, Dusty.

Hvernig tókst þér að tala mig til?

Ekkert svona, Drífa.

Ég trúi þessu ekki. P-51 Rauðstél.

Þarna er Sea Fury.

Sjáið þetta.

Ja, hérna.

Dömur og herravélar. Takið nú vel eftir.

Snúið framrúðunni til himins

og takið vel á móti sérstökum gesti okkar.

Skrúfuprinsinum. Með forystu í hverri orustu.

Náið betri hliðinni.

Með bros á vör á hæstu skör.

Hinni eini og sanni...

Ripslinger.

Þið eruð föst í útsoginu.

Takk fyrir að koma. Hver vill fá mynd?

Hann er hógvær þrátt fyrir sjálfshólið.

Drífa, þetta er Ripslinger.

Fyrirliði RPX-teymisins. Hann er kallaður...

Græni hvirfilbylurinn.

Hann er svo góður að hann fær sjálfkrafa keppnisrétt.

Þessir heita Nói og Saxi.

Túrbótvíburarnir.

Heimsklassavélar.

Þeir fæddust sem ein vél en voru aðskildir við fæðingu.

Ég vildi að ég hefði verið aðskilinn við fæðingu.

Jæja, gott fólk.

Þetta er síðasta af fjórum tímatökum í heiminum.

Braut dagsins er einn hringur í kringum keilurnar.

Efstu fimm komast áfram

og vinna sér inn keppnisrétt í Heimsvængjarallinu.

Við byrjum á Fonzarelli.

Þetta var ógeðslegt.

Hann flýgur í gegnum rásmarkið.

Þeir fljúga láréttir á milli bláu keilnanna

og á hlið á milli rauðu keilnanna.

Hann er að koma aftur að þriðja hliði!

Vel gert, maður.

Hann fer ansi hátt á milli bláu keilnanna.

Tilbúinn í fjarkann.

Kröpp 270 gráða hægri beygja! Ó, já!

Alla leið.

Komentoj

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left